Morgunblaðið - 15.03.1987, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. MARZ 1987
41
Caitlin
Erlendar bækur
Siglaugur Brynleifsson
Caitlin Thomas with George
Tremlett: Caitlin — A Warring
Absence. Secker& Warburg 1986.
Alfred Döblin: Schicksalsreise.
Bericht und Bekenntnis — Flucht
und Exil 1940-1948. Piper 1986.
Heiko A. Oberman: Luther.
Mensch zwischen Gott und Teufel.
Duetscher Taschenbuch Verlag
1986.
Caitlin MacNamara fæddist
1913. Foreldrar hennar voru írskir
mótmælendur. Hún stundaði dans-
nám í París í skóla, sem Raymond,
bróðir Isadoru Duncans, rak. Hún
kynntist Dylan Thomas 1936 og
giftist honum árið eftir. Þau eignuð-
ust þijú böm. Dylan Thomas lést
1953. Eftir jarðarförina fór Caitlin
Thomas til Lundúna. Hún reyndi
að fremja sjálfsmorð með því að
kasta sér út um glugga. Það mis-
tókst og síðan dvaldi hún undir
læknishendi á geðdeild í nokkra
mánuði. Eftir dvölina þar hélt hún
til Elbu. Það var þar, sem hún skrif-
aði uppköstin að „Leftover Life to
Kill“, sem kom út 1957. í þeirri bók
segir hún frá tilfinningalegum við-
brögðum sínum við og eftir lát
Dylans Thomas.
George Tremlett vann þessa bók
með Caitlin Thomas. Hún dvaldi í
Róm eftir dvölina á Elbu og síðan
í Catania á Sikiley. Hún kynntist
Giuseppe Fazio þar og með honum
hefur hún búið síðustu 30 árin.
Tremlett telur að Fazio hafi bjargað
Caitlin, sem reyndi hvað eftir annað
að fremja sjálfsmorð og var yfir-
komin af diykkjusýki. Það var 31.
október 1985, sem Tremlett tók að
vinna að þessari bók með Caitlin.
Þetta er mjög opinská frásögn
af kynnum, samlífi þeirra hjóna og
dauða Dylan Thomas. Þetta var
stormasöm sambúð, drykkjuskapur,
fjárhagsvandræði, flækingur og
framhjáhald með fylgjandi sjúklegri
afbrýðisemi og tilfínningalegum
stormviðrum. A hinn bóginn áttu
þau sínar hamingjustundir og snilli
Dylans sem skálds fór ekki milli
mála, aðdáendur hans töldu sumir
hveijir að hann væri efalaust merk-
asta skáld samtímans og Caitlin var
það gefið að skynja ljóðin betur
flestum.
Hún lýsir Dylan sem yndislegu
og stóru bami, sem hugsaði ekki
til morgundagsins og var ákaflega
íjarri því að gera fjölskylduáætlanir
og hún var sjálf af sömu gerð.
Fjöldi manna kemur við sögu og
Caitlin hlífir engum og dregur allt
það fram bæði gott og illt, sem að
þeim sjálfum sneri. Eins og áður
segir er þetta ákaflega opinskátt
játningarrit, lipurlega samið og
verður ágæt heimild um höfundinn
og skáldið og þá tíma og allar þær
mögnuðu tilfinningasveiflur sem
þau reyndu saman.
Frásögn Döblins hefst 16. maí
1940 í París, þar sem Döblin hafði
dvalið sem flóttamaður. Vamir
franska hersins vom að bresta og
þá var brýnast að forða sér sem
fyrst undan hersveitum Hitlers.
Döblin hafði flúið frá Berlín 1933,
hann var ekki aðeins gyðingur í
augum hinna nýju valdhafa heldur
einnig dæmi úm rithöfund, sem bar
öll merki „úrkynjunar og spillingar"
með ritum sínum. „Berlin, Alexand-
erplatz" var efst á bannlista nasista
og eintökum þeirrar bókar var safn-
XJöfðar til
Xlfólks í öllum
starfsgreinum!
— Döblín — Luther
að saman, hvar sem þau fundust
og brennd opinberlega, meðan sorp-
lýðurinn dansaði kringum bálið.
Döblin hélt til Suður-Frakklands
og eftir mikla erfiðleika komst hann
ásamt fjölskyldu sinni til Banda-
ríkjanna, þar sem hann dvaldi þar
til stríðinu lauk. Dvöl hans í Banda-
ríkjunum varð honum enginn dans
á rósum og þar snerist hann til
kaþólskrar trúar 1941. Forsendur
þeirrar ákvörðunar eru raktar í
bókinni, samfara heimspekilegum
og trúarlegum umþenkingum. Þessi
bók er heimildarit um útlegðina,
sem Döblin varð að þola ásamt fjöl-
mörgum öðrum löndum sínum.
Hann nefndi bókina „Færð milli
himins og jarðar".
Höfundurinn að „Luther" hefur
starfað við ýmsa háskóla, þar á
meðal í Oxford, Harvard og í Tiib-
ingen, þar sem hann sinnir einkum
sögu og kirkjusögu síðmiðalda og
siðskiptatímans. Auk þessa rits hef-
ur hann skrifað „The Harvest of
Medieval Theology" 1963, „Werden
und Wertung der Reformation"
1977, „Wurzeln des Antisemitis-
mus“ 1981.
Þetta er ekki saga siðbótar-
mannsins, heldur er hér dregin upp
mynd af „Luther privatim", mann-
inum Lúther, tilfinningum hans og
sálarstríði. Hann leit á sig sem verk-
færi Guðs til þess settur að bjarga
kristninni áður en heimsendir og
dómurinn fullkomnaðist. Hann áleit
alltaf og ævinlega, að lokatímamir
væru runnir upp og að dómsins
lúður myndi gjalla fyrr en varði.
Þannig varð „Lúther munkur af
angist og ótta við lokadóminn, préd-
ikari án ótta og spámaður og
boðberi, sem gekk þvert á skoðanir
tíðarandans". Þannig lýsir Ober-
mann þessum skemmtilega manni,
sem Lúther var, hann var fylltur
bæði guðlegri og verslegri anda-
gift, einhver mesti snillingur
þýskrar tungu og átti mjög mikinn
þátt í að móta hana og glæsa.
Hann var manna hugkvæmastur,
einhver mesti ræðumaður og ekki
minni rithöfundur. Hann gat bæði
verið blíður og auðmúkur og einnig
grófur og ruddalegur. Eðliseinkenni
hans komu alltaf skírt fram í öllu
sem hann sagði og skrifaði, hann
var heill og hafði til að bera bein-
skeyttan húmor. Þetta er skemmti-
leg bók um einhvem skemmtileg-
asta mann þýskra þjóða.
ÚRVALS
FILMUR
Kvnninaarverd
#, Dreifing;
TOLVIISPIL HF.
sími: 68-72-70
MALLORKA
VIÐ BJÓÐLM YKKUR
„KIASSA HÖm*
SEM GERA FERÐINA ANÆGJELEGRI
Royal Magaluf
Royal Torrenova Royal Playa
dePalma
Royal Jardin
del Mar
Óhætt er að fullyrða að Atlantik býður upp á bestu gisti-
og dvalaraðstöðu á MALLORKA sem völ er á.
Það eru Ibúðarhótelin góðkunnu I Royal hótelhringnum.
Tvö þeirraeru I Magaluf og annað þeirra, Royal Magaluf,
býðst íslendingum nú aftur eftir nokkurra ára hlé. Eitt
er í Santa Ponsa og eitt á Playa de Palma.
Reynslan hefur sýnt okkur að fólk vill aðeins það besta.
Við viljum að farþegum Atlantik llði vel I frlinu.
LÁTTUÞÉR LÍÐA VEL
BROTTFARARDAGAR:
Apríl Maí Júní Júlí Ágúst September Október
15 23 1 4 3 5 5
29 13 13 15 14
22 25 24 26
otiiwm
Ferðaskrifstofa, Iðnaðarhúsinu, Hallveigarstíg 1 símar 28388 og 28580
CXNERS CLUB
INTERNATtONAL