Morgunblaðið - 15.03.1987, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. MARZ 1987
43
Krabba-þokan er leifar súpernóva sem sagt er frá í kínverskum heimildum frá árinu 1054.
Black. Um þrjúleytið aðfaranótt
mánudagsins þann 23. febrúar
sýndu mælitæki þeirra fimm nift-
eindastuð á sjö sekúndna tímabili,
en slík tíðni er einstök. Trúlegt er
að nifteindir þessar eigi upptök sín
að rekja til súpemóvunnar 1987a.
Eftir að ytri lögin eru fokin af
stjömunni er kjaminn einn eftir en
hann getur orðið uppistaðan að nift-
eindastjömu eða jafnvel svartholi,
en ýmsa stjarneðlisfræðinga hlakk-
ar nú mikið til að fylgjast með þróun
hans.
1987a býður stjameðlisfræðing-
um einstakt tækifæri til að rann-
saka súpemóvur en sagan geymir
einungis þrjú dæmi um aðrar ámóta
bjartar. Sú fyrsta er frá árinu 1054,
en henni er )ýst i kínverskum heim-
ildum frá sama tíma. Hinar tvær
eru frá árunum 1572 og 1604, en
þeim hefur verið lýst af Jóhannes
Kepler og danska stjamfræðingn-
um Tycho Brahe. í ljósi þessara
staðreynda er áhugi stjamfræðinga
á fyrirbærinu auðskilinn.
Litrófsgreiningar á ljósinu sem
kemur frá 1987a sýna að mikið
magn vetnis er fyrir henni og að
útþensluhraði þess er u.þ.b. 15.000
kílómetrar á sekúndu. Vegna hins
mikla hraða er enn sem komið er
ekki mögulegt að greina með vissu
litrófslínur annarra efna sem talið
er að þyrlast hafi út í rúmið við
sprenginguna. Þetta veldur miklum
vonbrigðum þar sem súpemóvur
hafa afgerandi áhrif á efnaþróun
geimsins og ef hægt væri að fylgj-
ast nákvæmlega með því sem nú
er að gerast mundi það eflaust stór-
auka þekkingu okkar á tilkomu
ýmissra þungefna, svo sem jáms,
nikkels eða kóbalts. Efni þessi hafa
ekki einungis orðið til við kjama-
ferla í iðmm stjömunnar á langri
og heitri ævi hennar, heldur mynd-
ast sum þeirra eflaust þegar
sprengingin sjálf á sér stað. Það
eru þessir ferlar sem ómögulegt er
að fylgjast með eins og stendur.
En eitt sem gerir súpemóvuna
sérstaklega áhugaverða era þeir
möguleikar sem hún býður til auk-
ins skilnings á efnasamsetningu
ýmissa geimskýja sem era staðsett
á milli LMC og vetrarbrautarinnar
okkar. Súpemóvan verkar sem
gífurlega sterkur Ijósgjafi, sem
sendir ljós (og aðra geislun) í allar
áttir. Á leið ljóssins til jarðarinnar
gleypa atóm og mólekúl í geimnum
ákveðnar bylgjulengdir þess sem
era einkennandi fyrir gerðir þeirra.
Athuganir á gleypirófi þess ljóss
sem nær jörðinni gefa því góðar
upplýsingar um það hverskonar efni
ljósið fer í gegnum. Til þessara
rannsókna hafa stjameðlisfræðing-
ar iðulega notað stjömuljós sem á
upptök sín innan .vetrarbrautarinn-
ar okkar og því hafa athuganir
þeirra takmarast við geimský innan
hennar.
Súpemóvu-stjamfræðingar era
vissulega í uppnámi og flestir hafa
lítið sofið síðastliðnar nætur. Ólík-
legt er að þeir upplifi annað jafn
fágætt fyrirbæri. Peter Meikle við
Imperial College í London sagði að
ef stjamfræðingar hefðu vitað að
von væri á 1987a, á sama hátt og
þeir vissu um komu Halley-hala-
stjömunnar, þá hefðu margir þeirra
notað 10 ár til að búa sig undir
viðburðinn með hönnun og uppsetn-
ingu sérstakra tækja.
Engu að síður reyna þeir að nýta
sér tækifærið eins vel og hugsan-
legt er og segja má að flestum
tiltækum stjömukíkjum og geisla- *
greinum hafi verið beint að stjöm-
unni sem mun lengi skína sterklega,
jafnvel þó mesta birtan sé nú hjá
liðin.
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir
Dómkirkjan:
Messa og kaffisala
í DAG, sunnudag 15. mars, er
hin árlega kaffisala Kirkju-
nefndar kvenna Dómkirkjunnar
á Hótel Loftleiðum og hefst hún
að lokinni messu í Dómkirkjunni
kl. 14.00. Við þá messu prédikar
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir,
formaður starfsmannafélagsins
Sóknar. Elín Sigurvinsdóttir
óperusöngkona syngur einsöng
við undirleik Marteins H. Frið-
rikssonar dómorganista og
Dómkórinn syngur. Sr. Hjalti
Guðmundsson þjónar fyrir altari.
Eftir messuna hefst svo kaffisala
Kirkjunefndarinnar í Víkingasal
Hótels Loftleiða. Þar verður einnig
á boðstólum ýmis konar páskafönd-
ur, sem konurnar hafa unnið. Allur
ágóði af kaffisölunni fer til stuðn-
ings því starfi, sem konurnar vinna
fyrir Dómkirkjuna.
Strætisvagn fer fiá Dómkirkj-
unni suður að Hótel Loftleiðum
strax eftir messu og til baka aftur
í bæinn um kl. hálf fimm.
ER SAMSTILLT LIÐSHEILD
VDRTILBDÐ:
Kerti B-19, B-20, B-230 aai,-
Platína B-19, B-21, B-230 165,-
Membra í blöndung 286,-
Framdempari 240 2.982,-
Afturdempari 240 1.373,-
Olíusía Allar bensínvélar 35a,-
Pústkerfi 240 7.222,-
Tímareim B-19, B-21, B-230 5^8,-
Spindilkúla 240 1.232,-
Framhjólalegusett 240 frá 968,-
SUÐURLANDSBRAUT 16 SfMI 35200
Allir hlutar hvers volvobíls ganga í gegnum stranga skoðun og þolraunir áöur en þeir eru metnir hæfir til aö taka
sæti í liðsheild Volvobílsins. Árangur heildarinnar ræöst af frammistöðu hvers einstaklings. Einn skussi gæti því
haft afdrifarík áhrif.
VERTU ÖRUGGUR — VELDU VEL í LIÐIÐ ÞITT. VELDU VOLVOVARAHLUTI