Morgunblaðið - 15.04.1987, Síða 66

Morgunblaðið - 15.04.1987, Síða 66
I TB 66 vfier jííha .ðj jiuoAaujnvQiM ,GiGAjaviuD5ioM MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1987 Guðrún Þórðar- dóttir - Minning Fædd 29. maí 1901 Dáin 8. apríl 1987 Hún amma mín á Túngötu er dáin. Það er ótrúlegt, því að hún var þannig kona að maður hugsaði aldrei út í að hún ætti eftir að deyja. Hún var homsteinn í mínu lífi, alveg frá því að ég fæddist. Ég fæddist í rúminu hennar á Túngöt- unni og á mínum uppvaxtarárum voru amma og afi á Túngötu mikil- vægur þáttur í lífi mínu. Ég var í mikið á þeirra heimili í bemsku og öll sumur var ég ásamt foreldrum mínum hjá ömmu og afa í sumar- húsi þeirra, Ámesi í Kjós. Amma ólst upp á Vindheimum í Ölfusi og á hennar bemskuheimili vom ekki mikil efni. Þótt hún yrði síðar í lífinu vel efnum búin minnist ég þess vel að hún gleymdi aldrei uppruna sínum og aldrei var bruðl- að með hlutina á hennar heimili. Amma var sterk og mikil kona. Hennar mörgu kostir eru eiginlega ólýsanlegir. Hún var einstaklega örlát og ekki hvað síst gagnvart þeim sem minna máttu sín. Mér er minnisstæður sá mikli fjöldi jóla- pakka sem sendir voru út um jólin. í Þar gleymdist enginn og sérstak- lega var munað eftir þeim sem áttu minna og voru í erfiðleikum. Amma var mikilhæf kona. Hún hefur örugglega átt stóran þátt í þeirri miklu velgengni sem afi naut í heimi viðskiptanna. Hjónaband þeirra var einstaklega gott. Þar skorti hvorki ást né gagnkvæma virðingu. Það dó ákveðinn hluti af ömmu þegar hún missti afa og þá gerði ég mér best grein fyrir hversu gott hjónaband þeirra hafði verið. I Amma var forkur dugleg til allra hluta. Hún var glöð kona og með eindæmum hress og það geislaði af henni þegar sá gállinn var á henni. Það er mér mikil gæfa að hafa átt slíka ömmu og fá að njóta sam- vista við hana í heil 40 ár. Ég veit að konan mín virti hana og dáði og þótti frá fyrstu tíð innilega vænt um hana. Slík kona var hún amma. Ég þakka ömmu minni fyrir allt sem hún hefur verið mér frá því ég fæddist. Ég veit að elsku ömmu minni líður vel núna við hlið afa. Þar þótti henni ætíð best að vera. Eggert Árni Magnússon l' Þann 8. apríl sl. andaðist Guðrún Þórðardóttir, Túngötu 30, Reykjavík. Guðrún fæddist í Vogs- ósum, Selvogi, árið 1901 og voru foreldrar hennar hjónin Guðrún Sæmundsdóttir og Þórður Eyjólfs- son. Árið 1922 giftist Guðrún Eggerti Kristjánssyni ættuðum úr Hnappa- dalssýslu og oftast kenndur við Dalsmynni í Eyjahreppi. Þau hjónin eignuðust 4 böm, þau Gunnar, Kristjönu, Aðalstein og Eddu, sem öll komust til manns. Að auki ólu þau upp frá unga aldri sonardóttur sína, Guðrúnu Eddu. Sama ár og þau giftu sig stofn- aði Eggert heildsölufýrirtæki, sem fljótlega varð eitt af stærri heild- sölufýrirtækjum landsins. Snemma byggðu þau Guðrún og Eggert sér stórt og veglegt hús við Túngötu 30. Þar réði Guðrún ríkjum, enda eiginmaðurinn oftast önnum kafinn við fyrirtæki sitt. Þrátt fyrir mikið annríki gaf Eggert sér tíma til að aðstoða konu sína við að gera heim- ili þeirra þannig úr garði að til fyrirmyndar var. Leit var að eins fögru og smekklegu heimili eins og þau höfðu búið sér. Það var í byijun ársins 1952, sem undirritaður, þá nýráðinn verkstjóri hjá fyrirtæki þeirra hjóna, kvaddi dyra á Túngötu 30. Út kom frú Guðrún og heilsaði hlýlega og bauð mig velkominn til starfa. Ég reyndi að þéra hana, en hún sagði, að ég skyldi sleppa öllum þéringum, því að við ættum eftir að starfa mikið saman. Erindið var að beiðni Egg- erts að lagfæra eitthvað, sem hafði farið úrskeiðis á heimilinu. Þegar því var lokið, bauð húsfreyjan upp á kaffi og spurði um ætt mína og uppruna eins og íslendinga er vandi. Spá Guðrúnar um langt samstarf okkar reyndist rétt, því að það hef- ur varað í rúma þijá áratugi. Þremur dögum fyrir andlát Guð- rúnar hitti ég hana á heimili hennar og var hún ótrúlega hress í bragði. Eins og að líkum lætur voru umsvif mikil á Túngötunni. Heimil- ið stórt og mikill gestagangur. Eggert átti tíð viðskipti við erlenda kaupsýslumenn og þurfti oft að bjóða þeim út að borða. Bauð hann þeim gjarnan til veizlu á sínu eigin heimili, sem hann var stoltur af. Það kom því oft til kasta Guðrúnar að taka á móti þessum gestum og tilreiða veizluföng fyrir þá. Þann vanda leysti hún með mikilli prýði og hafði þá venjulega fólk sér til aðstoðar. Minnist ég þar sérstak- lega Guðríðar Nikulásdóttur, sem staðið hefur við hlið húsfreyjunnar við heimilisstörf um áratugaskeið. Þegar mikið var um að vera, klæddist frú Guðrún gjaman íslenzkum þjóðbúningi, sem fór henni mjög vel. Hún var hávaxin og grönn og hafði mikið og fallegt hár. Þar sem hún fór svona klædd, leyndist engum, að þama fór kona, sem átti rætur sínar að rekja úr rammíslenzkum jarðvegi. Þau hjónin áttu stóran sumarbú- stað við Laxá í Kjós. Þar dvöldu þau meira og minna öll sumur með bömum sínum í faðmi íslenskrar náttúm. Var þar oft mikið um að vera, því að gestagangur var oft mikill. Þangað þótti mér gaman að koma og taka til hendinni, þar sem með þurfti. Ég naut þess að vera með fjölskyldunni, sem alltaf tók mér eins og ég væri einn úr þeirra hópi. Eggert Kristjánsson lézt 69 ára gamall árið 1967 og var öllum harmdauði, er til hans þekktu. Nú þegar ég lít til baka eftir 35 ára samskipti við Guðrúnu og henn- ar fólk, er mér efst í huga þakklæti fyrir samferðina. Ég sendi bömunum hennar, tengdabömum svo og öðmm ætt- ingjum mínar dýpstu samúðar- kveðjur og bið þeim allrar guðsblessunar. Gísli Kristjánsson Þann 8. apríl síðastliðinn lést í Reykjavík frú Guðrún Þórðardóttir. í dag verður hún til moldar borin við hlið ástríks eiginmanns síns, Eggerts Kristjánssonar, í kirkju- garðinum við Suðurgötu. Er það aðeins nokkmm skrefum frá fyrrum heimili séra Jóhanns heitins Þor- kelssonar, dómkirkjuprests, en þar gengu Guðrún og Eggert í hjóna- band 65 ámin fyrir dánardag hennar. Guðrún var fædd í Vogsósum í Selvogi þann 29. maí 1901. Foreldr- ar hennar vom Guðrún Sæmunds- dóttir og Þórður Eyjólfsson. Árið 1912 fluttist fjölskyldan að Vind- heimum í Ölfusi. Guðrún kom til Reykjavíkur sem ung stúlka. Þó svo hún hafi jafnan átt heimili í Reykjavík upp frá því bar hún glögg merki af heimaslóð- um. í orðfæri var hún aldamótakyn- slóðar Ölfyssingur. Þegar hún talaði vora ekki notuð nein limpulýsingar- orð og allt látbragðið gaf til kynna um hvað var rætt. Þær Vindheima- systur töluðu til að mynda um að stökkva út í búð, það var ekki farið út í búð. Fasið var hressilegt og stutt í glettni. Guðrún og Eggert byggðu Tún- götu 30 árið 1929 og þar bjó hún fjölskyldu sinni glæsilegt rausnar- heimili. Sumarhús áttu þau hjón í Ámesi í Kjós og þar var nú gaman að vera. Böm áttu þau fjögur, Gunnar Þórð (f. 1922), Kristjönu Guðnýju (f. 1923), Aðalstein (f. 1925) og Eddu Ingibjörgu (f. 1931). Heimilishaldið var sköralegt og veisluhöld tíð. Varð heimili þeirra miðpunktur allrar fjölskyldunnar. Missir Eggerts árið 1966 reyndist Guðrúnu þungbær. En á milli nokk- urra dökkra tímabila kom gamli krafturinn upp í henni og þegar hún lék á als oddi var enginn skemmti- legri. Þessi myndarkona, sem ég minn- ist nú, hafði allt að því feimnislegt bros, mikið og fallegt hár og uppá- búin var hún kvenna glæsilegust. Hún hafði yndi af því að ferðast og þegar heim var komið hafði hún ekki aðeins gjafir í farangrinum, heldur og skemmtilegar og Iifandi lýsingar á því, sem fyrir augu hafði borið. Hún spilaði reglulega bridge við mágkonu sína og vinkonu, Lóu Kristjánsdóttur, og vinkonur sínar, þær Ingibjörgu Bjamadóttur og Vilhelmínu heitna Vilhelmsdóttur. Auk þess hafði hún gaman af sögu- legum fróðleik og gat þrasað fram og aftur um ættfræði, ef svo bar undir. Þegar aldurinn færðist yfir hana vildi hún vera viss um að barnabömin minntust sín og hún gaf okkur fallega muni, sem hún hafði saumað út og pijónað. En það er víst engin hætta á því að per- sóna gædd hennar eiginleikum gleymist skjótt. Við eigum dýrmæt- an sjóð minninga frá Túngötunni og úr Kjósinni. Guðrún Þórðardóttir var sann- kölluð „grande dame". Blessuð sé minning hennar. Guðrún Magnúsdóttir í dag verður tengdamóðir mín, Guðrún Þórðardóttir, kvödd hinstu kveðju. Hún var af hinni kunnu Víkingslækjarætt, fædd 29. maí 1901 í Vogsósum í Selvogshreppi, dóttir hjónanna Þórðar Eyjólfssonar bónda þar og seinni konu hans, Guðrúnar Sæmundsdóttur. Guðrún lést á Landspítalanum að kvöldi dags þann 8. apríl. Það er einkenni- leg tilviljun, en kannski táknræn, að einmitt þennan dag vom 65 ár síðan hún gekk í hjónaband. Um tvítugsaldur hélt Guðrún til Reykjavíkur. Þar kynntist hún mannsefni sínu, Eggert Kristjáns- syni frá Dalsmynni, síðar stórkaup- manni sem var mikill athafnamaður á sinni tíð. Þeim hjónum varð fjög- urra bama auðið. Þau em: Gunnar kvæntur Valdísi Halldórsdóttur, Kristjana Guðný gift Magnúsi Ingi- mundarsyni, Aðalsteinn kvæntur undirritaðri og Edda Ingibjörg gift Gísla V. Einarssyni. Einnig ólu þau að mestu leyti upp sonardóttur sína, Guðrúnu Eddu Gunnarsdóttur, sem gift er Einari Sigurbjömssyni. Heimili þeirra Guðrúnar og Egg- erts á Túngötu 30 var rómað myndarheimili og ófáir em þeir gestir bæði íslenskir og erlendir sem notið hafa rausnar og gestrisni þeirra hjóna bæði þar og í sumarbú- stað þeirra hjóna, Ámesi, sem stendur á bökkum Laxár í Kjós. Gestrisni var Guðrúnu í blóð bor- in og naut hún þess að veita vinum og vandamönnum af sinni miklu rausn og myndarskap. Á sínum yngri ámm var Guðrún glæsileg kona og sópaði af henni, ekki síst þegar hún á hátíðastundum klædd- ist skautbúningi sínum, sem fór henni sérlega vel, þá fékk óvenju mikið og fallegt hár hennar að njóta sín til fulls. Það var ótrúlegt að sjá þessa 85 ára gömlu konu með tvær þykkar fléttur, sem náðu niður í hnésbætur, ef þær vom leystar úr myndarlegum hnút, en þannig bar hún þær daglega, og fram á síðasta dag héldu þær sínum gullgyllta lit. Guðrún var um margt sérstök kona. Hún var hreinskilin og sagði jafnan meiningu sína umbúðalaust. Mjög var hún örlát og hafði gaman af að gefa og nutum við tengda- böm og böm hennar þess í ríkum mæli. Hún var ótrúlega minnug alveg fram á síðasta dag, ættfróð og ættrækin og kom það sér þá oft vel hve minnið var gott. Éinnig hafði hún lag á að segja mjög skemmtilega frá. Þannig lifði mað- ur oft með henni löngu liðna atburði úr lífi hennar, vegna þess hve frá- sögnin var lifandi og nákvæm. Ekki er hægt að minnast Guð- rúnar án þess að nefna Guðríði Nikulásdóttur sem réðst til hennar árið 1931, þá ung stúlka, og hefur lengst af síðan dvalið á heimili hennar og reynst henni alla tíð mjög vel — ekki síst þessa síðustu mánuði, þegar heilsu Guðrúnar hrakaði ört — þá var Guðríður ómetanleg stoð, alltaf reiðubúin að gera henni allt til hæfis, þó hún gengi ekki heil til skógar sjálf — enda mat Guðrún hana mikils. Lokið er löngum, farsælum og viðburðaríkum ævidegi. — Lífið var Guðrúnu gott. Hún bjó í farsælu hjónabandi í 44 ár, eignaðist mann- vænleg börn og bamaböm. — Hún ferðaðist mikið bæði innanlands og utan og naut þess í ríkum mæli. Og á síðustu ámm þegar heilsa og þrek þvarr, naut hún umönnunar og ástríkis bama sinna og bama- bama, sem allt gerðu til að láta henni líða sem best. En hún fór heldur ekki varhluta af sorgum og raunum frekar en önnur mannanna böm. Sárast var þó fyrir hana að missa mann sinn Eggert, en hann lést 28. september 1966, 69 ára að aldri, og hafði þá átt við talsverða vanheilsu að stríða. í veikindum hans sýndi Guðrún Ingibjörg Stefáns- dóttir Minning . Fædd 18. nóvember 1915 Dáin 9. apríl 1987 Hún Ingibjörg er dáin. Það er svo skrýtið að heyra þessi orð. Jafnvel þó að hún hafi legið svo lengi veik, jafnvel þó að e.t.v. megi segja-að hvíldin hljóti að hafa verið henni kærkomin, þá er samt skrýtið að komið skuli að því að hún hverfi okkur sjónum. Hún var svo kjarkmikil og þolgóð. Hún barmaði sér aldrei, en hafði alltaf meiri áhuga á því að vita hvað aðr- ir væm að gera, utan sjúkrahússins. í- Hún spurði, og gladdist yfir því að fá fréttir af vinafólki og frænd- fólki. Til hennar mátti sækja sérstakan kraft. Ingibjörg var mjög sérstök kona. Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að búa hjá henni í eitt og hálft ár, tvö síðustu menntaskólaárin og L sumarið þar á milli. Þama bjuggum við tvær í stórri og fallegri íbúð í Eskihlíðinni og urðum mjög góðar vinkonur. Oft þegar ég kom heim seint að kvöldi beið mín kaffi og spjall um lífið og tilvemna. Hún las huga minn, stundum jafnvel betur en ég sjálf og gat oft gefið mér góðar ráðleggingar. Alltaf tók hún vel á móti vinum mínum og ég man margar kvöldstundirnar þegar við sátum öll inni í eldhúsinu við rauð- an bjarma gluggatjaldanna og Ieystum lífsgátuna í sameiningu. í Eskihlíðinni áttu margir at- hvarf. Gestir af Suðumesjum, jafnt sem fjörðum austanlands og vestan, og um tíma einnig gestir utan úr heimi. Aldrei hef ég vitað til þess að meira hafi verið stjanað við gesti en sumarið sem ég dvaldi hjá Ingi- björgu. Hún fór á fætur eldsnemma og lagði á borð, á veisluborð. Þar var ýmiss konar morgungull og meðlæti, brauð (sem hún sótti stundum bæinn á enda), ostar, ávaxtamauk og dýrindis kaffi. Hvergi hef ég fengið jafn gott kaffi og hjá henni. Ég hélt einu sinni að það væri kaffikönnunni að þakka en nú held ég að þar hafi annað komið til. Það er svo ótal margt sem kem- ur upp í hugann þegar sest er niður til að hugsa um Ingibjörgu. Myndin af henni er skýr. Hún horfir á mig ákveðnu en blíðlegu augnaráði, og ég fínn að hún sér allt, veit allt, skilur allt. Og hún segir: Ég verð með ykkur alla daga. Við verðum með ykkur áfram. Nú legg ég augun aftur. Ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vðm í nótt. Æ virzt mig að þér taka. Mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. Margrét Pálsdóttir Af samferðamönnum mínum á lífsleiðinni hafa fáir verið mér ná- komnari eða kærari en tengdamóðir mín, Ingibjörg Stefánsdóttir, sem í dag er til moldar borin. Leiðir okkar lágu saman frá ár- inu 1966, og allt frá fyrstu kynnum reyndist hún mér sem önnur móðir. Það var í senn sérstök reisn og hlýja sem einkenndi heimili þeirra Ingibjargar og Andrésar Andrés- sonar, klæðskerameistara, á Suðurgötu 24, eins og ég kynntist því. Þar ríktu glaðværð og notaleg- heit, sem ótrúlega margir nutu. ' Böm þeirra hjóna, Sigrún, Berg- lind, Andrés og Stefán, vom öll enn á heimilinu og þar var einnig öldruð móðir Ingibjargar, Ólafía Ólafs- dóttir. Faðir hennar, Stefán Bald- vinsson, var þá látinn, en hann hafði líka dvalið síðustu æviárin á heimilinu og notið aðhlynningar dóttur sinnar. Þegar ég lít til baka finnst mér eins og Ingibjörg hafí á þessum ámm alla tíð, frá morgni til kvölds, verið að taka á móti gestum og gangandi, brosandi og elskuleg að bjóða til stofu eða eldhúss upp á kaffi og meðlæti eða til matar- borðs, ef ekki ættingjum eða vinum utan af landi til lengri eða skemmri dvalar á heimilinu. Það var alltaf fullt hús og þannig kunnu húsráð- endur því best. Starfsþrek Ingi- bjargar virtist óþijótandi, hún var á undan öllum öðmm á fætur og gekk síðust til svefns, alla tíð hress og kát öðmm til uppörvunar. Þeir sem litu inn úr amstri hversdags- ins, fengu kaffi og spjölluðu um daginn og veginn, fóm léttstígari út. En ég minnist Ingibjargar ekki síður sem mikillar móður. Hún fylgdist með velferð fjölskyldunnar af einstöku innsæi. Hvort sem var á stundum gleði eða sorgar var hún hin styrka stoð, sem allir gátu reitt sig á. Hún skipulagði fjölskyldu- veislumar, hún tók að sér barna- bömin, þegar þannig stóð á, hún huggaði og hún miðlaði málum ef ósættir urðu. Hún var mjög kraft-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.