Morgunblaðið - 15.03.1987, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. MARZ 1987
39
Stjörnu-
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
„Ég undirrituð skrifaði þér
fyrir löngu og langaði til að
fá svar um Bogmannsmerkið,
þ.e.a.s. um minn fæðingardag
sem er 24.11. 1945 kl. 3. e.m.
Eins þætti mér forvitnilegt
að fá að vita hvemig maður
sem fæddur er þann 7.11.
1936 ætti við þá gömlu! Virð-
ingarfyllst og með kveðju."
Svar:
Þú hefur Sól og Merkúr í
Bogmanni, Tungl og Mars í
Ljóni, Venus í Sporðdreka,
Vog Rísandi og Krabba á
Miðhimni.
Frelsi
Það að hafa sól í Bogmanni
táknar að þú þarft hreyfingu
og fjölbreytileika til að við-
halda lífsorku þinni. Þú þolir
ekki bönd. Þú getur fest þig
yfir ákveðnu verki og tekið á
þig ábyrgð, en hins vegar
verður þú að vita að þú getir
farið í burtu. Frelsi er þér
afar mikilvægt, svo og það
að geta víkkað sjóndeildar-
hnng þinn.
Jákvœð
Þú ert jákvæð og bjartsýn í
grunneðli þínu, vilt vera
viðsýn og fordómalítil. Þú
dæmir ekki án þess að kynna
þér málefnið.
Hlý
Tungl i Ljóni táknar að þú
ert tilfinningalega hlý og ein-
læg. Tilfínningar þinar eru
kraftmiklar og sterkar, en
jákvæðar og gefandi. Þú ert
opin og vilt vera áberandi í
umhverfi þinu.
Leitandi
Merkúr í Bogmanni táknar
að hugsun þín er eirðarlaus
og leitandi. Þú ert forvitin og
hefur áhuga á mörgu. Fyrir
hendi em m.a. tungumála-
hæfileikar. Eirðarleysi og
óþolinmæði getur hins vegar
háð þér og komið í veg fyrir
að þú þroskir hæfileika þína.
Djúp sambönd
Venus í Sporðdreka táknar
að sambönd þin verða að vera
sterk og djúp. Þér er illa við
yfírborðsmennsku í mannleg-
um samskiptum. Þú ert
kröfuhörð og krefst þess að
þú og ástvinur þinn hafið sam-
eiginleg áhugamál ogþroskist
saman. Sambönd þín breyta
þér. Það táknar að þú laðast
að sterku fólki sem hefur
djúpstæð áhrif á þig. Þú þarft
að vera meðvituð um sjálfa
þig og varkár á þessu sviði
því annars er hætt við að sam-
bönd þín verði erfið. Þú þarft
að vinna með breytingum sem
fylgja ástinni annars er hætt
við að þú lendir í valdatog-
streitu.
Ljúf
Vog Risandi táknar að þú ert
jákvæð og ljúf í framkomu.
Þú hefur sterka réttlætis-
kennd og vilt frið og samvinnu
við umhverfi þitt. Þú ert þvi
töluverður diplómat ( þér. f
heild má segja um kort þitt
að þú sért jákvæð og hress
manneskja. Þú vilt frelsi til
að hreyfa þig, þarft lif og
spennu í líf þitt, ert að öllu
jöfnu opin, hlý og einlæg. Það
er helst að þú þurfir að vinna
með ástarmálin.
Maðurinn
Þú og viðkomandi maður eruð
ólík, en hafið hins vegar Ven-
us í merki hvors annars. Það
er algengt í ástarsamböndum.
Vegna hins ólíka eðlis þurfið
þið að vinna með sambandið
og gera málamiðlanir. Ég tel
að best sé fyrir þig að fara
varlega, gæta þess t.d. að þú
hafir ákveðið frelsi og að fyr-
ir hendi sé gagnkvæmur vilji
til að vinna með sambandið.
GARPUR
PE6AK 6AKPUR
'A i HÖðfil V/Ð
,h«gjaxl i savt
I SK/p/NU Eft
HMASTJAPHAK
[MÍKLA AÐIV.
I KO.mini flO
I TogrÍMð
SjEIEKNiU.
i!!!ii!il!!i!??l!i!:!!i!:*!;:::::':'::'::: I:::::::?TT:: j:I~rTT '
GRETTIR
TOMMI OG JENNI
LJÓSKA
FERDINAND
!!!!!! SMÁFÓLK
(UJHAT ARE yOU A . V L00KIN6 AT ?! J j
Á hvað ert þú að glápa?
Landslidsnefnd Brídssambands ís-
lands valdi sex pör til að taka þátt í
undirbúningi Evrópumótsins, sem
fram fer í Brighton í Bretlandi nœstc
haust. Þrjú pör verða valin til þátt-
töku innan tíðar, eða að lokinni
tveggja helga œfingakeppni hópsins.
Pörin sex eru: Jón Baldursson og Sig-
urður Sverrisson, Guðlaugur R.
Jóhannsson og öm Arnþórsson, Aðai-
steinn Jörgensen og Ásgeir Ásbjörns-
son, Karl Sigurhjartarson og
Ásmundur P&lsson, Guðmundur Sv.
Hermannsson og Björn Eysteinsson
og Símon Simonarson og Guðmundur
Páll Arnarson. Á fyrstu œfingunni
fóru tvö NS-pör í sex spaða á eftirfar-
andi spil. Sögnin vannst á öðru
borðinu en tapaðist á hinu:
Suður gefur; allir á hœttu.
Vestur
♦ 8
V109765
♦ K3
♦ ÁG754
Norður
♦ KG109
VÁD4
♦ 76
♦ KD103
II
Austur
♦ 765
VG32
♦ D1082
♦ 982
Suður
♦ ÁD432
VK8
♦ ÁG954
♦ 6
Þar sem Símon Símonarson
og Guðm. Páll Amarson héldu
á spilum NS gengu sagnir þann-
ig:
Vestur Norður Austur Suður
— — — 1 spaði
Pass 2 grönd Pass 3 lauf
Pass 3grönd Pass 4 tíglar
Pass 4 hjörtu Pass 4 grönd
Pass 5 spaðar Pass 6 spaðar
Pass Pass Pass
Tvö grönd við spaðaopnuninni
sýndu stuðning við litinn og
slemmuáhuga. Þijú lauf lýsa
yfir einspili þar, þrjú grönd er
eðlileg sögn, en síðan taka við
fyrirstöðusagnir.
Ásmundur Pálsson í vestur
fylgdist vel með sögnum og fann
einu vömina. Hann lyfti laufás
og skipti svo yfir í tromp. Þar
með komst Símon ekki hjá því
að gefa slag á tromp. Ef laufás-
inn er ekki tekinn hverfur
laufeinspilið niður í hjartað, og
sagnhafi gefur aðeins slag á
tígul.
Ásgeir Ásbjömsson og Aðal-
steinn Jörgensen fóm einnig í
sex spaða. Útspilið var líka lauf-
ás, en í næsta slag spilaði vestur
áfram laufi í þeim tilgangi að
gefa makker stungu, sem gat
verið inni í dæminu eftir sagnir
á því borði. Sagnhafi svínaði
tíunni og komst þar með hjá að
gefa slag á tígul.
Á svæðamóti A-Evrópu í Var-
sjá í febrúarmánuði kom þessi
staða upp í skák ungverska stór-
meistarans Pinter, sem hafði
hvitt og átti leik, og Negulescu,
Rúmeníu.
18. Hxb4! - Dxb4, 19. Rd5 -
Dh4 (19. — Dd6 er auðvitað
svarað með 20. Bb4) 20. g3 —
Ddi, 21. Rxe7+ - Kh8, 22.
Bc3 - Dxdl+, 23. Hxdl -
Bb5, 24. Hd4! og með tvo menn
fyrir hrók vann hvítur endataflið
léttilega. Þeir sem komust áfram
á millisvæðamót voru Ungveij-
amir Sax og Pinter, Búlgarinn
Inkiov og síðast en ekki sízt
rúmenski FIDE-meistarinn Mih-
ai Marin. Hann var yngsti
þátttakandinn á mótinu, 21 árs,
og sá eini sem ekki var a.m.k.
alþjóðlegur meistari.