Morgunblaðið - 15.04.1987, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1987
7
EFTIR „SPARKIÐ"
Á ári hverju er u.þ. b. 250. OOO
forstjórum og framkvæmda-
stjórum vikið úrstarfi i Norður-
Ameriku. Þessi kanadíska
heimildamynd greinir frá af-
drifum þessara manna.
Myndin hefurhlotið margs
konar viðurkenningar.
Fimmtudagur
MOSKVA VIO
HUDSONFUÓT
(Moscow On The Hudson). Gam-
anmynd um ungan sovéskan
hljóðfaeraleikara sem fer að leið-
ast stöðugar biðraðir eftir
nauðþurftum i Moskvu og gerist
hann þvi landflótta og flytur til
Bandarikjanna.
Föstudagur
SÁLUMESSA
/Þequiem). Söngleikur eftir
Andrew Lloyd Webber. Hann
erm.a. þekktur fyrir söngleik-
ina Evitu og Jesus Christ
Superstar. Frumflutningur
verksins hlaut mikið lofgagn-
rýnenda í febrúar 1985.
STÖD-2
Stöðvar 2 er 67 30 30
Lykillnn fsarð
þúhjó
Helmillstsakjum
<8>
Heimilistæki hl
S-62 12 15
Kosningahappdrætti Sjálf stæðisflokksins:
Glæsilegri vinningar en nokkru sinni fyrr
MIÐAR í kosningahappdrætti
Sjálfstæðisflokksins vegna alþing-
iskosninganna hafa nú verð sendir
öllum flokksbundnum sjálfstæðis-
mönnum og fjölda stuðnings-
manna. Eins og jafnan áður er
kosningahappdrættið undirstaða
kosningastarfsins. Vinningar i
kosningahappdrættinu að þessu
sinni eru óvenju glæsilegir eða
alls að verðmæti 4 milljónir króna.
Útgefnir miðar í happdrættinu eru
80.000. Miðaverð er 300 krónur.
Dregið er í happdrættinu 24. apríl
næstkomandi.
í bréfi frá formanni Sjálfstæðis-
flokksins, Þorsteini Pálssyni, með
happdrættismiðunum segir m.a.:
„Sjálfstæðismenn hafa á því
kjörtímabili sem er að líða haft for-
ystu um margháttaða framfarasókn
íslensku þjóðarinnar. Verðbólgan hef-
ur verið kveðin niður úr 130 stigum
í um 10 stig nú. Skuldasöfnun erlend-
is hefur verið hætt, halli á viðskiptum
við útlönd lagfærður og innlán á spa-
rifé hefur stóraukist. Nýtt stað-
greiðslukerfi skatta hefur verið
samþykkt sem einfaldar framkvæmd-
ir skattamála og lækkar skatta. Mörg
spor hafa verið stigin til aukins frjáls-
ræðis á flestum sviðum þjóðlífsins.
Atburðir síðustu vikna á stjórn-
málasviðinu undirstrika betur en
nokkru sinni fyrr nauðsyn þess að
allir sjálfstæðismenn standi þétt sam-
an um Sjálfstæðisflokkinn. Það er
uggvænleg þróun, ef stjómmálalíf
landsins leysist upp í svo margar
smáar einingar að ekki verði unnt
að mynda ríkisstjóm nema með sam-
starfi þriggja til fjögurra stjóm-
málaflokka.
Reynsla íslendinga af §ölflokka-
stjómum er afar slæm. Hvað eftir
annað hafa slíkar stjómir á skömm-
um starfstíma sínum náð því að
tortíma margra ára uppbyggingar-
starfi, sem unnið hefur verið undir
stjómarforystu sjálfstæðismanna.
Öllum er ljóst að nútímakosninga-
barátta er fjárfrek. Sjálfstæðisflokk-
urinn getur ekki sótt í neina aðra
sjóði en þau framlög sem stuðnings-
menn hans eru reiðubúnir að inna
af hendi. Þessu kosningahappdrætti
er hleypt af stokkunum til þess að
standa undir kosningabaráttu flokks-
ins á landsvisu og í öllum kjördæmum
landsins. Stuðningur þinn í því efni
er afar vel þeginn, ekki síst þegar
sótt er að Sjálfstæðisflokknum úr
fleiri áttum en nokkm sinni fyrr.“
Aðalskrifstofa happdrættisins er í
Valhöll, Háaleitisbraut 1, Reykjavík,
og er hún opin daglega frá 9.00—22.
00. Síminn þar er 82900.
Vegna páskahátíðarinnar sem f
hönd fer er nauðsynlegt að hvetja
alla sem fengið hafa senda happ-
drættismiða til þess að gera skil sem
fyrst, sagði Kjartan Gunnarsson,
framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokks-
ins, og um páskahátíðina verður
aðalskrifstofa happdrættisins opin
alla daga nema föstudaginn langa
og páskadag.
(Fréttatilkynning frá
Sjálf stæðisf lokknum.)
jÓN ÓLAFS501!"
bæjarviHingorsern
varðbisnessmaður
Unglingavæn^'
í Reykjavik
ÁSKRIFTARSÍMI
62 20 20
STJÓRNMÁL, alþjóðamál, arkitektúr,
bókmenntir, tíska, matur, viðskipti og
margt fleira.
HEIMSVIÐBURÐUR
YOKO ONO í einkaviðtali við
Herdísi Þorgeirsdóttur í New
York. Fyrsta viðtalið sem hún
veitir í langan tíma um einkalíf
sitt, árin með John Lennon,
sambandið við hjna Bítlana, bar-
áttuna fyrir friði, ást sína og
vonbrigði...