Morgunblaðið - 15.04.1987, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1987
59
Morgunblaðið/Einar Falur
Ekki náðist að taka mynd af Bandormunum á sviðinu í Tónabæ.
Tarkos í góðri keyrslu. Hljómsveit kvöldsins. Metan
Músíktilraunir 1987:
ANNAÐ KVÖLDIÐ
Gjörningur
Morgunbiaðið/Árni Matthiasson
Hvítar reimar
Ekki var aðsókn að öðru
kvöldi Músíktilrauna Tónabæj-
ar, 9. apríl síðastliðinn, eins
mikil og að þvi fyrsta, 2. apríl,
en þó var vel á fjórða hundrað
áhorfenda mætt á staðinn til að
fylgjast með.
Það voru Bandormamir úr Kópa-
vogi sem riðu á vaðið þetta kvöldið.
Vel mátti sjá að það tekur á taug-
amar að vera fyrstur á svona
kvöldi. Einkum átti rythmagítar-
leikari sveitarinnar í erfíðleikum
með tækjabúnað. Annað gekk
ágætlega upp.
Næstir komu Mussolini með sitt
framsækna niðurrifsrokk. Söngv-
arinn var óvenjulegur að því leyti
að hann söng ekki af miklum krafti,
en röddin var einmitt vel fallin til
niðurrifs. Einna helst minnti tón-
listin á ýmislegt það nýjasta sem
er að gerast í breska tónlistar-
heiminum þessa dagana.
Var þá komin röðin að Gjöm-
ingi. Gjömingur hafði nokkra
sérstöðu þetta kvöld, og reyndar í
músíktilraununum almennt, að því
leytinu að sveitin státar af söng-
konu. Hún sýndi þó engin sérstök
tilþrif, enda mátti sjá að taugamar
voru eitthvað strekktar. Gítarleik-
ari hljómsveitarinnar gerði góða
hluti þá sjaldan hann gaf sér svig-
rúm til.
Keflvíkingamir úr Hvítum reim-
ur vom næstir. Þeir státuðu af því
að hafa engan gítarleikara innan-
borðs, eingöngu bassa, hljómborð
og trommur. Erfítt var að gera sér
grein fyrir því hvaða tónlist það
var sem þeir vom að spila, útkom-
an var sem blanda af tölvupoppi,
pönki og sykraðri danstónlist.
Taktskiptingar vom ónákvæmar
og það féll illa saman sem þeir
voru að gera. Gítar gæti bætt úr
og gefíð þéttari hljóm, en söngur-
inn verður þó að teljast höfuðverk-
ur.
Þegar hér var komið sögu var
stutt hlé á tónlistinni. Eftir hlé
vom það Skagstrendingamir í
Rocky sem vom næstir. Mikla at-
hygli vakti þegar þeir komu inn á
sviðið í einskonar einkennisbúning-
um, appelsínugulum sjóbuxum.
Þeir höfðu greinilega undirbúið sig
vel fyrir kvöldið og náðu vel til
áheyrenda. Söngvarinn var áber-
andi góður og með æfða sviðs-
framkomu en hljóðfæraleikarar
skiluðu sínu líka vel.
Næst var hljómsveitin Tarkos,
sem hélt sig við þungarokk að sögn.
Hljómsveitarmeðlimir vom mátu-
lega þungarokkslegir útlits, nema
söngvarinn sem var eins og hann
ætti ekki heima í hljómsveitinni.
Þeim mun meiri athygli vakti þeg-
ar þeir félagar byijuðu að spila.
Ekki var það bara hinn feiknagóði
gítarleikari sem vakti athygli, held-
ur var söngvarinn með óvenjulegri
og sérstæðari söngvumm sem
maður hefur heyrt í lengi. Að öðr-
um ólöstuðum vom það gítarleikar-
inn og söngvarinn sem gerðu
hljómsveitina óvenjulega og stór-
eftiilega. Hljómsveit kvöldsins að
mínu mati.
Á hæla Tarkos kom síðan hljóm-
sveitin Metan frá Sauðárkróki.
Þeir Sauðkrækingar státuðu af
þremur hljómborðum og sólógítar-
leikara í þokkabót. Allur ótti við
að úr þessu yrði aðeins hljómborðs-
grautur varð að engu þegar þeir
byijuðu að spila. Söngvarinn var
góður og hljómborðin vom nýtt vel
án þess að þeim væri nokkum
tímann ofaukið. Gítarleikarinn
sýndi einnig tilþrif og trommarinn
var traustur.
Sigurvegarar kvöldsins vom
Skagstrendingamir úr Rocky með
3103 stig og kom fáum á óvart,
en Sauðkrækingamir í Metan vom
skammt á eftir með 3009 stig.
Dómnefnd sá ástæðu til þess að
Gjömingur úr Reykjavík kæmist
áfram í úrslitakeppni, enda vom
þau í Gjömingi með 2969 stig,
vart gat munað minna. Staðan er
því þannig að af þeim fímm hljóm-
sveitum sem þegar er búið að velja
í úrslit er ein úr Reykjavík, Gjöm-
ingur, en síðan koma Kvass frá
Stykkishólmi, Illskársti kosturinn
frá Laugarvatni, Rocky frá Skaga-
strönd og Metan frá Sauðárkróki.
Landsbyggðin stendur því vel að
vígi í hljómsveitarmálum þótt yfir-
leitt sé mest látið með hljómsveitir
úr Reylqavík.
Páskamir hafa þau áhrif að
næsta tilraunakvöld verður ekki
fyrr en 23. apríl og síðan úrslita-
kvöldið þann 24.
Árni Matthíasson
Eftir þvi sem keppendur komu lengra að, voru þeir betri i tauinu, sagði einn við-
staddra. Þeir í Metan voru engin undantekning.
Morgunblaðið/Bjami
Ekki náðist heldur að mynda Mussolinimenn, sem hér eru í niðurrifsstellingum.
Skagstrendingar hinir vörpulegustu i einkennisbúningum.