Morgunblaðið - 15.04.1987, Page 1

Morgunblaðið - 15.04.1987, Page 1
80 SIÐUR STOFNAÐ 1913 88. tbl. 75. árg. MIÐVIKUDAGUR 15. APRIL 1987 Prentsmiðja Morgunblaðsins Evrópubandalagið: Fálega tekið í umsókn Tyrkja Ankara, Brlissel, Reuter. TÓLF aðildarríki Evrópubanda- lagsins tóku umsókn Tyrkja um inngöngu í Evrópubandalagið fálega í gær og sögðu flestir stjórnarerindrekar í höfuðstöðv- um bandalagsins i Brtissel að beiðnin frá Ankara kæmi ekki á réttum tíma. Stjórnarerindrekar sögðu einnig að formleg umsókn Tyrkja, sem lögð var fram í gær, kæmi sér illa fyrir þau aðildarríki, sem telja að Tyrkir séu ekki reiðubúnir að ganga Geislavirkni í Evrópu: Sovétmenn krafðir skýringa Bonn, Reuter. VESTUR-Þjóðvetjar báðu sov- ésk yfirvöld i gær um skýringar á aukinni geislavirkni, sem mældist í andrúmslofti fyrir skömmu. Vísindamenn grunar að aukninguna megi rekja til leka í kjarnaofni í Sovétríkjun- um. Gennady Gerasimov, talsmaður sovéska utanríkisráðuneytisins, sagði í Moskvu í gær að engin aukn- ing á geislavirkni hefði mælst í Sovétríkjunum upp á síðkastið. Talsmaður umhverfismálaráðu- neytisins í Bonn sagði að vestur- þýsk stjórnvöld ætluðu að krefjast skýringa á geislavirkninni, sem mældist 2. til 15. mars, þrátt fyrir yfírlýsingu Gerasimovs. Geisla- virknin var fyrir neðan hættumörk. Umhverfismálaráðuneytið ákvað að láta rannsaka málið eftir að aukin geislavirkni mældist í Finnl- andi og Svíþjóð og síðar í Austurríki og Vestur-Þýskalandi. í bandalagið, en vilja ekki hafna henni af pólitískum ástæðum. Vestrænar ríkisstjórnir hafa með hernaðarlegt mikilvægi Tyrklands, sem liggur að landamærum Sov- étríkjanna, í huga hvatt til þess að stjórnvöld í Ankara efli lýðræði í landinu og sagt horfur á aukinni samvinnu milli bandalagsins og Tyrklands. Háttsettur stjórnarer- indreki í Brússel sagði að útilokað væri að veita Tyrkjum aðild eins og málum væri nú komið. Tyrkir þyrftu m.a. að taka sig á í mann- réttindamálum. Turgut Ozal, forsætisráðherra Tyrklands, sagði í gær að hvorir tveggju hefðu hag af því að Tyrkir fengju aðild að bandalaginu. Grikk- ir, sem hafa árum saman staðið í vegi fyrir inngöngu Tyrkja, kváðust ætla að bíða og sjá hvað setur. Flugstöðin vígð Morgunblaðið/RAX Forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, afhjúpar lágmynd af Leifi Eiríkssyni og vígir nýju flugstöð- ina. Sjá ræður fluttar við vígsluna á síðum 28 og 29 og frásögn og myndir á miðopnu og síðu 42. Gorbachev í viðræðum við Shultz: Tilbúinn til leiðtogafund- ar með vissum skilyrðum tf nol/.m Wnalimfrtnn Pnntnr Moskvu, Washington, Reuter. MIKHAIL Gorbachev, aðalritari sovéska kommúnistaflokksins, kvaðst á fundi sínum með George Shultz, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, í gær vera reiðubúinn til að ganga til fundar við Ronald Reagan Bandaríkjaforseta ef fyrir lægju útlínur að sáttmála um afvopnunarmál og samomulag um meðaldrægar flaugar, sem tilbúið væri til undirritunar, að því er sovéska fréttastofan TASS sagði í gær. Að sögn fréttastofunnar lagði Gorbachev einnig fram þrjár tillögur um tilraunir og rannsóknir varðandi geimvarnaáætlun Bandaríkjamanna, skammdrægar flaugar i Evrópu og kjarnorku- vopn á vígvöllum. Shultz afhenti Gorbachev bréf frá Ronald Reagan Bandaríkjaforseta í upphafi viðræðna þeirra. Þar býður forsetinn Gorbachev formlega til Kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd: Oraunhæf hugmynd og styrkir ekki NATO - segir Carrington lávarður Bríissel, frá Ásgeiri Sverrissyni, blaðamanni Morgunblaðsins. HUGMYNDIN um að lýsa Norð- urlönd kjarnorkuvopnalaust svæði er óraunhæf og ekki til þess fallin að styrkja Atlants- hafsbandalagið út á við, að því er Carrington lávarður, fram- kvæmdastjóri NATO, sagði á fundi með íslenskum frétta- mönnum í Briissel í gær. „Sérhver tilhneiging til að setja fram sérkröfur hlýtur að valda áhyggjum," sagði Garrington lá- varður. Hann kvað aðildarríki Atlantshafsbandalagsins hafa sameinast um stefnu, sem grund- völluð væri á sveigjanlegum viðbrögðum á óvissu- og átaka- tímum. Hugmyndir um að hverfa frá því grundvallarviðhorfi væru ekki til þess fallnar að gera stefnu bandalagsins trúverðuga. Carrington lávarður sagði að hugmyndir ráðamanna í Evrópu um skilvirkari samvinnu á sviði öryggis- og varnarmála væru af hinu góða. Hann kvaðst engar fregnir hafa af fundi George Shultz, utanríkis- ráðherra Bandaríkjarína, og ráðamanna í Moskvu, en bætti því við að ráðherrann kæmi til Brússel á morgun til að greina fulltrúum aðildarríkja NATO frá gangj viðræðnanna. Carrington lávarður sagðist vera vongóður um að stórveldin næðu samkomu- lagi um að skera niður kjam- orkuvígbúnað í Evrópu á þessu ári. Sjá „Allar sérkröfur ...“ á síðu 36. fundar í Bandaríkjunum. Shultz átti fjögurra og hálfrar klukkustundar langan fund með Gorbachev og að honum loknum ræddi hann við Edou- ard Shevardnadze, utanríkisráð- herra Sovétríkjanna. Bandaríkja- menn hafa ekki greint frá gangi viðræðna ráðherrans við ráðamenn í Moskvu. Dan How'ard, talsmaður Banda- ríkjaforseta, sagði í Washington í gær að tillögur Gorbachevs væra áhugaverðar en Bandaríkjamenn yrðu að ræða þær við bandamenn sína i Atlantshafsbandalaginu áður en brugðist yrði við þeim. Sovéska fréttastofan kvað Gorb- achev hafa sagt við Shultz að risaveldin ættu í sameiningu að vinna að skjali, þar sem kveðið yrði á um lykilatriði varðandi langdræg kjarnorkuvopn, gagneldflaugar og kjarnorkutilraunir. Gorbachev bætti við að á mögu- legum fundi gætu hann og Reagan gengið frá þessum lykilatriðum þannig að síðar yrði ef til vill unnt að ganga frá allshetjarsamningi. Samkvæmt frásögn TASS hreyfði Mikhail Gorbachev þremur sér- greindum atriðum í viðræðum hans við George Shultz í gær: Sovéski leiðtoginn skilgreindi nánar en á Reykjavíkurfundinum með Ronald Reagan, hvað felst í sovéskum tillög- um um takmörkun á rannsóknum og tilraunum vegna geimvarnaáætl- unarinnar. Tilraunir geta farið fram í rannsóknastofnunum, verksmiðjum og á tilraunasvæðum á jörðu niðri. I öðru lagi sagðist Gorbachev vilja ganga lengra að því er varðar ein- hliða brottflutning skammdrægra sovéskra eldflauga í Evrópu en hann gerði með tillögum sínum í Prag í síðustu viku. Hann teldi ekki nauð- synlegt að gera sérstakan samning um þessar flaugar heldur verði kveð- ið á um tímasetningu fyrir niðurrif þeirra í samningi risaveldanna um meðaldrægar eldflaugar. í þriðja lagi sagðist Gorbachev vilja fjarlægja öll vígvallarkjarn- orkuvopn frá Evrópu, það er kjarn- orkukúlur í fallbyssur, kjarnorku- jarðsprengjur og önnur slík vopn. Bandaríkjamenn vörðust allra frétta um það, sem gerðist á fundum bandaríska utanríkisráðherrans og sovéskra ráðamanna. En auk við- ræðnanna við Gorbachev hitti Shultz Nikolai Ryzhkov, forsætisráðherra Sovétríkjanna, að máli í gær. Fréttir TASS um viðhorf Sovétmanna í við- ræðunum bárust ekki fyrr en eftir miðnætti að Moskvu-tíma. Landgöngu- liðar í Vín sendir heim Vín, Reuter. FIMM landgönguliðar, sem gættu bandaríska sendiráðsins í Vín, voru sendir heim til Banda- ríkjanna á sunnudag, að því er talsmaður sendiráðsins sagði í gær. Granur leikur á að þeir hafi í leyfisleysi átt samskipti við erlenda borgara þegar beir voru við störf í austantjaldsríkjum. Talsmaðurinn bætti við að mennirnir væru ekki grunaðir um njósnir enn sem komið er.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.