Morgunblaðið - 15.04.1987, Side 65

Morgunblaðið - 15.04.1987, Side 65
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1987 65 SVAR MITT eftir Billy Graham Hvað um góðverkin Ég veit að þú hefur sagt að góðverk okkar geti ekki hjálpað okkur inní himininn og að eina von okkar sé að treysta Kristi. En ef við eigum að treysta Kristi, hvers vegna ættum við þá að hirða um að reyna að vera góð, úr því að það greiðir ekki götu okkar til himins? Þetta er mjög alvarleg spurning, enda varar Biblían okkur við: Ef ekki veðrur nein breyting í lífi okkar þegar við höfum komið til Krists getur skýringin verið sú að við höfum í raun og veru ekki endurfæðst og séum ekki á leið til himins. Jak- ob segir: „Eins er líka trúin dauð í sjálfri sér vanti hana verkin. Eins og líkaminn er dauður án anda eins er og trúin dauð án verka“ (Jak. 1,17,26). Hér er mergurinn málsins: Þegar við komum til Krists erum við ekki aðeins að viðurkenna einhveijar trúarsetningar um hann. Við erum að fela okkur honum á vald. Við treyst- um því, að hann veiti okkur sáluhjálp og þess vegna vörpum við því frá okkur, að góðverk geti rutt okkur braut til hjálp- ræðis. En hvað vill Guð gera í lífi okkar? Guð sendi ekki son sinn í heiminn til þess eins að vð yrðum hólpin einhvem tíma í framtíðinni, þó að það sé vissulega dásamlegur þáttur í verki hans. Jesús Kristur kom til þess að ég og þú yrðum lærisvein- ar hans, fylgjendur hans. Hann orðaði þetta á einfaldan hátt: „Ef þér elskið mig, þá munuð þér halda boðorð mín“ (Jóh. 14,15). Líttu á þetta frá öðru sjónarmiði. Svo mjög elskar Guð þig, að sonur hans var fús til að deyja fyrir þig, svo að þú mættir frelsast. Ef þú skynjaðir að einhveiju leyti hversu innilega þú ert Guði hjartfólginn, gætir þú ekki látið þig það einu gilda. Þú mundir vilja endurgjalda kærleika hans. Og hvemig sýnir þú að þú elskar hann? Með því að reyna að breyta í samræmi við vilja hans. Nei, við verðum aldrei fullkomnir á þessar jörð og sá sem veðru hólpinn á það einungis náð Guðs að þakka. Gleymdu því aldrei. En þegar þú ferð að vaxa í elsku og þakklæti til Guðs fyrir allt sem hann hefur gert fyrir þig vaknar hjá þér löngun til að láta elsku þína í ljós, með því að lifa honum. Lokað Vegna jarðarfarar GUÐRÚNAR ÞÓRÐARDÓTTUR, Tún- götu 30, verður skrifstofu okkar og vörugeymslu lokað eftir hádegi miðvikudaginn 15. apríl. Eggert Kristjánsson hf., Sundagörðum 4. Lokað Vegna jarðarfarar GUÐRÚNAR ÞÓRÐARDÓTTUR, Tún- götu 30, verða skrifstofa okkar og vörugeymsla lokuð eftir hádegi í dag, miðvikudaginn 15. apríl. Frón hf., Skúlagötu 28. Lokað Lokað verður eftir hádegi í dag, miðvikudaginn 15. apríl, vegna jarðarfarar GUÐRÚNAR ÞÓRÐARDÓTTUR, Túngötu 30. Gunnar Eggertsson hf, Sundagörðum 6. Lokað Glerverksmiðjan Esja verður lokuð í dag, miðvikudag, vegna jarðarfarar GUÐRÚNAR ÞÓRÐARDÓTTUR. Thermopane á íslandi Glerverksmiðjan Esja. Bladió sem þú vakríar vió! ILMVÖTN Fræga fólkið og uppáhaldsilmur þess. Caroline prinsessa í Monaco, sem stöðugt er í heims- pressunni, segir sitt uppáhalds- ilmvatn vera „Dali" frá Dali. Þetta ilmvatn er svo til óþekkt hér á landi, og fæst reyndar ekki hér. Af því er léttur blóma- ilmur. Tom Selleck leikari. Meðal annars vel þekktur fyrir leik sinn í sjónvarpsþáttunum „Magnum", sem til skamms tíma voru sýndir hér á Stöð 2. Uppáhalds ilmvatn hans er „Jules“ frá Christian Dior. Ilm- urinn er talinn karlmannlegur, aðeins þungur, en ekki væminn. Yves Saint Laurent, hinn þekkti tískukóngur Frakk- lands, frægur fyrir samkvæmi- skjóla sína og allskonar snyrtivörur fyrir bæði konur og karla. Uppáhaldsilmur hans heitir „Kouros“ og er auðvitað frá honum sjálfum. Þetta er krydd- ilmur, og er ilmvatnið unnið úr tijám og jurtum, meðal annars úr moskusjurtum og sandelviði. Lauren Bacall, kvikmynda- stjarnan fræga sem ver gift Humphrey heitnum Bogart. Uppáhaldsilmvatn hennar er „Chloe" frá tízkukónginum Karli Lagerfeld. Hreinn blómailmur úr jasmínjurtum og rósum. Tæl- andi og „holdlegur" ilmur. Elizabeth Taylor, leikkonan fræga, sem er einnig þekkt fyrir sín mörgu hjónabönd! Uppáhaldsilmvatnið er „Bal á Versailles" frá Jean Desprez. Þykir minna á leyndardóma Austurlanda. Roger Moore, leikarinn og kvennagullið, sem frægur er meðal annars fyrir leik sinn sem James Bond og Dýrlingur- inn með meiru. Uppáhalds ilmurinn er „Brut“ frá Fabergé, ilmvatn sem meðal annars er unnið úr kýprustrénu, lofnarblómum (lavender) og fleiri ilmjurtum. Rómantískur ilmur, en dálítið „frekur“. MALLORKA Royal Jardin del Mar GististaÖur í sérflokki. míwim Ferðaskrilstola, Hallveigarstig 1 simar 28388 og 28580 MALLORKA Royal Torrenova Gististaður í sérflokki. mXVTMC Ferðaskrifstofa, Hallveigarstíg 1 slmar 28388 og 28580 Við lofum því sem skiptir mestu máli: GÓÐRI ÞJÓNUSTU Og svo gerast þeir vart fallegri og vandaðri Borgartúni 20 Sími 2-67-88

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.