Morgunblaðið - 15.04.1987, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 15.04.1987, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR 15. APRÍL 1987 21 Samninga án verkfalls eftir Friðfinn Finnsson Um fátt er nú meira talað en það góðviðri sem verið hefir undanfarið sem allir undrast á þessum árstíma. Og þegar hugsað er til liðins árs er sömu sögu að segja; menn muna ekki annað eins og mikið megum við þakka skaparanum fyrir alla þá blessun sem hann hefir gefið Is- landi á undanförnum árum til sjós og lands. En nú hefir syrt á álinn. Stór óheillaalda hefur gengið yfir íslensku þjóðina. Það eru verkföllin sem verið hafa undanfarið og vald- ið hafa þjóðinni stórtjóni beint og óbeint, samanber verkfallið á kaup- skipaflotanum í vetur. Það má heita merkilegt, þegar maður hugsar um þessi samningamál, að ekki skuli vera reynt að vinna þau með öðrum hætti. Ég held að varla sér hægt að hugsa sér óskynsamlegri vinnu- brögð en þau sem hér eru viðhöfð ár eftir ár, og þá á ég við verk- föllin eins og þau eru í reynd. Væri ekki þess virði að reyna aðrar leiðir? Það ætti ekki að vera neinum til tjóns eins og nú er þar sem laun- þegar eru kauplausir meðan á verkfalli stendur og atvinnurekend- ur verða fyrir stórtjóni sömuleiðis og íslenska þjóðin fyrir álitshnekki á margan máta. Er ekki hægt að leysa þessi mál á hagkvæmari máta með því að semja án verkfalla? Mér finnst þetta vera svo alvarlegt mál, að nauðsyn sé til að breyta hér um vinnubrögð. Ég man eftir því fyrir nokkrum árum að þá var talað um að skynsamlegt væri að nefnd væri starfandi sem fylgdist með á vinnu- markaðinum, kaupmætti og afkomu atvinnuveganna. Sama nefnd ætti að hafa yfirlit yfir öll launamál sem ríkisstjórnin hefir á sínum snærum svo sem hjá kenn- arastétt og hjúkrunarfólki. Þessi Friðfinnur Finnsson „íslenska þjóðin er vel menntuð og skynsöm þjóð, sem ætti að geta komið sínum málum í það form sem væri til fyrirmyndar og sóma.“ nefnd reiknaði svo út kaupið eins og það ætti að vera á hveijum tíma samanber nú, þegar kjaranefnd til- kynnti þingmönnum nýlega kaup- hækkun. Þar þurfti enga samninga. Ég ætla að setja hér fram hug- mynd sem mér hefir dottið í hug. Þegar kaupsamningum hefir verið sagt upp og málinu vísað til sátta- semjara ríkisins hafi samninga- nefnd fjörtutíu daga til samninga- gerðar, síðan hafi sáttasemjari leyfi til að gefa frest í þrjá daga og aftur í þijá daga ef hann telur málið á því stigi að það geti leitt til sátta. Ef ekki næðust sættir tækju við dagsektir sem væru að upphæð eitt þúsund krónur hjá hvorum aðila og það sektarfé sem inn kæmi rynni óskipt til fatlaðra og lamaðra. Það væri gaman ef einhveijir létu í sér heyra um svona bollaleggingar, þeir hafa kannski fengið betri hug- myndir og það skaðaði ekki þó þetta væri reynt. Allt er betra en verk- föll, því ég veit að þau hljóta að taka á taugarnar; til dæmis hjá hjúkrunarfræðingum að ganga út af sjúkrahúsi hafandi í huga orð hans sem sagði hin ógleymanlegu orð: „Allt sem þér gjörið mínum minnstu bræðrum, það hafið þér mér gjört.“ Íslenska þjóðin er vel menntuð og skynsöm þjóð, sem ætti að geta komið sínum málum í það form sem væri til fyrirmyndar og sóma. Til gaman ætla ég að segja hér frá því þegar ég var kosinn í samn- inganefnd í mínum heimabæ, Vestmannaeyjum. Mig minnir að það hafi verið árið 1929, svo segja má að þessi samningafundur sé kominn í sögulega fjarlægð. En þá var allt fábrotnara en nú er, bæði samningar og annað. Þá var starf- andi útgerðarmannafélag í Eyjum sem útgerðarmenn voru eingöngu í. Þá var einnig sjómannafélag sem hafði eingöngu sjómenn innan sinna raða. Þetta var í vertíðarbyijun. Þá fengum við í sjómannafélaginu skilaboð frá útgerðarmönnum um að þeir væru búnir að kjósa þriggja manna samninganefnd og við beðn- ir að kjósa samninganefnd fyrir okkar félag. Sjómannafélagið var í þremur deildum. Þar var formanna- deild, þar var formaður Árni Þórarinsson, þá var hásetadeild, þar var formaður Guðmundur Helga- son, svo var vélstjóradeild, þar var formaður sá er þessar línur festir á blað. Svo héldum við fund í félag- inu til þess að kjósa samninganefnd. Kosnir voru formenn deildanna, þrír menn. Þeir voru Árni Þórarins- son, Guðmundur Helgason og Friðfinnur Finnsson. Tveim dögum Hæstiréttur: ísafoldarprentsmiðja sýkn- uð af kröfum höfunda ís- lensk-þýskrar orðabókar ísafoldarprentsmiðja var í gær sýknuð í Hæstarétti af kröfum höfunda íslensk-þýskrar orða- bókar og var höfundunum gert að greiða prentsmiðjunni 1,5 milljónir með dómvöxtum frá október 1984 vegna ólögmætra samningsslita. Mál þetta var upphaflega höfðað af ísafoldarprentsmiðju vegna rift- unar höfunda orðabókarinnar á samningi við prentsmiðjuna. Vinna við orðabókina hófst árið 1959 og í mars 1983 riftu höfundar hennar samningnum og gáfu upp þá ástæðu að útgáfa hefði dregist úr hömlu og að samið hefði verið við annan útgefanda. Forráðamenn töldu sig hins vegar hafa sýnt fram á að þeir væru að undirbúa útgáfu, til dæmis með fyrirhuguðum kaup- um á tölvubúnaði til setningar. ísafoldarprentsmiðja krafðist þess að fá greiddar tæpar 7,5 millj- ónir króna frá höfundum vegna samningsslitanna, glataðs hagnað- ar, launa sem greidd höfðu verið og ýmiss kostnaðar annars. Höf- undar kröfðust þess á móti að vera sýknaðir af öllum kröfum og kröfð- ust bóta upp á tæpar 5 milljónir vegna dráttar á útgáfu og vegna vinnukostnaðar við að endurvinna bókina, þar sem hún væri að hluta úrelt. Undirréttur féllst á að um ólög- mæta riftun samnings hefði verið að ræða og var höfundum gert að greiða ísafoldarprentsmiðju 1,3 milljónir króna. Höfundarnir áfrýj- uðu og prentsmiðjan gagnáfrýjaði málinu. í Hæstarétti voru fjórir af fimm dómendum sammála niðurstöðu undirréttar. í niðurstöðum Hæsta- réttar segir að svo verði að líta á sem til þess hafi verið ætlast að útgáfutími bókarinnar færi eftir aðstæðum og þá einkum því hvem- ig höfundum miðaði með verkið. Þá verði að ætla að gengið hafi verið út frá því að prentsmiðjan hæfist handa um útgáfuna innan sanngjarns og eðlilegs tíma frá því að til hennar barst handrit, þannig að hægt væri að hefjast handa við setninga og prentun og annan frá- gang, svo það verk mætti vinna án óeðlilegra tafa. Höfundarnir héldu því fram að samningsslit þeirra rétt- lættist af því að óeðlilegur dráttur hafi orðið á því að setning og ann- að hæfist. Hæstiréttur sagði að það yrði ekki ótvírætt ráðið af gögnum málsins að höfundarnir hafi gert forráðamönnum prentsmiðjunnar afdráttarlaust grein fyrir því að handrit þeirra væri svo langt komið að þeir gætu afhent það til útgáfu í hlutum, sem að mætti vinna án tafa sem máli skiptu, uns lokið yrði. Því hefði ekki verið hreyft að höf- undarnir teldu sig lausa mála af samningum sínum vegna dráttar á útgáfu. Taldi Hæstiréttur þó að til þess hefði verið sérstök ástæða, þar sem fram kom að prentsmiðjan ætlaði að festa kaup á sérstökum búnaði til verksins. Hæstiréttur áleit því að skilyrði hafi brostið til slita á samningi. Samkvæmt þessu féllst Hæsti- réttur á það með forráðamönnum prentsmiðjunnar að höfundarnir seinna komu svo nefndirnar saman í húsi KFUM & K í litla salnum. í nefndinni frá útgerðarmönnum voru: Ársæll Sveinsson, Tómas M. Guðjónsson og Sigurður H. Gunn- arsson. Þegar nefndirnar mættu svo til fundar, þá sagði Ársæll sá heið- ursmaður: „Jæja drengir, okkur hefir verið falið ábyrgðarstarf, nú þurfum við að láta okkur koma saman, svo vertíðin geti byijað.“ Undir það var vel tekið. Þá stakk einn nefndarmanna upp á því að fara að ráðum okkar blessaða meistara sem gaf regluna einföldu: „Leitið fýrst Guðsríkis og hans rétt- • lætis, þá mun allt annað veitast yður.“ Undir þetta var vel tekið af öllum. Síðan röðuðum við okkur kringum borðið, tókumst í hendur og báðum almættið um visku og náð, að við mættum koma okkur saman um það sem við vorum kosn- hafi bakað sér skaðabótaskyldu með samningsrofi sínu. Tjón prent- smiðjunnar var álitið 1,5 milljónir, en fjárkröfur höfundanna voru ekki teknar til greina. Þá var höfundun- um gert að greiða 400 þúsund krónur í málskostnað. Dóminn kváðu upp hæstaréttar- dómararnir Magnús Thoroddsen, Guðmundur Jónsson, Magnús Þ. Torfason og Þór Vilhjálmsson og prófessor Arnljótur Björnsson. Þór Vilhjálmsson skilaði sératkvæði í málinu þar sem segir að ljóst sé að fullnægjandi handrit hafi verið tilbúið árið 1978, en ekki hafi verið hafist handa við prentsmiðjuvinnu. Hafí svo staðið allt fram á árið 1982. Komst Þór að þeirri niður- stöðu að höfundunum hafi verið heimilt að rifta útgáfusamningnum. Þá áleit Þór riftunina einnig lög- mæta þar sem frásögnum forráða- manna prentsmiðjunnar um kaup á tölvubúnaði til setningar hafi ekki fylgt neinar athafnir sem settu höf- unda í þá stöðu, að þeir hlytu að taka afstöðu til, hvort þeir vildu veita viðtöku greiðslu frá útgefanda eða öðru, sem fæli í sér efndir á útgáfusamningi af hendi hans. Sagði Þór að 36. gr. 2.mgr. höf- undalaga gildi um samskipti aðila. Bæri að sýkna höfundana af kröfum ísafoldarprentsmiðju og ekki væru efni til að taka skaðabótakröfur höfunda til greina, enda ekkert tjón sannað. Lögmaður ísafoldarprentsmiðju var Ragnar Aðalsteinsson, hrl. og lögmaður höfundanna var Jón Steinar Gunnlaugsson. ir til og sem mætti verða Eyjunum til farsældar. Síðan settumst við að borðinu og fórum að ræða samn- ingamálin. Þau voru nú aðallega með tvennu móti í Eyjum á þeim tíma. Það voru hlutaskipti og mán- aðarkaup og svo fæðispeningar hjá mánaðarkaupsmönnum. Um þetta ræddum við í tvo og hálfan klukku- tíma og þá vorum við komnir að niðurstöðu sem við vorum allir sam- mála um að leggja fyrir félög okkar næsta dag. Síðan gerðum við upp leiguna fyrir salinn, það voru þrjátíu krónur sem við greiddum húsverði, fímm krónur hver. Daginn eftir var svo haldinn fundur í báðum félögun- um og þar voru samþykktir samn- ingarnir sem við gerðum einróma. Við þessa samningagjörð voru svo sannarlega allir aldamótamenn. Ég sem línur þessar skrifa yngstur, fæddur 1901. Að endingu óska ég íslensku þjóðinni gleðilegrar páska- hátíðar. Höfundur er frá Oddgeirshólum í Vestmannaeyjum. Ráðning sagnrit- ara Akureyrarbæj ar Athugasemd við frétt Morgunblaðsins eftir Stefán Fr. Hjartarson í tilefni fréttar Morgunblaðsins 8. apríl vildi ég benda á nokkrar staðreyndir sem nauðsynlegt er að komi fram í máli þessu. í frásögn Morgunblaðsins er þess getið að menningarmálanefnd Akureyrar- bæjar hafi ekki getað komið sér saman um hvern hinna sex umsækj- enda hún kysi öðrum fremur. Það er ekki allur sannleikurinn. Meiri- hluti nefndarinnar lét bóka í fundargerð að hann teldi Stefán F. Hjartarson tvímælalaust hæf- astan til starfans. Þetta er kjarni málsins. Nefndin, sem vann úr umsóknunum og hafði tekið viðtöl við allflesta umsækjendur, taldi að með tilliti til menntunar og reynslu væri ég best til þess fallinn að fag- lega rannsaka og semja sögu Akureyrar. Formaður nefndarinn- ar, Gunnar Ragnars, nýtti sér þann möguleika á lokafundi nefndarinnar að bera fram tillögu þess efnis að bæjarstjórn réði vali á sagnritara. Með þessari tillögu var komið í veg fyrir að hægt væri fyrst að athuga vilja meirihluta menningarmála- nefndarinnar, sem reyndist vera mín megin. Með þessu er ég ekki að segja að bæjarstjórn megi ekki velja eftir sínu eigin höfði. Það er munaður stjórnmálamanna að geta valið eftir flokkslegum línum og gengið framhjá hefðbundnu hæfi- leikamati. Hjá vísindastofnunum (eða í bæjarfélagi með háskóla) er það skylda að velja úr umsóknum með tilliti til menntunar viðkomandi aðila, reynslu og hæfileika til að skipuleggja og framkvæma rann- sóknarstörf. Morgunblaðið getur að engu menntunar minnar. Undan- farin fimm ár hef ég haft rannsókn- arstöðu við háskólann í Uppsölum (í Svíþjóð) og unnið að doktorsverk- efni sem nú er senn að ljúka. Vísindasjóður íslands hefur í nokk- ur ár veitt mér kostnaðarstyrk vegna umfangsmikillar heimildaöfl- unar á Akureyri og víðar Norðan- lands. Ég hef fengið birtar fjölmargar greinar um vísindastörf mín í innlendum og erlendum tíma- ritum. Heimildayfirsýn mín úm Akureyri jafngildir fleiri ára vinnu sem bærinn nú hafnar. í ítarlegri umsókn minni til Akur- eyrar benti ég á íjóra umsagnarað- ila, tvo íslenska og tvo sænska. Aldrei var leitað eftir upplýsingum frá kennara mínum og prófessor, Rolf Torstendahl. Hann hefur stöð- ugj; fengið upplýsingar um ætlun mína og heilshugar stutt mig. Nú eftirá skynjar maður, að reynt hef- ur verið að forðast öflun fleiri staðfestinga á vísindalegri starfs- þekkingu minni. Ég vísa hér sér- staklega til ummæla prófessors Rolfs Torstendahls í þeim efnum. Leitt er til þess að vita, að jafn mikilvægt verkefni og söguritun Akureyrar er, skyldi verða stjórn- málatogstreitu að bráð. Athugasemd mín hefur ekki þann tilgang að mótmæla vali Sjálfstæð- isflokksins og Alþýðuflokksins á sagnritara. Forsendur þeirra þurfa ekki að vera bundnar mati á mennt- un og reynslu. En til að gera óskiljanlegan hlut skiljanlegan verður stundum að gera greinar- mun á flokkspólitískum munaði og fræðilegu siðferðislegu mati. Höfundur er sagnfræðingur og vinnurað doktorsritgerð við Upp- salaháskóla. Landakotsskóli: Óskað eftir munum frá 1900 til 1965 í TILEFNI af 90 ára afmæli Landakotsskóla, sem halda á hátíðlegt 23. og 24. maí nk., er óskað eftir gömlum munum og myndum frá árunum 1900—1965 vegna sýningar sem halda á í tilefni afmælisins. Þeir sem eiga muni og myndir vinsamlegast hafí samband við ein- hveija eftirtalda: Elísabet, s. 18988, Guðborg, s. 12310, Érna, s. 12692 eða Asdís, s. 50959.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.