Morgunblaðið - 15.04.1987, Síða 30

Morgunblaðið - 15.04.1987, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1987 Skógrækt og þjóðarhagur eftirMagnús Pétursson Fræðigreinin „ekología", vist- fræði, er til þess að gera ný af nálinni. Orðið eitt er ekki eldra en um það bil eitt hundrað ára. í þess- um fræðum er komið víða við, heimilið, maðurinn, hafið og skóg- urinn eru allt hlutar af okkar ekologíu. Öll vísindi leitast við með einum eða öðrum hætti að skýra og ljóstra upp fyrir okkur leyndar- dómum tilverunnar. I þessari við- leitni hefur okkur miðað vel á veg, en sem betur fer er margt enn óráð- in gáta. Þetta á við hvort heldur í hlut eiga náttúruvísindi eða hugvís- indi. Eg segi, sem betur fer, því mikið væri tilvera okkar snauð ef ekki væru til spumingar sem köll- uðu á svör og skoðanir. Það kann að virðast sérstætt að hefja umræður um skógrækt og þjóðarhag með þessum orðum, en eins og í góðri stærðfræði þarf samnefnara til þess að tvö brot verði lögð saman. Skógrækt nú á tímum er ekki frekar en áður hrein náttúmfræði, því hún ber sterkan keim af hagfræði. Með svipuðum hætti má segja að hagur sérhverrar þjóðar sé ekki eingöngu falinn í verðmætum sem mæld verða í tölum, heldur einnig huglægum verðmætum. Hamingja hvers manns felst að hluta í þeirri lífsfyll- ingu sem umhverfi veitir honum og honum lærist að meta sem verð- mæti. Af þessu mætti hagfræðin einnig taka mið. Biðlund manna eftir afrakstri verka sinna er iðulega lítil. Skammtímahagsmunir hafa oft á tíðum verið teknir fram yfír þá hagsmuni sem varða okkur miklu þegar til lengri tíma er litið. Hér þarf ekkert frekar að hafa í huga gróðurþekju landsins því það má fullt eins vel líta til auðæfa hafs- ins. Fyrir tiltölulega fáum árum var talið að fiskistofnamir væru í hættu vegna ofveiði. Þar virðist nú sem þjóð og náttúra hafi fundið jafn- vægi með takmörkun veiðanna. Freisting til aukinna veiða er mikil en vonandi bera menn gæfu til þess að fórna skammtíma hagsæld fyrir uppskeru í framtíðinni. Gróðureyð- ing er annað dæmi um það hvemig gengið hefur verið á náttúrugæði í viðleitni manna til þess að bæta afkomu sína. Þar á að vísu okkar kynslóð minnstan hlut að máli en það má einu gilda. Áður fyrr voru skógar taldir til efnislegra verð- mæta og hækkuðu verð jarðar. Það sem við gerðum var að taka út nánast allan höfuðstólinn og eigum nú hvorki skóg til nytja né til yndis- auka svo einhvetju nemi. Það sem við teljum okkur eiga er vissa um það að tré og jafnvel nytjaskógar geti dafnað í landinu og að til skóg- ræktar höfum við fæmi, framtak og fijósamt land. Ég spyr mig því þessarar spumingar: Hvaða rök hníga að því að mannafla, landi og fjármunum verði varið til skógrækt- ar í smáum eða stómm stíl á næstu ámm? Getum við reitt okkur á það að slíkt starf verði einhvers metið af þeim sem landið erfa? Áður en lengra er haldið vil ég að þið hugleiðið með mér hvað áunnist hefur í skógræktarstarfi síðustu áratugina. Að því er næst verður komist nemur samanlagt fé til skóg- eða trjáræktar í landinu frá því 1970 um 1,7 milljörðum króna miðað við núverandi verðgildi krónunnar. Meginhluti þessa fjár- magns hefur farið um Skógrækt ríkisins, skóg- eða tijáræktarstarf Reykjavíkurborgar og Akureyrar- bæjar og skógræktarfélögin. Þessu til viðbótar hefur merkilegt starf verið unnið af öðmm sveitarfélög- um og einstaklingum sem ég hef ekki tök á að meta með sama hætti. Fyrir tilstuðlan þjóðargjafarinnar frá árinu 1974 rann aukið fjármagn til skógræktarstarfs. Til fróðleiks þá jafngildir landgræðsluáætlun og viðbætur á gmndvelli hennar á verðlagi dagsins í dag um 1,1 millj- arði króna. Þar af komu um 16% í hlut skógræktar ríkisins sem er að sjálfsögðu tahð með í fyrmefndu fjárhæðinni. Ég held að það sé skógræktarmönnum jafnt sem skattgreiðendum til umhugsunar hvemig þessum fjármunum hefur verið varið og hvort þeir hafa skilað okkur þeim árangri sem vænst var til. Um þetta efni verða eðlilega skiptar skoðanir. Ég tel að það megi skipta starfi í skógrækt frá því um 1950 í þijá þætti og meta árangurinn með hlið- sjón af því. í fyrsta lagi hefur starfið beinst að því að planta tijám. Mér er sagt að á síðustu 40 ámm hafi verið plantað um það bil 14—15 milljón- um tijáa. I Heiðmörkinni einni tæpum 2 milljónum plantna. Sumar þessara plantna hafa náð að skjóta rótum og aðrar ekki eins og vill verða. Væri verið að tala um nytja- skógrækt þá er mér sagt að það megi reikna með um 4.000 plöntum á hvern hektara. Með einfaldri deil- ingu þá jafngildir þetta útplöntum í um 3.000 hektara, eða 30 ferkm, jafnvel þó svo fjórðungur plantn- anna fari forgörðum. Ég vil ekkert um það fullyrða hvort þeir sem að málum hafa starfað eða greitt til- kostnað fella sig við árangurinn af þessu tijáræktarstarfi. I öðm lagi held ég að með góðum rökum megi segja að veigamikið tilraunastarf hafi verið unnið á liðn- um ámm. Tré hér á landi em vissulega eldri en frá því um stríð og víða standa fagrir einstaklingar. Einkum hin síðari ár hefur skóg- ræktin þó fært okkur dýrmæta reynslu af tilraunum með tegunda- val við mismunandi náttúmskilyrði. Þannig hafa vissar tegundir sýnt sig harðgerðari og staðist duttlunga náttúmnnar betur en aðrar. Nú telja menn sig allvel hæfa til þess að mæla með tilteknum tegundum sem betur em fallnar til umfangs- mikillar skógræktar en aðrar. Gleymum því ekki að í slíkri ráð* gjöf felst mikil ábyrgð, ekki síst ef hefja á skógrækt sem arðbæra at- vinnugrein. Magnús Pétursson „Tilgangurinn með skógræktinni hlýtur að ráða mjög miklu um það hvernig hana á að skipuleggja og fjár- magna, hvaða kröfu á að gera til starfsemi og hvað umfangsmikil hún á að vera, samanber eftirfarandi yfirlits- mynd.“ Þá kem ég að þriðja þættinum á sviði skógræktar síðustu áratugina. Það er að glæða skilning lands- manna á yndisauka gróðurs og hver sé skuld okkar við landið eins og það er stundum kallað. í þessu efni eiga félög áhugamanna um tijá- rækt ekki síst mikinn heiður skilið. Vitanlega hefur áhuginn verið mis- mikill en alltaf hafa verið einhveijir óbilandi áhugamenn sem hafa hald- ið starfinu uppi. Mín afstaða er sú, að það sé fylli- lega réttmætt og geti leitt til áhugaverðra skoðanaskipta að hug- leiða hvernig til hafi tekist • í skógræktarstarfi síðustu áratugi. Er forusta í þessu starfi, eins og þarf, á að beina kröftunum á færri staði en þeim mun öflugar og svo mætti lengi telja. Ég held nefnilega að árangurinn sé fyrst og fremst fólginn í þekkingu og reynslu frek- ar en tijám og viði. Búháttabreytingar — nytjaskógar Miklar búháttabreytingar eru nú og hafa verið að gerast í landinu. Þær hafa leitt til einskonar tíma- móta í umræðu um skógrækt. Samdráttur í framleiðslu hefð- bundinna afurða verður til þess að bændur bregða búi. í ofanálag hafa afurðir af gripum og landi aukist og neysluvenjur breyst, sem gefur færi á enn frekari fækkun í bænda- stétt m.v. að framleiðslan skuii takmörkuð við innanlandsmarkað. Nýjar búgreinar hafa orðið til sem afleiðing. Nægir að nefna í því sam- bandi alifuglarækt, loðdýrarækt, nýtingu veiðivatna, dúntekju, ferða- þjónustu og nú síðast er rætt um skógrækt eða skógarbúskap. Sam- keppnin um landið er því að taka nýja stefnu. Nú ræða menn það í fullri alvöru að bijóta land til skóg- ræktar í stað þess að beita á það kvikfé. Með lögum frá árinu 1984 var lögum um skógrækt breytt þannig, að bætt var í eldri löggjöf ákvæði um ræktun nytjaskóga á bújörðum. Þungamiðja þessara laga er sú að í héruðum þar sem skógræktarskil- yrði eru vænleg styrkir ríkissjóður ræktun nytjaskóga á bújörðum, eft- ir því sem fé er veitt á fjárlögum hveiju sinni, enda verði skógræktin þáttur í búskap bænda og jarðeig- enda. Styrkur má nema allt að 80% stofnkostnaðar við undirbúning skógræktarlandsins, þ.m.t. girðing- ar, vegagerð, plötur og gróðursetn- ing. Þetta er þó háð ákveðnum skilyrðum um stjóm mála og fleiri þætti. Bændur austanlands og sunnan hafa sýnt málinu áhuga. í fram- haldi af þessum lögum hafa samtök bænda, nú síðast Búnaðarþing, ályktað um það að vinna þurfi skóg- arbúskap brautargengi, ekki sem hliðarbúgrein heldur sem atvinnu- starfsemi á stærri kvarða. I því sambandi hefur verið lögð fram áætlun um 1.800 ferkílómetra skógrækt á völdum svæðum. Slíkt starf er 15 ára verkefni og til þess er talið að útvega þurfi árlega tæp- ar 130 m.kr. eða samanlagt fyrir allt tímabilið um tvo milljarða króna. Við starfsemina mætti reikna með um 150 ársstörfum. Þetta eru stórhuga áform en það sem ekki segir í lögum eða ályktun- um er hvers konar eða hversu miklar nytjar menn hafa í huga. í nýútkominni Árbók bóndans er grein eftir skógræktarstjóra ríkisins um nytjaskóga á bújörðum. Þar segir höfundur að orðið „nytjaskóg- ur“ skýri sig að mestu leyti sjálft, en áhersla skuli lögð á það, að átt sé við beinar efnislegar nytjar sem skógurinn gefi af sér. Áuk þess getur skógur gefið af sér óbeinar nytjar. Þá er viðarframleiðsla aðal- markmið. í framhaldi af þessu spyr höfundur sig eftirfarandi spurn- inga: 1. Hve mikið vex skógurinn? 2. Hvers slags viður fæst úr skóg- inum og hvaða markaður er fyrir afurðirnar? 3. Hve mikið kosta ræktunin, skóg- arhögg og vinnsla? Allt eru þetta góðar og gildar spurningar sem vitaskuld verður að finna svör við áður en nytjaskóg- rækt er hafin. Ég held nefnilega að svörin skipti höfuðmáli fyrir áframhald allrar umræðu og hug- takið „nytjaskógur“ skýri sig ekki fyllilega sjálft. Um fyrstu spurninguna ætla ég ekki að hafa mörg orð en að því er best verður séð er vöxtur skógar vel sambærilegur við það sem ger- ist í nálægum löndum þar sem ræktaður er nytja- eða arðskógur. Skógræktarmenn munu vera nokk- uð öruggir um að 4—5 rúmmetrar við góð skilyrði sé líklegur vöxtur á stórum svæðum. Er þá miðað við að jarðvegur sé unninn og áburður borinn á plötur til þess að örva vöxt. Önnur spurningin varðar hvers slags viður eigi að fást úr skógin- um. Skógræktarstarf hér á landi hefur í ríkum mæli beinst að því að finna þær tegundir sem best fella sig við jarðveg og veðurfar. Tilteknar tegundir sýna þar yfir- burði. Ekki segir það þó að afurðir þeirra séu þær sem mest er sóst eftir og gefi mest í aðra hönd. Þær afurðir sem nú eru unnar úr skógum okkar eru fyrst og fremst jólatré og girðingarstaurar. Jólin höldum við aðeins einu sinni á ári og girð- ingarstaurar úr tré eru á undan- haldi fyrir rafmagnsgirðingum og staurum úr öðru efni. Skógrækt til nytja og sem atvinnugrein verður því að byggjast á öðrum rökum. Þannig liggur næst hendi að ætla að menn hafi í huga borðvið og massavið til iðnaðarframleiðslu. Einnig kemur til álita vinnsla úr trefjum og. viðarkurli í t.d. plötu- gerð. Markaðir þykja ótryggir á mörg- um sviðum. Þar gildir nánast einu hvort um er að ræða þungaiðnað, léttan iðnað eða matvælafram- leiðslu. Á öllum sviðum er hörð samkeppni um markaði. Ég held að allir spádómar um líklega mark- aði fyrir girðingarstaura, trefjaplöt- ur eða borðvið séu einkar ótryggir ef við hugsum hálfa eða heila öld fram í tímann svo ekki sé lengra farið. Iðnríkin hafa verið furðulega lagin að taka upp hvers konar gervi- efni í stað lífrænna efna. Tökum sem dæmi fataiðnaðinn. Á því sviði hafagerviefni verið í stöðugri sókn. Grundvallarspumingin er e.t.v. sú hvort lífræn efni eins ogtrjátrefj- ar eigi framtíð fýrir sér í heiminum. Að áliti fúturista eða framtíðar- sinna er það talið svo. Og það má líka setja fram sem rök að tijávömr muni þá fyrst verða verðmætar þegar skógum á stómm svæðum í heiminum hefur verið spillt með súm regni og öðm eitri eða skógar verið höggnir ótæpilega sem víða virðist vera. Þriðja spumingin sem varpað var fram er um tilkostnað við skógrækt hér á landi. Ég held að engum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.