Morgunblaðið - 15.04.1987, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1987
19
að vekja þetta mál upp óheppilegur
og eins ber að hafa í huga að sjálf-
stæðismenn í Reykjavík völdu
Albert til framboðs eftir að stað-
reyndir um Hafskipsmálið voru
komnar fram,“ sagði Jóhannes.
„Ég er hópi þeirra sem hafa litið
á Albert sem málsvara þeirra
manna í viðskipta- og atvinnulífi
sem eru utan við hring hins sterka
og gamalgróna peningavalds í
Reykjavík. Eg gat af þessum sökum
ekki hugsað mér Sjálfstæðisflokk-
inn án Alberts, þótt ég vildi ekki
hafa nema einn slíkan mann í
flokknum," sagði Jóhannes.
Jóhannes kvaðst hafa farið og
kynnt sér stefnuskrá Borgara-
flokksins eftir að hann sagði sig
úr Sjálfstæðisflokknum. Um tíma
hefði honum fundist að þama væri
kannski leið til að koma fram mál-
um sem erfitt hefði verið að fá
hljómgrunn fyrir innan Sjálfstæðis-
flokksins. Hann sagði að sér væru
einkum ofarlega í huga þau vanda-
mál sem stafa af byggðaröskun og
framleiðslustýringu í landbúnaði.
„Ef ekki verður breytt um stefnu á
þessu sviði blasir við hrun á stöðum
eins og Búðardal og víðar innan
fárra ára,“ sagði hann.
Af því varð ekki að Jóhannes
gengi til liðs við Borgaraflokkinn.
Eftir vandlega íhugun ákvað hann
að draga úrsögn sína úr Sjálfstæðis-
flokknum til baka og koma til starfa
fyrir hann í kosningabaráttunni.
„Ég komst að þeirri niðurstöðu að
Morgunblaðið/Þorkell Þorkelsson
Jóliannes Benediktsson
ég hafði ekki tekið rétta ákvörðun
og hugsað málið til enda,“ sagði
hann.
Um þessa niðurstöðu sína sagði
Jóhannes: „Við verðum að líta til
þeirra hugsjóna sem við störfum
fyrir og megum ekki láta tíma-
bundna uppákoma - hvaða skoðun
sem við höfum á henni - blinda
okkur sýn. Það er staðreynd að
Sjálfstæðisflokkurinn er vænlegasti
kostur fyrir þá sem vilja festu og
traust vald í þjóðfélaginu. Hann er
afl sem allir umbótasinnar hafa
getið snúið sér til og stutt, óháð
ágreiningi við flokksforystuna um
ýmis mál.“
„En það eru ekki síður hagsmun-
ir Vesturlands sem ráða stuðningi
mínum við Sjálfstæðisflokkinn,"
sagði Jóhannes. „Ég hafði átt þátt
í því að mynda framboðslista
flokksins í kjördæminu og á honum
eru þingmenn og þingsmannsefni
sem þekkja náið fólkið hér og at-
vinnulífið, menn sem eru vaxnir upp
úr þessu byggðarlagi. Þótt ég geti
verið sammála stefnumálum Inga
Bjöms Albertssonar get ég ekki
stutt hann á móti mönnum eins og
Friðjóni Þórðarsyni, Valdimar Ind-
riðasyni og Sturlu Böðvarssyni."
Jóhannes lagði hins vegar
áherslu á að sjálfstæðismenn litu á
þá sem gengið hefðu til liðs við
Borgaraflokkinn sem samheija en
ekki andstæðinga. Miklu skipti að
reynt yrði að sameina þessi öfl eft-
ir kosningar og ræða af hreinskilni
um ágreiningsefnin. „Við skulum
styðja Sjálfstæðisflokkinn í þessum
kosningum, en geymum þetta atvik
á spjöldum sögunnar sem viðvörun
um hvemig fer ef ekki er hugsað
um allar pólitískar 'aðgerðir í
víðtækum skilningi," sagði hann.
Listrýnirinn Myndverkasmiðurinn
HUGHRIF
Myndlist
Valtýr Pétursson
Svo hefur Bragi Ásgeirsson
nefnt sýningu þá, er hann heldur
þessa stundina á Kjarvalsstöðum.
Hann er stórtækur að vanda og
hefur lagt undir sig stærsta sal-
inn í byggingunni og fyllt hinn
stóra Vestursal með 88 mynd-
verkum, sem unnin eru á ýmsa
vegu, og að venju fer Bragi eigin
leiðir í efnisvali og úrvinnslu.
Þótt ýmissa grasa kenni í þessum
verkum eru olíulitirnir yfirgnæf-
andi, stærðir eru einnig fjöl-
breyttar og á stundum nokkuð
óvenjulegar. Uppháar, en mjóar
myndir, sem sjaldséðar eru hér á
sýngingum.
Bragi Ásgeirsson hefur gi-eini-
lega unnið af miklu kappi að
undanförnu, og flest þau verk,
sem hann sýnir að sinni, eni ný
af nálinni og hafa orðið til á
síðustu tveimur ámm. Dugnaður
Braga kemur enn betur í ljós,
þegar þess er minnzt, að ekki er
langt síðan hann var með stóra
sýningu á sama stað, og einnig
má minnast þess, að Bragi hefur
stundað kennslu og skrif um
myndlist jöfnum höndum, en
bæði þau störf eru tímafrek og
truflandi fyrir starfandi myndlist-
armann. En hvað um það, þetta
er litrík sýning, og listamaðurinn
er auðsjáanlega með mörg járn
í eldinum. Hann gerir alls konar
tilraunir, sem stundum heppnast
og stundum ekki. Ekkert er eðli-
legra, þegar hugmyndir sækja
hratt á og mönnum liggur mikið
á hjarta. Þessi verk Braga Ás-
geirssonar eru full af alls konar
myndrænum táknum, og það
verður að kunna að lesa úr þeim,
ef unnt á að vera að skilja merk-
ingu þeirra, en það vill oft á tíðum
fara þannig, þegar listamenn
nota slík tákn, að þeir einir séu
læsir á það letur og verði því að
útskýra það fyrir hinum almenna
lesanda. Ég vísa hér til greinar
í Lesbók um síðustu helgi, þar
sem Bragi bregður á það ráð og
útlistar eitt af meiri háttar verk-
um á sýningu sinni á Kjarvals-
stöðum.
Það eru gullfallegir hlutir hér
og þar á sýningu Braga. Ég bendi
hér á nokkur verk, sem mér þótti
bera þar af öðru: No. 1,5,18,31,
36,46,53 og 60. Eitt verk fannst
mér samt vera öðrum fremra,
málverkið Glóhitun No 31. Bragi
sannar enn einu sinni, að hann
er einn af okkar eftirtektarverð-
ustu málurum. Það er annars
óþarft að kynna Braga fyrir les-
endum Morgunblaðsins, svo lengi
hefur hann látið skoðanir sínar í
ljós á síðum þessa blaðs, að mér
er næst að halda, að hann sé
orðinn heimilisvinur þar, sem
blaðið er á annað borð lesið.
í Kaupmannahöfn
F/EST
Í BLAOASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖÐINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OGÁRÁÐHÚSTORGI
Eg kýs
Sjálfstæðis-
flokkinn
Jón
Kristinn,
menntaskólanemi, Kópavogi:
„Ég kýs Sjálfstæðisflokkinn
vegna þess, að ég tel að
það sé skylda min að stuðla
að frekari framþróun í
íslenskum efnahagsmálum.
Ennfremur tel ég framtíð
mína öruggasta í höndum
Sjálfstæðisflokksins".
X-D
mmREYKJANESmmm
&
Á RÉTTRI LEID
VZterkurog
k-J hagkvæmur
auglýsingamióill!
Tilkynning
um lóðahreinsun í
Reykjavík vorðið 1987
Samkvæmt ákvæðum heilbrigðisreglugerðar
er lóðareigendum skylt að halda lóðum sínum
hreinum og þrifalegum. Umráðamenn lóða
eru hér með minntir á að flytja nú þegar af
lóðum sínum allt, er veldur óþrifnaði og óprýði
og hafa lokið því eigi síðar en 14. maí nk.
Að þessum fresti liðnum verða lóðirnar skoð-
aðar og þar sem hreinsun er ábótavant verður
hún framkvæmd á kostnað og ábyrgð húseig-
anda án frekári viðvörunar. Þeir, sem óska
eftir sorptunnum, hreinsun eða brottflutningi
á rusli á sinn kostnað, tilkynni það í síma
18000.
Til að auðvelda fólki að losna við rusl af lóð-
um hafa verið settir gámar á eftirtalda staði:
Við Meistaravelli, Sigtún, Grensásveg og
Breiðholtsbraut við Vatnsendaveg. Eigendur
og umráðamenn óskráðra umhirðulausra
bílgarma, sem eru til óþrifnaðar á götum,
bílastæðum, lóðum og opnum svæðum í
borginni, eru minntir á að fjarlægja þá hið
fyrsta. Búast má við, að slíkir bílgarmar verði
teknir til geymslu um takmarkaðan tíma, en
síðan fluttir á sorphauga. Úrgang og rusl
skal flytja á sorphauga við Gufunes á þeim
tíma sem hér segir:
Mánudaga-föstudaga kl. 08.00-21.00
Laugardaga kl. 08.00-20.00
Sunnudaga kl. 10.00-18.00
Rusl, sem flutt er á sorphauga, skal vera í
umbúðum eða bundið. Ekki má kveikja í rusli
á sorphaugunum og hafa ber samráð við
starfsmennina um losun.
Sérstök athygli skal vakin á því, að óheimilt
er að flytja úrgang á aðra staði í borgar-
landinu. Verða þeir látnir sæta ábyrgð sem
gerast brotlegir í þeim efnum.
Gatnamálastjórinn í Reykjavík,
hreinsunardeild.