Morgunblaðið - 15.04.1987, Síða 75

Morgunblaðið - 15.04.1987, Síða 75
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. APRIL 1987 75 Aulaháttur hjá útvarpsstöðvum Til Velvakanda. Kristinn Snæland skrifar: Ég get ekki látið lengur vera að finna að lélegu lagavali næturút- varps rásar 2 og hroðalegu lagavali næturútvarps Bylgjunnar. Fyrst vil ég finna að rás 2, en lagaval þeirr- ar stöðvar er, þótt slæmt sé, stórum skárra en Bylgjunnar. Þeir eru hvimleiðir aulabrandarar þularins t.d. þegar hann er að kynna gömul og góð lög sem „ellismelli". Það væri þó samræmi ef önnur lög væru kynnt sem „dauðasmellir“, „þularsmellir", unglingasmellir“ og svo framvegis. Fyrir utan það, að kalla vinsælt lag „smell“ er vitan- lega einfeldningslegur aulaháttur. Varðandi rás 2 vil ég einnig geta þess að aldrei hefi ég heyrt í ríkisút- varpinu þátt á jafn lágu plani og þátt sem kallaður er „Unga'ði". Sá þáttur er slíkt endemis rugl að eft- ir hann bjóst ég við því að rás 2 afsakaði þáttinn með því að biðjast afsökunar, þátturinn hefði fyrir slysni verið sendur út af biluðu fólki með biluðum tækjum. Og svo hótar stöðin því að þvælan verði endurtek- in. Þvílíkt og annað eins. Eins og áður sagði er lagaval Bylgjunnar (næturútvarps) enn verra en rásar 2. Uppistaðan eru 10 ára lög og yngri, aðallega á popp- og diskó-línu. Þetta lagaval virðist sniðið að óskum hlustenda 5 til 15 ára og einnig að einföldum smekk viðkomandi þular. Þulirnir virðast vera fyrrverandi plötusnúð- ar af diskótekum boi'garinnar og gera sér greinilega enga grein fyrir því að hlustendur á næturútvarpi eru ekki nema að örlitlu leyti ungl- ingarnir í frumskóginum. Hlustend- ur næturútvarps eru ámóta þverskurður landsmanna og sá hóp- ur er valdi vinsælasta lagið til söngvakeppni sjónvan>sstöðva. Það lag og vinsældir þess ættu að gefa uppgjafaplötusnúðum rásar 2 og Bylgjunnar vísbendingu um hvað fólk vill hlusta á í næturútvarpi. Loks má benda þessu fólki á að til er önnur létt tónlist en ])opp og diskó. Ég ætti ekki að þurfa að nefna t.d. suður-öameríska tónlist, dixieland, kúreka-, harmoníku- og létta jasstónlist. Þá má einnig nefna valsa, ræl, polka og jafnvel marsa. Með þessu fordæmi ég ekki alfarið popp eða diskótónlist, en bendi ráðamönnum rásar 2 og Bylgjunnar á þann tónlistarsmekk sem valdi Hægt og hljótt í fyrsta sæti. Sá hópur er hinn þögli meirihluti. Tak- ið tillit til hans. Er forsenda til málshöfð- unar vegna okurvaxta? Til Velvakanda. Getur einhver í dómkerfinu svar- að þvi, hvort ekki sé komin forsenda fyrir að höfða mál á hendur fjár- málaráðherra vegna okurvaxta sem fólk hefur þurft að greiða fyrir bankalán, lífeyrissjóðslán og hús- næðismálalá.i undanfarin ár. Sum þessara lána er fólk búið að greiða tvöfalt og samt er ekkert lát á skuldahalanum. Við, sem ekki vilj- um fljóta sofandi að feigðarósi, Um smáflokka og sérframboð Til Velvakanda. Nú um stundir er mikið spurt og spjallað um smáflokka og sérfram- boð. Ti! að mynda talar Jón krata- formaður mikið um smáflokka- kraðak og þá með tilheyrandi yfirlæti, sem manninum er ekki ótamt. Hann hefur líklega gleymt því, að ekki eru ýkjamörg ár síðan flokkur hans var smáflokkur og minnstu munaði að hann geispaði golunni. Málglaðir (kjaftagleiðir) tals- menn gömlu kerfisflokkanna ættu að hugleiða obboðlítið hversvegna smáflokkar verða til. Það skyldi þó ekki vera að einhveiju leyti vegna þess að foringjaklíkur gömlu flokk- anna eru ekki í kallfæri við kjósend- ur almennt. Smáflokkur gæti e.t.v. átt meira erindi við fólkið í landinu en stór flokkur sem hefur það helst sér til „ágætis" að vera gamall. Þetta málæði um sérframboð er um sérframboð er frasi sem hver étur eftir öðrum. Framboð er fram- boð hvort sem það er fyrir stóran flokk, lítinn flokk eða öngvan flokk. Það er bágur vitnisburður um lýð- ræði, að menn skuli þurfa að vera í flokki og helst stórum að eigin sögn. Þingmenn eru öngvu háðir nema samvisku sinni, eða svo segir stjórnarskráin. Ef vel á að vera þurfa foringjarn- ir að læra að brosa fallega. Sjón- varpsbros er áhrifaríkast. Og svo heilsíðubros í blöðum. Jafnvel Steingrímur, sem oft er heldur þungbúinn á svip, hefur komið sér upp blíðu brosi og er það vel. En hann má gæta sín á Ólafi Ragnari, þó hann sé ekki í lit. Nóg um sér- framboð og sjónvarpsbros að sinni. En meðal annara orða: Það fór báglega þegar fjórflokkarnir sam- einuðust um þingmál í einingu andans og friðarbandi. Hér er vita- skuld átt við kosningalögin nýju, sem þingmenn skilja ekki sjálfir, enda er þetta afkvæmi þeirra viðr- ini. Nú er skammt í kosningar og nú er bara að vona að menn verði ekki á valdi bölvaðra ekkisen tilfinn- inganna þegar þar að kemur. Má ég svo í lokin minna á, að fólk talar oft um sértrúarflokka (aðra en þá pólitísku). Ekki kann ég við það þó ég sé ekki sérlegur áhugamaður um trúmál. Er eitt trú- félag öðru æðra og hver dæmir þar? Haraldur Guðnason krefjumst þess að höggvið verði í þennan skuldahlekk áður en í meira óefni er komið. Lítilsháttar launa- hækkun, sem fólk er að fá þessa dagana með neyðai-verkföllum, hef- ur ekkert að segja. Hver einasti unninn eyrir fer í þessa vaxta-, verðbóta- og vísitöluhít, eða hvað þetta heitir nú alltsaman, sem reyndar er ekkert annað enn lög- verndaður þjófnaður! Meðal annarra orða — eru kannski allir stjórnmálaforkólfarn- ir, sem þegja þunnu hljóði um þetta mál málanna í framboðsræðunum sínum, samábyrgir? Ætla allir kerfiskallarnir sem settu núverandi vaxtastefnu á spena varnarlausra borgara að þvo hendur sínar eins og Pílatus? Eða hveija er verið að fóðra á þessum blóð])eningum, „Gullbókaeigend- Vilja svo ekki fleiri skrúfa fyrir velmegunarkjaftæði og vitna um fátækramannasögur af sér og sínum. Guðrún Jacobsen Spilling og brot á heið- arlegum leikreglum Kæri Velvakandi. Ég get ekki annað en tekið und- ir með þeim Einari Hálfdanarsyni endurskoðanda og Jóni Sigurðs- syni, forstjóra Járnblendifélagsins, um, að skýringar Alberts Guð- mundssonar á skattamáli sínu eru með öllu haldlausar og ekki bjóð- andi sæmilega skynsömu fólki. Hvernig í ósköpunum dettur fólki í hug að taka sæti á framboðslistum Albertsflokksins og ganga fram undir merkjum rangra skattfram- tala og fyrirgreiðslu sem er ekkert annað en spilling og brot á heiðar- legum leikreglum? Eina leiðin til að mótmæla þess- um vinnubrögðum er að mínum dómi að kjósa Sjálfstæðisflokkinn sem kallaði Albert til ábyrgðar á eigin verkum, en sýndi um leið það umburðarlyndi að leyfa honum að vera áfram á listanum í Reykjavík þótt hann endurgildi það með því að stofna sérstakan flokk til höfuðs Sjálfstæðisflokknum. Kópavogsbúi HEILRÆÐI Ferðafólk Gætið varúðar og fyrirhyggju á ferðum ykkar. Á þessum árstíma er allra veðra von og færð fljót að spillast. Varist að vera einsömul á ferð á hættulegum stöðum. Gerið öðrum grein fyrir ferðum ykkar og áætluðum komutíma. Látið ekki óaðgætni og slys spilla gleði ykkar á þessum hátíðisdögum. Heilnudd, partanudd, bjúg- nudd, heitir leirbakstrar, hitalampi. Sjúkranuddstofa Hilke Hubert, Hverfisgötu 46, sími 13680. :-4 Salon a París Haf narstræti 20, sími 17840 Höfum opið til kl. 19.00 miðvikudaginn 15. apríl. Einnig höfum við opið laugardag fyrir páska og annan í páskum frá kl. 10.00. Bridgemót Vals Knattspyrnufélagið Valur gengst fyrir bridgemóti miðvikudagana 22. og 29. apríl nk. kl 20.00. Keppnisformið verður tvímenningskeppni og spilað verður í félagsheimili Vals að Hlíðarenda. Upplýsingar og skráning eru á skrifstofu Vals í síma 12187 og hjá Haraldi í síma 12307. Allir velkomnir. Knattspyrnufélagið Valur KROSSVIÐUR SPÓNAPLÖTUR T.d. vatnslímdur og T.d. spónlagðar, plast- vatnsheldur - úr greni, húðaðar eða tilbúnar birki eða furu. undir málningu. Vegg- og loftklæðningar, límtré og parket. Einstök gæðavara á sérdeilis hagstæðu Verðl‘ SPARIÐ PENINGA! - Smíðið og sagið sjálf! Pið fáið að sníða niður allt plötuefnl hja okkur í stórri sög - ykkur að kostnaðarlausu. BJOKNINN Við erum í Borgartúni 28

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.