Morgunblaðið - 15.04.1987, Side 55

Morgunblaðið - 15.04.1987, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1987 55 AF ERLENDUM VETTVANGI eftir STEVE VINES Plóttamenn frá Víetnam bíða þess að fá að fara í land í Hong Kong. Offjölgun flóttafólks frá Norður-Víetnam Hong Kong: ÞEIR lánsömu ná landi hungraðir, sjóblautir og útkeyrðir eftir margra vikna siglingu í smábátum frá Víetnam í von um að kom- ast til Hong Kong, eina staðarins á þessum slóðum þar sem flóttafólkið getur gert sér vonir um að fá hæli. eir óheppnu geta lent í klóm sjóræningja sem ræna þá, nauðga konunum eða jafnvel myrða flóttafólkið. Engu að síður er ekkert lát á flóttamanna- straumnum. Reyndar fer flótta- mönnum heldur íjölgandi, ef eitthvað er, og nú koma þeir ekki frá „nýfrelsuðu" héruðunum í Suður-Víetnam, heldur frá Norð- ur-Víetnam , sem hefur verið undir stjórn kommúnista frá árinu 1945. Umdeildar aðgerðir Yfirvöld í Hong Kong eiga erfítt með að sætta sig við þennan straum flóttamanna og eru nú að íhuga aðgerðir til að greina á milli þeirra sem sækja um hæli af efnahagsástæðum og hinna, sem eru að flýja pólitískar, trúar- legar eða kynþáttalegar ofsóknir. Vilja yfirvöld senda þá sem flýja af efnahagsástæðum til baka til Víetnam. Ljóst er að þessi stefna á eftir að mæta harðri andstöðu frá Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna, og frá yfirvöldum í Víetnam, sem hafa gefíð í skyn að þau kæri sig ekki um að fá til baka þá sem kosið hafa að flýja land. Og það sem meira er, Víet- namar verða að bíða þess að Bretar hefji samningaviðræður um heimsendingu flóttamanna þar sem Hong Kong er enn brezk nýlenda og getur því ekki rekið eigin utanríkisstefnu. Bretar hafa hinsvegar ekki sýnt neinn áhuga á að hefja þær viðræður. Reyndar eru Hong Kong búar sjálfir nokkuð tregir til að taka svona afdrifaríka ákvörðun. í rit- stjómargrein í Hong Kong blaðinu „South China Moming Post“, sem talið er íhaldssamt í skoðunum, er varað við því að ekki sé hlaup- ið að því að senda flóttamennina til baka til Víetnams: „Svona nauðungarflutningar geta leitt af sér illyndi og átök og vakið minn- ingamar um það sem Bandamenn gerðu við rússneska fanga í Vínarborg og víðar í lok síðari heimsstyijaldarinnar," segir blað- ið. Tregða annarra ríkja Alls hafa rúmlega 100.000 flóttamenn - svonefnt bátafólk - komið til Hong Kong, og hafa 14.500 þeirra fengið þar dvalar- leyfí til frambúðar. Eru það mun fleiri dvalarleyfí en mörg iðn- væddu ríkin hafa samþykkt að veita. En þótt unnið hafi verið kappsamlega að því að reyna að fá önnur lönd til að taka við þeim flóttamönnum sem ekki var unnt að veita hæli í Hong Kong, em enn um 8.000 manns frá Víetnam í flóttamannabúðum þar. Sameinuðu þjóðirnar hafa stað- fastlega hvatt yfirvöld í Hong Kong til að halda áfram að taka við bátafólkinu. Á ráðstefnu sem haldin var á vegum SÞ árið 1979 var því heitið að önnur lönd skyldu síðar taka flóttamennina að sér ef Hong Kong tæki við þeim til bráðabirgða. Það hefur bersýni- lega ekki verið staðið við það fyrirheit. Það sem verra er, að því er Hong Kong varðar, þá virðist nú ganga hægar að koma flóttafólk- inu fyrir í öðmm löndum. Sérstak- lega hefur það vakið gremju að ekki hefur fleiri flóttamönnum verið veitt hæli í Bretlandi. í fyrra gáfu brezk yfirvöld berlega í skyn að þau væm reiðubúin til að taka við auknum fjölda flóttamanna, en síðan hefur fátt frá þeim heyrzt. Þetta hefur hinsvegar gefið öðmm löndum góða afsökun fyrir því að taka ekki á móti fleiri nýj- um flóttamönnum frá Víetnam. Stjómvöld í öðmm löndum segja sem svo að úr því Bretar, sem ráða ríkjum í Hong Kong, séu ekki reiðubúnir til að taka við fleiri flóttamönnum, því ættu þá önnur lönd að gera það. Fátækt og skortur Árið 1982 gripu yfírvöld í Hong Kong til nýrra aðgerða til að reyna að draga úr flóttamannastraumn- um frá Víetnam og komu öllum nýjum flóttamönnum fyrir f lokuð- um búðum, sem minna óhugnan- lega á búðir stríðsfanga. Fram til þess tíma gátu flóttamennimir starfað að vild í nýlendunni og farið þar ftjálsir ferða sinna. Þessi nýja stefna virtist í fyrstu ætla að bera árangur, en nú fer bátafólkinu fjölgandi á ný. Stað- reyndin er sú að það er erfitt að halda aftur af fólki sem fínnst það sitja í sjálfheldu skorts og fátækt- ar sem hijá almenning í Víetnam. Víetnamamir eru eins og aðrir afkomendur flóttamanna í Hong Kong að sækjast eftir betri lífskjörum í brezku nýlendunni. Ólöglegir innflytjendur frá meg- inlandi Kína reyna daglega að feta í fótspor þeirra, en yfirvöld í Hong Kong framfylgja ákveðið þeirri stefnu sinni að senda þá til baka til Kína strax og til þeirra næst. Flestir kínverskir íbúar Hong Kong eiga erfítt með að skilja þessa stefnu sem virðist taka af- stöðu gegn Kínveijum, en sýnir hinsvegar Vietnömum umburðar- lyndi. Er þetta undirrót vaxandi gremju í nýlendunni. Höfundur er blaðamaður þjá brezka blaðinu The Observer. Indíána- stígvél með sebraskinni toppM «*5»®^SK0RIM VELTUSUND11 21212 Litur: Natur Stærð: 36-40. Efni: Leður VerA kr. 3*290 Póstsendum ATH: Einnig væntanlegar nokkrar aðrar tegundir af indíánastígvélum Skíðadeild KR Skíðaskólinn Snæfríður Skíðanámskeið um páskana fimmtudag, föstudag, laugardag og sunnudag frá kl. 11.00-13.00 og 14.00-16.00 alla dagana. Pantanir í síma 351 1 6. Einnig er hægt að mæta við þjónustumið- stöðina Skálafelli kl. 11.00 alla dagana. Verð: 2 dagar kr. 1600, 1 dagur kr. 1000, 2 tímar kr. 500. Barnakennsla 4ra ára og eldri. Skíðakennarar: Einar Úlfsson, Hafliði B. Harðarson og Jónas Valdimarsson. Sjáumst á skíöum í Skálafelli um páskana! Bladburöarfólk óskast! AUSTURBÆR Grettisgata 2-63 o.fl. Lindargata 1-38o.fl Hverfisgata 4-62 o.fl. Hverfisgata 63-115 o.fl Síðumúli mmtsíuTAu er haegt að breyta innheimtuað- ferðinni. Eftir það verða áskrift- argjöldin skuldfærð á viðkomandi greíðslukortareikn- ing mánaðarlega. SÍMINNER 691140 691141

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.