Morgunblaðið - 15.04.1987, Side 61

Morgunblaðið - 15.04.1987, Side 61
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1987 61 Já frú, það er leikur að læra Svar við grem frú Maríu E. Ingvadóttur eftir Önnu S. Björnsdóttur Myndin sem fylgir þessu greinar- komi er unnin af sex ára nemanda mínum nú rétt fyrir páskahátíðina. Hann hafði hlýtt á sögur um píslar- göngu Jesú og við höfðum rætt saman um efnið á eftir. Síðan dró ég mig í hlé og börnin unnu frjálst myndirnar. Þessi börn hafa leikið sér að læra og lært að leika sér í vetur, hvert á sinn hátt. Sum þeirra voru engan veginn tilbúin til að nema eða taka við fyrirmælum kennara svo fljótt. Þau fengu þá að leika sér meira en hin sem voru tilbúin. Til þess verður að taka til- lit þegar skólagangan hefst. Ég hef einnig reynslu af leikskólum og álít þá mjög góða og undirbúa skóla- göngu elstu barnanna hveiju sinni. Gott og þarft væri að fá samvinnu milli fóstra elstu deilda leikskóla og kennara yngstu deilda grunn- skóla, en eins og gefur augaleið krefst það tíma og fjármagns. Kröf- ur á fóstrur og kennara aukast stöðugt en skrýtið sem það er, okk- ur er jafnan ætlað að vera fátækar hugsjónamanneskjur. Við frú Maríu E. Ingvadóttur vil ég segja þetta: Það er eitthvert tómahljóð í greininni þinni allri. Eitthvert skiln- ingsleysi sem knúði mig til að svara henni sem ein af hugsjónamann- eskjunum. Þegar ég tek á móti börnunum að hausti er það aðalatriði að þau vilji og langi að koma í skólann þegar þau hafa kynnst honum. Að þau geti glaðst með mér yfir vinnu- stað sínum, verið þau sjálf og blómstrað þar. Þau verða sum dálít- ið hissa og segja: „Það er svo gaman í skólanum." Böm sem eru örugg og ánægð hafa mikla námsgetu. Aftur á móti ef krafist er of mikils of fljótt verða þau vansæl, van- Anna S. Björnsdóttir máttug og geta fengið kvíðaein- kenni sem lama námsgetu þeirra. Þau þjást þá í skólanum. Að lokum þetta: Ég tel að það eigi að vera leikur að læra. Eigin vilji barnsins sem sýnir að það er fúst til samstarfs og sjálfsnám veg- ur þyngst. Krefjandi verkefni því aðeins að fyrri atriði séu í lagi. Gerum börnin ekki að mikillátum metorðastriturum sem stjómað er af öðmm. Mætur maður sagði: „Horfum á bömin og reynum að líkjast þeim.“ Hvemig líst þér annars á það, frú María? Höfundur er grunnskólakennari. „Ekki með valdi né krafti heldur fyrir anda minnu eftirÞorvald Sigurðsson Þessi þekktu orð úr gamla testa- mentinu em án efa vel þekkt í eyrum Einars J. Gíslasonar í Fíla- delfíu. Það vekur því furðu mína að þessi ágæti vinur minn og frændi skuli nú í pólitískum tilgangi reyna að beita áhrifum sínum og valdi til þess að fegra og bæta ódrengilega aðför Þorsteins Pálssonar að æsku- vini og velgjörðarmanni Einars, og á ég þar að sjálfsögðu við Albert Guðmundsson. Ekki fer á milli mála að þessi skrif Einars í Ffladelfíu em skrifuð að undirlagi áhrifaafla innan Sjálf- stæðisflokksins. Enda reynir Einar eftir föngum að fara hjartnæmum og hughreystandi orðum um Áma „trúbador" Johnsen, sem beið lægri hlut í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Suðurlandi, þegar umstriddur Eggert Haukdal skaut honum ref fýrir rass, þannig að Ámi hafnaði í ömggu fallsæti. Ég veit að þessi málalok særðu mjög aðdáendur Áma Johnsen og þar er Einar Gíslason framarlega í flokki. í furðuskrifum sínum um Tyrkjarán með fleim talar Einar fjálglega um að Borgaraflokkurinn skeytti í engu um vamir íslands. Firrnr á borð við þessa og aðrar Þorvaldur Sigurðsson „En nú þegar þú tekur afstöðu með og leggur blessun þína yfir afglöp Þorsteins Pálssonar get ég ekki lengur litið á þig sem sannan boðbera fagnaðarerindisins.“ fullyrðingar em tæpast til annars en upplýsa lesendur Morgunblaðs- ins um vanþekkingu Einars á stefnuskrá Borgaraflokksins, en þar er afstaða flokksins ótvíræð og fastmótuð. ísland skal svo sannar- lega varið fyrir hverskyns ásæld af hálfu erlendra afla og áfram- haldandi samstarf við vestrænar lýðræðisþjóðir mun eflaust eflast, fái Borgaraflokkurinn aðstöðu til að móta stefnu þessara mála. Að lokum nokkur orð til Einars persónulega. Einar minn, ég hefi í gegnum tíðina litið á þig sem hjálp- arhellu lítilmagnans og boðbera hins sanna réttlætis, svo sem við nemum það frá heilgari ritningu. En nú þegar þú tekur afstöðu með og leggur blessun þína yfir afglöp Þorsteins Pálssonar get ég ekki lengur litið á þig sem sannan boð- bera fagnaðarerindisins. Trúað fólk um allt land mun ekki aðgerðar- laust una því að í skjóli valds og hroka sé innleitt nýtt og fyrir ís- lendingum framandi siðferðismat í stærsta stjómmálaflokki landsins. Hin almenni kjósandi mun fylkja sér undir merki Borgaraflokksins og á þann hátt lýsa vanþóknun sinni á nýfrjálshyggjusiðferði því sem nú stýrir athöfnum og gjörðum Val- hallarsveina. Með bróðurkveðju. Höfundurhefursl. sex ár starfað sem leiðbeinandi á kristilegri með- ferðarstofnun fyrir alkóhólista og eituriyfjaneytendur. 75ÁRA VIGGSP Á 75 áraferli sínum hefurTHORO fundið svarvið nánast öllum vandamálum sem kunna að koma upp, þegar um steypu er að ræða. THORITE er eitt af undraefnunum frá THORO. THORITE er fljótharðnandi viðgerðarefni sem , reynist framúrskarandi vel til viðgerða á sprung- um og steypugöllum. Eru sprungur eða aðrir §teypugallar á þínu húsi? Hringdu i Steinprýði og við leysum vandann. . * steinprýði Stangarhyl 7. s. 672777_ XAI C4

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.