Morgunblaðið - 15.04.1987, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. APRIL 1987
9
UTANKJÖRSTAÐASKRIFSTOFA
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
ValhölL
Háaleitisbraut 1,3. hæð
Símar: 689004 - 689005 - 689006
Utankjörstaðakosning ferfram hjá borgarfógetanum í
Reykjavík í Ármúlaskóla alla daga frá kl. 10-12,14-18
og 20-22 nema sunnudaga og aðra helgidaga kl. 14-
18. Lokaðföstudaginn langa og páskadag. Skrifstofan
gefur upplýsingar um kjörskrá og allt sem lýtur að kosn-
ingunum. Áðstoð við kjörskrárkærur.
Sjálfstæðisfólk! Hafið samband við skrifstofuna ef
þið verðið ekki heima á kjördag.
BARNA—
SKÓR
Stærð: 20-27
Litir: blátt,
V WB
998,-
Efni: leður
5% staðgreiðsluafsláttur
MEÐEIGANDI 0SKAST
í hraðframköllun á góðum stað í bænum
Húsnæði fyrir hendi
Áhugasamir sendi tilboð á auglýsinga-
deild Mbl. fyrir 21. apríl merkt:
„Meðeigandi — 1060u.
Á
Hótel
Holti
verður opið sem hér segir
um hátíðarnar:
Skírdag - opnað kl. 18.00
Föstudag - lokað
Laugardag - opnað kl. 18.00
Páskadag -lokað
Annan páskadag - opnað kl. 18.00.
Við óskum landsmönnum
gleðilegra páska.
Framsókn og verk annarra
I Staksteinum í gær var vakið máls á því, að þeir framsóknar-
menn, sem sátu hjá, þegar Alþingi ákvað að afnema einkarétt
á útvarpsrekstri, vilja nú láta þakka sér, að einokunin er úr sög-
unni. Áfstaða framsóknarmanna til smíði flugstöðvar Leifs
Eiríkssonar er af svipuðum toga. Eins og vikið er að í Stakstein-
um í dag veit málgagn Framsóknarflokksins, Tíminn, ekki alveg,
hvort hann á að vera með flugstöðinni eða á móti henni. Kem-
ur þetta heim og saman við stefnu framsóknar á líðandi kjörtíma-
bili.
Framsóknar-
nöldur
Undanfama daga hafa
næsta sérkennilegar
fréttir birst í blöðum,
einkum Þjóðviljanum og
Tímanum, þess efnis, að
vígsla flugstöðvar Leifs
Eiríkssonar í gser hafi
verið einskonar sýndar-
mennska; stöðin sé ekki
tilbúin til notkunar. Hef-
ur margt verið tínt til í
þessum skrifum og má
til marks um þau vitna
til forsíðu Tímans í gser,
þar sem stóð:
„Óbreytt stendur að
Leifsstöð er enn ekki
fullbúin til notkunar af
því að þeir bráðlátu í
stjómkerfinu vildu láta
opna fyrir gestum áður
en verkinu var lokið. í
gær rembdust þessir
menn við að telja Tíman-
um trú um að ekki væri
verið að þjófstarta flug-
stöðinni. En við getum
sagt þeim, viti þeir það
ekki, að nokkur hluti er
skermaður af fyrir gest-
um svo þeir þurfi ekki
að horfa upp á háJfunnið
verk, og enn er óljóst
hvemig eldsneyti verður
látið á flugvélamar á
hlöðum stöðvarinnar.
Það skaðar svo ekki að
geta þess, að á utanríkis-
ráðherraárum sinum
gerði Einar heitinn
Agústsson þá samninga
við stjóm Bandaríkjanna
sem gerðu þessa stöð
mögulega.“
Fýlutónninn í þessu
forsíðuávarpi Tímans fer
ekki framhjá neinum.
Lögð er áhersla á hið
neikvæða; þess er ekki
getið, að ekki er aðeins
unnt að halda glæsilega
vígsluveislu í flugstöð-
inni heldur er unnt að
afgreiða þaðan núna
strax allar millilanda-
flugvélar. Eldsneyti
verður dælt úr tankbílum
í flugvélar þar tíl hið
fuilkomna eldsneytis-
hleðslukerfi verður tekið
í notkun. A flestum flug-
völlum heims em tank-
bílar sendir að flugvél-
um. Framsóknarmenn
hafa áður nöldrað yfir
flugstöðinni nýju eins og
þessi orð sjálfs
Steingrims Hermamis- j
sonar, forsætisráðherra, '
í þingræðu 1. febrúar
1984:
„Ég get hins vegar lýst
þeirri skoðun minni að
ég hef talið þessa flug-
stöð vera ansi stóra og
hef kynnt mér það hvort
ekki mætti byggja
smærri flugstöð. Vitan-
Iega má byggja smærri
flugstöð . . . Eg hef jafn-
framt lýst þeirri per-
sónulegu skoðun minni
að mér sýnist að Banda-
rikjamenn ættu að greiða
allan kostnað af þessu
maunvirki þvi að þetta
er liður i þeirri mikil-
vægu ákvörðun að
aðskilja innlent þjóðlif
eins og hægt er frá hem-
um á Keflavíkurflugvelli.
Ég tel að þeir eigi að
bera kostnaðinn af þvi.“
Þeir sem gerst þekkja
em þeirrar skoðunar, að
líklega komi fyrr en síðar
í Ijós að hin nýja flugstöð
sé fremur of lítil en of
stór, þvert ofan í orð for-
sætisráðherra fyrir
aðeins þremur árum.
Gagnrýni Steingríms
Hermannssonar á skipt-
ingu kostnaðar vegna
stöðvarinnar er gagnrýni
á þá samninga, sem Ein-
ar Agústsson, flokks-
bróðir hans, gerði á
sinum tima og Tímanum
fimist allt i einu heppi-
! legt að minna á núna.
Framsóknamöldrið fer
ekki í manngreinarálit,
þegar mikið liggur við.
Flokkur
í vanda
Alþýðubandalagið hefur
ekki náð sér á strik í
kosningabaráttiuuú.
Fyrstu merkin um að
flokksforystan vissi ekki
undir hvaða merkjum
hún skyldi heyja barátt-
una komu i Ijós eftir að
Þorsteinn Pálsson, for-
maður Sjálfstæðisflokks-
ins, lýsti yfir því í ræðu
á landsfundi flokksins,
að Alþýðubandalagið
væri ekki höfuðandstæð-
ingur sjálfstæðismanna í
þessum kosningum,
flokkurinn hefði hvorki
styrk né málefnastöðu til
að gegna því hlutverki.
Eftir stofnun Borgara-
flokksins hefur Alþýðu-
bandalagið horfið enn
meira í skuggann. Guð-
rún Helgadóttir, sem
skipar annað sæti, takið
eftir annað sæti, á lista
Alþýðubandalagsins í
Reykjavík sér ástæðu til
að gefa eftirfarandi
neyðaryfirlýsingu á for-
síðu Þjóðviljans i gær:
„Ég kann hinsvegar ekk-
ert svar við því ef
Reykvíkingar vilja frek-
ar þær Kristínu Einars-
dóttur og Þórhildi
Þorleifsdóttur [af
Kvennalistaj á þing en
mig. Hvomg þeirra hef-
ur verið á þingi áður og
þær em þvi óskrifað
blað.“
Eini frambjóðandi Al-
þýðubandalagsins sem
sýnist ömggur með sig
er Ólafur Ragnar Gríms-
son, sem býður sig fram
í öðm sæti á Reykjanesi
og segist einnig gefa
kost á sér sem utanrikis-
ráðherra hjá Albert
Guðmundssyni og hveij-
um öðmm, sem tekur
undir hugmyndir hans í
öryggis- og vamarmál-
um. Ölafur Ragnar segir,
að aðeins vanti 10 til 50
atkvæði til að hann nái
þessu markmiði. Hvort
sem það tekst eða ekki
er Ólafur Ragnar búinn
að skapa sér þá stöðu,
að eftir kosningar telur
hann sig hafa í fullu tré
við Svavar Gestsson og
hvem þann annan, sem
stendur í vegi fyrir því,
að hann, Ólafur Ragnar,
verði formaður Alþýðu-
bandalagsins. Auglýs-
ingamennska Alþýðu-
bandalagsins í
Reykjanesi snýst ekki síst
um innanflokksátök.
Hver er ávöxtunin
á bankabréfum og verðtryggðum skuldabréfum
traustra fyrirtækja?*
9-12%
hjá Verðbréfamarkaði Iðnaðarbankans
að Ármúla 7
Avöxtun umfram
Útgefandi Lánstími verdbóigu
Veödeild
Iðnaðarbankans 3mán.-4,5ár 9,3-9,0%
Glitnir hf. 9 mán. til 4 ár og 9 mán. 11,4-10,9%
Sveinn Egilsson hf. 2 til 5 ár 12-11,5%
Við leggjum áherslu á örugg skulda-
bréf og áhyggjulausa ávöxtun. Eftir
nokkra hækkun vaxtaá síðustu
dögum er nú unnt að ávaxta pen-
inga í öruggum skuldabréfum sem
bera 9-12% vexti umfram verð-
bólgu. Þessi ávöxtun hefði svarað til
hvorki meira né minna en 32,4-36%
nafnvaxta síðustu þrjá mánuðina
m.v. heiltár. Það getur verið dýrt að
hugsa ekki vel um sparnaðinn sinn.
Hjá Verðbréfamarkaðnum vinnum
við á hverjum degi við að ávaxta
fjármuni fyrir fólk!
Verðbréfamarkaður
1= Iðnaðarbankans hf.
"Svarartil 32,4-36% nafnvaxta
sídustu 3 mánuði m.v. heiltár
Siminnaö Ármúla7er 68-10-40.
Gjörið svo vel að hafa samband og
leita nánari upplýsinga!