Morgunblaðið - 15.04.1987, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. APRIL 1987
39
Kappaksturshelja
kærð fyrir að lemja
myndatökumann
Brasilía, Reuter.
LÖGREGLUYFIRVÖLD í Bras-
ilíu gáfu í dag, þriðjudag, út
handtökuskipan á Nelson Piquet,
kappakstursmanni, eftir að hann
réðst að kvikmyndatökumanni
frá brasilíska sjónvarpinu og sló
hann niður. Atburðurinn gerðist
við dómhús í höfuðborginni.
Piquet var þar að undirrita skiln-
aðarpappira frá fyrverandi konu
sinni.
Þegar kappakstursmaðurinn
gekk út úr húsinu beindi sjónvarps-
maðurinn myndatökuvélinni að
honum. Piquet hafði engar vöflur á
en réðst að manninum og lamdi
hann, að sögn að minnsta kosti
tvisvar. Sjónvarpsmaðurinn hefur
nú kært Piquet og krefst miska-
bóta. Piquet er búsettur í Monte
Carlo, en samkvæmt tilskipan má
hann ekki fara frá Brazilíu, fyrr
en málið hefur verið útkljáð. Reut-
erfréttastofan sagði í morgun,
þriðjudag, að hugsanlegt væri að
Piquet hefði komizt úr landi á
mánudagskvöld, fljótlega eftir at-
burðinn. Atvikið hefur vakið
athygli, þar sem Piquet naut vin-
sælda í Brazilíu.
Deilt um málmnám
við Sykurtoppinn á
V estur-Grænlandi
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun, fréttaritara Morgunbladsins.
MALMURINN níóbín hefur fund-
ist í svo ríkum mæli í fjalli einu
við Sykurtoppinn á vesturströnd
Grænlands, að vestur-þýskt
námafyrirtæki, Frolich und
Kliipfel, hefur farið fram á að
fá leyfi til málmnáms þar, en það
hefur -fyrir rannsóknaleyfi á
staðnum. Nú eru hins vegar
komnar upp deilur meðal græn-
lenskra stjórnmálamanna um
hugsanlega vinnslu málmsins,
þar sem úran er þarna innan um
og saman við og mundi fylgja
með í vinnslunni.
Um 450 manna hópur mótmæla-
fólks tók á móti Jonathan Motz-
feldt, formanni grænlensku
landstjórnarinnar, þegar hann kom
til viðræðna við sveitarstjórn stað-
arins. Formaður vinstriflokksins
Inuit Ataqatigiit, Arqaluk Lyr.ge,
segist ætla að beita neitunarvaldi,
þegar leyfisbeiðni þýska fyrirtækis-
ins kemur til afgreiðslu. Hann
óttast, að Grænland lendi í hópi
úran-útflutningslanda. Talið er, að
um 180 tonn af úrani séu innan
um níóbínið.
Mótmælendurnir 450, sem allir
eru innansveitarmenn í Sykur-
toppnum, hafa ritað nöfn sín á
skjal, þar sem málmleit og vinnslu
er mótmælt. Þeir óttast að dýralífið
sé í hættu, einkum hreindýrin, ef
leyfi verður veitt til málmnámsins,
og þar með úranvinnslunnar.
Koryagin senn
frá Sovétríkjunum
Amsterdam, Reuter.
SOVÉZKI andófsmaðurinn og
geðlæknirinn Anatoly Koryagin
og fjölskylda hans fara væntan-
lega frá Sovétríkjunum í næstu
viku. Talsmaður Bukovsky
mannréttindahópsins i Hollandi,
Robert van Voren, staðfesti þetta
í dag.
Koryagin er 48 ára og er í hópi
þekktustu andófsmannanna í Sov-
étríkjunum. Hann var settur í
fangelsi 1981 og síðan dæmdur til
vinnu í nauðungarbúðum. Honum
var gefið að sök að stunda undiróð-
ursiðju gegn Sovétríkjunum og
sérstaklega mæltust illa fyrir ásak-
anir um að sovézk stjórnvöld settu
heilbrigða menn á geðsjúkrahús.
Robert van Voren sagðist hafa
rætt við Koryagin, en þau eru nú
í Kharkov í Úkraínu og koma til
Moskvu upp úr helginni. Þau ætla
að fyrstu að fara til Sviss. Koryag-
in er meðal þeirra sem hefur verið
útnefndur til Friðarverðlauna Nób-
els í ár. Van Voren sagði frétta-
mönnum, að Koryagin legði mikla
áherzlu á að tveir aðrir nafntogaðir
andófsmenn fengju frelsi, þeir
Tengiz Gudava og Nisametdin Akh-
metov, skáld.
Sameinuðu þjóðirnar:
Tillaga um refisaðgerð-
ir gegn S-Afríku felld
Sameinuðu þjóðunum, Reuter.
FULLTRÚAR Bandaríkjanna og
Bretlands beittu neitunarvaldi i
Öryggisráði Sameinuðu þjóð-
anna á fimmtudagskvöld gegn
tillögu um að grípa til efnahags-
legra refsiaðgerða gegn Suður-
Afríku.
Níu af 15 aðildarríkjunum voru
hlynnt tillögunni, en henni var ætl-
að að þrýsta á stjómvöld í Suður-
Afríku um að veita Namibíu
sjálfstæði. Bretar, Bandaríkjáfhenn
og Vestur-Þjóðveijar voru henni
andvígir. Fulltrúar Frakklands,
Japans og Ítalíu sátu hjá. James
Gbheo frá Ghana, sem átti fmm-
kvæði að tillögunni, fordæmdi
afstöðu Breta og Bandaríkjamanna
og sakaði þessi ríki um að taka
hagsmuni stórfyrirtækja fram fyrir
„heilög réttindi“ íbúa Namibiu.
Fulltrúi Namibíu sagði að boðað
yrði til sérstaks fundar Allsheijar-
þingsins ef ríki þessi felldu aftur
tillögu um að beita refsiaðgerðum
gegn stjórninni í Pretoríu. A Alls-
heijarþinginu hafa fulltrúar ekki
neitunarvald en ályktanir þess eru
ekki bindandi.
Fulltrúi Breta sagði þetta órétt-
mætar ásakanir. Sagði hann að
ríkin greindi á um leiðir en ekki
markmið. Þann 20. febrúar síðast-
liðinn beittu fulltrúar Breta og
Bandaríkjamanna neitunarvaldi
gegn tillögu um að beita Suður-
Afríku efnahagslegum þrýstingi
vegna kynþáttastefnu stjórnvalda
þar.
Helgimyndirgegn alnæmi íjapönsku hofi
Æðstiprestur í japönsku fijósemishofi hefur sett
upp tvær helgimyndir til að vernda fólk fyrir
alnæmi og liggur hann á bæn fyrir fórnarlömb
sjúkdómsins. Hirohiko Nakamura, æðstiprestur
i fijósemishofinu i Kawasaki, skammt frá Tókýó,
kvaðst í viðtali við Reuter-fréttastofuna vonast
til að bænir sínar stöðvuðu útbreiðslu alnæmis,
en hann heldur því fram að við lauslæti í kynferð-
ismálum sé að sakast i þeim efnum. Önnur
helgimyndin sýnir japanskan stríðsgarp á hest-
baki, sem er í þann mund að höggva af kynfæri
karlmanns, sem sýkt eru af alnæmi. Til hliðar
stendur norn. Á hinni myndinni, sem hér sést,
situr strangur guð, vopnaður helgu sverði, og
kremur alnæmisveiruna í hendi sér. Á sunnudag
Iá Nakamura á bæn meðan á árlegri .járnvölsa-
hátið'* stóð. Hann bað fyrir um fjörutiu manns,
sem sumir héldu að þeir væru haldnir sjúk-
dómnum. Um tiu þúsund manns fylgdust með
athöfninni, en þar smíðuðu járnsmiðir getnaðar-
lið úr járni samkvæmt aldagamalli hefði.
ÞORS
^1946
-k -k -k
-k -k ☆
TAPAÐ - FUNDIÐ
Opið til kl. 03.001 kvöld
Hér með tilkynnist að kynslóðin
sem týndist hefur fundist.
Hún týndist reyndar aldrei og hef-
ur skemmt sér mjög vel í
ÞÓRSCAFÉ undanfarin ár. Leitið
þvíekki langtyfir skammt! Mætum
öll á meiriháttar dansleik í
Þórscafé í kvöld — staðnum
þar sem enginn týnist.
Hljómsveitin SANTOS ásamt söngkonunni Guðrúnu Gunnars-
dóttur leika fyrir dansi og rifja upp gömul og góð lög.
í diskótekinu á neðri hæðinni verður rykið dustað af gömlum og góðum plötum.
Opiðfrákl. 22-03.
Snyrtilegur klæðnaður — Aldurstakmark 20 ára.
ÞÓRSCAFÉ - LIFANDI STAÐUR MEÐ LIFANDITÓNLIST í 40 ÁR.
-k -k
-k -k