Morgunblaðið - 15.04.1987, Síða 41

Morgunblaðið - 15.04.1987, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. APRIL 1987 41 NAR VÍGÐ vígði efndi nærstöddum, m.a. forsætisráð- herra og eiginkonu hans og samgönguráðherra og eiginkonu, gekk Sverrir Haukur Gunnlaugs- son formaður byggingarnefndar í ræðustól og flutti ávarj). Næstur honum talaði Matthías A. Mathies- en utanríkisráðherra og því næst tók til máls Matthías Bjarnason samgönguráðherra. Þeir röktu lítillega byggingarsögu hússins, þökkuðu framlög starfsmanna og óskuðu flugfarþegum og starfs- mönnum allra heilla í framtíðinni. Þá gaf utanríkisráðherra for- seta Islands orðið. Hún ávarpaði gesti, lýsti ánægju með nýju flug- stöðina og óskaði þjóðinni til hamirigju. Þá gaf hún stöðinni nafn Leifs Eiríkssonar og afhjúp- aði lágmynd rneð styttu hans á. Biskupinn yfir íslandi, Pétur Sig- urgeirsson kom næstur upp í ræðustól. Hann flutti predikun og blessaði gesti. Að því loknu söng Karlakórinn Fóstbræður þjóðsöng- inn við undirleik íslensku hljóm- sveitarinnar. Að þessu loknu kom utanríkis- ráðherra á ný í ræðustól. Hann afhenti Pétri Guðmundssyni flug- vallarstjóra á Keflavíkuiflugvelli innrammað bréf, sem hann las upp, en í því tilkynntu ráðherrann og Sverrir Haukur Gunnlaugsson formaður varnarmálanefndar, að stöðin væri formlega þann dag, þ.e. í gær, afhent flugvallarstjóra, Pétri Guðmundssyni, til rekstrar. Að iokinni afhendingunni voru síðan bornar fram léttar veitingar, en velflestir gesta yfirgáfu flug- stöðina iaust eftir kl. 20. Matthías Á. Mathiesen, utanríkis- ráðherra, afhendir Pétri Guðmundssyni, flugvallarstjóra, flugstöðina til notkunar. Séð yfir efri hæð flugstöðvarinn- ar. TF Ögn svífur yfir höfði vígslugesta. „Umhverfið glæsilegt en um leið notalegt“ RÆÐUMENN við vígslu flug- stöðvar Leifs Eiríkssonar lýstu byggingu hennar, frágangi og útliti sem miklu afreki. Þeir 3.000 gestir, sem við vígsluna voru, virtust flestir sömu skoð- unar. Viðbrigðin eru líka mikil frá helmingi minni, áratuga gamalli byggingu, sem hvergi stóðst kröfur nútímans til þess- arar 14.000 fermetra bygging- ar, sem státar af helztu nýjungum og nútímalegu útliti. Flugstöð Leifs Eiríkssonar er meðal annars lýst á eftirfarandi hátt í kynningarbæklingi: „Flug- farþegar á leið um nýju flugstöð- ina munu finna mikil viðbrigði frá því, sem áður var. Umhverfið er glæsilegt en um leið notalegt. Rýmið er helmingi meira en í gömlu flugstöðinni og öll aðstaða betri. Líklegt verður að telja að gróðurinn í biðsalnum veki hrifn- ingu margra. Farþegar á leið frá landihu koma að nýju flugstöðinni að vest- anverðu og ganga inn á neðri hæðina. Þar er innritun og vega- bréfsskoðun, ásamt veitingabúð sem er opin öllum. Farþegar fara síðan á efri hæðina, inn í biðsal- inn. Landgangurinn út í flugvélar er að sunnanverðu og ganga far- þegar innandyra alla leið út í vélarnar. Komufarþegar fara einnig um landganginn. Viðkomufarþegar (transit) halda inn í biðsalinn, en I farþegar til íslands fara um vega- bréfsskoðun og síðan niður á neðri hæðina. Þar er komufríhöfn, af- hending farangurs og tollskoðun. Góð aðstaða er fyrir þá sem koma I til að taka á móti farþegum.“ Forseti íslands Vigdís Finnbogadóttir: Fallegasta flugstöð sem ég hef komið í „ÞETTA er fallegasta flug- stöð, sem ég hef komið í og ég hef farið nokkuð víða.“ Þetta sagði Vigdís Finnboga- dóttir, forseti íslands, er Morgunblaðið náði tali af henni að lokinni vígslu flug- stöðvarinnar. „Nú er það svo, að hveijum þykir sinn fugl fagur, en engu að síður fullyrði ég þetta án þess að vera hlutdræg fyrir íslands hönd. Það var að sjálfsögðu mjög gaman að taka þátt í þessari athöfn. Ég held að allir Islend- ingar, sem hér eru staddir, séu mjög stoltir af því afreki, sem felst í byggingu þessarar flug- stöðvar," sagði Vigdís Finn- bogadóttir. Vigdís Finnbogadóttir forseti Islands í nýju fríhöfninni

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.