Morgunblaðið - 15.04.1987, Side 80
wónustö
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
ffgtmdafrifr
ALHLIÐA PRENTWÓNUSTA
ÍGuðjónÓ.hf.
I 91-27233
MIÐVIKUDAGUR 15. APRIL 1987
VERÐ I LAUSASOLU 50 KR.
18% hækkun
vísitölu á árs-
grundvelli
VÍSITALA framfærslukostnaðar
hækkaði um 1,39% frá Í. mars til
1. apríl. Hækkunin í marsmánuði
'^■“"svarar til þess að vísitalan hækk-
aði um 18% á einu ári. Sfðastliðna
tólf mánuði hefur vísitalan hækk-
að um 16,2%.
Kauplagsnefnd reiknast til að
vísitalan sé nú 193,20 stig. Miðað
er við að vísitalan hafi verið 100 stig
í febrúar árið 1984. Af hækkuninni
frá marsbyijun má rekja 0,3% til
hækkunar á verði matvöru, 0,2% til
hækkunar á verði fatnaðar, 0,2% til
breytinga á verði bensíns, 0,1% til
þáttar húsnæðis í vístölunni og 0,6%
eru tilkomin vegna hækkunar á verði
ýmissa vöru og þjónustu.
Undanfarna þrjá mánuði hefur
vísitalan hækkað um 4,4% og jafn-
áK flífildir það 18,8% verðbólgu á einu ári.
Borgin kaupir
hús SÍS við
Tryggvagötu
BORGARRÁÐ samþykkti á fundi
sínum í gær að kaupa hús Sam-
bands íslenskra samvinnufélaga
við Tryggvagötu 15. Kaupverðið
er 82 milljónir og greiðist á 8
árum.
Að sögn Hjörleifs Kvaran skrif-
stofustjóra borgarverkfræðings er
fyrirhugað að nýta miðju hússins
undirv bifreiðastæði en við norður-
og suðurhlið er gert ráð fyrir ann-
arri starfsemi. Húsið er fimm hæðir
og 5000 fermetrar að stærð.
Reykjavíkurborg á aðliggjandi lóð
númmer 13 við Tryggvagötu og hef-
ur þar verið teiknað nokkurra hæða
bifreiðageymslu hús. „Þar er gert ráð
fyrir 200 bifreiðastæðum en með því
að tengja húsin saman fjölgar stæð-
unum um 100,“ sagði Hjörleifur.
Morgunblaðið/Páll Stefánsson
Mikill mannfjöldi var við vígslu flugstöðvarinnar. Hér sést yfir efri hæð hússins frá norðri til suðurs, garðskálinn og TF Ögn fjær.
FLUGSTÖÐ LEIFS EIRÍKS-
SONAR TEKIN í NOTKUN
Flugstöð Leifs Eiríkssonar var
formlega vígð í gærkvöldi og
tekin i noktun í morgun. Flug
620 frá Chicago var þá væntan-
legt til landsins klukkan 6.30.
Vigdís Finnbogadóttir, forseti
Islands, vígði flugstöðina og
gaf henni nafn Leifs Eiríksson-
ar. Að lokinni vígslunni sagði
forsetinn í samtali við Morgun-
blaðið, að þetta væri fallegasta
flugstöð, sem hún hefði komið
í. Um 3.000 gestir voru við-
staddir vigsluna.
Vígslan hófst klukkan 18.30
með ávörpum formanns bygging-
arnefndar, utanríkisráðherra og
samgönguráðherra, en að því lo-
knu vígði forsetinn flugstöðina og
afhjúpaði lágmynd af Leifi Eiríks-
syni. Að því loknu blessaði
biskupinn yfir íslandi herra Pétur
Sigurgeirsson flugstöðina og þá
sem þar munu fara um. Að síðustu
afhenti utanríkisráðherra Pétri
Guðmundssyni, flugvallarstjóra,
húsið til notkunar.
Sjá ræður fluttar við vígslu-
athöfnina í gær á bls. 28 og
29 og frásagnir og myndir á
miðopnu og bls. 42.
Morgunblaðiðp/Björn Guðmundsson
Símon Sigurmonsson við hvalhræið í fjörunni í gær
Snæfellsnes:
Hnúfubak rak á fjörur
HVAL rak á fjörur rétt neðan
, við gistihúsið Langholt í Stað-
arsveit á Snæfellsnesi í gær.
Netadræsa er vafin um sporð
hans og í henni hryggjarliður
úr öðrum hval að sögn Símons
Sigurmonsson bónda í Görðum
sem kom fyrst auga á hvalinn.
„Þegar ég leit út um gluggann
í morgun sá ég stóra svarta þúst
bera í hvítt brimið í fjörunni,"
sagði Símon. „Þetta er stór og
fallegur 11 metra langur hnúfu-
bakur, sem reglulega gaman er
að skoða. Hann sagði að hvali,
hákarla og seli hefði áður rekið á
fjörurnar en þeir hefðu ekki verið
heilir eins og þessi sem virtist
vera ný dauður.
„Hefði hvalinn rekið á land fyr-
ir 200 árum þá hefði hann líklega
verið étinn en núna er ekkert
hægt að gera við hann. Þetta er
allt annað að sjá en sundurtætta
hvali í hvalstöðinni. Mér finnst
alltaf hvalir vera glæsilegar
skepnur og það hefði verið gaman
ef hann hefði rekið á land að sunt-
arlagi þegar útlendingar eru hér
á ferð,“ sagði Símon.
Þrítugur Reykvíkingur dæmdur í Sakadómi:
Atta ára fangelsi
fyrir að vera vald-
ur að dauða konu
ÞRÍTUGUR Reykvíkingur, Arni Óli Friðriksson, var í gær dæmdur
í átta ára fangelsi fyrir að vera valdur að dauða fatlaðrar konu,
Kristinu Halldórsdóttur, á heimili hennar í Hátúni 12 aðfaranótt laug-
ardagsins 13. september 1986.
Árni Óli játaði að hafa reynt að
þvinga konuna til samræðis, þrátt
fyrir óvilja hennar og kröftuga mót-
spyrnu. Hann kvaðst hafa fellt
kónuna í gólfið og barið höfði henn-
ar nokkrum sinnum við það, en eftir
það lá hún hreyfingarlaus. Hann
féll síðan frá ætlun sinni og segir,
að Kristín hefði eftir þetta staðið
upp, gengið á eftir honum og ýtt
við honum, þegar hann var á leið-
inni út, en hann þá hrint henni
kylliflatri. I niðurstöðum dómsins
segir að þessi frásögn hans þyki
ótrúverðug í ljósi þess sem á undan
var gengið og þess hvar lík konunn-
ar fannst.
í niðurstöðum sakadóms Reykja-
víkur segir að ekki þyki sannað að
það hafi verið ásetningur mannsins
að svipta konuna lífi, eða að honum
hafi mátt vera ljóst að yfírgnæfandi
líkur væru á því að bani hlytist af
verknaði hans. Afleiðingar hinnar
stórhættulegu árásar hans á varnar-
lausa fatlaða konuna verði hins
vegar metnar honum til gáleysis.
I niðurstöðum dómsins segir enn
fremur að Árni Óli hafi gerst brot-
legur með því að skilja stúlkuna
eftir stórslasaða og varnarlausa og
aðhafast ekkert hvorki þá né síðar.
Refsing Árna Óla Friðrikssonar
þótti hæfilega ákveðin 8 ára fang-
elsi. Til frádráttar refsingunni
kemur gæsluvarðhaldsvist hans í
208 daga. Þá var honum einnig
gert að gi-eiða allan sakarkostnað,
þar með talin saksóknaralaun í ríkis-
sjóð, 60 þúsund krónur, og réttar-
gæsluþóknun og málsvarnarlaun
veijanda síns, 100 þúsund krónur.
Ingibjörg Benediktsdóttir, saka-
dómari, kvað upp dóminn. Ákæru-
valdi er skylt að áfrýja til
Hæstaréttar þar sem refsing fer
yfir 5 ára fangelsi.