Morgunblaðið - 03.05.1987, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. MAÍ 1987
+
Kjamavetur
eða kjamahaust?
VfgindS
Sverrir Ólafsson
A undanfömum mánuðum hefur
nokkuð borið á efasemdum um það
að hugmyndin um kjarnavetur geti
verið á rokum reist. Gagnrýnin hef-
ur hvorutveggja í senn verið
vísindalegs og stjómmálalegs eðlis
og umræðumar hafa stundum verið
með þeim hætti sem á lítið skylt
við heiðarlega og yfirvegaða athug-
un á staðreyndum.
Hugmyndin um kjamavetur kom
fyrst fram árið 1983 og var form-
lega kynnt í grein sem birtist 23.
desember það ár í tímaritinu
Science. Höfundar greinarinnar
vom vísindamennimir Turco, Toon,
Ackerman, Pollack og Sagan. Verk
þeirra er gjaman einkennt með
upphafsstöfum höfundanna og
nefnt TTAPS-skýrslan eða einfald-
lega TTAPS.
Síðan hugmyndin um kjamavet-
ur var sett fram hafa margvíslegar
líkanrannsóknir verið framkvæmd-
ar á hugsanlegum áhrifum kjama-
styijaldar á veðurfar jarðarinnar. Á
ýmsan hátt er því meira vitað um
fyrirbærið í dag, en þó er langt frá
því að vísindamenn séu sammála
um niðurstöðumar.
í fyrstu viku desembermánaðar
var haldin í London alþjóðleg ráð-
stefna þar sem rædd vom ýmisleg
atriði er varða hugmyndina um
kjamavetur. Ráðstefnan var skipu-
lögð af samtökunum The British
Association for the Advancement
of Science. Á ráðstefnunni vom
nýlegar athuganir ræddar og niður-
stöður þeirra bomar saman.
Umfangsmesta rannsóknin var
framkvæmd af starfshóp 300
vísindamanna frá 30 löndum. Sam-
vinna þeirra var skipulögð af
SCOPE (Scientific Committee on
Problems of the Environment). Nið-
urstöður rannsóknarinnar vom
birtar fyrir ári en þær sögðu fyrir
um hitastigslækkun um allan heim
sem gæti orðið allt að því 30 gráð-
ur Celsíus og varað í margar vikur.
Síðasta umfangsmikla athugun á
kjamavetrinum var framkvæmd af
Stephen Schneider og Stanley
Thompson við National Centre for
Atmospheric Research (NCAR) í
Bandaríkjunum. Niðurstöður þess-
arar athugunar hafa enn ekki verið
birtar í vísindatímariti, en fyrir
skömmu skrifuðu Schneider og
Thomson stutta grein um málið sem
var birt í bandaríska tímaritinu
Foreign Affairs.
Niðurstöður þeirra em að hita-
stigslækkun á meginlöndum geti
orðið 10—15 gráður Celsíus, en
mörgum gráðum minni við strendur
og að hún geti varað allt á bilinu
frá einum degi til eins mánaðar.
Bæði SCOPE og NCAR gera ráð
fyrir verulega miklu minni hita-
stigslækkun en TTAPS-athugunin.
Ástæðumar fyrir þessum mikla
mismun á milli einstakra athugana
em fyrst og fremst þær að lítið er
vitað um magn og Ijósfræðilega
-10
-20
-30
FROSTMARK
Meðalhitastigslækkun
fyrir 30»- 50»N ; NCAR
180 milljón tonn af reyk
Meðalhitastigslækkun á
norðurhveli; TTAPS.
Miðað við 225 milljón
tonn af reyk.
10 20
DAGAR EFTIR STRÍÐ
30
eiginleika þess reyks og ryks sem
myndast við bmna borga, iðnaðar-
svæða og skóglendis. Eins er ekki
vitað hversu hátt reykurinn rís upp
í andrúmsloftið, en rishæð hans
ræður miklu um það hversu lengi
hann dvelur í lofthjúpnum.
Schneider og Thompson gera ráð
fyrir því að 180 milljón tonn af
reyk þyrlist upp í andrúmsloftið og
að meðal rishæð hans verði ekki
nema 3,8 kflómetrar. Þeir gera
einnig ráð fyrir því að þremur fjórðu
hlutum þessa reyks slái niður sem
svörtu regni á fyrstu þijátíu dögum
eftir stríð. Þetta dregur mjög úr
hörku kjamavetrarins. Ef styijöldin
ætti sér stað í júlímánuði gera þeir
ráð fyrir 12 gráðu hitastigslækkun
um mitt norðurhvel jarðarinnar,
viku eftir stríð. Þeir taka hins veg-
ar fram að miklar staðbundnar
hitasveiflur geti átt sér stað.
Andstætt TTAPS taka SCOPE
og NCAR tillit til temprandi áhrifa
hafsins en slflct eykur hitastigið við
strendur all vemlega.
TTAPS gerðu ráð fyrir 5,7 kfló-
metra meðal rishæð reyks, en
SCOPE ætlaði sömu hæð 10 kfló-
metra. Sá hluti reyksins sem kemst
upp fyrir veðrahvolfíð getur dvalið
mánuðum saman í lofthjúpnum og
lengt því kjamaveturinn.
Bæði höfundum TTAPS- og
SCOPE-athugunarinnar hefur verið
ljost frá upphafí að mikillar óvissu
gætir í öllum athugunum er varða
fyrirbærið kjamavetur. Mismun-
andi líkön leiða því til mjög
mismunandi niðurstaðna. Sir Frede-
rick Wamer, forstöðumaður
SCOPE, sagði á ráðstefnunni að
niðurstöður NCAR væm innan
þeirra óvissumarka sem SCOPE
gerði ráð fyrir.
Langflestir vísindamenn sem við-
riðnir em rannsóknir á fyrirbærinu
kjamavetur em sannfærðir um að
kjamastyijöld mun leiða til kólnun-
ar, sem hugsanlega gæti orðið all
vemleg. Nær allir telja þó að kóln-
unin verði minni en TTAPS-rann-
sóknin sagði fyrir um og því hafa
sumir freistast til að kalla fyrirbær-
ið „kjamahaust".
Sú reynsla sem við höfum af
umfangsmiklum skógareldum og
eldgosum getur veitt mikilvæga
aðstoð til að átta sig betur á hugs-
anlegum afleiðingum kjamastríðs.
Á ráðstefriunni í London var tveggja
slíkra fyrirbæra getið.
Árið 1915 brann 140.000 ferkfló-
metra svæði skóglendis í Síberíu
og talið er að við það hafí 20—40
Carl Sagan var meðal
þeirra fyrstu sem sögðu
að eftirköstin yrðu
verri en sprengingin sjálf.
milljón tonn af reyk þyrlast upp I
lofthjúpinn. Erfítt er að áætla ris-
hæð reyksins, en víst má telja að
hún hefur ekki verið jafn há og ef
um bmna borga hefði verið að ræða.
Einnig verður að taka tillit til þess
að eiginleikar þess reyks sem mynd-
ast við skógarelda em aðrir en
reyks sem myndast við bmna borga
og iðnaðarsvæða. Sá síðamefndi er
langtum sótríkari og gleypir því
meiri hita en skógareldurinn.
Samtíma heimildir herma að hita-
stig á ákveðnum svæðum í Síberíu
hafí lækkað um 5—15 gráður á
Celsíus í allt að því 10—30 daga.
Annað þekkt dæmi er eldgosið í
Tambora á Indónesíu árið 1815.
Árið eftir lækkaði meðalhitastig á
norðurhveli jarðar um tæpa eina
gráðu og veður sýndi af sér ýmis
sérkennileg frávik, s.s. snjókomu á
Nýja-Englandi í júnfmánuði. Árið
1816 hefur því stundum verið kallað
sumarlausa árið.
Á ýmsan hátt er það ekkert
meginmál hvort veðurfar að kjama-
stríði loknu líkist vetri eða hausti.
Hitastigslækkun um einungis örfá-
ar gráður að vori til, gæti auðveld-
lega gjöreyðilagt uppskeru
ákveðinna landbúnaðarhéraða. í
löndum eins og Indlandi og víðar,
gæti slíkt leitt til mjög alvarlegrar
hungursneyðar.
Vegna óvissunnar telja margar
þjóðir mikilvægt að halda áfram
rannsóknum á áhrifum kjamastríðs
á veðurfar jarðarinnar. Nýsjálend-
ingar hafa til að mynda eitt hluta
af því skaðabótafé sem þeir fengu
frá Frökkum fyrir að sökkva Rain-
bow Warrior til þessara rannsókna.
Aðal áhugamál þeirra er að leita
eftir mögulegum leiðum til að gera
stöðu þeirra og annarra þjóða í
Suður-Kyrrahafí lífvænlega að
kjamorkustyrjöld lokinni.
Bandaríska vamarmálaráðu-
neytið, NASA og fleiri opinberar
stoftianir í Bandaríkjunum ásamt
15 háskólum hafa ákveðið að eyða
5,5 milljónum dollara í rannsóknir
á kjamavetri. Meginatriði þessara
rannsókna er að athuga ýmsa þætti
sem á afgerandi hátt hafa áhrif á
ónákvæmni þeirra niðurstaðna sem
þegar liggja fyrir. Hér er m.a. um
Geta athuganir á skógareldum kennt okkur eitthvað um kjamavetur?