Morgunblaðið - 15.04.1987, Side 35
v«pr TÍqqA ar ÍITTnAnmiTVGIM aiaAjaVÍUOJIOM
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1987
Sýningin Sumarið 87 í Laugardalshöll:
Gestir komast
í kappakstur á
götum Parísar
NÝTT skemmtitæki, einskonar ferðahermir, verður á sýningunni
Sumarið 87 sem opnuð verður á sumardaginn fyrsta, 23. apríl, í
Laugardalshöll. Þetta er 15 sýning Kaupstefnunnar hf í Laugar-
dalshöll og verður yfirskrift hennar: Ferðalög, frítími og útivera.
Sýningin tengist því aðallega ferðalögum innanlands og utan,
ferðavörum og þjónustu sem tengist sumrinu.
Ferðahermirinn á sýningunni
var upphaflega hannaður sem
flughermir til að þjálfa flugmenn
og geimfara en hefur nú verið
breytt í leiktæki. Tækið tekur 12
manns og situr fólk og horfir á
kvikmynd sem sýnir eir.hveija ferð
meðan hermirinn hreyfist í sam-
ræmi við myndina. Líkt er eftir
ferð í rússíbana, flugferð, kapp-
akstri um götur Parísar og fleira.
Skemmtiland það sem sett var upp
á síðustu heimilissýningu verður
einnig sett upp aftur endurbætt.
Á sýningunni verður anddyri
Laugardalshallar breytt í garð
sem Pétur Jónsson landslagsarkí-
'tekt teiknaði og sýna helstu
framleiðendur hlað- og garðhellna
vörur sínar í garðinum og einnig
verður til sýnis allt sem viðkemur
görðum og garðyrkju.
Ferðafatnaður og sportfatnað-
ur verður sýndur á sýningunni auk
þess sem tískusýningar undir
stjórn Ásdísar Lofsdóttur verða
daglega á áhorfendapöllum. Einn-
ig verður sýnt margt annað sem
við kemur sumarleyfum, eins og
sumarbústaðir, hljólhýsi, tjöld,
smábátar. Ferðaskrifstofur verða
með ferðakynningar og nokkur
sveitarfélög kynna byggðarlög
sín.
Sýningin stendur til þriðjudags-
kvöldsins 3. maí og verður opin
virka daga frá klukkan 16 til 22
en frá klukkan 13 til 22 um helg-
ar og föstudaginn 1. maí.
íslenskur fjallamaður styrkir
Krísuvíkursamtökin:
Morgunblaðið/Emilía
Pétur H. Ármannsson, Guðrún Guðmundsdóttir, Jóhannes Þórðarson og Hildigunnur Haraldsdóttir,
arkitektar, við teikningu Guðjóns Samúelssonar af verslunarhúsi Nathans og Olsens, Austurstræti 16.
Það var fyrsta stórhýsið sem Guðjón teiknaði. Það var jafnframt fyrsta stórhýsið úr steinsteypu sem
reist var í miðborginni eftir Reykjavikurbrunann mikla.
Sýning í aldar-
niimiingn Guðjóns
Samúelssonar
Les Islendingasögur
í 13 daga uppi á þaki
Laugardalshallar
PÉTUR Ásbjörnsson, fjalla-
maður úr Hjálparsveit skáta,
mun dvelja á þaki Laugardals-
hallarinnar í 300 klukkustundir
samfleytt til að vekja athygli á
málefni Krísuvíkursamtakanna
en þau samtök stefna að því að
opna meðferðarheimili fyrir
unglinga sem hafa ánetjast eit-
urlyfjum. Samtökin hafa
undanfarið safnað fé til þeirrar
starfsemi en mikið skortir á að
endar nái saman. Er þessi þak-
dvöl í tengslum við sýninguna
Sumarið 87, sem Kaupstefnan
hf. stendur fyrir dagana 23.
apríl til 3. maí, en Krísuvíkur-
samtökunum var boðið að
kynna starfsemi sína á þeirri
sýningu.
„Ég setti það sem skilyrði að
hafa sjónvarp og myndbandstæki
þarna uppi og að auki verð ég
með Islendingasögurnar og bæk-
urnar um Landið þitt sem gaman
er að fletta í, svo þetta verður
mjög menningarlegt tjald,“ sagði
Pétur Ásbjörnsson í samtali við
Morgunblaðið. Pétur sagðist raun-
ar verða með tvö tjöld á þakinu,
lítið tjald með salernisaðstöðu auk
íbúðartjaldsins sem er tveggja
manna hálfkúlutjald með nægu
rými eins og Pétur sagði.
Laugardalshöllin er ekki há
miðað við þau fjöll sem Pétur
hefur klifið víða víða um heim, og
í þeim hópi eru til dæmis Matter-
horn og Mont Blanc. Pétur hefur
einnig nokkioim sinnum áður þurft
að dvelja talsverðan tíma í tjaldi
í fjallaferðum erlendis.
Þakdvöl Péturs á Laugardals-
höllinni hefst klukkan 9 að morgni
21. apríl og munu ýmsir aðilar
aðstoða við dvölina. Skátabúðin
leggur til viðleguútbúnaðinn, Ála-
foss gefur værðarvoð og peysu
og veitingamenn sýningarinnar
munu færa Pétri mat reglulega.
Áætlað er að Pétur komi ekki nið-
ur af þakinu fyrr en klukkan 21
að kvöldi 3. maí og er ráðgert að
hafa veglega móttökuathöfn fyrir
hann inni í Laugardalshöll.
SÝNING á frumteikningum Guð-
jóns Samúelssonar, arkitekts,
verður opnuð í Ásmundarsal
þann 16. apríl. Guðjón, sem var
einn af frumherjum byggingar-
listar á íslandi, fæddist þann dag
fyrir hundrað árum. I hugum
flestra tengist nafn hans einkum
þeim stórbyggingum sem hann
var höfundur að, svo sem Þjóð-
leikhúsinu, Háskólanum,
Hallgrímskirkju og Landsspítal-
anum, en færri vita um um-
fangsmikil störf hans á sviði
skipulagsmála.
Á síðastliðnu hausti kom upp sú
hugmynd í sýningarráði Arkitekta-
félags íslands að efna til sýningar
á uppdráttum einhvers af frum-
hetjum byggingarlistar hér á landi.
Tilgangur slíkrar sýningar yrði öðr-
um þræði að vekja athygli á gildi
uppdrátta og frumteikninga
íslenskra arkitekta, sem listrænna
og menningarsögulegra verðmæta,
sem brýnt er orðið að huga að varð-
veislu á, segir í inngangi sýningar-
skrár. Þar segir einnig að þar eð
aldarafmæli Guðjóns Samúelsson-
ar, arkitekts, bar upp á árið í ár
hafi legið beinast við að velja verk
hans sem viðfangsefni ofarigreindr-
ar sýningar. Á sýningunni eru
úppdrættir sem bera undirskrift
Guðjóns og hafa margir þeirra ekki
áður komið fyrir almenningssjónir.
Fram yfir 1930 var Guðjón
Samúelsson leiðandi í íslenskri
húsagerð og skipulagi. Hann var
fyrsti fullmenntaði arkitektinn sem
starfaði hér á landi, lauk burtfarar-
prófi frá Listaakademíunni í
Kaupmannahöfn árið 1919. Guðjón
gegndi embætti Húsameistara
ríkisins frá árinu 1919, allt til
dauðadags 1950.
Af byggingum sem Guðjón teikn-
aði og frægar eru má nefna ýmsar
byggingar í miðbæ Reykjavíkur,
verslunarhús Nathan og Olsen, þar
sem nú er Reykjavíkur apótek,
Landsbanka íslands í Austurstræti,
Hótel Borg, Landsímahúsið, Landa-
kotskirkju og Arnarhvál, skrifstofu-
hús ríkisins, auk fjölda smærri
bygginga. Guðjón teiknaði kirkjur,
skóla, sjúkrahús, prestsetur og
fjöldann allan af opinberum bygg-
ingum víða um landið. Hann vann
einnig umfangsmikil störf á sviði
skipulagsmála. Alþingi samþykkti
árið 1928 fyrstu lögin um skipulag
kauptúna og sjávarþorpa. Sama ár
voru þeir Guðjón Samúelsson, Guð-
mundur Hannesson og Geir Á.
Zoega skipaðir í skipulagsnefnd og
var fyrsta verkefni nefndarinnar
skipulag ísafjarðar. Uppdrættirnir
voru formlega lagðir fram vorið
1925 og hlutu staðfestingu i mars
1927. Var það fyrsta staðfesting
skipulags hér á landi. Skipulags-
tillaga Guðjóns að Bolungarvík er
talin eiga sér fáar hliðstæður í
íslenskri skipulagssögu. Sem hluta
af starfi sínu í skipulagsnefnd ríkis-
ins, tók hann að sér að skipuleggja
heilt sjávarþorp frá grunni. Upp-
drátturinn var lagður fram í
nóvembermánuði 1924 og sam-
þykktur í breyttri mynd árið 1930,
þótt lítið yrði síðan úr framkvæmd-
um.
Sýningin stendur til 3. maí og
er opin alla daga frá kl. 14 til 21.
í tengslum við sýninguna mun
Hörður Ágústsson, listmálari, halda
fyrirlestur um Guðjón og verk hans
miðvikudaginn 22. apríl, kl. 20.30
í Ásmundarsal við Freyjugötu. Á
afmælisdegi Guðjóns, þann 16.
apríl, heldur Westfálischer Kam-
merchor tónleika kl. 17 í Hallgríms-
kirkju. Fyrir tónleikuna mun sr.
Sigurbjörn Einarsson biskup
minnast Guðjóns. í anddyri kirkj-
unnar verða til sýnis frumdrög
Guðjóns að kirkjunni.
VW IfáKKANÞi
Jass-„smiðja“
Jass dans —
Afro-carabbiandans
— nútímadans
L»\kM
sSS&æ*
t \ VA
Mætum á vornámskeið Kramhússins
5 vikna námskeið frá 27. apríl til 1. júní.
w*. U“,-D!™,>ri,,bö,n
KENNARI: Ama Richardsdóttir
Rokk ’n’ Roli
KENNARI: Didda .rokk"
<4NYR KENNARi
Gestakennari Kramhússins frá
8.-22. maí er Mark Headley
dansari frá Barbados. Hann hef-
ur starfað í Berlín undanfarin 10
ár sem kennari - dansari og
dansahöfundur - fyrir leikhús,
sjónvarp og listasöfn.
Sórgrein hans er kennsla í Afro-
Caribbeandansi, jass- og
moderndansi og „musicals".
Sumarnámskeið Kramhússins
hafa alltaf verið góð — nú í ár verða
þau stórfengleg!
5 erlendir gestakennarar í júní:
Adrienne Hawkins - Maria Lexa -
Anna Haynes - Susi Villaverde -
Nanette Nelms
Innritun hafin!
'Wóttjr
Símar: 15103 — 17860.