Morgunblaðið - 15.03.1987, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. MARZ 1987
49
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Stjórnun
— Markaðsmál
Við erum að hefja leit að starfsmanni til að
taka við stjórnunarstarfi á sviði markaðsmála.
Það er ekki á hverjum degi að við ráðum inn
í eitt af aðal stjórnunarstörfum fyrirtækisins
og því verðum við að vanda valið.
Við gerum kröfu til viðskiptafræðimenntunar,
eða sambærilegrar háskólamenntunar og
framhaldsnám erlendis væri góður kostur.
Starfsreynsla æskileg.
Við bjóðum ábyrgðarmikið, áhugavert og
skemmtilegt stjórnunarstarf í traustu fyrirtæki.
Við biðjum þá sem áhuga hafa á að kynna sér
málið nánar að leggja nafn sitt og símanúmer
inn á auglýsingadeild Morgunblaðsins merkt:
„SM — 2104“ fyrir 25. þessa mánaðar með
loforði um að allar upplýsingar verði með-
höndlaðar sem trúnaðarmál og svarað.
Skrifstofustarf
Fyrirtæki í Kópavogi vill ráða ritara til sjálf-
stæðra starfa á skrifstofu hálfan daginn (fyrir
hádegi).
Starfsvið: Launaútreikningar, útskrift reikn-
inga og almenn skrifstofustörf. Um framtíð-
arstarf er að ræða. Æskilegt er að við-
komandi hafi tölvu- og bókhaldsþekkingu.
Upplýsingar um aldur, menntun og fyrri störf
sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 20. mars
nk. merktar: „Kópavogur — 582“.
Ritari — hálft starf
Lögmannsstofa
Ritari óskast á lögmannsstofu í hálft starf,
vinnutími kl. 13.00-17.00 e. hád. Vélritunar-,
íslensku- og nokkur reikningskunnátta nauð-
synleg. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið
störf um nk. mánaðamót.
Umsóknir er greini fyrri störf, menntun og
aldur leggist inn á auglýsingadeild Mbl. fyrir
21. mars nk. merktar: „Ritari — 1300“.
Stúlka
sem kann á Ópus
óskast til að slá inn reikninga o. s. frv., á
tölvu. Góð vinnuaðstaða, hresst samstarfs-
fólk, Ijómandi fyrirtæki.
Umsóknir sem tiltaki aldur, reynslu, og þá
sérstaklega varðandi tölvukunnáttu o. fl. sem
máli kann að skipta sendist auglýsingadeild
Mbl. fyrir þriðjudagskvöld merkt:
“Gott starf — 574“.
Framleiðslustjóri
— loðdýrafóður
Fóðurstöð Vesturlands, Borgarnesi, óskar
að ráða nú þegar framleiðslustjóra til að
annast fóðurgerð og sjá um daglegan rekst-
ur á fóðurstöðinni.
Nánari upplýsingar um starfið og launakjör
veittar í síma 93-7050.
Loðdýraræktarfélag Borgarfjarðar.
Þýðingar
Bókaforlagið Svart á hvítu óskar eftir reynd-
um bókaþýðendum. Hér er aðallega um
þýðingar á enskum bókum að ræða. Um-
sækjendur þurfa að geta hafið störf strax
og unnið við þýðingarnar í fullu starfi.
Upplýsingar veittar í síma 622229.
Svart á hvítu.
smiSNúmm n
Vegna mikillar hreyfingar á vinnumarkaðnum
óskum við eftir að komast í samband við
gott fólk sem leitar að framtíðaratvinnu.
M.a. óskum við eftir að ráða sem fyrst:
★ Framkvæmdastjóra hjá fiskverkunarfyrir-
tæki úti á landi.
★ Vanan ritara hjá góðu heildsölufyrirtæki
í miðbænum. Æskilegur aldur 35-45 ára.
★ Sölumann — byggingavörur.
★ Afgreiðslumann í góða hljómplötuverslun,
hálfan daginn e.h.
★ Sölumanneskju með áhuga og reynslu
fyrir fiskréttum í góða verslun á góðum
stað í Reykjavík.
★ Lagtæka menn til verksmiðjustarfa hjá
traustu málmiðnaðarfyrirtæki í Hafnar-
firði.
smrsNómm n/r
Brynjolfur Jonsson • Noatun 17 105 Rvik • smn h?1J15
• Alhlida raöningaþjonusta
• Fyrirtækjasala
• Fjarmalaradgjof fyrir fyrirtæki
Umsjónarmenn
Oskast
Knattspyrnufélagið Valur óskar að ráða
starfsmenn til eftirtalinna starfa.
1. Umsjónarmann íþróttahúss. Um er að
ræða húsvarðarstarf ásamt umsjón með
daglegum rekstri og viðhaldi íþróttahúss-
ins. Framtíðarstarf. Við leitum að manni
sem hefur reynslu af þesskonar starfi og
hafa til að bera ákveðni og nákvæmni.
2. Umsjónarmann íþróttavalla. Um er að
ræða sumarstarf þar sem viðkomandi
hefur umsjón með viðhaldi og rekstri
íþróttavalla félagsins. Við leitum að manni
sem hefur reynslu af garðyrkjustörfum
og vill takast á við skemmtilegt starf í
þrjá mánuði.
Bæði störfin eru laus frá og með 1. maí.
Umsóknum skal skilað á auglýsingadeild Mbl.
fyrir 24. mars nk. merktar: „Valur — 5493“.
Verkstjóri
— fiskvinnsla
Dugmikill verkstjóri óskast til nýstofnaðs fisk-
vinnslufyrirtækis á Suðurnesjum. Um er að
ræða sérstaka en jafnframt fjölþætta vinnslu.
Við leitum að framtakssömum og áreiðanleg-
um manni sem getur unnið sjálfstætt.
Þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Húsnæði nálægt vinnustað getur fylgt.
Laun samkomulag. Tilvalið tækifæri fyrir
duglegan sjómann sem vill komast í land.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnað-
armál og öllum umsóknum verður svarað.
Tilboð sem greini nafn, heimilisfang, aldur,
menntun og starfsreynslu ásamt síma-
númeri skilist inn á auglýsingadeild Mbl. fyrir
22. mars nk. merkt: „F — 5231“.
Viðskipti við
Bretland?
Breskur rekstrarhagfræðingur nýfluttur til
íslands óskar eftir atvinnu. Er með sérhæf-
ingu á markaðssviði og reynslu af markaðs-
rannsóknum. Bæði tímabundin verkefni svo
og framtíðarstarf kemur til greina. Lítil sem
engin íslenskukunnátta enn sem komið er.
Áhugasamir vinsamlegast leggið inn nafn
og símanúmer inná auglýsingadeild Mbl. fyr-
ir 24. mars merkt: „Bresk - 577“.
Markaðsstjóri
Þjónustufyrirtæki
Starfið: Stjórnun sölu- og markaðsmála.
Markaðsstjórinn: Viðskiptafræðingur með
2ja-5 ára starfsreynslu. Framhaldsmenntun
af markaðssviði æskileg.
Fjármálastjóri
Iðnfyrirtæki
Starfið: Áætlanagerð, yfirumsjón með bók-
haldi, samningagerð, skrifstofustjórn.
Fjármálastjórinn: Viðskiptafræðingur með
reynslu úr hliðstæðu starfi.
Skrifstofustjóri
Innflutnings- og verslunarfyrirtæki
Starfið: Rekstur skrifstofu, áætlanagerð,
fjármálastjórn, bókhald.
Skrifstofustjórinn: Góður bókhaldsmaður
sem getur starfað sjálfstætt.
Viðskiptafræðingur
Fjármálafyrirtæki
Starfið: Áhættumat og innra eftirlit.
Viðskiptafræðingurinn: Reynsla af bókhalds-
störfum.
Viðskiptafræðingur
Þjónustufyrirtæki
Starfið: Upplýsingasöfnun, -miðlun, skýrslu-
gerð, ráðgjöf.
Viðskiptafræðingurinn: Þarf að geta starfað «
sjálfstætt og skipulega. Færni í mannlegum
samskiptum. Góður í ensku og dönsku.
Umsóknum skal skilað á skrifstofu okkar
fyrir 24. þ.m.
Starfsmannastjórnun
Ráðningaþjónusta
FRlsim
Sundaborg 1-104 Reykjavík - Símar 681888 og 681837
Gásm
HEILSURÆKT
Altlamyn9 ReykjaviK Simi 33910
Sjúkraþjálfarar
Heilsuræktin Gáski vill ráða hressa og sjálf-
stæða sjúkraþjálfara til starfa sem fyrst.
Starfstíminn er sveigjanlegur þ.e. frá hádegi
og fram á kvöld.
Upplýsingar í síma 689009.
Útibústjóri
Bankastofnun (ekki ríkisbanki) vill ráða úti-
bússtjóra til starfa á höfuðborgarsvæðinu.
Starfið er laust samkvæmt samkomulagi.
Leitað er að bankamanni sem hefur gegnt
ábyrgðarstafi eða viðskiptafræðingi með
starfsreynslu.
Æskilegt að viðkomandi sé hugmyndaríkur
fyrir nýjungum og tilbúinn að leggja sig fram
í nýju starfi.
Allar nánari upplýsingar í trúnaði á skrifstofu.
Umsóknir er tilgreini aldur, menntun ásamt
starfsreynslu sendist skrifstofu okkar fyrir
22. mars nk.
CtlÐNI ÍÓNSSON
RÁÐCJÖF &RÁÐNI NCARÞjÓNUSTA
TÚNGÖTU 5. 101 REYKIAVIK - PÓSTHÓLF 693 SÍMl 621322