Morgunblaðið - 15.04.1987, Blaðsíða 60
60
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1987
Borgaraflokkurinn,
Alberts mál o.fl.
eftir Guðmund
Jóhannsson
Pólitík er undarlega skrítin tík.
Á Qögurra ára fresti eru landsmenn
háttvirtir kjósendur í munni þeirra,
sem eru á biðilsbuxunum og at-
kvæðaveiðum sér til framdráttar í
valdabaráttunni, en þess á milli
’j^mur pólitíkusunum vel að vera
ekki ónáðaðir að óþörfu. En hvem-
ig er þetta vald svo notað, sem
þeim er veitt á fjögurra ára fresti?
Það er fróðlegt að lita þar um
garða, og hræddur er ég um að þar
sé ekki allt sem sýnist, og ýmislegt
fljóti þar með af hinum verri gróðri,
og er í augum hins háttvirta kjós-
anda á ýmsan hátt óhollur.
Af mörgu er að taka en fátt eitt
nefnt. Mikið hefur verið rætt og
ritað um tap Útvegsbankans. Ég
verð að játa skilningsleysi mitt í
þeim efnum, að ég kem ekki auga
á hver mismunur er á gjaldþroti
banka og annarra fyrirtækja eða
stofnana og því var þetta mál ekki
^teðhöndlað á sama hátt og önur
slík sem hlotið hafa þau örlög?
Bankar og útibú þeirra hafa sprott-
ið upp eins og gorkúlur á haug
undanfarin ár og með tilheyrandi
fjárfestingu og annarri yfirbygg-
ingu og í sumum bæjarfélögum úti
á landi eru 4—5 bankaútibú. Er við
góðu að búast með svona ráðleysi
og óráðsíu. Var ekki kjörið tæki-
færi með þessu Útvegsbanka-óláni
að leggja hann niður og öll hans
útibú? Þetta hefði að sjálfsögðu
. ekki verið sársaukalaust fyrir ýmsa
aðila. En það merkilegasta við af-
greiðslu þessa máls var það, að
blessaðir stjórnmálamennimir voru
sammála um eitt, og það var það,
að þeir hefðu valið vitlausustu leið-
ina af mörgum vitlausum sem fram
hefðu komið til lausnar á málinu.
En því miður er þetta mál ekkert
einsdæmi þar sem vitlausasta af-
staða er tekin, þjóðinni til óheilla.
Spuija má hver nauð hafí verið til
að fjölga þingmönnum frá því sem
nú er? Er ekki yfirbygging þjóð-
félagsins meiri en næg og hefði
ekki verið viti nær að fækka þeim,
þ.e. þingmönnunum, um nokkra,
en hér er um viðamikið mál að
ræða sem ekki verða gerð skil í
stuttri blaðagrein. Bent hér á tvö
atriði sem sýnishom á því hve
stjómmálamennimir geta orðið
þjóðfélaginu dýrir.
Margt hefur verið ritað og rætt
undanfama daga og verður ömgg-
lega fram til 25. þ.m. um stofnun
Borgaraflokksins og mál Alberts
Guðmundssonar og hafa skrifaram-
ir á missmekklegan hátt velt sér
upp úr því máli og ekki sparað stóm
lýsingarorðin í þeim efnum. Nú er
það svo að Albert hefur viðurkennt
mistök sín og er eflaust maður til
að taka þeim afleiðingum sem þeim
fylgja, en það nægir ekki hinum
„syndlausu", sem beija sér á bijóst
og þakka Guði sínum fyrir að vera
ekki eins og hinir.
Við búum í réttarríki, þar sem
dómstólar fjalla um misgerðir þegn-
anna, og væri ekki ráð að spara
frekar hin stóm orð og bíða þess
tíma að hinir réttu dómstólar kveði
upp sinn dóm, því dómur götunnar
getur stundum verið varhugaverður
og vafasamur. Mikið hefur því ver-
ið haldið á loft að allar fyrirgreiðslur
sem Albert Guðmundsson hafi veitt
skjólstæðingum sínum hafi verið á
kostnað ríkis, borgar eða einstakl-
inga. Það er ekki mikil víðsýni í
svona röksemd, og vil ég benda á
að það em til fýrirgreiðslur af ann-
arri gerð en að það þurfi að vera
á kostnað einhvers. Hef ég dæmi
af slíku, þar sem ég leitaði til Al-
berts með góðum árangri án þess
að það kostaði einn eða neinn fjár-
útlát.
Það er íhugunarefni hvernig
Guðmundur Jóhannsson
„Það er íhugnnarefni
hvernig þetta mál kom
á yfirborðið og sá tíma-
punktur sem valinn var
til að kasta sprengj-
unni. Var þetta tilviljun
ein?“
þetta mál kom á yfirborðið og sá
tímapunktur sem valinn var til að
kasta sprengjunni. Var þetta tilvilj-
un ein? Ymsar spurningar vakna í
þessu sambandi, þegar það er haft
í huga að fjármálaráðherra (form.
Sjálfstfl.) segist hafa fyrir löngu
fengið upplýsingar frá skattalög-
reglunni um þetta misferli Alberts,
(er það hlutverk form. Sjálfstfl. að
fylgjast með lögreglumálum?) en
geymir þær niðri í skúffu svo mán-
uðum skiptir, en dregur þær upp
úr pússi sínu þegar grein í Helgar-
póstinum birtist um þetta mál. Er
þetta einhver siðfræði? Illar hugs-
anir eru áleitnar, svo sem eru
einhver tengsl milli vitneskju form.
Sjálfstfl. og Helgarpóstsgreinarinn-
ar um þetta mál? En því miður
verður þetta hvorki sannað né af-
sannað, vegna hins undarlega
réttarfars og „réttlætis" sem fjöl-
miðlar skjóta sér á bak við með
nafnleynd á heimildum. En hratt
flýgur stund og það eru ýmsar rós-
ir, sem formaður Sjálfstfl. safnar í
hnappagat sitt um þessar mundir.
Það var undarlega staðið að
lausn kjaradeildu sjúkraliða við
ríkið. Að sjálfsögðu eru sjúkraliðar
ekki ofsælir af kjörum sínum, síður
en svo. Tilgangurinn helgar meðalið
og eru vinnubrögð þau sem fjár-
málaráðh. viðhafði í þessu máli
ekki óþarflega áberandi sem kosn-
ingarós. Treysti ráðherrann ekki
samninganefndinni til að færa
sjúkraliðum tilboðið, eða var hann
bara að sýna hver færi með valdið?
Spuming er svo í framhaldi þessa,
hvort ráðherrann hafí ekki dregið
loku frá hurð og opnað í hálfa gátt
fyrir verðbólgunni, en það hefur
verið hans stærsta skrautfjöður að
hafa haldið verðbólgunni niðri á
kjörtímabilinu.
8. þ.m skrifar Jón Sigurðsson
lögfræðingur og fyrrv. ráðuneyt-
isstj. grein í Morgunbl. og dregur
hvergi af stóryrðunum. Ég held að
þetta sé sami Jón, sem nú er for-
stjóri Jámblendiverksmiðjunnar
með 212 millj. krónatapið á síðasta
ári, en eftir efni greinarinnar hefur
fyrrverandi titill þótt áhrifameiri.
Ég held líka að þetta sé sami mað-
urinn, sem eitt sinn var kallaður
„maðurinn með stálhnefana". Hvort
hann fékk „virðingartitilinn" vegna
þess að hann hafi beitt hnefum
ótæpilega og ekki fengið samúð
annarra, það læt ég ósagt. Fyrrver-
andi ráðuneytisstj. veltir sér vel upp
úr máli Alberts Guðmundssonar,
en hann gerir miklu betur, því hann
heggur ótt og títt á báðar hendur
og telur flesta þá sem hallast að
Borgaraflokknum vera með brengl-
aða siðferðiskennd og að hans mati
halda þeir einir áttum sem eru úr
fremstu forustusveitum, en það er
ekki frekar skilgreint hveijir það
eru. Það er gott að eiga svona
landsfeður og forustumenn að, sem
telja sig þess umkomna að segja
borgurum sínum til syndanna, en
einhvem veginn finnst mér að svona
fallbyssuskot og stóryrði eins og
fram koma í umræddri grein hitti
ekki í mark og fari því fyrir ofan
og neðan garð. Kannski er að finna
hina fremstu forustumenn, sem Jón
S. talar um í grein sinni í súluriti
því sem Morgunbl. birti sama dag-
inn, þar sem fólki er raðað á bás
eftir menntun og stöðu í þjóðfélag-
inu. Samkvæmt þessu súluriti
standa að Sjálfstæðisfl. mennta-
menn og mennirnir með stóru
stöðurnar en að Borgarafl. „lág-
stéttarfólkið" með litlu tekjurnar
og litlu stöðumar.
Um það bil í 50 ár eða frá því
ég fór að leiða hugann að þjóðmál-
um hefi ég fýlgt Sjálfstfl. að málum
og taldi hann leiðandi afl og kjöl-
festu í ísl. stjómmálum og ég vil
trúa því að svo hafi verið lengi fram-
an af, en á seinni ámm ca. 10—15
sýnist mér á öllu að fomstan hafí
bmgðið af leið og lokast í fílabeins-
tumi í sínu eigin ágæti og einangr-
ast frá hinum almenna borgara, en
ekki hefði ég trúað að óreyndu að
málgagn Sjálfstæðisfl. afhjúpaði
sig svo rækilega sem það gerði með
umræddu súluriti og undirstrikaði
það, sem vinstrimenn hafa löngum
núið þeim um nasir að hann væri
fl. forstjóra og menntamanna.
Undir lok þessara lína varpa ég
fram þeirri spurningu hvort sem
menn þurfi að undrast þó bresti í
flokksböndum og hlekkir slitni?
Og að öllu samanlögðu getur
formaður Sjálfstæðisfl. þakkað sér
og sínum ráðgjöfum að spmnga sú
sem lengi hefur verið til staðar inn-
an fl. er nú að fullu opnuð, sem
gæti leitt til þess að flokkurinn
klofnaði í herðar niður. En blessað-
ir, ef þið þurfið að losna við fleiri
atkvæði en þið hafið þegar losað
ykkur við, þá haldið áfram á sömu
braut, þ.e. með skammir og svívirð-
ingar á Borgaraflokkinn og Albert
Guðmundsson, þá mun ykkur vel
famast, eða er ekki svo?
Höfundur er fyrrverandi fulltrúi,
nú eftirlaunamaður.
Kjósandi, líttu um öxl
jiftir Eðvarð Arnason
Þegar þetta er skrifað er skammt
til næstu alþingiskosninga. Flestir
kjósendur sem vilja vera ábyrgir
og sjálfum sér samkvæmir, em
þessa dagana að gera upp við sig
hvar heppilegast er nú að setja X
á kjörseðilinn þegar í kjördeildina
er komið þann 25. apríl nk.
Til að vega og meta það sem
okkur „hæstvirtum kjósen3um“
býðst nú, verðum við að líta um
öxl, að leiða hugann að liðnum tíma.
Þeir sem nú em á miðjum aldri
muna t.d. eftir ýmsum ríkisstjóm-
um liðins tíma, sumar vom ágætar,
aðrar lakarí. Sú ríkisstjóm sem
eflaust er minnisstæðust, var sú
“#jóm sem sat næst á undan þeirri
er nú situr, ríkisstjórn Gunnars
Thorodsen. Að margra dómi var það
versta ríkisstjóm sem ríkt hefur á
íslandi frá lýðveldisstofnun. Til
þessarar ríkisstjórnar var stofnað
af óheilindum og ódrengskap, og
famaðist henni stjómun eftir því.
Hver man ekki eftir síðustu stjóm-
armánuðum þeirrar ríkisstjómar,
þegar öll atvinnustarfsemi í landinu
var að lamast og við það að stöðv-
ast? Hver man ekki eftir skrifum
Þjóðviljans, með breiðsíðufyrirsögn-
mn: „Neyðarráðstafanir til fjögurra
ára.“? í dag er núverandi ríkisstjóm
ásökuð af Alþýðubandalaginu fyrir
að gera ekkert fyrir fólkið sem lenti
f „misgenginu", þar er átt við fólk
sem stóð í byggingaframkvæmdum
á árunum 1980 til 1983 og fékk
yfir sig verðbólgu og vexti, sem
fæstir fengu við ráðið, og eru að
súpa seyðið af enn í dag.
Eðvarð Árnason
„Þeir kjósendur sem í
dag eru algáðir, ekki
undir áhrifum huldu-
hers, meta ástand og
stöðu þjóðmála nú, og
bera saman fyrri
kjörtímabil, og greiða
atkvæði eftir mati
sínu.“
Hvaða kjósandi vill nú í dag
stuðla að því með atkvæði sínu, að
slík óstjórn kæmist til valda á ný?
Gætu verið einhverjir finnanlegir?
Jú, svo undarlegt sem það má nú
vera. Þetta er hópur fólks sem er
undir áhrifum fólks sem kallar sig
hulduher. Hvaða fólk er það sem er
í þessum hulduher? Þegar það er
skoðað kemur í ljós að þarna er að
finna sama fólkið sem gekk harðast
fram í því með þekktum vinnu-
brögðum að ríkisstjórn Gunnars
Thoroddsen varð til. Þetta er fólk
sem hefur viljað kalla sig sjálfstæð-
isfólk, en hefur samt oftast verið
upp á kant við flokkinn eða
frammámenn hans. Þetta fólk hefur
gripið hvert tækifæri sem hefur
gefist til að skapa glundroða. Sumt
af þessu fólki hefur gert ítrekaðar
tilraunir til þess að komast til áhrifa
innan Sjálfstæðisflokksins, og eytt
til þess miklum flármunum s.s.
vegna framboðs í prófkjörum
flokksins. Allt hefur komið fyrir
ekki, hjá flestu af þessu fólki. Kjós-
endur í prófkjörum Sjálfstæðis-
flokksins hafa ekki veitt því
brautargengi. Eftir á hefur þetta
sama fólk hrópað á torgum og vara-
mannabekkjum, „flokksræði,
flokksræði, flokkseigendafélag"
o.fl. o.fl.
Ef litið er yfir sögu Sjálfstæðis-
flokksins sl. 15 ár kemur í ljós, að
það fólk sem fremst er í flokki
hulduhers hefur oft orðið vel ágengt
í niðurrifsstarfsemi sinni innan
Sjálfstæðisflokksins, eins og dæmin
sýna frá árinu 1979, þegar þáver-
andi formanni flokksins, Geir
Hallgrímssyni, var falin stjórnar-
myndun fann þetta fólk sér skoð-
anabræður úr Alþýðubandalaginu
og framsókn og tókst að koma hlut-
unum svo fyrir að Geir Hallgríms-
syni gat ekkert orðið ágengt í
stjórnarmyndunartilraunum sínum.
Þetta fólk í hulduher, sem vildi
kalla sig sjálfstæðisfólk, var ekki
búið að Ijúka sér af, næst skyldi
tekið til við formanninn, Geir
Hallgrímsson, sem stundum var
umdeildur en að flestra dómi stað-
fastur sjálfstæðismaður og heiðar-
legur í störfum sínum. Framámönn-
um hulduhersins fannst heppilegast
að koma honum úr öruggu þing-
sæti á framboðslista Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík fyrir
kosningarnar 1983. Fyrirmenn úr
hulduher gátu með starfsaðferðum
sínum komið formanni Sjálfstæðis-
flokks í 7. sæti framboðslistans í
Reykjavík með samsæri.
Hefði ekki einhver sagt að mælir-
inn væri fullur? Eflaust, en svo var
ekki. Enn skal höggva. Nú er síðast
högg þessa fólks sem hefur viljað
kalla sig sjálfstæðisfólk, hulduher,
fallið, og um leið aðskilst þetta fólk
frá Sjálfstæðisflokknum. Eftir verð-
ur kannski eitthvað minni flokkur,
nú fyrst um sinn, en samstæðari
og heilsteyptari.
Þeir kjósendur sem í dag eru
algáðir, ekki undir áhrifum huldu-
hers, meta ástand og stöðu þjóð-
mála nú, og bera saman fyrri
kjörtímabil, og greiða atkvæði eftir
mati sínu.
Það verður víst staðreynd að
margir kjósendur sem eru undir
áhrifum vakna upp eftir að talið
hefur verið upp úr kjörkössunum
26. apríl nk. með pólitíska timbur-
menn. Það verður ekki tryggt
eftirá.
Höfundur er yfirlögregluþjónn í
Snæfellsness- og Hnappadals-
sýslu.
Brids
Arnór Ragnarsson
Daihatsu-mótið
Opna Daihatsu-stórmótið hefst
kl. 13 á skírdag á Hótel Loftleiðum.
42 pör taka þátt í þessu vegleg-
asta bridsmóti sem ha'idið hefir
verið á Norðurlöndum til þessa.
Getraunaspá verður í gangi og
eru velunnarar bridsíþróttarinnar
hvattir til að íjölmenna. I. verðlaun
eru bifreið frá Daihatsu-umboðinu.
Bridsfélag
Tálknafjarðar
Lokið er tveimur kvöldum af
þremur í einmenningskeppni félags-
ins, sem jafnframt er firmakeppni.
Staða efstu spilara/firma, erþessi:
Vélsmiðja TálknaQarðar —
Stefán Haukur Ólafsson 205
Bókhaldsstofan —
Haukur Árnason 199
Landsbankinn —
Jón H. Gíslason 190
Esso-nesti —
ÆvarJónasson 189
Trésmiðjan Eik —
Ólöf Ólafsdóttir 188
Bridsfélag Pat-
reksfjarðar
Aðalsveitakeppni félagsins er
lokið. Sveit Rafns Hafliðasonar
sigraði, en með honum eru í sveit-
inni: Snorri Gunnlaugsson, Aðal-
steinn Sveinsson og Stefanía
Skarphéðinsdóttir. Röð efstu sveita varð annars
þessi: Sveit Rafns Hafliðasonar 105
Sveit Ingvelds Magnússonar 99
Sveit Ágústs Péturssonar 91