Morgunblaðið - 15.04.1987, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 15.04.1987, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1987 27 HVAÐASOKKUM ÁÉGAÐVERAÍ? Tónlist í Bústaða- kirkju um páskana EINS OG hefðin býður og vel er metið verður tónlistin rnikil og til hennar vandað við guðsþjónustur bænadaga og páska í Bústaða- kirkju eins og í flestum söfnuðum. Þær eru ekki fáar stundirnar, sem kórarnir verja til æfinga og undirbúnings og er líka vel þegið af þakklátum kirkjugestum. Skal nú getið hins helzta og flytjenda en organisti og sljórnandi er hinn sami við öll tækifærin, en það er organisti kirkjunnar, Guðni Þ. Guðmundsson. eftir Asdísi Höllu Bragadóttur Á hverjum degi þarft þú að taka ákvarðanir. Ætlarðu í sund áður en þú ferð í skólann? Ætlarðu í gráu eða hvítu sokkunum í vinn- una? Hvort á að vera kjöt eða fiskur í kvöldmatinn? Allt eru þetta dags- daglegar vangaveltur sem skipta ekki svo miklu máli. Að minnsta kosti breyta þær ekki lífi þínu. En suma daga þarft þú að taka stærri ákvarðanir. Ætlarðu í skóla? í hvaða skóla viltu þá fara? Langar þig út á vinnumarkaðinn? Hvar viltu vinna? Þetta eru einnig ákvarðanir sem veltast fyrir fólki. Þessar ákvarðanir skipta máli. Þessar ávarðanir geta breytt lífi þínu. Hverjum á ég- að treysta? Þú velur þér ekki skóla sem þú veist að lítill sem enginn árangur næst í. Ef þú átt kost á góðum vinnustað þá velur þú þér ekki aðra vinnu þar sem þú veist að launin eru lág, mórallinn lélegur og vinnu- tíminn langur og leiðinlegur. Nei, þú velur betri kostinn. Jafnvel þótt þú vorkennir verkstjóranum á slæma vinnustaðnum. Jafnvel þótt þú heyrir loforð um hærri laun, betri móral og styttri vinnutíma. Loforðunum getur þú ekki treyst, nema að þú hafir séð einhvern góð- an árangur. Það eru verkin sem tala. Núna er ég ekki að tala um gráa eða hvíta sokka ... Þann 25. apríl þarft þú að taka mikilvæga ákvörðun. Núna er ég ekki að tala um gráu sokkana eða kvöldmatinn. Ég er að tala um kosningarnar. Þú mátt kannski kjósa í fyrsta sinn og ert ekki búinn að ákveða hvaða flokk þú ætlar að kjósa. Kýstu flokk vegna þess að þu vorkennir forystunni? Kýstu flokk vegna þess að þú færð kannski frá þeim rós? Kýstu flokk vegna þess að þar eru konur? Kýstu flokk vegna þess að pabbi þinn gerir það? Þú ætlar kannski að sleppa því að kjósa og sitja heldur heima og horfa á Stöð 2. Svo líða kosningarnar og ný ríkisstjórn er mynduð. Kannski óáreiðanleg stjórn með mörgum litlum flokkum. Hvað veist þú þá nema að þú fáir ekki íengur að horfa á þína Stöð 2, hlusta á Bylgjuna eða hvað það verður. Hvað veist þú um framtíð íslands? í dag veist þú ósköp lítið um framtíð lands okkar. En . . . þú getur valið. Þú átt líkt og ég rétt á því að kjósa. Að sjálfsögðu segi ér þér ekki hvað þú átt að kjósa, en ég er búin að ákveða mig. Ég ætla að vanda valið. Ég ætla að kjósa rétt. Án þess að skammast mín! Á lýðveldistímabilinu hefur engin þriggja flokka, hvað þá fleiri flokka ríkisstjórn, setið út allt kjörtímabil- ið. En síðastliðin fjögur ár hefur ríkisstjórn íslands verið mynduð af tveimur flokkum. Þetta hefur verið gott tímabil. Þetta hefur verið tíma- bil festu og framfara. En einmitt á þessu tímabili hefur Sjálfstæðis- flokkurinn verið í ríkisstjóm. Sjálf- stæðisflokkurinn hefur náð verðbólgu svo hratt niður að ótrú- legt þykir. Sjálfstæðisflokkurinn átti frumkvseði um staðgreiðslu- kerfi skatta. Sjálfstæðisflokkurinn hefur auðveldað ungu fólki að eign- ast sitt eigið húsnæði. Já, allt þetta og margt, margt fleira hefur Sjálf- stæðisflokkurinn gert fyrir þig. En hvað ætlar þú að gera fyrir sjálfan sig? Þú þarft ekki að skammast þín þó að þú hugsir um eigin hag. Þú þarft ekki að skammast þín þó að þú hugsir um hag íslands. Þú þarft ekki að skammast þín fyrir að kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Höfundur er nemi í Fjölbrauta- skóla Vesturlands á Akranesi. Á skírdagskvöld er stærsta altar- isganga ársins og margir, sem hagnýta söguleg tengsl við loftsal- inn í Jerúsalem forðum til þess að styrkja trúarsamfélagið og túlka hollustu sína, og þá munu einsöngv- ararnir Ingibjörg Marteinsdóttir og Eiríkur Hreinn Helgason auka helgi samverunnar. Á föstudaginn langa flytur kór Bústaðakirkju ásamt strokkvartett þijá kafla úr G-dúr messu Schu- berts og einsöngvarar verða Guðrún Jónsdóttir, Ingibjörg Marteinsdótt- ir, Kristín Sigtryggsdóttir, Eiríkur Hreinn Helgason og Reynir Guð- steinsson. Við morgunmessuna á páskadag syngur Guðrún Jónsdóttir og þijár systur leika á trompet, þær Ingi- björg, Þómnn og Hjördís Elín en þær eru dætur listafólksins Sigríðar Þorvaldsdóttur og Lárusar Sveins- sonar. Við síðdegismessuna kl. 14 syngur síðan Ingibjörg Marteins- dóttir og Jón Halldór Finnsson leikur á básúnu. Við allar messurn- ar prédikar sóknarpresturinn, séra Olafur Skúlason dómprófastur. Og tónlist er leikin um hátalarakerfi kirkjunnar hálfri stundu fyrir mess- umar. (Frá Bústaðakirkju.) ÍSTAK ÍSTAK hefur í nær tvo áratugi, frá stofnun árið 1970, verið í fararbroddi við hvers konar mannvirkjagerð. Nýlega gerðum við flugstöðina í Keflavík tilbúna undir innréttingar. Við kappkostum að veita viðskiptamönnum örugga þjónustu. Óskum landsmönnum öllum til hamingju með nýju flugstöðina. TSTAK JL jnLJV. verkfræðingar, verktakar Skúlatúni 4, 105 Reykjavík, sími 622700, Telex 2010 ISTAK IS, Telefax 622724.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.