Morgunblaðið - 15.04.1987, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 15.04.1987, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1987 Eldur í æðum eftir Benjamín H.J. Eiríksson Hvað er verið að segja mönnum með þessum tvíræðu orðum? Brenn- ur eldur í æðum! Eru þeir ekki lengur heilir á sönsum, eða eru þeir eldsmatur? Jón Sigurðsson fyrrverandi ráðu- neytisstjóri í fjármálaráðuneytinu gerði allvel grein fyrir ávirðingum Alberts Guðmundssonar stjóm- málamanns og ráðherra með grein hér í blaðinu í miðri síðustu viku. Við þann þátt málsins hefi ég litlu að bæta, og þó. Sú fyrirgreiðsla að hjálpa sveita- manninum að rata um borgina eða milli opinberra skrifstofa er fyrir- greiðsla, sem enginn getur haft neitt út á að setja. En fyrirgreiðsl- an, sem Albert býður og hælir sér af, er af öðrum toga. Sú fyrir- greiðsla hans er kaup á pólitísku fylgi fyrir fé og eignir samborgar- anna, skattgreiðendanna, stundum fengið gegnum kunningjana. Flestir opinberir embættismenn kynnast því fljótt í starfi, hversu erfítt það getur verið að úthluta opinberum gæðum svo vel fari, t.d. húsnæði, lóðum, lánum eða styrkj- um. Reynt er af fremsta megni að framkvæma með réttlæti og ýmis- konar snúrur eru látnar marka réttlætisveginn: ómegð, aldur, menntun, atvinnuþörf og atvinnu- skilyrði o.s.frv. og ekki ósjaldan: listinn. Embættismennimir búa yfir langri reynslu í þessum efnum og eru oftast ákaflega mikið á móti „fyrirgreiðslu" stjómmálamann- anna, hún feli oft í sér einhverskon- ar ranglæti, sem eigi að þjóna pólitískum hagsmunum þeirra. Nú kemur númer 31 á listanum til ráðherrans og segin Kæri vinur! Ég þarf ekki að segja þér hvar ég stend í pólitíkinni. Það veistu! En nú er ég í vandræðum. Það er þetta með listann. Heldurðu ekki að skrif- stofublækumar hafi sett mig í 31. sætið! Svona er nú réttlætið sem ég fæ hjá þessu stirðnaða embættis- mannakerfi. En ég treysti þér! Ráðherrann, í símann: Hann Jón er hjá mér. Heyrðu, þú færir hann. Settu hann bara númer 1, það er einfaldast. Hvað? Nei, nei. Það tek- ur enginn eftir einum. Jón: Alúðar- þakkir! Ég vissi að þú myndir ekki bregðast mér. Við stöndum okkur í prófkjörinu, vertu viss! Hvað hefír gerzt? Jú, einum hef- ir verið hjálpað. Hvemig? Með því að færa 30 menn niður um eitt sæti hvem. Ráðherrann hefír sýnt ranglátt hugarfar og sparkað 30 manns niður á við. Hann hefír beitt þá ranglæti. Þettá er það sem fyrirgreiðslu- pólitíkin er: ranglætispólitík, spill- ing, oft gróf spilling. Gjafír á almannafé eða öðmm eignum til pólitískra vina em spilling, kaup á pólitísku fylgi. Andlega heilbrigt fólk hefír skömm á þessu. Albert hælist um. Hann hefír þjóðina að fífli. En þetta er ábatasamt. Þetta er nú hið opinbera siðgæði Alberts, siðgæði hans í opinbem lífí, þjónusta hans við borgarana. Hún er rotin. Síðan er siðgæði Al- berts i einkalífí. Hann stingur annarra fé í vasann. Enn hefír ekki verið að fullu upplýst hvað varð um 20 þúsundin hans Guðmundar J. Þetta vantaði á upphæðina sem Hafskip og Eimskip gáfu honum. Og Albert er maðurinn í málinu. I þessu máli kemur einnig fram hið sanna eðli „góðgerðarstarfsemi" Alberts. Hún er fyrir annarra fé. Afslættinum af frakt, sem Áfengis- og tóbaksverzlun ríkisins greiddi, stakk Albert í eigin vasa. Aðrir fengu 5%, hann 10%. Fyrirgreiðslu- stjómmálamenn eiga það til stund- um að kalla inn pólitískar eignir og skuldbindingar. Fyrir nokkmm ámm gafst einn af einræðishermm Mið-Ameríku upp á því að stjórna. Sonur hans flúði á snekkju sinni. Hún var stöðv- uð í hafi, tekin eða skoðuð. Innan- borðs vom 300 milljónir dollara í gulli, erlendum gjaldeyri og þess- háttar verðmætum. Menn töldu þetta bera vott um rotið stjómar- far, fyrirgreiðslupólitík með meim. Vilji menn ekki svona stjórnarfar, þá verða þeir að ganga eftir því að trúnaðarmennimir hagi sér öðm- vísi, líka í smáu. Það verður að vera ósveigjanleg krafa, að þeir séu heiðarlegir og réttlátir. Þjóðin fær svo þá leiðtoga sem hún verðskuld- ar. Sonurinn hér að ofan bytjaði náttúralega ekki á 300 milljónum, menn byrja smærra. En allt um það geta þeir komist upp í 300 eða jafn- vel 400 milljónir! Marcos og Imelda em sögð hafa tekið sér milljarða. Og þau eiga stóran hóp aðdáenda og fylgismanna á Filippseyjum. Ég varð vægast sagt undrandi þegar ég sá það í nýjum Helgar- pósti, að Albert hefði tekizt að koma því inn hjá kristnum leiðtogum að þeir skuldi honum pólitíska fylgi- spekt fyrir það, hvemig hann hafí afgreitt mál þeirra sem embættis- maður, í embætti sem þjóðin hefír trúað honum fyrir, embætti þar sem embættisskyldan er að hann gæti hagsmuna og réttlætis allra borg- aranna. Engum ætti að vera þetta ljósara en leiðtogum hinna trúuðu. Ém þeir að þakka fyrir það, að þeir hafí fengið meira en þeim bar? Klausan í Helgarpóstinum er svona: „Síðastliðið sumar skrifuðu bisk- Dr. Benjamín H.J. Eiríksson „Þetta er það sem fyrir- gfreiðslupólitíkin er: ranglætispólitík, spill- ing, oft gróf spilling. Gjafir á almannafé eða öðrum eignum til póli- tískra vina eru spilling, kaup á pólitísku fylgi. Andlega heilbrigt fólk hefir skömm á þessu. Albert hælist um. Hann hefir þjóðina að fífli. En þetta er ábatasamt.“ upinn yfir íslandi og kaþólski biskupinn á ísiandi, ásamt öðrum íslenzkum trúarleiðtogum, undir einskonar stuðningsyfirlýsingu við Albert. Helgi Vigfússon, trúboði, stóð að þessum undirskriftum. Hann sagði í samtali við Helgar- póstinn í haust, að þær hefðu verið til þess að „Albert fyndi ylinn frá fólki, þegar að honum var veist Bíður þetta líka þín? eftírHelgii Sigiirð- ardóttur og Astríði Karlsdóttur Þegar ellin færist yfir menn kem- ur að því að sumir þurfa á hjálp að halda, bæði við daglega umhirðu eigin líkama og heimilis og einnig beinnar hjúkmnar. Hvar geta aldraðir leit- að sér aðstoðar? Með þessari grein viljum reyna að svara þessari spumingu. Við ætlum að gera grein fyrir stöðu þessara mála í dag og kynna leiðir Kvennalistans til úrbóta. En hvaða þjónustu eiga aldraðir þá völ á? í lögum um málefni aldraðra, 1. kafla, 1. grein, stendun „Markmið þessara laga er, að aldraðir fái þá heilbrigðis- og félagslegu þjónustu sem þeir þurfa á að halda og að hún sé veitt á því þjónustustigi, sem er eðlilegast og hagkvæmast miðað við þörf og ástand þess aldraða. Lögin miða að því að aldraðir geti svo lengi sem verða má búið við eðlilegt heimilislíf, en að jafnframt sé séð fyrir nauðsynlegri stofnana- þjónustu, þegar hennar er þörf.“ í fyrsta lagi eiga aldraðir völ á heimaþjónustu sem er í lögum um málefni aldraða skilgreind sem sú „aðstoð, sem veitt er á heimili aldr- aðs einstaklings". Heimaþjónustan er tvíþætt, annars vegar heilbrigðis- þátturinn, þ.e. læknisvitjanir, heimahjúkmn og endurhæfing í heimahúsum, og hins vegar félags- legi þátturinn, þ.e. heimilishjálp, félagsráðgjöf og heimsending mat- ar. Heimaþjónustan er því miður takmörkuð, enn sem komið er. Heimahjúkmn er veitt frá heilsu- gæslustöðvum skv. lögum um heilbrigðisþjónustu, en heimahjúkr- Helga Sigurðardóttir „ Að mati Kvennalistans ríkir nú neyðarástand í málefnum aldraðra og mun það fara versnandi ef ekki verður gert stórátak til úrbóta.“ unin er nær eingöngu veitt á opnunartíma stöðvanna. Engin skipulögð kvöld-, nætur- eða helg- arþjónusta er möguleg. Heimilis- hjálpin er aðskilin frá heilsugæslu- stöðvunum, að minnsta kosti stjómunarlega, þar sem félags- málaráð hefur með hana að gera. En það er sama sagan, heimilis- hjálpin fæst nær eingöngu á virkum dögum. Annar kostur er íbúðir og dval- arstofnanir fyrir aldraða, s.s. þjónustuíbúðir, vemdaðar þjónustu- Ástríður Karlsdóttir íbúðir, dagvistun aldraðra, dvalar- heimili, hjúkmnarheimili og sjúkra- deildir. Með stofnanadvöl missir gamla fólkið sjálfstæði sitt í meira eða minna mæli. T.d. fær fólk á stofnun ekki ellilífeyrinn sinn og er háð vasapeningum frá því opin- bera, sem era kr. 4.544 á mánuði í dag. Þekkt er þegar sjálfsbjargar- geta fólks er tekin frá því missir það áhuga fyrir umhverfí sínu og lífslöngunin þverr. 1 5. kafla, 27. grein, laga um málefni aldraðra stendur: „Kostn- aður af rekstri heimaþjónustu skal greiddur af sjúkrasamlögum, þó þannig, að sveitarfélögin greiði 65% kostnaðar en ríkið 35% kostnaðar“. Kostnaður við vist- um á dvalarstofnunum og á almennum sjúkrahúsum greiðist hins vegar alfarið af ríkissjóði, annaðhvort beint eða í gegnum Tryggingastofnun ríkisins. Af þessu má sjá að það er fjár- hagslega hagstæðara fyrir sveit- arfélögin að hafa aldraða á stofnunum, en þeir dvelji á eigin heimilum, þó það sé ekki vafamál hvort er mannúðlegra, eigið heimili eða stofnun. Kvennalistinn vill endurskoða lög um málefni aldraðra, þannig að heimilishjálpin sé að fullu gTeidd af ríkinu (sjúkrasamlag- inu) og gert sé ráð fyrir skipulagðri heimaþjónustu allan sólarhringinn árið um kring. Með þannig greiðslu- fyrirkomulagi er togstreita milli sveitarfélaga og ríkis úr sögunni, en þjóðarhagur er látinn sitja í fyrirrúmi. Rannsóknir, sem hafa verið gerð- ar á hinum Norðurlöndunum, sýna að heimaþjónustan, jafnvel allan sólarhringinn er ódýrari fyrir þjóð- félagið og mannúðlegri fyrir ein- staklinginn en stofnanadvöl verður nokkum tíma. Með sólarhringsþjónustu verður hinn aldraði í mörgum tilfellum fírrtur stofnanadvöl og því að verða ósjálfstæður einstaklingur. Kvennalistinn leggur til að stjómvöld taki ábyrgari afstöðu til I. kafla 1. greinar í lögum um málefni aldraðra, þar sem að sagt er að hver einstaklingur eigi að fá þjónustu við sitt hæfi og jafnframt legðu stjómvöld áherslu á forvarn- arstarf til eflingar heilbrigðis aldraðra, heilbrigðisfræðslu og fleira. Að mati Kvennalistans ríkir nú neyðarástand í málefnum aldraðra og mun það fara versnandi ef ekki verður gert stórátak til úrbóta. Árið 1985 vom 6,9% af þjóðinni 75 ára og eldri en árið 2020 er áætlað að þessi aldurshópur verði II, 7%. Það sést best á þessum tölum hve mikilvægt er að efla heimahjúkmn og heimilishjálp öldr- uðum til bóta og þjóðinni til hagsældar. Höfundar eru hjúkrunarforstjór- arsjúkrahúss Egilsstaða og sjúkrahúss Seyðisfjaírðar og stuðningskonur Kvennalistans á Austurlandi. með ómaklegum og stundum nokk- uð ruddalegum orðum “. í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins sótti Albert stuðning sinn meðal annars til fólks úr Fíladelfíu og öðrum trúfélögum utan þjóðkirkj- unnar. “ Eigum vér að halda þessa trúar- leiðtoga svo einfalda, að þeir skilji ekki, að með því að styðja Albert em þeir að kasta atkvæði gegn keppinautum hans? Já, djöfullinn er býsna lævís. Ég ætla að geyma mér stóryrðin sem væm við hæfi, en lofa Biblíunni heldur að komast að. í dæmisögu af sáðmanni er vikið að heimsslitunum, tímanum þegar núverandi heimsskipan líður undir lok, tíma uppskemnnar, sem nú er kominn. Óvinveittur maður — það er djöfullinn — hafði sáð illgresi I akurinn, sem sáinn var hveiti. Upp- skeran byijar með því að englar koma og safna illgresinu I bindini. Því er síðan brennt. Bindinin em augljóslega ýmiskonar samtök, fé- lög af ýmsu tagi, pólitísk samtök, trúarsamfélög og fleira þess háttar. Illgresið er menn, og er í sama akrinum og hveitið. En hver getur greint hvað er hvað? Það getur enginn maður nema dómarinn, Jes- ús. í Opinbemnarbókinni stendur, að á tíma endalokanna verði djöflin- um varpað niður á jörðina ásamt englum sínum. Menn em nú famir að skynja hið ókomna og fá fiðring í æðamar, eld. Heimtar fólkið stundum til sín þjófa og ræningja. Já, já. Frægt dæmi er í Biblíunni. Barrabas var ræningi og hafði fleira á samvizk- unni. Æðstu prestamir fengu lýðinn til að hrópa: Gef oss... Þetta hef- ir hann endurtekið. Albert hefír þegar sagt frá leyndarmálinu: Eld- ur... Höfundur er hagfræðingur og fyrrum ráðunautur rlkisstjómar- innar i efnahagsmálum og bankastjóri Framk væmdabank- ans. Fríkirkjan í Reykjavík: Messur á páskum Fermingarguðsþjónusta verð- ur í Fríkirkjunni kl. 11.00 á skírdag. Sama dag verður kvöld- messa með altarisgöngu kl. 20.30. Magnús Steinn Loftsson, tenórsöngvari, syngur stólvers. Á föstudaginn langa er guðs- þjónusta kl. 14.00. Flutt verður Litanía sr. Bjama Þorsteinssonar. Oddur Björnsson, básúnuleikari, leikur einleik. Á páskadag verða tvær hátíðarguðsþjónustur, önnur kl. 8.00 árdegis, hin kl. 14.00. Á annan í páskum verður svo bamaguðsþjónusta. Guðspjallið er útskýrt með hjálp mynda, smá- bamasöngvar og barnasálmar sungnir, afmælisbörn boðin sér- staklega velkomin og lesin sögulok framhaidssögunnar Dísu frænku eftir Stefán Jónsson. Við píanóið er Pavel Smíd. (Frá Fríkirkjunni)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.