Morgunblaðið - 15.03.1987, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. MARZ 1987
63
Gísli var elstur þriggja sona heið-
urshjónanna Odds Halldórssonar og
Áslaugar Guðjónsdóttur. Oddur
andaðist hér í borg 14. maí 1965,
75 ára að aldri, en Áslaug lifir son
sinn og dvelur nú á Hrafnistu í
Hafnarfirði á 85. aldursári. Yngri
synimir eru Guðjón, kaupmaður í
Litnum, og Bjami veggfóðrara-
meistari.
Gísli fæddist í Reykjavík og þar
ól hann allan sinn aldur. Hann var
ókvæntur og bamlaus. Eftir að fað-
ir hans féll frá hélt hann heimili
með móður sinni, eða allt til þess
tíma, er hún flutti á Hrafnistu. Stóð
heimili þeirra lengst á Háaleitis-
braut 44. Þaðan á ég margar góðar
minningar um reisn og höfðings-
skap húsbænda. Eftir að Áslaug
fluttist á Hrafnistu' notaði Gísli
hvert tækifæri sem gafst til þess,
að ná í hana heim, og sýndi það,
hve annt honum var um hana, enda
kært með þeim mæðginum.
Gísli var ungur bráðger til líkama
og sálar og komu góðir námshæfi-
leikar hans snemma í ljós. Er mér
næst að halda að allt bóknám hefði
legið vel fyrir honum, þó hugur
hans stefndi fljótt f aðra átt.
Hann lauk gagnfræðaprófí frá
Gagnfræðaskóla Austurbæjar vorið
1950 og var þá strax ákveðinn í
að gera sjómennsku að ævistarfi
sínu. Farmannaprófi frá Stýri-
mannaskólanum í Reykjavík lauk
hann síðan vorið 1957. Gísli hóf
sjómennsku strax að loknu gagn-
fræðaprófi sem vikadrengur á ms.
Esju II, en varð háseti á sama skipi
1952.
Hann var síðan háseti á skipum
Skipaútgerðar ríkisins í nokkur ár,
nema meðan á námi hans stóð í
Sjómannaskólanum. í október 1959
varð hann stýrimaður á ms. Heklu
I og síðan stýrimaður á flestum
skipum útgerðarinnar til ársins
1966, er hann hóf að leysa af sem
skipstjóri.
I júlímánuði 1979 var hann fast-
ráðinn skipstjóri hjá Skipaútgerð
ríkisins og nú síðast á ms. Öskju
frá 1983. Hann var, er hann féll
frá, sá af skipstjómarmönnum út-
gerðarinnar, er lengstan hafði
starfsaldur. Hann var ævinlega far-
sæll í störfum sínum, athugull og
gætinn.
Eins og að Ifkum lætur hafði
Gísli ekki tök á að sinna mikið fé-
lagsmálum. Hann gekk í Skipstjóra-
félag íslands árið 1980, en hafði
áður starfað í Stýrimannafélaginu.
Hann varð meðstjómandi í stjóm
Skipstjórafélagsins árið 1985, en
átti lengi sæti í samninganefndum
fyrir bæði félögin, enda tölvís mað-
ur og glöggur. Þá starfaði hann
um nokkurra ára skeið í Frímúrara-
reglunni og sótti fundi þar, þegar
aðstæður leyfðu frá skyldustörfum.
Þetta er í stómm dráttum starfs-
saga Gísla, vinar míns.
Það væri síst að skapi hans að
ég færi nú að hlaða á hann miklu
lofi. Hann var fremur dulur og fá-
skiptinn maður og gerði sér lítið far
um að kynnast mörgum náið. Því
einlægari og traustari var vinátta
hans. Um það tel ég mig geta bor-
ið eftir áratuga kynni.
Ég finn það best nú, að honum
látnum, að ég mun sakna tíðra
heimsókna hans, sem sýndu, hve
tryggur vinur hann var mér og fjöl-
skyldu minni allri.
Hann var alla tíð orðvar, þegar
rætt var um menn og málefni. Eft-
ir því var líka tekið, hversu víða
hann var heima í ótrúlegustu mál-
um, en hann var mjög bókhneigður
og víðlesinn.
Gísli vinur minn er nú lagður upp
í þá ferð, sem okkar allra bíður,
en eftir standa minningamar um
einstakan vin og tryggðatröll.
Ég bið honum blessunar Guðs á
nýrri vegferð um leið og samfylgd-
in er þökkuð.
Aldraðri móður hans sendi ég og
fjölskylda mín hugheilar samúðar-
kveðjur og biðjum við Guð að gefa
henni bjart og fagurt ævikvöld í
faðmi eftirlifandi sona og fjöl-
skyldna þeirra. Þeim öllum sendum
við samúðarkveðjur.
Gísla, vinar míns, mun ég minn-
ast, er ég heyri góðs manns getið.
Sé hann Guði falinn.
Tómas Sturlaugsson
Lokað
vegna jarðarfarar HALLDÓRS G. ODDSSONAR mánu-
daginn 16. mars kl. 12.00-15.00
Liturinn,
Síðumúla 15.
Lokað
Vegna jarðarfarar HALLDÓRS GÍSLA ODDSSONAR,
skipstjóra, verður skrifstofu og vöruafgreiðslu vorri lok-
að frá kl. 12.00-15.00 mánudaginn 16. mars.
Skipaútgerð ríkisins.
Lokað
vegna jarðarfarar ÞÓRIS BERGSSONAR mánudaginn
16. mars frá kl. 14.30.
Bókabúö Olivers Steins, Strandgötu 31, Haf narfirði.
MULTIPLAN
Framhaldsnámskeið
ítarlegt og vandað námskeið fyrir þá sem
kunna grunnatriðin í notkun Multiplans,
en vilja læra að nota möguleika kerfisins til
fulls.
Dagskrá:
* Upprifjun á helstu skipunum i Multi-
plan
* Rökaðgerðir i Multiplan
* Notkun stærðfræðifalla
* Endurreikningur Interation
* Tenging við Chart og grundvallaratriði
i notkun Chart-forritsins
* Notkun Macro-sklpana í Multiplan 2.0
*' Umræður og fyrlrspurnir
Tími: 23.-26. mars kl. 18-21.
Innritun daglega frá kl. 8-22 í
símum 687590, 686790, 687490
og 39566.
Tölvufræðslan
Borgartúni 28.
Leiðbeinandi:
Óskar B. Hauksson
verkfræðingur.
5 Ul
GÆÐINGUR
NÚTÍMANS
698.500,-
miðaö við marsgengi 21. 5294
ÖRYGGI
í AKSTRI
VERÐ FRÁ KR.
r,■ ■% jr.
aBMnSE^SKiSG%i
KOMIÐ OG KYNNIÐ YKKUR KOSTI, KRAFT OG KJÖR
Sýningarbllar
á stadnum
Syninqarsalurinn opinn mánud.—föstud. kl. 9—6, laugard. kl. 1—5.
KRISTINN GUÐNASON HF.
SUÐURLANDSBRAUT 20. 686633