Morgunblaðið - 15.04.1987, Qupperneq 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. APRIL 1987
Kærleiksblóm
Eg verð að játa að cg horfði ekki
á þátt Jóns Ottars: Sjálfsmorð
í eldlínunni. ICg treysti mér einfald-
lega ekki til að horfa á sjónvarpsþátt
er fjallaði um jafn viðkvæmt efni og
sjálfsvíg og reyndar tel ég orka
tvímælis að smíða sjónvarpsþátt
kringum slíkt. efni. Vissulcga getur
slíkur þáttur rofíð einangran þess
er á um sárt aö binda siikum
sjálfsvígs vinar eða ættingja en gæti
eins vakið dimmar kenndir í brjósti
áhorfenda. Við sjáum ekki enn fyrir
viðbrögð áhoifenda og ekki mega
menn gleyma þeim gullna sannleika
að aðgát skal höfð í nærveru sálar.
Dettui- mér í hug í þessu sambandi
óhugnanleg fóstureyðingamynd er
að undanförnu hefir borið fyrir augu
framhaldsskólanema. Vafalaust er
mynd þessi sýnd í þeim fróma til-
gangi að hræða barnungar stúlkur
frá fóstureyðingu en gæti hún ekki
valdið stúlku sem hefði þegar gengið
undir fóstureyðingu alvarlegu sál-
rænu tjóni. Sumt fólk er þeirrar
skoðunar að tilgangurinn helgi ætíð
meðalið og treystir þá gjarnan á hið
gagnrýnislausa hópefli en þá vill
stundum gleymast sá gullni boðskap-
ur að aðgát skal höfð í nærvera sálar.
Páskarnir
Páskarnir hafa í mínum huga ætíð
verið sorgarhátið ef frá er talin sú
stund er páskaeggið skrapp um kok-
ið. Sorgarhátíðarblærinn hefir færst
yfir mitt litla sálartetur vegna hinnar
dimmúðugu dagskrár ríkisfjölmiðl-
anna . Einkum hefir föstudagurinn
langi teygst á langinn í ríkisfjölmiðl-
unum. En nú eru breyttir tímar og
því má í fyrsta sinn búast við ósköp
hversdagslegum „popppáskum" þar
sem hin léttfleyga rafmagnsmúsík
ræður ríkjum á öldum ljósvakans.
Persónulega sakna ég ekki hinna
dimmúðugu og liingu föstudaga for-
tíðarinnar en síbylja poppsins er þó
dálítið óhugnanleg á stundum einsog
að hverfa inní órætt framtíðarsam-
félag þar sem skil dags og nætur,
framtíðar og fortíðar hafi verið máð
út en eftir situr ráðvilltur einstakling-
ur í neti alþjóðlegrar landamæra-
lausrar i>oppmaskínu er nærist á
einhæfni fjölbreytninnar og éina til-
breytingin verður nýstárleg auglýs-
ing cr færir hið viljalausa verkfæri
neytandann úr stað. Á boðskapur
kirkjunnar við í ljósvakanum á
slíkum tímum? Svo sannarlega á
boðskapur hinnar hógværu íslensku
þjóðkirkju er skartar hinum lítilláta
og Ijúfa biskupi Pétri Sigurgeirssyni
mikið erindi á sálarháskatímum.
Hógvær boðskapur íslensku þjóð-
kirkjunnar nær að smjúga gegnum
múra skarkalans og þangað geta
ráðvilltir og rafmagnaðir sauðir
markaðarins leitað að þeim friði er
tekur frá oss angist tómleikans. Hér
kveður dyra hugljúft erindi úr Borg-
arljóðum Gunnars Dal:
Við rödd þessa hlustum illa á
því ennþá er myrkur svart,
en Hallgrímskirkju klukkur þó
í kyrrðinni byija að syngja.
Og saman í vetrarins svöiu ró
á sunnudagsmorgni hringja.
Hœgt og hljótt
En óttist eigi, einsog kom fram í
dagskrárkynningu hjá ríkissjónvatp-
inu mun rás 1 halda í heiðri sorgar-
hljóma Páskahátíðarinnar og þó
cinkum föstudagsins langa. Þar
verður að venju á dagskrá alvarleg
klassisk tónlist og þótt undirritaður
komi nú ekki til með að hlýða lon
og don á þá músík verða vafalaust
margir til að hlýða á þá tóna er
hljóma af hörpu tónlistarmanna
vorra, en það kom berlega í Ijós í
fyrrgreindri dagskrárkynningu að
rás 1 styður mjög við bakið á íslensk-
um tónlistarmönnum, til dæmis
Symfóníuhljómsveit æskunnar. Það
verk er unnið í kyrrþey og án þess
að barið sé á bumbur, en þannig er
um flest þau verk sem unnin eru af
kærleika og mannvith
Ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP/SJONVARP
Stöð 2:
Eftir
„Sparkið“
Kanadíska
OQ 45 kvikmyndin Eft-
ir „Sparkið“
greinir frá raunveruleika í
amerísku atvinnulífi og
vakti töluverða athygli á
sínum tíma. Á ári hveiju
er um 250 þúsund forstjór-
um vikið úr starfi í
Norður-Ameríku og greinir
myndin frá afdrifum
þeirra. Leikstjóri er Vest-
ur-íslendingurinn Sturla
Gunnarsson.
Rás 2;
Tónlist-
arkross-
gátan
Tónlistarkrossgátan er á
dagskrá Rásar 2 kl. 15.00
sunnudaginn 19. apríl. Það
er Jón Gröndal sem leggur
gátuna fyrir hlustendur.
Tónlistarkrossgáta nr.
76
UTVARP
©
MIÐVIKUDAGUR
15. apríl
6.45 Veðurlregnir. Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 Morgunvaktm — Jón
Baldvin Halldórsson og Jón
Guðni Kristjánsson. Fréttir
eru sagðar kl. 7.30 .og 8.00
og veðurfregnir kl. 8.15. Til-
kynningar eru lesnar kl.
7.25, 7.55 og 8.25.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
9.05 Morgunstund barn-
anna: „Enn af Jóni Oddi og
Jóni Bjarna" eftir Guðrúnu
Helgadóttur. Steinunn Jó-
hannesdóttir lýkur lestrinum
02).
9.20 Morguntrimm. Lesiö úr
forystugreinum dagblað-
anna. Tónleikar.
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Úr fórum fyrri tiðar.
Umsjón: Ragnheiður Vig-
gósdóttir.
11.00 Fréttír. Tilkynningar.
11.05 íslenskt mál. Endurtek-
inri þáttur frá laugardegi
sem Gunnlaugur Ingólfsson
flytur.
11.20 Morguntónleikar.
a. Fantasía i f-moll op. 103
eftir Franz Schubert. Sara
Fuxon og Bart Berman leika
fjórhent á pianó.
b. Barnasöngvar op 89 eftn
Alexander Gretchaninoff.
Elizabeth Söderström syng-
ur. Vladimir Ashkenazy
leikur á pianó.
c. Dúett fyrir klarinettu og
básúnu eftir Ludwig van
Beethoven. Béla Kovács og
Tibor Fulemile leika.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 Strið og börn. Umsjón:
Sverrir Guðjónsson.
14.00 Miðdegissagan: „Niðja-
málaráðuneytið" eftir Njörð
P. Njarðvik. Höfundur lýkur
lestrinum (6).
14.30 Norðurlandanótur. Nor-
egur.
15.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
15.20 Landpósturinn. Frá
Vestfjörðum. Umsjón: Finn-
bogi Hermannsson.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
16.05 Dagbókin. Dagskrá.
16.15 Veðurfregmr.
16.20 Barnaútvarpið
17.00 Fréttir. Tilkynningar.
17.05 Síðdegistónleikar.
a. Óbósónata eftir Darius
Milhaud. Heinz Holliger og
Oleg Maísenberg leika.
b. „Maritimes" eftir Alex-
ander Brott. Kanadíska
útvarpshljómsveitin leikur;
höfundurinn stjórnar.
c. „Songs and coritem-
plation" eftir Alexander
Brotl. Louis Marshall syng-
ur með útvarpshljómsveit-
mm í Montreal; höfundurmn
stjórnar.
d. Klarinettusónata eftir
Darius Milhaud. Eduard
Brunner og Oleg Maisen-
berg leika.
17.40 Torgið — Nútimalífs-
hættir. Umsjón: Steinunn
Helga Lárusdóttir.
18.00 Fréttir. Tilkynningar.
18.05 Torgiö, framhald. Til-
kynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar.
Fjölmiðlarabb. Guðrún Birg-
isdóttir flytur.
19.45 Tónlist eftir Siegfried
Wagner. Sinfóniuhljómsveit
útvarpsins í Berlín leikur;
Heinrich Hollreiser stjórnar.
Einleikari: Peter Zazofsky.
a. „Gluck". sinfónisk Ijóð.
b. Konsert fyrir fiðlu og
hljómveit.
(Hljóðritað 26. april 1986.)
20.40 Framboðskynning
stjórnmálaflokkanna. Niundi
og siðasti þáltur. Þjóðar-
flokkurinn kynnir stefnu
sína.
21.00 l.étt tónlist.
21.20 Á fjölunum. Þáttur um
starf áhugaleikfélaga. Um-
sjón: Haukur Ágústsson.
(Frá Akureyri.)
22-00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Lestur Passiusálma.
Andrés Björnsson les 49.
sálm.
SJÓNVARP
■O.
TF
MIÐVIKUDAGUR
15. apríl
18.00 Úr myndabókinni — 50.
þáttur. Barnaþáttur með
innlendu og erlendu efni.
Umsjón: Agnes Johansen.
Kynnir Sólveig JHjaltadóttir.
19.00 Hver á að ráða? (Who's
The Boss?) — Sjötti þáttur.
Bandarískur gamanmynda-
flokkur. Þýðandi Ýrr Bertels-
dóttir.
19.25 Fréttaágrip á táknmáli.
19.30 Spurt úr spjörunum —
Ellefti þáttur. Spyrlar: Ómar
Ragnarsson/Kjartan Bjarg-
mundsson. Dómari: Baldur
Hermannsson. Stjórn upp-
töku: Ásthíldur Kjartans-
dóttir.
20.00 Fréttir og veöur.
20.35 Auglýsingar og dag-
skrá.
20.40 i takt við tímann. Bland-
aður þáttur um fólk og
fréttnæmt efni.
21.35 Leiksnillingur. Master
of the Game — Lokaþáttur.
Bandarískur framhalds-
myndaflokkur i sjö þáttum,
gerður eftir skáldsögu Sid-
neys Sheldon. Þýðandi
Guðni Kolbeinsson.
22.25 Vestfjarðakjördæmi.
Sjónvarpsumræður fulltrúa
allra framboðslista. Umræð-
um stýrir Gunnar E. Kvaran.
23.55 Fréttir i dagskrárlok.
(i
a
STOD2
MIÐVIKUDAGUR
15. apríl
§ 17.00 Ein mynd segir meira
en þúsund orð. (Every Pict-
ure Tells A Story.) Bresk
sjónvarpskvikmynd frá
1984. Mynd þessi er byggð
á sannsögulegum heimild-
um um ævi hins heims-
fræga listamanns William
Scott og baráttu hans til að
öölast viðurkenníngu. Leik-
stjóri er Jarries Scott (sonur
listamannsins).
§18.20 Myndrokk.
19.05 Teiknimynd.
19.30 Fréttir.
20.00ópin lina. Áhodendur
Stöðvar 2 í beinu simasam-
bandi milli kl. 20.00 og
20.15 i síma 673888.
20.20 Happ i hendi. Lukku-
hjóliö snýst í orðaleik
Bryndísar Schram.
20.50 Matreiðslumeistar-
inn. Ari Garöar er mættur i
eldhús Stöðvar 2 með mat-
aruppskriftir fyrir sælkera.
§21.15 Shamus (Shamus: A
Matter of Wife and Deaih).
Bandarisk kvikmynd frá ár-
inu 1975 með Rod Taylor,
Joe Santos, Anita Gilette og
Anne Archer i aöalhlutverk-
um. Shamus er einkaspæj-
ari og billiardleikari, en fyrst
og fremst kvennagull. Hann
á i vök að verjast þegar
hann kemst samtímis í kast
við lögregluna og harðvítug-
an glæpahring. Leikstjóri er
Marvin Chomsky.
§ 22.45 Eftir „sparkið" (After
The Axe). Á ári hverju er
u.þ.b. 250.000 forstjórum
og frarnkvæmdastjórum vik-
ið úr starfi i Noröur-Ameríku.
Þessi kanadiska heimilda-
mynd greinir frá afdrifum
þessara manna. Auk þess
að vera tilnefnd til Óskars-
verðlauna 1983, hefur
, myndin hlotið margskonar
viöurkenningar. Leikstjóri er
Vestur-islendingurinn Sturla
Gunnarsson.
§23.40 Buffalo Bill. Bill Bitt-
inger tekur gesti í sjónvarps-
sal á beiniö.
00.10 Dagskrárlok.
22.30 Hljóð-varp. Ævar Kjart-
ansson sér um þátt í
samvinnu við hlustendur.
23.10 Djassþáttur — Jón Múli
Arnason.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
Næturútvarp á samtengd-
um rásum til morguns.
Æ
MIÐVIKUDAGUR
15. apríl
00.10 Næturútvarp.
Gunnar Svanbergsson
stendur vaktina.
6.00 I bítið. Rósa Guðný
Þórsdóttir léttir mönnum
morgunverkin, segir m.a. frá
veöri, færð og samgöngum
og kynnir notalega tónlist i
morgunsárið.
9.05 Morgunþáttur í umsjá
Kristjáns Sigurjónssonar og
Kolbrúnar Halldórsdóttur.
Meðal efnis: „Plötupottur-
inn", gestaplötusnúður og
miðvikudagsgetraun.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Á milli mála. Leifur
Hauksson kynnir létt lög við
vinnuna og spjallar við
hlustendur.
16.05 Hringiðan. Umsjón:
Broddi Broddason og
Margrét Blöndal.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 iþróttarásin. Ingólfur
Hannesson og Samúel Orn
Erlingsson íþróttafrétta-
menn taka á rás.
22.05 Perlur. Jónatan Garð-
arsson kynnir sigilda
dægurtónlist. (Þátturinn
verður endurtekinn nk.
sunnudagsmorgun kl.
9.03.)
23.00 Við rúmstokkinn.
Guðrún Gunnarsdóttir býr
fólk undir svefninn með tali
og tónum.
00.10 Næturútvarp Snorri
Már Skúlason stendur vakt-
ina til morguns.
02.00 Nú er lag. Gunnar Sal-
varsson kynnir gömul og ný
úrvalslög. (Endurtekinn
þáttur frá gærdegi.)
Fréttir kl. 7.00, 8.00, 9.00,
10.00, 11.00, 12.20, 15.00,
16.00, 17.00, 18.00, 19.00,
22.00 og 24.00.
SVÆÐISUTVARP
AKUREYRI
18.03-19.00 Svæðisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni
—FM 96,5
Fréttamenn svæðisútvarps-
ins fjalla um sveitarstjórnar-
mál og önnur stjórnmál.
MIÐVIKUDAGUR
15. apríl
07.00—09.00 Á fætur með
Siguröi G. Tómassyni. Létt
tónlist með morgunkaffinu.
Sigurðar lítur yfir blöðin og
spjallar við hlustendur og
gesti. Fréttir kl. 07.00,
08.00 og 09.00.
09.00—12.00 Páll Þorsteins-
son á léttum nótum. Palli
leikur uppáhaldslögin ykkar,
gömul og ný. Opin lína til
hlustenda, mataruppskrift
og sitthvað fleira. Fréttir kl.
10.00 og 11.00.
12.00-12.10 Fréttir
12.10—14.00 Þorsteinn J. Vil-
hjálmsson á hádegi. Frétta-
pakkinn, Þorsteinn og
fréttamenn Bylgjunnar fylgj-
ast með þvi sem helst er i
fréttum, segja frá oy spjalla
við fólk i bland við létta tón-
list. Fréttir kl. 13.00 og
14.00.
14.00—17.00 Pétur Steinn á
réttri bylgjulengd. Pétur spil
ar siðdegispoppið og spjall-
ar við hlustendur og
tónlistarmenn. Fréttir kl
15.00, 16.00 og 17.00.
17.00—19.00 Ásta R. Jóhann
esdóttir í Reykjavik síðdeg-
is. Ásta leikur tónlst, litur
yfir fréttirnar og spjallar við
fólkið sem kemur við sögu.
Fréttir kl. 18.00.
19.00—21.00 Anna Björk
Birgisdóttir á flóamarkaöi
Bylgjunnar. Flóamarkaður
og tónlist. Fréttir kl. 19.00.
21.00—23.00 Ásgeir Tómas
son á miðvikudagskvöldi.
Ásgeir leikur rokktónlist úr
ýmsum áttum.
23.00—24.00 Vökulok. Ljúf
tónlist og fréttatengt efni.
Dagskrá í umsjá Braga Sig
urðssonar fréttamanns.
24.00—07.00 Naeturdagskrá
Bylgjunnar. Tónlist og upp-
lýsingar um veður og flug-
samgöngur. Fréttir kl.
03.00.
AXjFA.
■Hatileg ttTMfitll.
FM 102,9
MIÐVIKUDAGUR
15. apríl
Guði
8.00 Morgunstund.
orð og bæn.
8.15 Tónlist.
12.00 Hlé.
13.00 Tónlistarþáttur mei
lestri úr Ritningunni.
18.00 Dagskrárlok.