Morgunblaðið - 03.05.1987, Page 1
96 SÍÐUR B
STOFNAÐ 1913
SUNNUDAGUR 3. MAI 1987 Prentsmiðja Morgnnblaðsins
Israel
Spjótin standa á Peres
vegna fnðarráðstefnu
98. tbl. 75. árg.
Bandaríkin:
Þingnefnd
er hlynnt
Webster
Washington, Reuter.
Leyniþjónustunefnd Banda-
ríkjaþings samþykkti í gær
einróma að William Webster,
yfirmaður bandarísku alríkislög-
reglunnar (FBI), yrði gerður að
yfirmanni bandarísku leyniþjón-
ustunnar (CIA).
' CIA hefur átt undir högg að
sækja undanfarið vegna yopnasölu
Bandaríkjamanna til írans og
greiðslna til skæruliða í Nicaragua.
Nefndin boðaði Webster fyrir-
varalaust á sinn fund og var hann
yfirheyrður í klukkustund áður en
greidd voru atkvæði um hvort hann
ætti að stjórna CIA.
Hong Kong:
Skaðabætur
fyrir glataða
spádómsgáfu
Hong Kong, Reuter.
BLINDUM spámanni í Hong
Kong voru dæmdar rúmar þijár
milljónir króna í skaðabætur eft-
ir að hann lenti í bílslysi og
missti spádómshæfileikann, að
þvi er lögfræðingur mannsins
greindi frá í gær.
Lögfræðingurinn sagði að Yip
Kai-Ming hefði skaddast á heila
þegar hann lenti í slysi árið 1985
og hefði ekki verið þess umkominn
að halda áfram störfum vegna þess
að hann gat ómögulega munað
grundvallaratriði spámennskunnar.
Lögfræðingurinn bar fyrir rétti
að Yip, sem þénaði 120 þúsund
krónur á mánuði fyrir slysið, hefði
þjáðst af minnisleysi, höfuðverk og
krampakenndum uppköstum, auk
þess sem frænka Yips þurfti að
hjúkra honum eftir bílslysið. Öku-
manninum var gert að greiða
skaðabætur fyrir vítavert kæruleysi
undir stýri.
Tel Aviv, Washington, Reuter.
ÁGREININGUR innan ísraelsku
stjórnarinnar vegna umdeildra
yfirlýsinga um að ísraelar og
Jórdanar hafi komist að sam-
komulagi um að halda friðarráð-
stefnu fyrir Miðausturlönd hefur
farið vaxandi undanfarna daga.
Tveir jórdanskir ráðherrar neituðu
á föstudagskvöld að gengið hefði
verið frá samkomulagi og sökuðu
Shimon Peres utanríkisráðherra um
að blása málið upp.
Yitzhak Shamir forsætisráðherra
hefur ítrekað lýst yfir því að hann
sé alfarið andvígur ráðstefnu sem
þessari og ráðherrar úr hægri flokki
hans, Likud-bandalaginu, hafa sak-
að Peres, formann Verkamanna-
flokksins, um að afvegaleiða bæði
ísraela og erlenda leiðtoga með yfir-
lýsingum um málið.
Náinn aðstoðarmaður Peresar
greindi frá því á föstudag að ísrael-
ar, Jórdanar, Egyptar og Banda-
ríkjamenn hefðu nú samið um þau
tvö atriði, sem stóðu í vegi fyrir
samkomulagi um að halda friðarráð-
stefnu. Sagt er að í samkomulaginu
sé kveðið á um að allir þátttakendur
í ráðstefnunni þurfi að fordæma
„hryðjuverk og ofbeldi", en Israelar
líta svo á að þetta útiloki Frelsissam-
tök Palest.ínu (PLO). Jórdanskir
embættismenn neita aftur á móti
að Hussein konungur hafi látið af
kröfum sínum um að PLO sitji friðar-
ráðstefnu, sem Sameinuðu þjóðirnar
standa fyrir.
Charles Redman, talsmaður
bandaríska utanríkisráðuneytisins,
sagði að talsverður árangur hefði
náðst í viðræðum um að halda friðar-
ráðstefnu. Aftur á móti væri síður
en svo tryggt að slík ráðstefna yrði
haldin.
Kissinger og Nixon skrifa um vígbúnaðarmál:
Bandaríkjaforseti hvattur til
varfærni við samningaborðið
RICHARD M. Nixon, fyrrum Bandaríkjafor-
seti, og Henry Kissinger hafa hvatt Reagan
Bandaríkjaforseta til að semja ekki við Sovét-
stjórnina um fækkun kjarnorkuflauga í
Evrópu nema að til komi verulegar breyting-
ar á þeim samkomulagsdrögum sem til
umræðu eru. í grein sem birtist i The Los
Angeles Times leggja þeir Nixon og Kissin-
ger til að hugsanlegt afvopnunarsamkomulag
taki til allra meðaldrægra kjarnorkuflauga
og þar með til þeirra flauga sem eru staðsett-
ar í Asíuhluta Sovétríkjanna. Einnig telja
þeir að samkomulag um upprætingu meðal-
drægfra og skammdrægra flauga i Evrópu
verði einnig að ná til hins hefðbundna her-
afla Sovétmanna.
í greininni segja þeir Nixon og Kissinger, sem
var ráðgjafi á sviði utanríkismála í forsetatíð
þess fyrmefnda, að „óheppilegt" samkomulag
muni gera Evrópu berskjaldaða fyrir árás hins
hefðbundna herafla Sovétmanna. Benda þeir á
að flausturslegt samkomulag myndi hafa í för
með sér kreppu fyrir Atlantshafsbandalagsríkin,
hina verstu í 40 ára sögu bandalagsins. Einnig
kveðast þeir telja að leiðtogar stórveldanna muni
„vafalaust" koma saman til fundar á þessu ári
og að „einhvers konar“ afvopnunarsamningur
verði þá undirritaður.
Kissinger og Nixon telja að samningur um
upprætingu kjarnorkuflauga í Evrópu verði einn-
ig að fela í sér niðurskurð á hefðbundnum herafla
Sovétmanna. Segja þeir samkomulag þar að lút-
andi verða að liggja fyrir áður en hafist er handa
við að fjarlægja flaugamar.
Þeir hvetja Reagan forseta til að sýna nauðsyn-
lega varfærni. „Það er skiljanlegt að sérhver
forseti vilji tryggja sér sess í sögunni sem friðar-
höfðingi. En hann verður ævinlega að vera þess
minnugur að þótt honum kunni að vera hampað
á forsíðum dagblaða mun sagan fordæma friðar-
viðleitni sem reynist reist á röngum forsendum,"
segir í grein þeirra.