Morgunblaðið - 15.04.1987, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 15.04.1987, Blaðsíða 46
46 T8ei JÍÍHA .51 HUOAdimvaiM ,aiQAJHVIUDHOM MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1987 Hver er réttur bamanna? Hver nemandi fær tæpar tvær mínútur af tíma kennarans í hverri kennslustund eftirRósu Eggertsdóttur Fyrir skömmu sendi Kennara- samband íslands út foreldrabréf er nefnist Réttur nemandans. Með þessu riti er vakin athygli á ýmsum atriðum er varða heill bamsins í skólanum s.s.: — hvort sérhvetju barni sé sinnt sem einstaklingi, — hvort nemendur eigi kost á að ljúka vinnu sinni í skólanum, — hvort bömum sé tryggt ör- yggi og aðhlynning fyrir og eftir skólatíma, — hvort skólalóðin sé æskilegt og ömggt leiksvæði og — hvort öllu námi sé gert jafn- hátt undir höfði. Kennarasamband íslands er með þessu móti að reyna að ná til for- eldra og minna á að sameiginlega verða foreldrar, kennarar og skóla- stjómendur að standa vörð um hagsmuni og rétt bama í skóla. Lengi hefur verið Ijóst að kenn- arastéttin vill breytta skóla og betri aðstöðu til að geta unnið starf sitt betur. Við höfum lög um skólahald. Sumir segja þau vera með bestu lögum í heimi um þessi mál. Ættum við ekki að vera full af stolti? Hæng- urinn er bara sá að lögum þessum er ekki framfylgt nema að nokkm leyti. í 2. grein segir m.a.: ... „Gmnnskólinn skal leitast við að haga störfum sínum í sem fyllstu samræmi við eðli og þarfir nem- enda og stuðla að alhliða þroska, heilbrigði og menntun hvers og eins.“ Vissulega em markmiðin háleit, þannig eiga þau einmitt að vera. En lög þessi em ekki galla- laus, í þeim segir í grein 46 að miða eigi við 28 nemendur í bekk, hámark 30. Reyndar er leitast við að hafa færri nemendur í hverri bekkjardeild sé þess nokkur kostur. Flestir geta sagt sér það sjálfir hve vonlaust verk það er að kanna eðli og þarfir 25 til 30 nemenda í hóp og í framhaldi af því, að finna við- fangsefni við hæfi hvers og eins nemanda. Menntamálaráðherra skipaði á sl. ári nefnd til að endurskoða gmnnskólalögin frá 1974. Nefndin skilaði af sér skömmu eftir sl. ára- mót. Er rétt að geta þess hér að nefndin leitaði ekki til Kennarasam- bands Islands meðan á endurskoðun stóð. Skyldi maður ætla að augljóst atriði eins og uemendaijöldi í bekk yrði lagfært. Einhveijum kann e.t.v. að virðast það lagfæring, að leggja til að meðaltal nemenda verði 24 í bekkjardeild, en megi fara upp í 29 þegar um 6—9 ára börn er að ræða og 30 nemendur þegar um eldri börn er að ræða. Verður manni á að spyija: Hagsmunir hverra vom hafðir að leiðarljósi við þessa endur- skoðun — varla hagsmunir er varða eðli og þarfir nemenda. Hér er e.t. v. rétt að benda á þá augljósu i staðreynd að það er mun ódýrara að hafa stórar bekkjardeildir en litl- ar. í drögum að almennum hluta aðalnámskrár segir m.a. á bls. 15 og 16: „Vitsmunaþroskinn örvast þegar það tekst að skipuleggja við- fangsefnin við hæfi nemenda þannig að þeir beiti sér í glímu sinni við þau.“ Um þetta er ekki ágreiningur. Hins vegar fullyrðum við kennarar og skólastjórnendur að það sé m Rósa Eggertsdóttir „Leng-i hefur verið ljóst að kennarastéttin vill breytta skóla og betri aðstöðu til að geta unn- ið starf sitt betur.“ ógerningur að framfylgja þessari stefnu við núverandi aðstæður — þær verða að breytast. Með fyrrnefndu foreldrabréfi er Kennarasamband íslands að hvetja foreldra til að krefjast sjálfsagðs réttar fyrir börn sín. Það geta for- eldrar gert með því að: — vekja athygli á og betjast fyr- ir þessum málum í þeim stjórn- málasamtökum sem þeir starfa í, — lofa þeim stjórnmálasamtök- um atkvæðum sínum sem beijast fyrir þessu, — efla starf foreldrafélaga og innan þeirra ræða þessi mál og senda frá sér kröfugerðir fyrir hönd barna sinna, — skrifa blaðagreinar, — þrýsta á skólanefndir á hvetj- um stað, — með bréfum og samtölum við alþingismenn. Nú kann vel að vera að foreldrar teli sig of ókunnuga innri málefnum skólanna og telji sig ekki í stakk búna til að rökstyðja kröfur sem þessar. Bendi ég þeim foreldrum á þá einu færu leið, sem tiltæk er, og hún er sú að koma í heimsóknir í skólana. Komið og skoðið aðstöð- una, skólastofurnar, skólabóka- safnið, tækjakostinn, matar- og hvíldarsvæði nemenda, námsgögn- in, útivistarsvæðið og vinnuaðstöðu þá sem kennarar hafa til að und- irbúa verkefnin sem eiga að vera við hæfi hvers og eins. Komið í kennslustundirnar og sjáið hve mik- inn tíma hvert barn fær. Ef miðað er við meðaltal fær hvert barn í 24ra manna bekkjardeild tæpar tvær mínútur af tíma kennarans í hverri kennslustund. Finnst foreldr- um það sæmandi? Foreldrar! Gerið eitthvað í málun- um núna, áður en barnið er vaxið úr grasi. Ykkur er málið skyldast. Höfundur er foreldri og kennari við grunnskóla Saurbæjarhrepps, Eyjafirði. Félag leiðsögumanna: Verkfallsbrot Landssamband hjálparsveita skáta hvetur alla ferðalanga til að hafa lágmarksbúnað með sér. Hlý klæði, skjólfatnað, áttavita, landakort, flautu, álpoka og sólgleraugu til vamar snjóbirtu. STJÓRN og launaráð Félags leið- sögumanna biður yður að birta eftirfarandi ályktun, sem sam- þykkt var á fundi ofangreindra aðila vegna auglýstrar skemmti- ferðar Sjálfstæðisflokksins hinn 4. apríl 1987: „Félag leiðsögumanna hefur staðið í kjarabaráttu frá því í des- ember 1986 og boðaði í kjölfar margra árangurslausra samninga- funda vinnustöðvun, sem hófst hinn 25. marz sl. Síðan hefur sáttasemj- ari reynt án árangurs að boða deiluaðila til fundar. Hinn 4. apríl sl. fóru frambjóð- endur Sjálfstæðisflokksins í árlega skemmtiferð með almenna borgara. Að þessu sinni var ekið um höfuð- borgina. Ferð þessi var rækilega auglýst og þess sérstaklega getið, að frambjóðendurnir önnuðust leið- sögn. Hinn 10. apríl sl. birtist síðan myndsyrpa á bls. 32 í Morgun- blaðinu úr ferðinni. í texta með myndunum var þess getið, að fram- bjóðendur hefðu brugðið sér í hlutverk leiðsögumanna. Stjórn og launaráð Félags leið- sögumanna lýsir undrun sinni og vanþóknun á þessu smekklausa at- hæfi. Á meðan stéttarfélag okkar stendur í kjarabaráttu og er í verk- falli er ekki hægt að líta það öðrum augum en verkfallsbrot og ögrun eins og að því var staðið.“ • • Oryggisþjónusta ferðamanna; Reyndra ferðalangasiður að láta vita af ferðum sinum Ketill Larsen ásamt nokkrum verka sinna. Sýnir á Fríkirkjuvegi 11 Það hefur löngum verið aðal góðra íjalla- og ferðamanna að láta vita af ferðum sínum. Með því að skilja eftir ferðaáætlun hjá öðni ferðavönu fólki tryggja ferðalangar öryggi sitt og firra aðstandendur sína óþarfa kvíða. Landssamband hjálparsveita skáta og Landssam- band flugbjörgunarsveita bjóða ferðamönnum ókeypis þjónustu í þessum efnum. Ferðafólk getur hringt og látið vita um ferðatil- högun, Qölda ferðalanga, áætlaða heimkomu og hvernig farartækjum ferðast er á. Tekið er með í reikninginn að tafir geta alltaf orðið og því ekki rokið af stað í leit sé hópurinn ekki kominn til byggða nákvæmlega á þeim tíma sem ákveðið var. Hins vegar styttist viðbragðstíminn til muna og aðgerðir verða markviss- ari er til þarf að taka. Ferðafólk getur haft samband allan sólarhringinn í síma 91-686068, en það er jafnframt neyðarnúmer fyrir leit og björgun. Sólarhringsvaktin er í höndum Seeuritas, sem annast útköll leitar- stjórnar. Rík ástæða er til að hvetja ferða- menn til að notfæra sér þessa þjónustu, sem er þeim að kostnaðar- lausu, því ef til Ieitar kemur geta slíkar lágmarksupplýsingar, sem beðið er um, skipt sköpum. Leggj- um því númerið á minnið: 686068 — leit og björgun — á vakt allan sólarhringinn. Fyrirhyggja er besta tryggingin sem ferðalangar geta gefið sér fyr- ir farsælum ferðalokum. Þeir sem ætla í ferð — hvort heldur stutta eða langa — ættu að hyggja að nokkrum atriðum til að vera við- búnir óvæntum skakkaföllum. Auk hlýrra klæða og litriks skjólfatnaðar ættu allir ferðamenn að hafa í far- teskinu landabréf, áttavita, flautu og/eða pennaneyðarbyssu, sólgler- augu til að veijast snjóblindu, álteppi og orkuríkt neyðarsnarl, s.s. súkkulaði, hnetur og rúsínur. Sól- gleraugu eru einnig nauðsynleg til að veijast snjóblindu. Eins og sjá má er þetta hvorki þungt né fyrir- ferðamikið, en getur skipt sköpum. Venjum okkur á góða siði á ferða- lögum — verum viðbúin því óvænta. Áður er lagt er af stað ætti skil- yrðislaust að setja ferðaáætlun niður á blað og skilja eftir hjá ein- hverjum ábyrgum. Hvert á að fara og hvenær er ætlunin að koma aft- ur? Slíkar lágmarksupplýsingar gera allar aðgerðir markvissari ef til leitar kemur. Enginn ætti að telja sig of góðan og yfir það hafinn að segja hvert hann ætlar, jafnvel reyndir fjallamenn geta farið villur vegar og tafist á leið sinni. Góða ferð og farsæl ferðalok. Landssamband hjálpar- svcita skáta. DAGANA 15.-25. apríl heldur Ketill Larsen málverkasýningu á Fríkirkjuvegi 11. Sýninguna nefnir hann „Vor frá öðrum heimi“. Þetta er sautjánda einka- sýning hans. Á sýningunni eru um sjötíu olíu- og aeryl-myndir. Flestar myndirnar eru nýjar af nálinni. Ketill málar aðallega blóma- og landslagsmyndir en einnig myndir sem lýsa hugmyndum hans um annan heim. Á sýningunni verður leikin tónlist eftir Ketil. Sýningin verður opin alla dagana frá kl. 14.00 til 22.00. Á sama tíma sýnir Ketill fljót- andi myndverk á Reykjavíkurtjörn fyrir framan Fríkirkjuveg 11, ef veður leyfir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.