Morgunblaðið - 15.04.1987, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 15.04.1987, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1987 Enn eru möguleik- ar á nýrri stóriðju - segir Jóhannes Nordal, seðlabankasljóri, sem telur að umræður um nýj- ar leiðir í atvinnumálum einkennist of oft ýmist af óskhyggju eða svartsýni JÓHANNES Nordal, seðlabankastjóri, telur margt benda til þess, að á næstu árum geti skapast möguleik- ar hér á landi fyrir nýja stóriðju. „Ég held að það sé á misskilningi byggt þegar menn eru að tala um að dagar stóriðju á Islandi séu allir eða að „stóriðjudraum- urinn“ sé búinn. Á þessu sviði eru enn ýmsir möguleikar sem við hljótum að huga að og ekki er raunsætt að afskrifa eins og mér hefur virst nokkur tilhneiging til,“ sagði Jóhannes í samtali við blaðamann Morgunblaðsins. Jóhannes Nordal hefur um langt árabil tekið þátt í viðræðum og unnið að samningum við er- lenda aðila um orkufrekan iðnað á íslandi. Hann telur að umræður um nýjar leiðir í atvinnumálum hér á landi hafi einkennst um of af trú á einföldum lausnum og möguleikum á gjörbreytingum. „Einn daginn á stórðiðja að leysa allan vanda, annan daginn er það fískeldi, hinn þriðja er það loð- dýrarækt, síðan líftækni og svo framvegis. En svona einfaldir eru hlutimir ekki. Þetta eru allt at- vinnuþættir sem við eigum að vera vakandi fyrir og fjárfesta í þegar von er á að það skili okkur arði, en enginn einn þeirra getur komið í stað allra annarra eins og menn virðast stundum halda. Við getum ekki tekið ákvörðun um það í eitt skipti fyrir öll að nú skuli til dæmis fískeldi eða líftækni eða stóriðja verða aðal- vaxtargreinin í atvinnulífí okkar. Hlutimir gerast einfaldlega ekki svona, sagði Jóhannes." „Þegar menn eru að velta því fyrir sér, hvort „stóriðjudraumur- inn“ sé búinn er augljóslega gengið að því vísu að hér hafi menn dreymt stóra drauma um stóriðju, sem lausn á öllum okkar atvinnuvanda. Eflaust má fínna dæmi um einstaklinga sem á sínum tíma sáu stóriðju í hilling- um og trúðu því að hún mundi innan skamms leysa aðrar at- vinnugreinar af hólmi. Einhveijir trúa þessu líklega ennþá, en ég kannast ekki við að þetta hafi nokkru sinni verið ríkjandi viðhorf hjá þeim sem mest hafa fengist við þessi mál. Ég held að menn hafí horft raunsæjum augum á möguleika stóriðjunnar en jafn- framt á takmarkanir hennar. Tal um „stóriðjudrauma" sem hafi brugðist er því ekki alls kostar rétt eða sanngjamt. “ sagði Jó- hannes. „Menn litu á stóriðju sem skynsamlegan kost í atvinnumál- um, sem viðbót við annað, sem eina af mörgum stoðum sem hægt væri að renna undir atvinnulíf okkar. 0g þannig held ég að eðli- legt sé að líta á málin enn í dag, en hvorki láta stjómast af ósk- hyggju né svartsýni eins og svo oft hafa verið brögð að.“ Áhætta eða jafnar tekjur? Ef við víkjum að reynslunni af stóriðju hér á landi. Hvert er þitt mat á henni? „Reynslan af stóriðju er ekki slæm svo langt sem hún nær. Við höfum haft jafnar og stöðugar tekjur af álverinu í Straumsvík, tekjur sem skipt hafa þjóðarbúið verulegu máli. Uppbyggingin þar á sínum tíma skapaði hálaunaða atvinnu og miklar gjaldeyristekjur og sama er að segja um rekstur- inn á undanfömum árum. Það hafa verið nokkrir erfiðleikar í rekstri Járnblendiverksmiðjunnar, en vonandi tímabundin og ætla má að þar sé að rofa til.“ Eignaraðild að stóriðjufyrir- tækjum hefur verið umdeilt atriði. Hefur ekki reynslan leitt í Ijós að meirihlutaeign íslendinga er hæp- inn kostur? „Þetta er dæmi sem við verðum að meta út frá þeim efnahagslegu eða fjárhagslegu markmiðum sem við setjum okkur á þessu sviði. Ef við leggjum höfuðáherslu á öryggið, jafnar og fastar tekjur og stöðuga atvinnu, þá er fysileg- ast að hinn erlendi aðili taki alla áhættuna af rekstrinum og upp- skeri jafnframt hagnaðinn þegar og ef hann verður. Samningurinn við Alusuisse var upphaflega byggður á þessum grundvelli. Ef við á hinn bóginn viljum freista þess að hafa meira upp úr stór- iðju en þessi leið gefur okkur þá blasir hinn kosturinn við. Þá ger- umst við aðaleigendur fyrirtækis- ins og verðum þátttakendur í hugsanlegum hagnaði. En um leið verðum við þá að axla ábyrgð sem rekstrinum fylgir og búa okkur undir ójafnar tekjur eða taka á okkur tap eða tekjumissi ef sú verður reyndin, eins og alltaf má búast við vegna þess hve sveiflu- kenndur markaðurinn getur verið. Samningurinn um Járnblendi- verksmiðjuna á Grundartanga er af þessu tagi.“ Og hvort telurðu skynsam- legra? „Ég held að margt bendi til þess að það sé mikilvægara og skynsamlegra að fá jafnar og stöðugar tekjur af stóriðju, heldur en að sækjast eftir sveiflukennd- um hagnaði. Og þá hef ég í huga smæð íslenska efnahagskerfisins í samanburði við stærð fyrirtækja í orkufrekum iðnaði. Én það er ijóst að erlendir aðilar eru ekki lengur jafn áhugasamir og áður um að taka á sig alla ábyrgðina þegar um er að ræða samvinnu um stóriðjufyrirtæki. Það eru hins vegar til leiðir til að samræma að einhveiju leyti þá kosti sem fyrir hendi eru. T.d. getur hinn 3^ Jóhannes Nordal erlendi aðili farið fram á það að við tökum þátt í áhættunni með því að láta raforkuverð fylgja að hluta sveiflum í heimsmarkaðs- verði á framleiðslu fyrirtækisins, en með því er rekstraráhætta þess að nokkru borin af raforkufram- leiðandanum. Þessi leið var farin þegar samningurinn um Álverið í Staumsvík var endurskoðaður fyr- ir nokkrum árum,“ Tækifæri geta skapast Þú talar um minnkandi áhuga erlendra fyrirtækja á að taka alla áhættuna í sambandi við stóriðju. Hafa erlend fyrirtæki nokkurn áhuga á samstarfi við okkur leng- ur? Erum við ekki búin að glata þessum tækifærum sem við höfð- um? „Vissulega má segja að við höfum ekki nýtt okkur sem skyldi tækifæri sem buðust í upphafí þessa áratugar. Og verð á fram- leiðsluvörum orkufreks iðnaðar hefur nú um nokkurt skeið verið okkur óhagstætt. Það þýðir samt ekki að engin breyting geti orðið á í þessum efnum. Oðru nær. Mér virðist margt benda til þess að á allra næstu árum geti skapast ýmis tækifæri fyrir okkur íslend- inga til að selja umframraforku til stóriðjufyrirtækja. Við eigum að fylgjast með þessum tækifær- um, en hvorki gera of mikið né of lítið úr þeim. Þar verða ekki á ferðinni ódýrar eða einfaldar lausnir á vanda í atvinnulífinu, heldur möguleikar til að auka fjöl- breytnina og skapa okkur tekjur. Mörg stóriðjufyrirtæki líta til Vesturlanda, þegar þau huga að staðsetningu verksmiðja sinna fremur en til þriðja heimsins, en margir telja íjárfestingar þar hættuspil vegna óstöðugleika í efnahagslífi og stjómmálum. í Evrópu, að íslandi undanskildu, er lítið um ónýtta vatnsorku. Þar eru aftur á móti möguleikar á kjarnorku og kolum. Kjarnorkan á undir högg að sækja eftir slysið í Chemobyl í fyrra. Sama gildir raunar um kolakynt raforkuver vegna aukinnar umhugsunar manna um mengun og umhverfís- vemd. Vatnsorkan á íslandi gæti fengið aukið aðdráttarafl að nýju áður en langt um líður og ekki ólíklegt hún verði hagkvæmari en annað það sem í boði er.“ Ertu þá að tala um nýja mögu- leika á sviði stóriðju á allra næstu árum? „Já, það er ekki ólíklegt, þótt erfítt sé að spá um tímasetning- ar. En við verðum að gæta að því að stóriðjufyrirtæki er ekki reist -á skömmum tíma. Það tekur allt- af nokkur ár frá því samnningar em gerðir, þar til fyrirtæki af þessu tagi geta hafíð starfsemi. Ef gengið yrði til samninga um stækkun álversins núna á næst- unni þá yrði það ekki komið í gagnið fyrr en eftir 3 eða 4 ár. Við emm því að tala um fyrirtæki sem gætu tekið til starfa á fyrri- hluta næsta áratugar. Og einmitt á þeim tíma renna raforkusamn- ingar margra stóriðjufyrirtækja við evrópskar ríkisstjómir út. Þá verða þessi fyrirtæki að taka af- stöðu til þess hvort þau vilja eða geta haldið áfram rekstriverk- smiðja sinna þar sem þær em nú staðsettar eða hvort þau verða að leita eitthvað annað. Það er meðal annars með þetta í huga sem ég tala um möguleika á sviði stóriðju sem við þurfum að fylgj- ast með og meta af raunsæi. Við eigum hvorki að Iáta stjórnast af óskhyggju né svartsýni heldur líta á þessa hluti með rólegri yfirveg- un og af opnum hug,“ sagði Jóhannes Nordal. Ársskýrsla Landsbankans: Hagnaður í fyrra 176 milljóiiir króna Innlán jukust um 34% en útlán um 8% en vaxtamunur lækkaði REKSTR ARAFG AN GUR ársins 1986 hjá Landsbanka íslands nam alls 176 miljónum króna, þegar tillit hefur verið tekið til af- skrifta, framlags í sjóði og áætlaðra tekju- og eignaskatta. Er þetta talsverð lækkun frá fyrra ári en þá nam rekstraraf- gangurinn um 260 milljónum. I nýútkominni ársskýrslu Lands- bankans kemur fram að jákvæð þróun lausafjárstöðu hafi stuðlað að betri afkomu en á hinn bóginn hafi dregið úr batanum vegna Iækkandi vaxtamunar og hækk- anir á kostnaði umfram hækkanir á gjaldskrá. Vaxtabil bankans var um 4,7% árið 1986 en 5,1% árið áður og sam- svarar það um 100 milljónum króna lægri tekjum. Lækkun vaxtabilsins kom bæði fram í almennum út- og innlánum og í endurlánuðu erlendu lánsfé oggengisbundnum afurðalán- um. Mestu máli skiptir þó sam- kvæmt ársskýrslunni hversu hlutur sérkjara í innlánunum er orðinn mik- ill en ávöxtun þeirra var á liðnu ári hærri en verðtryggðra útlána bank- ans. Ætlunin var að mæta lækkun vaxtamunar með hækkun gjaldskrár en vegna kjarasamninga var til þess mælst að bankamar hyrfu frá hækk- un þessari og var því gjaldskrá fyrir innlend viðskipti ekki hækkuð fyrr en 1. desember á sl. ári. Aukning innlána var tiltölulega góð á árinu, segir ennfremur í ár- skýrslu bankans. Var hún um 34% og jukust innlán úr 12.662 millj. kr í 16.902 millj. króna. Hækkun verð- lags á árinu var um 15% samkvæmt lánskjaravísitölu og er raunhækkun því veruleg. Aukning spariinnlána nam 37,8% og veltiinnlána um 40,2%. Gjaldeyrisinnlán drógust hins vegar lítillega saman á árinu. Hlut- deild Landsbankans í heildarinnlán- um er nú 33,5% og jók bankinn hlutdeild sína í spariinnlánum. Kjör- bókin er nú mest notaða tegund innlána í Landsbankanum og eins ef litið er á banka og sparisjóði í heild. Innstæður á Kjörbók vom tæpir 6 milljarðar í lok sl. árs og er aukning ársins 58%. Kemur fram í ársskýrslunni að Kjörbókin hafi gefíð sparifjáreigendum hæstu ávöxtum sem fáanleg er á óbundnu sparifé hjá innlánsstofnunum á sl. ári. Heildarútlán Landsbankans juk- ustu á árinu 1986 úr 26.324 millj. króna í 28.457 millj. króna eða um 8%. Kemur fram í ársskýrslunni að þetta sé mun minni aukning en mörg undanfarin ár. I skýrslunni segir ennfremur að skipta megi útl- ánum bankans í þrjá meginflokka eftir fjármögnun. í fyrsta lagi al- menn innlend útlán sem að mestu em fjármögnuð með innlánsfé, en aukning þeirra á árinu var liðlega 3 þúsund millj. eða 24%. Þá em geng- isbundin afurðalán og önnur gengis- bundin lán sem ijármögnuð em með gengisbundum innlánum og lántök- um í erlendri mynt. í þessum lánum varð samdráttur um 606 millj. króna eða 14%. Þriðji flokkurinn er svo endurlánað erlent lánsfé en þar varð einnig lækkun um 267 millj. króna eða 3%. Útlánaukning á árinu varð mest til einstaklinga eða 861 milljón, til iðnaðar 546 milljónir, til landbúnað- ar 458 milljónir og til verslunar 313 milljónir. Almenn útlán til sjávarút- vegs jukust um 546 milljónir en gengisbundin afurðalán til sjávarút- vegs lækkuðu hins vegar um 1.221 milljón enda em þau lán veitt út á afurðir framleiddar til útflutnings og fylgja því stöðu birgða á hveijum tíma. Af endurlánuðu erlendu lánsfé varð mest aukning til sjávarútvegs eða 829 millj. kr. en um helmingur af stofni þess er til sjávarútvegsins. Útlán til iðnaðar jukustu um 293 milljónir, til samvinnufélaga um 213 milljónir og til kaupmanna um 96 milljónir. Til flestra annarra varð minnkun en þó mest til bæjar- og sveitarfélaga eða 488 milljónir. í árskýrslu Landsbankans kemur fram að bankinn er með um helming allra útlána til atvinnulífsins. Hlut- deild bankans í lánum til sjávarút- vegs er um 66%, til landbúnaðar 45% og til iðnaðar 51%. Til olíuverslunar- innar er hlutdeildin um 78% en 31% til annarrar verslunar. Útlán Lands- bankans til einstaklinga námu rúmlega 3 milljörðum króna í árslok og var hlutdeildin þar um 27%. í heild er Landsbankinn með 45% af útlánum allra innlánsstofnaná. Þá kemur fram í árskýrslunni að eiginfjárhlutfall Landsbankans styrktist úr 7.2% í árslok 1985 í 8,4% í lok liðins árs og er þetta eink- um rakið til rekstrarhagnaðarins á sl. ,ári. Lög um viðskiptabanka kveða á um 5% lágmarkshlutfall eiginfjár en í ársskýrslunni segir að Lands- bankanum hafi á undanfömum tveimur árum tekist að styrkja eig- infjárstöðu sína verulega. Einnig segjr að lausafjárstaða bankans hafí batnað verulega á sl. ári eða um 646 milljónir sem skýrist af hægari aukn- ingu útlána en innlána. Þegar frá innlánum er dregið bundið fé, stend- ur eftir aukning á ráðstöfunarfé frá innlánum að fjárhæð um 3,5 millj- arðár og af þessu fé fóru 2,5 millj- arðar til útlána. Skuld Landsbank- ans á viðskiptareikningi í Seðlabanka lækkaði um 637 milljón- ir og nam 282 milljónum í árslok. Skammtímalán í Seðlabanka námu hins vegar 1.549 millj. króna og höfðu aukist um 229 milljónir. Stað- an við útlönd var hins vegar jákvæð um 392 milljónir og batnaði um 354 millj. króna. Kemur fram í ársskýrsl- unni að það sé von bankastjómar að þessi jákvæða þróun haldist svo unnt verði að koma lausafjárstöð- unni í eðlilegt horf og með svipuðum raunvöxtum og giltu á sl. ári eigi það að geta tekist.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.