Morgunblaðið - 15.04.1987, Page 79
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1987
79
Pressuliðið þjarmaði
að landsliðshópnum
LANDSLIÐIÐ í körfubolta náði að
sigra Pressuliðið í leik liðanna í
Njarðvíkum í gœrkvöldi með 101
stigi gegn 92 I nokkuð jöfnum og
skemmtilegum leik. Mikið var í
húfi fyrir flesta strákana því til
stóð að velja landslið það sem
fer á Norðurlandamótið i Dan-
mörku eftir tœpa viku eftir leik-
inn.
Valið virðist samt standa eitt-
hvað í landsliðþjálfurunum því
Einar Bolason sagði eftir leikinn
að landsliðið yrði ekki endanlega
valið fyrr en á föstudaginn. „Eg
er mjög ánægður með þennan leik
og það sýnir breiddina sem er að
verða hér að við getum stillt upp
tveimur svo jörnum liðum. Það eru
nokkrir úr Pressuliðinu sem banka
á landsliðsdyrnar og það er tals-
verð barátta um þau sæti sem enn
eru ekki setinn," sagði Einar eftir
leikinn.
Það virtist allt útlit fyrir að lands-
liðið ætlaði að stinga af strax í
upphafi því þeir náðu strax 13 stiga
Morgunblaöiö/Júlíus
• Sigurður Þráinsson, besti maður íslenska iiðsins skellir hér fram-
hjá slakri hávörn Færeyinganna Heri Eltor og Ib Mohr Olsen.
Létt hjá íslenska
karlalandsliðinu
ÍSLENSKA karlalandsliðið í blaki
þurfti ekki að taka mikið á þegar
þeir unnu Færeyinga í landsleik
i gærkvöldi í Hagaskóla. ísland
vann í þremur hrinum og var leik-
urinn vægast sagt leyðinlegur.
Byrjunin lofaði ekki góðu. Fær-
eyingar komust í 4:0 en íslenska
liðinu tókst að jafna 5:5 og eftirleik-
urinn var auðveldur. Lokatölur
urðu 15:7 en það var ekki fyrir
neinn stjörnuleik sem okkar strák-
um tókst að sigra, það var fyrst
og fremst lélegur leikur færeyska
liðsins.
í annari hrinunni var það sama
uppi á teningnum. íslenska liðið
lélegt en það færeyska enn slak-
ara. Mótatkan var í molum hjá
þeim, hávörn lítil sem enginn og
baráttan í gólfinu, sem þeir hafa
verið þekktir fyrir, var ekki fyrir
hendi. ísland vann 15:7.
Þriðja hrinan var best þó hún
væri ekki góð. Það má eiginlega
segja að það hafi verið laumuhrina
því lítið var um seklli í henni, menn
laumuðu frekar en að skella í gólf
mótherjans. Sóknirnar voru hægar
og það kom Færeyingum greini-
lega vel.
Jafnræði var með liðunum allan
tímann og höfðu Færeyingar 12:11
yfir um tíma en island vann hrin-
una 15:12ogleikinnþarmeð3:0.
Sigurður Þráinsson var eini
íslenski leikmaðurinn sem lék af
eðlilegri getu. Allir aðrir voru slak-
ir og það sem kom einna mest á
óvart var hversu erfiðlega fyrirlið-
anum Leifi Harðarsyni gekk að
hitta á strákana í uppspilinu. Nokk-
uð sem ekki kemur oft fyrir okkar
besta uppspilara.
Færeyska liðið er það slakasta
sem hingað hefur komið. Hin
geysilega barátta sem einkennt
hefur þau lið sem hingað hafa
komið var ekki með í þessari ferð
ef marka má leikinn í gær. Einn
áhorfendanna orðaði það svo að
meðalhæðin hjá liðinu væri nú mun
meiri en áður og svo virtist sem
baráttan færi með „stubbunum".
Á eftir karla leiknum áttu
kvennalandslið þjóðanna að leika
en hluti stúlknanna komst ekki til
landsins í tíma þannig að ekkert
varð úr leiknum. í dag leika stúlk-
urnar klukkan 19 og strákarnir
klukkan 20.30 og verða báðir leik-
irnir í Hagaskóla.
-sus
Frá Bob Honnessy á Englandi.
ARSENAL virðist nú algjöriega
heiilum horfið hvað varðar deild-
arkeppnina. í gærkvöldi töpuðu
þeir á heimavelli sínum, High-
bury, fyrir Newcastle með einu
marki gegn engu og skoraði Paul
Goddard eina mark leiksins.
Þrír aðrir leikir voru í 1. deild.
Sheffield lék heima gegn Forest
og unnu strákarnir hans Clough
3:2. Sonur framkvæmdastjórans,
Nigel Clough skoraði tvö marka
Forest.
Watford vann Chelsea 3:1 en
West Ham og Manchester United
skildu án þess leikmönnum tækist
að skora.
í 2. deildinni voru þrír leikir.
Leeds krækti sér í þrjú stig á úti-
velli með því að vinna Shrewsbury
Trevor Francis á
leið til Birmingham
Fengi þá hærri laun en Robson hjá United
Arsenal heillum horfið
2:0, Hull vann Millwall 2:1 og
Blackburn og Readlng gerðu
markalaust jafntefli.
í Skotlandi vann Rangers lið
Dundee 2:0 að viðstöddum 43.000
áhorfendum og skoruðu þeir Coo-
per og McCoist mörkin. Þegar
þrjár umferðir eru eftir hefur Ran-
gers tveggja stiga forystu á Celtic.
Frá Bob Hennesty á Englandi.
FORRÁÐAMENN Chelsea vinna
nú að því að koma í veg fyrir að
byggingafyrirtæki f Englandi
kaupi land það sem knattspyrnu-
völlur fólagsins, Stanford Bridge,
stendur á. Ken Beats stjóri þeirra
hefur safnað 40 milljónum punda
til þess að freysta þess að tryggja
Chelsea afnot af svæðinu.
Birmingham er eitt þeirra liða
sem mikinn áhuga hefur á að fá
Trevor Francis til liðs við sig en
samningur hans við Atlanta á ít-
alíu rennur út í vor.
Francis hóf feril sinn hjá Birm-
ingham en var síðan keyptur fyrir
eina milljón punda til Forest árið
1979 og var fyrsti milljón punda
leikmaðurinn. Þaðan fór hann til
Manchester City og síðan til
Samdori á Ítalíu.
Birmingham hefur boðið honum
2000 pund á leik og ef hann sam-
þyggir má reikna með að hann
hafi um 4000 pund á viku en það
yrði hæstu laun knattspyrnu-
forystu. Pressustrákarnir voru þó
ekki á því að láta þá stinga sig af
og með samstilltu átaki tókst þeim
smám saman að saxa á forskotið
og þegar flautað var til leikhlés var
staðan 46:45 fyrir landsliöið.
í síðari hálfleik hélst leikurinn
jafn og spennandi allan tímann,
eða allt þar til undir lokinn að
landsliðið náði að breikka bilið. Um
tíma var Pressuliðið yfir, 69:73, en
landsliðsmönnunum tókst að setja
undir lekann og unnu sanngjarnan
sigur.
Það eru sjálfsagt mörg ár síðan
Pálmar Sigurðsson hefur aðeins
skoraði tvö stig í körfuboltaleik. í
gær lék hann mikið með en skor-
aði aðeins einu sinni. Hann var
samt alls ekki slakur, heldur lék
mikið fyrir félaga sína og skaut
lítið. ívar Webster skoraöi 19 stig
í fyrri hálfleik en aðeins þrjú í þeim
síðari. Valur Ingimundarson skor-
aði 15 stig í síðari hálfleik, en þeir
Jóhannes Kristjbörnsson og Guð-
mundur Bragason gerðu þá 12
stig hvor.
I Pressunni skoraði Teitur mest
og Guðjón Skúlason er örugglega
einn þeirra sem bankar á landsliðs-
dyrnar. Annars einkenndi það
leikinn að allir leikmennirnir sem
tóku þátt í honum skoruðu. Tíu hjá
landsliðinu en ellefu hjá hinum.
Landsliðið virtist dálítið þungt á
sér enda hafa þeir verið í ströngum
æfingum að undanförnu.
Stig Landsliðsins: Valur Ingimundarson
23, Ivar Webster 22, Jóhannes Krist-
björnsson 17, Guðmundur Bragason 14,
Ármann vann
ÁRMANN vann ÍR 2:0 í Reykjavík-
urmótinu í knattspyrnu í gær-
kvöldi. Smári Jónsson skoraði
fyrra markið í fyrri hálfleik en
Brynjar Jóhannesson bætti örðu
við í síðari háifleik. Hann gerði
þó meira þvi skömmu síðar var
honum vikið af leikvelli fyrir að
mótmæla dómi all harkalega.
Guðni Guðnason 8, Jón Kr. Gíslason 7,
Hreinn Þorkelsson 4, Pálmar Sigurðsson
2, Gylfi Þorkelsson 2, Kristinn Einarsson 2.
Stig Pressunnar: Teitur Örlygsson 14,
Guðjón Skúlason 13, Ólafur Gottskálks-
son 11, Jón Örn Guðmundsson 10, Símon
Ólafsson 10, Sigurður Ingimundarson 9,
Þorvaldur Geirsson 6, Brapi Reynisson
6, Henning Henningsson 4, Ivar Ásgríms-
son 4, (sak Tómasson 4.
B.B./SUS
Bikarmótá skíðum:
Akureyr-
ingar
sigur-
sælastir
BIKARMÓT Visa í skíðaíþróttum
var haldið i Bláfjöllum um helgina
og keppt í stórsvigi og svigi. 4%^
keppendur voru skráðir, en 33
luku keppni.
í stórsvigi karla sigraði Guð-
mundur Sigurjónsson, Akureyri á
1.20.42 mínútum samanlagt, en
annar var Daniel Hilmarsson,
Dalvík á samanlögðu 1.21.67.
Þriðji varð Valdemar Valdemars-
son, Akureyri á 1.22.67 mínútum
samanlagt. í stórsvigi kvenna sigr-
aði Guðrún H. Kristjánsdóttir,
Akureyri á samanlagt 1.23.99,
önnur varð Ingigeröur Júlíusdóttir,
Dalvík á 1.25.00 samanlagt og
þriðja Anna María Malmquist, Ak-
ureyri á 1.26.10 samanlagt. í svigi
kvenna sigraöi Guðrún H. Kristj-
ánsdóttir, Akureyri með 2.28.71
samanlagt, önnur varð Anna Maria
Malmquist, Akureyri á 2.35.45 og
þriðja Þórdís hjörleifsdóttir, Vík á
2.36.38. Keppt var í 700 metra
braut og var mótstjóri Helgi
Hallgrímsson.
manns á Englandi. Robson er með
2500 pund á viku hjá United og
Shilton 1.900 hjá Southampton.
Souness flaug til Ítlaíu fyrir hálf-
um mánuði til að sjá Francis leika
og hefur mikinn áhuga á að fá
hann til Rangers og einnig hefur
QPR áhuga á þessum 33 ára
snjalla knattspyrnumanni.
Leeds hefur boðið Billy Bremner
framkvæmdastjór sínum tveggja
ára samning og er fastlega búist
við að hann taki boðinu enda mik-
ill Leedsari í sér.
getrluna-
VINNINGAR!
34. leikvika -11. apríl
1987
Vinningsröð: 221-X21-XXX-X21
1. vinningur: 11 röttir, kr. 71.745,-
14420(1/10) 127202(6/10)+ 127205(6/10)+ 223542(14/10)
125252(6/10) 127204(6/10)+ 127706(6/10)
2. vinningur: 10 réttir, kr. 2.089,-
1142 47631* 96358 125254 223659* Úr 33. viku: _
8486 49573 97970 126001+ 223797 9725+
12983 50571*+ 98713+ 126002+ 594067 53155+
14419 53834 98719+ 126168 594078 *=2/10
42351+ 53845 98722+ 127611 594079 **=4/10
43686+ 55966 101121 129618** 622385
45353 58145 125051+ 215393 622622*
45374+ 58470 125078 218286*+ 654497
46382** 96299 125253 218298*
Kærufrestur er til mánudagsins 4. maf 1987 kl. 12:00 á hádegi.
Kasrur skutu vsra skrtflogar. Ksrueyóublöó fást hjá umboðamðnnum og á akrtfstofunni f
Raykjavfk Vtnningnipphtoðir gata Iskkað, ef ksrur verðe toknar tH greina
Handhafar nafnlausra aoðU (+) verða að framvfsa stofni aða senda atofninn og fuNar
upplýaingar um nafn og heknHisfang til Islehakra Getrauna fyrir lok ksrutrosts
tslenskar Getraunir, Iþróttamiðstöðinni v/Sigtún, Reykjavík