Morgunblaðið - 15.04.1987, Page 34

Morgunblaðið - 15.04.1987, Page 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1987 Listahátíð í Reykjavík: Samkeppni iim listaverk í tilefni Listahátíðar i Rekjavík 1988, verður efnt til samkeppni um varanlegt listaverk, högg- mynd eða skúlptúr, sem nota má bæði sem verðlaunagrip og sem einkenni hátíðarinnar, t.d. á aug- lýsingarspjöldum, efnisskrá og öðm prentuðu efni. Veitt verða Norræni fjrafestinga- bankinn: Lánar rúmlega 850 milljónir til flugstöðvarinnar NORRÆNI fjárfestingabankinn hefur veitt íslenska ríkinu 22 millj- ón $ lán til nýju flugstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli. Þetta er í fyrsta sinn sem íslenska ríkið fær lán hjá bankanum og jafnframt eitt stærsta lán sem veitt hefur verið til íslands. í frétt frá Norræna fjárfestinga- bankanum kemur fram að bankinn flármagnar helming af heildarkostnaði flugstöðvarbyggingarinnar, en mikil- vægi Keflavíkurflugvallar fyrir samgöngur við útlönd gerir bankanum kleift að taka þátt í fjármögnuninni. Allt farþegaflug til og frá útlöndum fer um völlinn og 60% af Evrópuflugi er til Norðurlanda. ísland hefur á síðustu árum fengið 3% af heildar útlánum bankans til Norðurlanda og hafa lánin aðallega farið til framkvæmda í sambandi við fiskirækt. í lok mars síðastliðinn var undirritaður lánssamningur við iðnl- ánasjóð að upphæð 200 milljónir ísi. króna og er lánið áætlað til að fjár- magna norræn verkefni á íslandi. ein verðlaun að fjárhæð 250.000 krónur og er hefur fyrirtækið Nathan og Olsen ákveðið að minnast 75 ára afmælis síns, sem er á þessu ári, með því að leggja fram verðlaunaféð. Framkvæmdastjóm Listahátíðar 1988 hefur sent félögum í Sam- bandi íslenskra listamanna boð um þátttöku í fyrirhugaðri samkeppni um listaverk, en öllum íslenskum listamönnum er heimil þátttaka. Að sögn Jóns Þórarinssonar, form- anns framkvæmdastjómar Listhátí- ðar, á listaverkið að vera allt að 40 cm hátt og ekki meira en 40 cm á hvem veg. Listahátíð áskilur sér rétt til að fjölfalda verðlaunaverkið í 3-5 eintökum og hugsanlega stækka það til staðsetningar utan dyra eða innanhúss. Gögn varðandi samkeppnina verða afhent hjá trún- aðarmanni dómnefndar, Ólafi Jenssyni, Byggingarþjónustunni, Hallveigarstíg 1, Reykjavík, en hann svarar einnig skriflegum fyrir- spumum og tekur við líkönum af listaverkum og öðrum tillögugögn- um. Skilafrestur rennur út 6. ágúst. í dómnefnd eiga sæti, Jón Þórar- insson, Bera Nordal listfræðingur og Jón Gunnar Ámason myndlistar- maður. Varamenn em Valur Valsson bankastjóri, Þorgeir Ólafs- son listfræðingur og Valgerður Bergsdóttir myndlistarmaður. Sýning á verkum og tillögum sem berast í samkeppnina verður haldin í tengslum við Kvikmyndahátíð Listahátíðar, dagana 19.—27. sept- ember 1987 og úrslit tilkynnt við opnun sýningarinnar, sem fyrir- hugað er að haldin verði á Kjarvals- stöðum. Stjakamir, sem stolið var úr Búðakirkju á Snæfellsnesi í síðustu viku. Á þá er letrað „Carl Rasmussen 1767.“ Altar isslj akar n- ir úr Búðakirkju BROTIST var inn í Búðakirkju á Snæfellsnesi í síðustu viku og þaðan stolið ýmsum kirkju- munum, eins og sagt var frá í Morgunblaðinu í gær. Meðal stolnu munanna eru tveir altarisstjakar frá árinu 1767. Þjóðminjasafn íslands á mynd af þessum stjökum og birtist hún hér í þeirri von að einhver geti látið vita hvar munina er nú að fínna. Á stjakana er letrað „Carl Ras- mussen 1767." Morgunblaðið /V aldimar Kristinsson Verðlaunahafar í skeifukeppninni á Hólum. Sigurvegarinn, Eyrún Anna Sigurðardóttir, er fremst. Morgunblaðsskeifan afhent á Hólum: Sigurvegarinn kom- inn átta mánuði á leið ÞRÁTT fyrir að hún Eyrún Anna Sigurðardóttir frá Flugumýri sé að því komin að eiga bam lét hún það ekki aftra sér frá þátt- töku í keppninni um Morgun- blaðsskeifuna á Hólum. En hún lét ekki þar við sitja því hún sigr- aði alla keppinauta sína á stóð- hestinum Kolgrími frá Kjara- holtum sem er fjögurra vetra gamall. Hlaut hún einnig viður- kenningu Félags tamninga- manna fyrir bestu ásetu. Ef allt fer eins og ætlað fæðist barn Eyrúnar Önnu í maíbyijun og má segja að hún hafí verið heppin að keppnin á Hólum var haldin óvenju snemma að þessu sinni. Venjulega er hún haldin seinni part- inn í apríl og er hætt við að það hefði verið óhentugur tími fyrir Eyrúnu Önnu. Það er sjálfsagt fátítt að konur stundi útreiðar und- ir slíkum kringumstæðum, hvað þá að þær stundi tamningar á við- kvæmum trippum. Viðurkenningu tímaritsins Eið- faxa hlaut að þessu sinni Bima M. Sigurbjömsdóttir, Laughúsum, Fljótum, fyrir bestu hirðingu og ástundun, en hún varð í öðm sæti í skeifukeppninni. Bima keppti á Ási frá Neðra-Ási sem er fímm vetra gamall. Af fímmtán keppendum vom átta stúlkur og em þær stöðugt að sækja í sig veðrið og má nefna að af fímm efstu keppendunum var aðeins einn piltur, en hann hafnaði í þriðja sæti. Hafnarfjarðabær semur við starfsfólk: Laun hækka um 16% strax BÆJARSTJÓRN Hafnarfjarðar samþykkti í fyrrakvöld nýja kjarasamninga til næstu þriggja ára við starfsmannafélag Hafn- arfjarðarbæjar og starfsfólk bæjarfélagsins, sem aðild á að öðrum verkalýðsfélögum. Samn- ingurinn er afturvirkur til 1. janúar á þessu ári og við gildis- töku hans hækka laun um 16% að meðaltali. Samningurinn grundvallast á samningi Launa- nefndar sveitarfélaga við sveit- arfélög önnur en Reykjavík og starfsmati, sem lauk fyrir skömmu. Starfsmannafélag Hafnarfjarðarbæjar samþykkti samninginn í almennri atkvæða- greiðslu um síðustu helgi með 99 atkvæðum gegn 20. Guðmundur Ámi Stefánsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, sagði að samningurinn væri mjög í anda annarra samninga sem gerðir hefðu verið undanfarið. Hann byggðist annars vegar á rammasamningi Launanefndar sveitarfélaga við sveitarfélögin og hins vegar á starfsmati, sem fram hefði farið, og því væri hækkun til einstaklinga samkvæmt samningnum nokkuð mismunandi. Áfangahækkanir á þessu ári eru þær sömu og í samn- ingi ASÍ og VSÍ frá því í desember. Þá eru einnig áfangahækkanir á árunum 1988 og 1989 og ákvæði um endurskoðun fari verðbólga fram úr ákveðnum mörkum. Féla- agar í Starfsmannafélagi Hafnar- fjarðarbæjar eru á þriðja hundrað. Guðmundur sagði að á mánudag hefði einnig tekist að ganga frá samningi við starfsfólk bæjarins, sem er í verkalýðsfélögunum Hlíf og Framtíðinni og samtökum bygg- ingar- og málmiðnaðarmanna. Heildarsamningur hefði verið gerð- ur við þessa hópa nú, í stað þess að semja við þá hvem fyrir sig, eins og verið hefði. Samningurinn gildir til 1. maí á næsta ári og felur í sér 15% hækkun að meðaltali, sem að mestu kemur strax á laun. Samningurinn tekur til tæplega 100 manns. „Þessir samningar kosta bæjar- félagið eitthvað á þriðja tug milljóna og er það í stórum dráttum í sam- ræmi við forsendur launaliðs fjár- hagsáætlunar. Ég er ánægður með að samningum skuli lokið. Þetta bætir óneitanlega kjör okkar fólks, sém var ekki vanþörf á. Þó menn séu vitaskuld mismunandi ánægðir, þá er erfítt að gera svo öllum líki,“ sagði Guðmundur Ámi Stefánsson. Eins og fyrr sagði voru samning- amir samþykktir í bæjarstjóm með atkvæðum meirihlutans, Alþýðu- flokks og Alþýðubandlags og atkvæði fulltrúa F-listans, sem er í minnihluta, en fulltrúar Sjálfstæð- isflokks, sem einnigeru í minnihluta sátu hjá við atkvæðagreiðsluna. Bridsmót á Loftleiðum um bænadagana: Verðlaunin nema 600.000 krónum BRIDSMÓT, með þátttöku 42 para, verður haldið á Hótel Loftleiðum fimmtudag og föstudag, 16.-17. april, og verða verðlaun á mótinu þau hæstu sem veitt hafa verið á slíku móti til þessa, eða alls að verð- mæti um 600 þúsund krónur. Einnig verður sérstök áhorf- endagetraun þar sem hægt er að geta upp á lokaröð paranna. Ifyrstu verðlaun f mótinu verða bifreið af gerðinni Polonez frá. Daihatsuumboðinu. Önnur verð- laun verða 100 þúsund krónur óg 3. verðlaun verða 2 myndbands- tæki frá Japis. Einnig em í boði ferðavinningar frá Polaris, Min- oltamyndavélar, matarvinningar frá veitingahúsunum Hótel Sögu, Hallargarðinum, í Kvosinni, Við sjávarsíðuna og Úlfar og Ljón. Áuk þess verða bókavinningar frá Almenna bókafélaginu og bensín- úttektir frá Olíufélaginu hf. Mótið hefst klukknan 13 á fímmtudag, skírdag, og verða alls spiluð 123 spil báða dagana. Keppnisstjóri verður Agnar Jörg-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.