Morgunblaðið - 15.04.1987, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 15.04.1987, Qupperneq 25
25 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1987 Fjölflokkastjórn er ávísun á upplausn eftirEinarK. Guðfinnsson Við göngum nú til kosninga við óvanalegar aðstæður. Framboð eru alls tíu í landinu. Hér á Vestfjörðum eru þau átta og þykir víst flestum nóg um. Þessi aragrúi framboða eykur mjög á hina pólitísku óvissu. Og þegar við bætast kosningalögin nýju verður niðurstaðan sú að örð- ugt kann að reynast að segja til um hver úrslit kosninganna verða. í kosningabaráttunni höfum við sjálfstæðismenn lagt verk ríkis- stjómarinnar í dóm kjósenda. Við höfum bent á þann mikla árangur sem náðst hefur í tíð stjómarinnar á flestum sviðum og sagt: Við vilj- um byggja á þessum grunni. Nýta okkur skárri efnahagslegar aðstæð- ur til þess að takast á við verkefni framtíðarinnar. Margvíslegnr árangur Maður hefur greinilega fundið það að fólkið í landinu fagnar þeim árangri sem náðst hefur í lands- stjóminni. • Verðbólgan er ekki á flugstigi 130 prósenta, heldur nálgast nú óðfluga eins stafs tölu. • Skattar hafa lækkað. Tekju- skattur er nú 1,1 milljarði lægri en hann var við upphaf kjörtímabils. • Skattakerfið hefur verið ein- faldað. Gamalt baráttumál sjómanna, staðgreiðslukerfið, er í höfn. • Kaupmáttur launa hefur aukist, einkum kaupmáttur þeirra lægst launuðu. • Bætur almannatrygginga hafa hækkað. • Ungu fólki hefur verið gert kleift að eignast húsnæði á við- ráðanlegum kjömm. • Viðskiptahalli er úr sögunni. Öll þessi framantöldu atriði segja okkur að við emm á réttri leið. Þessa leið viljum við fara áfram til hagsbóta fyrir íslenskt þjóðfélag. Um hvað er kosið? Nú skiptir öllu að árangrinum sé við haldið. Að komið sé í veg fyrir að upplausnaröflin nái hér tangarhaldi á ný. Við verðum að tryggja til frambúðar efnahagslegt og stjórnmálalegt jafnvægi. í þessum kosningum verður því ekki einvörðungu kosið um einstök stefnumál. Í þessum kosningum verður held- ur ekki bara kosið um tiltekna frambjóðendur. Einar K. Guðfinnsson „Öflugnr Sjálfstæðis- fokkur getur einn tryggt traust stjórnar- far vegna þess að einvörðungu með því að efla hann er mögu- legt, eins og málum er nú háttað, að tryggja tveggja flokka ríkis- stjórn“. í þessum kosningum verður ekki síst tekin afstaða til þess hvort ríkja munu sundmng eða stefnufesta. Upplausn eða ábyrgð. Óðaverð- bólga eða efnahagslegt jafnvægi. Fjölflokkastjórn er ávísun á upplausn Það hefur verið vakin á því at- hygli að frá stofnun lýðveldis hafa þrettán ríkisstjórnir setið við völd á Islandi. Tvær hafa verið minni- hlutastjórnir. Fimm tveggja flokka stjórnir. Að sex ríkisstjórnum hafa staðið fleiri en tveir stjórnmála- flokkar. Með öðmm orðum. Sex stjórnanna hafa verið fjölflokka- stjórnir. Það hefur verið helsta einkenni fjölflokkastjórnanna að þær hafa ekki enst nema ákaflega skamman tíma. Engin slík ríkisstjóm hefur lifað heilt kjörtímabil. Allar hafa þær dáið úr pólitískum innanmein- um, eða hreinlega spmngið í loft upp. Þessar stjómir hafa oftast misst tökin á efnahagslífínu. Meðal- aldur þeirra hefur líka verið um hálft kjörtímabil. Það þýðir því að sumar þeirra hafa verið við völd einungis ákaflega skamman tíma. Má í því sambandi nefna ríkisstjóm- ina sem sat að völdum á ámnum 1978 til 1979 en sprakk þá vegna dæmalauss sundurlyndis. Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið burðarásinn Tveggja flokka ríkisstjómir hafa hins vegar jafnan starfað út kjörtímabilið. Sumar jafnvel lengur, eins og hin vinsæla og farsæla ríkis- stjóm Viðreisnar (Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks) sem skapaði hér tímabil festu í stjórnarfari, jafn- vægis í efnahagslífi og uppbygging- ar í atvinnulífi. Þegar farið er ofan í saumana á þessu tímabili í sögu okkar kemur í ljós að Sjálfstæðisfokkurinn hefur verið burðarásinn í stjómmálalífínu. Sjálfstæðisflokkurinn hefur ævin- lega verið þátttakandi í samstarfi ríkisstjóma þar sem tveir stjóm- málaflokkar hafa komið að verki. Nú skiptir öllu að sá mikli árang- ur sem náðst hefur í landsstjóminni sé varðveittur. Það verður ekki gert með því að leggja mýgrúti smá- flokka, sérframboða og sprengilista lið. Slíkt yrði eingöngu ávísun á pólitíska upplausn, fjölflokka vinstri stjóm og verðbólgu. Öflugur Sjálf- stæðisflokkur getur einn tryggt traust stjórnarfar vegna þess að einvörðungu með því að efla hann er mögulegt eins og málum er nú háttað að tryggja tveggja flokka ríkisstjóm. Á Vestfjörðum sem og annars staðar verður baráttan hörð. Ómögulegt er að segja til um hvem- ig þingsæti muni skipast. Andstæð- ingar okkar hafa reynt að læða því að kjósendum að vegna nýrra kosn- ingalaga sé Sjálfstæðisflokkurinn ömggur um tvö þingsæti hér í kjör- dæminu. Slíkt er þó alrangt. Því er nauðsynlegt að fylkja sér um Sjálfstæðisflokkinn og tryggja pólitíska forystu hans, jafnt hér á Vestfjörðum sem og á landinu í heild. Höfundur skipar þríðja sæti D- listans i Vestfjardakjördæmi. EF ÞÚ VILT GLEÐJA EINHVERN LJM PÁSKANA GEFURÐLJ MÓNÖ PÁSKAEGG NÝTT OG ENN BETRA, SYKURMINNA SÚKKULAÐI í PÁSKAEGGJUNUM FRÁ MÓNU! GM □PEL ^KADET OPEL Þessi glæsilegi vestur-þýski bíll var kosinn bíll ársins af dómharðri nefnd bílagagnrýnenda þegar hann var fyrst kynntur fyrirtveimurárum. Þessi stórkostlega viðurkenning var upphafið að miklum vinsældum OPEL KADETT. Áður en þú gerir upp hug þinn varðandi hugsanleg bílakaup getur borgað sig fyrir þig að kynna þér kosti KADETT bílanna, ss. rými, hönnun, aksturseiginleika og lágan eldsneytiskostnað. mumri yandaðuvalið! BiLVANGURs/? V6IC1U KADETT! HÖFÐABAKKA9 SÍMI 687BOO
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.