Morgunblaðið - 03.05.1987, Blaðsíða 9
tí'Ot 1 tj/ p AQ^TV5V^T2 fWpfeJHVrCTrT5íC5Tf
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. MAÍ 1987
ft
9
HUGVEKJA
HIRÐIRINN
eftir sr. JON RAGNARSSON
„Ég er góði hirðirinn og góði
hirðirinn leggur líf sitt í sölurnar
fyrir sauðina."
Hirðir er starfsheiti, sem
líklega er farið langt með að
glata merkingu sinni í nútíma-
máli. Það hefur ekki lengur jafn
beina og almenna skírskotun til
daglegs lífs alls þorra fólks og
það hafði, þegar Kristur mælti
þessi orð — eða sem það hafði
í daglegu lífi flestallra íslend-
inga fyrir rúmum mannsaldri.
Líklega er það orðið innan-
tómt orð fyrir stærstan hluta
uppvaxandi kynslóðar, þó flestir
skilji, ef skýrt er út — þó ekki
allir. Nútímaböm alast ekki upp
við hirðisstörf, nema mikill
minnihluti. Læra ekki þá tegund
umhyggju og ábyrgðar, sem
fylgir hirðingu búfjár. Hirðir
gengur ekki til verka í vinnslu-
sölum frystihúsa. Hann situr
ekki á skrifstofum. Skúrar ekki
sjúkrahúsganga. Kemur ekki í
vélasali. Hann er kannski helst
að finna í yfirfærðri merkingu
þó — á dagheimilum og í skól-
um. Þar eru tengslin við uppruna
líkingarinnar kannski gleggst í
dag. Hirðir er ekki skilgetið af-
kvæmi tækniumhverfis. Plast-
málaðra þilja. Réttra homa og
ryksuguhreinlætis.
Hirðir tilheyrir annarri
reynsluveröld. Annarri öld. Samt
er svo stutt síðan, að hvert
mannsbarn, að heita mátti, skildi
skýringarlaust. Almenningur
átti beina samkennd með Biblíu-
fólkinu. Hversdagslíf íslendinga
var í veigamiklum greinum sam-
eiginlegt með áheyrendum
Fjallræðunnar.
Jesús sótti líkingamál sitt í
nánasta umhverfi fólksins, sem
hann mælti við. Hversdags-
heiminn. Hann talaði til hvers-
dagsfólks um grundvallaratriði
í lífi manns á jörð. Þess vegna
skiljum við, þegar hann talar til
okkar í orði sínu. Hann höfðar
til okkar í því sem hann segir,
þegar við höfum yfirstigið
þröskulda orðanna. Orða og
hversdagsmynda, sem forðum
lífguðu skilning fólksins, sem
heyrði, en eru í dag farin að
loka sýn að kjama máls, vegna
þess að við höfum borist inn í
umskapaðan heim, sem ekki
þekkir sinn hirði. Það ber mal-
bik í milli. Tækniheimur er ekki
hirðisþurfi. Hann er sjálfvirkur.
Sjálfsbætandi. Tölvustýrður í
sjálfsendumýjun sinni.
A malbikuðum völlum emm
við dreifðar hjarðir og væntum
skjóls, sem engin tækni getur
búið til. Væntum þess að heyra
kallað heim til húsa, sem engin
verkfræði getur smíðað. Vænt-
um hirðis, sem við vitum að
ekki hleypur frá ábyrgð sinni.
Er kristindómur þá það að
afsala sér ábyrgð á sjálfum sér
og láta rekast til réttar og af-
henda sjálfan sig til meðhöndl-
unar? Gera sjálfan sig
ómyndugan búfénað?
Nei — Kristur vill að við fylgj-
um honum í trú. Treystum
forustu hans og leiðbeiningum í
lífinu — á mörkum lífs og dauða
— og út yfir gröf og dauða.
Hann er sá eini, sem hefur
lagt það á sig okkar vegna, að
ganga alla þá leið.
Hann neyðir engan til fylgd-
ar, en hann leitar uppi þann, sem
er hrakinn og villtur og í hættu
og krefst þess að mega hjálpa.
Leiðbeininga til byggða — í
öryggi samfélagsins, sem hann
skapar. Við getum valið að
hafna honum.
Við getum þegið umhyggju
hans, sem á sér engin takmörk.
Iðnaðarhúsnæði á
Akureyri til söiu
Iðnlánasjóður auglýsir hér með til sölu húseignina á
Fjölnisgötu 1B, Akureyri. Eign þessi er ca 582 fm að
stærð með 4 m lofthæð, í góðu ástandi og til afhending-
ar strax. Getur hentað margskonar starfsemi.
Skriflegum tilboðum í ofangreinda eign sé skilað til Iðn-
lánasjóðs, Lækjargötu 12, 5. hæð, Reykjavík, fyrir 15.
maí 1987, þar sem einnig er frekari upplýsinga að leita.
IÐNLÁNASJÓÐUR
Lækjargötu 12, 5. hæð, Reykjavík, sími 20580.
V^terkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
62-20- 33
Opið kl. 1-4
Vesturbær
I smíðum til afh. í haust 2ja, 3ja og 4ra herb.
íbúðir í mjög vel staðsettu fjölbýlishúsi.
Allar upplýsingar og teikn. á skrifstofu okkar.
Ú
FASTEIGNASALAN
FJÁRFESTING HF.
Tryggvagötu 26 -101 Rvk. - S: 62-20-33
Lögfraðingar: Pétur Þór Sigurðsson hdl.,
Jónfna Bjartihðrz hdl.
„Pér er óhætt að treysta ráðgjöfum
Fjárfestingarfélagsins fyrir peningunum
þínum.Pað er fólk sem kann sitt fag!"
Að undanförnu hefur fjöldinn allur af fólki haft samband
við okkur vegna ávöxtunar á sparifé. Flestir hafa vitnað í
dæmið um hana Margréti Borgarsdóttur og hvernig
Fjárfestingarfélaginu tókst að skapa henni lífeyri, - fastar
tekjur af peningaeign sinni.
HVAÐ ER BEST?
Það hafa allir heyrt um Kjarabréfin, sem hafa sérstaklega
góða vexti, færri vita um Tekjubréfin, og ennþá færri
gera mun á Bankabréfum, Ríkisskuldabréfum og öðr-
um verðbréfum. Spurningin er bara hvert þeirra hæfi
þér best.
NAUÐSYNLEG AÐSTOÐ
Dæmi Margrétar, og í reynd margra annarra, hefur
sýnt og sannað, að ráðgjöf Fjárfestingarfélagsins
er nauðsynleg fyrir venjulegt launafólk.
Fólk eins og Margréti. Fólk eins og þig! FJÁRFESTINGARFÉIAGIÐ
—----------------------------------Hafnarstræti 7 101 Reykjavík fií (91) 28566
VERÐMÆT ÞJÓNUSTA
Við hjá Fjárfestingarfélaginu bjóðum ennfremur:
1. Fjárvöxtunarreikning: - fyrir þá sem eiga peninga og
vilja ávaxta þá með verðbréfaviðskiptum.
2. Sparnaðar- og ávöxtunarreikning: - fyrir þá sem eiga
ekki handbæra peninga, en geta lagt fyrir ákveðna
upphæð reglulega.
Upplýsingar um gengi Kjarabréfa og Tekju-
bréfa eru gefnar í símsvara allan
sólarhringinn, í síma 28506.