Morgunblaðið - 15.04.1987, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1987
„Höfðum útbúnað og
vistir til margra daga“
- segir Kjartan Blöndal, einn af
skátunum tíu, sem lentu í erf iðleik-
um á Langjöktí um helgina
„ÉG vil fyrst taka fram, til að
fyrirbyggja misskilning, að
þetta voru alls engar hrakning-
ar. Við vorum það vel útbúin
að við hefðum getað verið þarna
á jöklinum í marga daga“, sagði
Kjartan Blöndal, sem var í hópi
skátanna tíu, sem lentu í erfið-
leikum á Langjökli um síðustu
helgi. Kjartan varð fyrir nokkr-
GARÐUR
s.62-1200 62-1201
Skipholti 5
Höfum góða kaup-
endur að 2ja og 3ja
herb. íb.
Efstasund. 2ja herb. ca 60 fm
nýstandsett ib. á 1. hæð.
Bilskréttur. Verð 1,9-2 millj.
Miklabraut. 2ja herb. samþ.
ca 65 fm kjib. í 5 ib. húsi.
Asparfell. 4ra herb. ca 100 fm
íb. á 6. hæð. Falleg björt íb. Nýtt
á gólfum.
írabakki. 4ra herb. góð íb. á
3. hæð. Nýl. fallegt eldhús. Suður
og norðursv. Verð 3,2 millj.
Seljahverfi. 4ra herb. íb. á 1.
hæð í blokk. Bílgeymsla. Verð 3,6
millj.
Krummahólar. 6 herb. falleg
ib. á tveimur hæðum. íb. er 3 stof-
ur, 3 svefnherb., 2 baðherb., eldhús
o. fl. Bílgeymsla. Meiriháttar út-
sýni. Verð 5,0 millj. Mögul. að taka
2ja-3ja herb. íb. uppí.
Seljahverfi. Einb., hæð og ris
ca 210 fm. Á hæðinni eru fallegar
stofur, eldhús, eitt herb., þvotta-
herb. o.fl. í risi eru 3 rúmgóð
svefnherb., skáli og baðherb.
Mjög fallegt hús. Bílsk. Skipti
mögul. Verð 7,9 millj.
Hvammar — Hf. Vorum aö
fá i sölu glæsil. nýtt ca 210 fm
raðh. með bilsk., blómastofu o.fl.
Svotil fullgert hús. Verð 6,5 millj.
Lágholt — Mos. Einbhús
mjög vel staðsett. Ca 155 fm auk
45 fm bflsk. Skemmtil. telkning.
Ekki fullg. hús. Verð 5,7 millj.
Leirutangi — Mos. Einb.
174 fm auk 41 fm tvöf. bílsk.
Húsið er á einni hæð ekki fullb.
Verð 6,3 millj.
JÚI
Sérhæðír í tvibhúsi á góðum
stað í Grafarvogi. Hæðirnar eru 5
herb. 127 fm auk bilsk. Seljast
fullfrág. að utan en fokh. eða tilb.
u. trév. að innan. Teikn. á skrifst.
Hagst. grkjör.
Einbýli — óskahúsið. 137
fm einb. á einni hæð auk 51 fm
tvöf. bílsk. Selst fokh. eða lengra
komið.
Annað
Skóverslun. Vorum að
fá til sölu eina af eidri skó-
verslunum borgarinnar.
Tilvalið fjölskfyrirtæki.
Hárgreiðslustofa. Til sölu
ógæt hárgrstofa i Breiðholti. Gott
tækifæri fyrirt.d. einn eða tvo aöila.
Kári Fanndal Guðbrandsson,
Gestur Jónsson hrl.
um meiðslum, er hann varð
undir snjósleða á jöklinum, en
hann kvaðst aldrei hafa verið í
neinni hættu og að vel hefði
farið um sig í tjaldinu og síðar
í snjóhúsinu, þar sem hann
dvaldi ásamt þremur félögum
sínum þar til hjálpin barst. Eig-
inkona Kjartans, Erla Þor-
steinsdóttir, var einnig með í
leiðangrinum á Langjökul og
var hún í hópi þeirra sex, sem
dvöldu í skálanum við Fjall-
kirkju eftir að óveðrið skall á.
Það var um kvöldmatarleytið á
föstudag sem tíu hjálparsveitar-
menn frá Reykjavík lögðu af stað
á þremur vélsleðum norður yfir
Langjökul. Um hádegi á laugar-
dag sneru þeir við og við gefum
Kjartani orðið: „Við höfðum fengið
þær upplýsingar frá Veðurstof-
unni að veðurútlit væri gott á
laugardag, en það breyttist. Þegar
við snerum við niður af jöklinum
áleiðis í bæinn þá fóru tveir af
sleðunum fram af snjóhengju
skammt frá skálanum við Fjall-
krikju. Við ákváðum þá fjórir að
fara ákveðna leið til að koma þeim
upp aftur enda kom fljótlega í ljós
að þeir voru í lagi. Hin héldu þá
rakleiðis upp í skála og hugðust
bíða okkar þar. Fljótlega upp úr
þessu versnaði veðrið til muna og
það gerði blyndhríð svo að ekki
sást út úr augum. Þar sem við
fjórir töldum okkur vita nákvæm-
lega hvar við vorum héldum við
áfram og eftir á sjáum við að við
vorum nokkurn veginn á réttri leið
og fórum mjög nálægt skálanum.
Þá var komin glórulaus hríð og
farið að skyggja.
Lóraninn okkar hafði bilað þeg-
ar sleðamir fóru fram af hengj-
unni, en við vorum þó nokkum
veginn vissir um leiðina. Það er
þó ljóst að við höfum staðsett okk-
ur eitthvað vitlaust, upp á svona
100 metra, því að skömmu síðar
fórum við fram af klettabrún og
var það talsvert hátt fall. Við vor-
um tveir saman á hvorum sleða
og einhverra hluta vegna fór fé-
lagi minn af sleðanum skömmu
áður en hann lenti fram af kletta-
brúninni. Hinir tveir voru á undan
rHÍjSVÍN«ÍH~l
VSr, FASTEIGNASALA
JV. BORGARTÚNI29,2. HÆÐ.
tf 62-17-17
Erum fluttir í Borgartún 29, 2. hæð
Stærri eignir
Einb. — Seltj.
Ca 250 fm glæsil. einb. við Bollagarða,
selst á ýmsum byggingast. Verð frá 5,6
millj.
Einb. — Nesvegi
Ca 185 fm fallegt steinh. á tveim hæð-
um. Verð 7,5 millj.
Húseign — Bárugötu
Ca 150 fm gott timburhús sem er tvær
hæðir og kj. Verö 4,5 millj.
Einb. — Mosfellssveit
Ca 155 fm timbureiningah. v/Hagaland.
Einb. — Engihlíð
Ca 280 fm fallegt einb. Húsiö er allt
endurn. Stór bílsk. Mögul. á sérib. í kj.
Afh. strax. Verö 11 millj.
Raðh. — Seljabraut
Ca 210 fm fallegt raöhús. Verö 5,5 millj.
Raðh. — Reykási
Ca 180 fm fallegt vel staðsett
hús á tveimur hæðum. Bílsk.
Verö 6,3 millj.
Hátún — Lyftuh.
Ca 90 fm falleg íb. á 3. hæð í lyftuh.
Suöursv. Verð 3,5 millj.
3ja herb.
Krummahólar m/bílg.
Ca 90 fm falleg íb. á 4. hæö. Bílgeymsla.
Suövestursv. VerÖ 3,0 millj.
Hvassaleiti m. bílsk.
Ca 84 fm björt og falleg íb. á 3.
hæð. Parket á gólfum. Vestursv.
Verö 3,5 millj.
Fljótasel
Ca 180 fm stórglæsil. 2 efri hæöir i
endaraöh. Parket á gólfum. Vandaöar
innr. Allt sór. Verö 5,5 millj.
4ra-5 herb.
Efstasund m/sérinng.
Ca 110 fm 1. hæð í þríb. Verö 3,5 millj.
Laugarnesvegur
Ca 90 fm falleg hæö og ris i timbur-
húsi. Mikiö endurn. eign. Samþ. teikn.
aö viðbygg. Verö 3,5 millj.
Kambasel
Ca 102 fm stórglæsil. neöri hæö i raö-
húsi. Sérgarður í suður. Þvottaherb.
innan íb.
Sérh. — Sörlaskjóli
Ca 105 fm falleg neöri sórhæö. Ný eldh-
innr. Nýtt gler og gluggar. Verö 3,8 millj.
Dalsel
Ca 110 fm falleg íb. á 1. hæö.
Bílgeymsla. Verö 3,5 millj.
Valshólar/s-verönd
Ca 85 fm falleg jarðh. Sérþvhús í íb.
Valshólar — endaíb.
Ca 95 fm bráöfalleg endaíb. á 2. hæð.
Þvottaherb. í íb. Verö 3,4 millj.
Kársnesbraut — Kóp.
Ca 80 fm góö hæö í fjórb. Verö 2,4-2,5
millj.
Nýlendugata
Ca 60 fm falleg risíb. Verð 1550 þús.
2ja herb.
Efstasund
Ca 60 fm góð íb. á 1. hæö. Verð 1,9
millj.
Hamarshús
Ca 45 fm nettó gullfalleg einstaklíb.
Vandaöar innr. Suöursv. Verö 2,1 millj.
Sporðagr. — 2ja-3ja
Ca 75 fm björt og falleg kjib. Sérinng.
Verö 2,7 millj.
Efstasund
Ca 55 fm falleg ib. á 3. hæð. Verð 1,9 m.
Hverafold
Eigum effir 4 2ja herb. ib. í glæsil.
flölbýli. Afh. tilb. u. tróv. í sept.
Bragagata.
Ca 45 fm ósamþ. ris. Verö 1,4 millj.
Guömundur Tómasson, Finnbogi Kristjánsson,
Viöar Böövar8Son, viöskfr./lögg. fast.
Morgunblaðið/Júlíus
Hjónin Erla Þorsteinsdóttir og Kjartan Blöndal eftir heimkomuna
af jöklinum.
og ég áttaði mig ekki á þegar
þeir fóru fram af og fylgdi því á
eftir.“
Aðspurður sagði Kjartan að
engin hræðsla hefði gripið sig á
meðan á fallinu stóð og hugsun
hans hefði verið mjög skýr allan
tímann. „Ég vissi ekki fyrri til en
allt hrundi undan mér og ég féll
þarna niður, líklega um 20 metra
og niður í snarbratta snjóbrekku.
Ég gerði mér meðal annars grein
fyrir því í fallinu að ég fór eina
heljarstökkssveiflu á leiðinni og
eins því að um leið og ég lenti kom
sleðinn ofan á mig. Ég meira að
segja sá hann fyrir ofan mig í
fallinu. Sem betur fer slasaðist ég
ekki mikið, og félagar mínir, sem
höfðu hrapað á undan, komu mér
strax til hjálpar. Og ég vil taka
það sérstaklega fram, að þessir
félagar mínir brugðust ótrúlega
vel við og þeir sýndu undraverða
rósemi á meðan á þessu stóð því
þetta leit verr út, en það var í
raun og veru. En eins og ég sagði
þá gerði ég mér grein fyrir því
allan tímann að þetta var í lagi.
Það fyrsta sem félagar mínir
hugsuðu um var að koma mér nið-
ur brekkuna og úr allri hættu frá
hugsanlegu hruni eða snjóflóði og
síðan náði annar þeirra í þann sem
eftir varð uppi á klettabrúninni. A
meðan tjaldaði hinn og ég komst
fljótlega ofan í hlýjan svefnpoka.
Því næst fórum við að grenslast
fyrir um þau sex, sem höfðu farið
í skálann og reyndum að kalla í
þau með talstöð sem við höfðum.
Við sendum út í talstöðinni lýsingu
á því sem hafði hent okkur og það
heyrðist eitthvert slitur af því í
skálanum, en hins vegar fengum
við ekkert svar. Síðan vorum við
þarna um nóttina í besta yfirlæti,
fyrir utan áhyggjurnar sem við
höfðum af afdrifum hinna. Eftir
að hafa borðað og safnað kröftum
á sunnudagsmorgun fóru strák-
amir í að moka snjóhús því það
hafði fennt svo um nóttina að
tjöldin voru að sligast og fyrirsjá-
anlegt að við myndum vera þama
að minnsta kosti einn sólarhring
í viðbót. Þeir mokuðu þama stórt
og gott hús og þar áttum við mjög
góða vist.
A mánudagsmorgun heyrðum
við í útvarpi, sem við höfðum
meðferðis, að það voru komin við-
brögð í bænum og vorum auðvitað
mjög ánægðir með það. Hins veg-
ar vissum við að okkar yrði seint
leitað á þessum stað, sem var í
gagnstæðri átt frá skálanum, mið-
að við þann stað þar sem við
höfðum upphaflega skilið við fé-
laga okkar. Við fórum því að kalla
aftur og þá fengum við svar um
hæl frá skálanum. Félagi minn,
Þór Daníelsson, var þá kominn
þarna uppeftir með björgunar-
mönnum úr bænum og ég gat
gert honum grein fyrir staðsetn-
ingunni, enda höfuin við oft farið
saman á Langjökul. Hjálpin barst
svo skömmu síðar."
Kjartan var að lokum spurður
hvort þeim félögum hefði orðið á
einhver mistök þrátt fyrir mikla
reynslu í fjallaferðum og hvort
hann gæti dregið einhvem lærdóm
af þessu atviki:
„Ég ætla nú ekki að fara að
verða gáfaður eftir á. Ég vil þó
segja það, að á meðan að menn
hafa tómstundir, hvort heldur það
er að ganga á fjöll, aka um á vél-
sleðum, þvælast um á hestum eða
að leika knattspymu þá gerast
alltaf einhver óhöpp. Þó svo að
við eigum að teljast þaulvanir
jökla- og fjallamenn get ég þó
dregið þann lærdóm af þessu að
maður má aldrei gleyma að nota
sjálfsögð hjálpartæki eins og átta-
vita og landakort, ef maður lendir
í svona gjörsamlega útsýnislausu
veðri, jafnvel þótt maður telji sig
vera alveg vissan um staðsetn-
ingu.
Ég vil að lokum koma á fram-
færi þakklæti til allra þeirra sem
komu okkur til hjálpar. Ég hef
verið í hjálparsveitinni 1.14 ár og
hef aldrei lent í því áður að vera
sá sem þiggur aðstoðina. Og ég
verð að játa, að mér finnst mun
betra að vera gefandi, en þiggj-
andi við svona aðstæður."
Heimför hjálparsveitarmanna tafðist:
Skildu eftir bilaðan
snjóbíl á jöklinum
HEIMFÖR 27 hjálparsveitar-
manna á Langjökli tafðist í
fyrrinótt vegna bilunar í einum
af snjóbílunum. Að viðgerð lo-
kinni héldu mennirnir niður af
jöklinum, en urðu að skilja eft-
ir annan snjóbíl, sem laskast
hafði eftir fall í sprungu.
Einn snjóbíll hélt til byggða
snemma í gærmorgun og með
honum tíu menn, þar á meðal
flestir þeirra, sem lent höfðu í
erfiðleikum á jöklinum um helg-
ina. Hinir héldu kyrru fyrir við
skálann við Fjallkirkju og lögðu
þeir af stað til byggða um hádegi
í gær. Eins og áður segir urðu
þeir að skilja eftir einn snjóbíl,
sem lent hafði í sprungu og er
ætlunin að vitja hans síðar, þegar
veður hefur skánað, en slæmt
veður var á Langjökli í gær.