Morgunblaðið - 15.04.1987, Qupperneq 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1987
ÁmiSæberg
Lágmyndin af Leifi Eiríkssyni.
í gegn um þennan glervegg má fylgjast með komufarþegum á neðri hæð.
Ámi Sæberg
FLUGSTOÐ LEIFS EIRIKSSONAR VIGÐ
Morgunbladið/Rax
Geir Hallgrimsson, seðlabankastjóri og kona hans Erna Finnsdóttir
og Þorsteinn Pálsson, fjármálaráðherra, og kona hans Ingibjörg
Rafnar. Geir Hallgrímsson tók fyrstu skóflustunguna að nýju flug-
stöðinni 7. október 1983.
Flugstöðin al-
veg stórkostleg
Mjög ánægöur með aö hafa TF
OGN þarna, sagði annar höfundar
flugvélarinnar, Gunnar Jónasson
„FLUGSTOÐIN er alveg stór-
kostleg, mér lýst mjög vel á
hana“, sagði Gunnar Jónasson,
einn gesta í flugstöðinni i gær,
en Gunnar er annar tveggja
höfunda og smiða að flugvél-
inni TF ÖGN.
Við spurðum Gunnar enn-
fremur, hvernig honum litist á
TF ÖGN þar sem hún hangir
yfir miðjum aðalsal í flugstöðv-
arbyggingunni. Hann sagði að
sér litist mjög vel á hana og
væri þakklátur Flugsögufélag-
inu fyrir að hafa komið því í
framkvæmd að koma vélinni
þarna fyrir.
— Datt þér í hug á þeim tíma,
sem þú smíðaðir TF ÖGN, að hún
ætti eftir að gegna svo veigam-
iklu hlutverki í hönnun einnar
byggingar?
„Nei, mann dreymdi nú ekki
svo stóra drauma í þá daga, en
ég er mjög ánægður með hana
þama sem hún er.“
Flugstöðin skoðuð,
Ámi Sæberg
Flugfreyjur báru vígslugestum ýmis konar veit-
ingar.
Ámi Sæberg
Hér verður tekið á móti farþegum og farangri
þeirra.
Ámi Sæberg
íslenzka hljómsveitin og karlakórinn Fóstbræður flytja þjóðsönginn undir stjórn Guðmundar Emilssonar.