Morgunblaðið - 03.05.1987, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 03.05.1987, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. MAÍ 1987 Þjófur gómaður RÚÐA var brotin í bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar við Austurstræti aðfaranótt gær- dagsins og stolið úr glugganum. Tilkynnt var um rúðubrotið til lögreglu kl. 2 um nóttina og fór hún þegar á vettvang. Skömmu síðar gómaði hún þjófinn, sem var þá kominn skammt frá versluninni. Hann var ekki heima hjá sér það sem eftir lifði nætur. Svanlaug Löve látin Svanlaug Löve, formaður Kattavinafélags íslands, lést að morgni 30. apríl á Landakotsspít- ala. Svanlaug lét sig alla tíð varða dýravemdunarmál og var aðal- stofnandi Kattavinafélagsins, en félagar í því eru nú um 900. Hún var formaður félagsins þau tólf ár sem liðin eru frá stofnun þess og beitti sér einnig fyrir byggingu kattahótels, sem nú er að rísa í Ártúnsholti. Svanlaug Löve var fædd 8. maí 1919 og hefði því orðið 68 ára næstkomandi föstudag. Eftirlifandi eiginmaður hennar er Gunnar Pét- ursson, pípulagningmeistari. Þau giftust 22. júní 1946. Útför Svan- laugar fer fram frá Hallgrímskirkju á afmælisdegi hennar, þann 8. maí. Slökkviliðsmenn að störfum í Morgunblaðið/SigurðurJónsson. Jórvík. Sjö þúsund kjúkling- ar drápust í eldsvoða í Sandvíkurhreppi Selfossi. MIKILL eldur kom upp í útihús- um á bænum Jórvík I Sandvíkur- hreppi skammt sunnan við Selfoss aðfaranótt föstudagsins 1. maí. Útihúsin brunnu til grunna og drápust þar rúmlega sjö þúsund kjúklingar. Ábúendur í Jórvík, Rúnar Gests- son og Sigrún Sigurðardóttir, tóku eftir eldinum um ellefuleytið þegar rafmagnið fór af og sáu þau þá út um glugga að eldur logaði í útihús- unum. „Eg var úti svona klukku- tíma áður en eldurinn kom upp og var sestur fyrir framan sjónvarpið þegar við urðum vör við þetta,“ sagði Rúnar. Eftir að þau hjónin höfðu kallað á slökkviliðið á Selfossi fóru þau út og reyndu að bjarga hrút sem var í einu útihúsanna en það tókst ekki. Nokkrar kindur og hestar voru útivið og sakaði ekki. Mjög slæmt veður var þegar eldurinn kom upp og ekki varð við neitt ráð- ið. Vindáttin breyttist stöðugt og gerði slökkviliðsmönnum erfitt um vik, en rúmum klukkutíma eftir að eldurinn kom upp var aftur á móti komið logn. Hjónin Rúnar Gestsson og Sigrún Sigurðardóttir við eldhúsborðið brunanóttina. íbúðarhúsið í Jórvík stendur um hundrað metra frá útihúsunum og um tíma stóð reykurinn upp á það, en það var aldrei i hættu. Jeppi sem stóð uppi við útihúsin varð eldinum að bráð og brann að mestu. Útihús- in féllu og það litla sem uppi stendur er gjörónýtt. Hjónin Rúnar og Sigrún hófu búskap í Jórvík 1985 og voru með kjúklingaeldi. „Það eina sem maður getur sagt við svona aðstæður er að ég vildi bara að mig væri að dreyma," sagði Sigrún húsfreyja þegar rætt var við þau hjónin nótt- ina sem bruninn varð. — Sig. Jóns. Útihúsin í Jórvik brunnu tU grunna. Hvergerð- ingarfengu lögreglu i að láni TVEIR lögreglumenn á vélhjól- um voru sendir frá Reykjavík til Hveragerðis um páskana, til að reyna að koma til móts við kröfur íbúa Hveragerðis um að fá að sjá meira til lögreglu á staðnum. Ibúar Hveragerðis hafa löngum kvartað yfir því að enginn lög- regluþjónn sé á staðnum. Lög- reglumenn umdæmisins hafa aðsetur á Selfossi, en íbúum Hveragerðis hefur þótt nokkuð á bresta að þeir létu sjá sig hjá þeim. íbúamir hafa haldið því fram að þegar lögreglumennirnir frá Sei- fossi komi til Hveragerðis láti þeir sér nægja að aka um bæinn, en séu ekkert á ferli annars. Hjalti Zóphóníasson, deildar- stjóri í dómsmálaráðuneytimí, sagði að ákveðið hefði verið áð senda vélhjólamennina tvo tjl Hveragerðis þegar skemmtigarður undir þaki var opnaður þar laugar- daginn fyrir páska. Hann kvaðst ekki eiga von á því að þetta yrði gert aftur, enda væri nú verið aið vinna að því að finna lausn á málum Hvergerðinga. Sveitarfé- lagið hefur boðið fram ákjósanlegt húsnæði í bænum sem að ölluiþ líkindum verður notað sem bækí- stöð lögreglu í Hveragerði, en ekki hefur verið ákveðið hvort lögreglu- þjónn mun hafa þar fast aðsetur. Venus með fullfermi af grálúðu TOGARINN Venus frá Hafnar- firði kom til heimahafnar í vikunni með fullfermi, mest grálúðu. Aflinn var tæplega 250 lestir. Venus var 18 daga á veiðum og verðmæti aflans er um 22 millj- ónir króna. Þetta var fjórða veiði- ferð togarans frá því hann hóf veiðar í lok síðasta árs og er afla- verðmæti orðið um 80 milljónir króna cif, það er miðað við að frysti fiskurinn sé kominn í höfn erlendis. 1. maí í Reykjavík: Pólítísk sundrung verka- fólks stærsta vandamál verkalýðsstéttarinnar — sagði Þröstur Ólafsson framkvæmda- sljóri Dagsbrúnar í ræðu á Lækjartorgi ÞRÖSTUR Ólafsson fram- kvæmdastjóri Dagsbrúnar sagði í ræðu á hátíðahöldunum á Lækjartorgi í Reyígavík 1. maí að pólítísk og fagleg sun- drung launafólks væri orðið stræsta vandamál verkalýðs- stéttarinnar í þessu landi og verkalýðshreyfingin verði að svara þeirri spurningu hvort hún vilji semja um sameiginleg- an launajöfnuð eða aðlaga sig markaðslaunum. Hátíðahöldin í Reykjavík á 1. maí fóru fram með nokkuð hefð- bundnu sniði og eftir kröfugöngu frá Hlemmi niður Laugaveginn hélt Fulltrúaráð verkalýðsfélag- anna útifund á Lækjartorgi en Samtök kvenna á vinnumarkaðin- um héldu fund á Hallærisplani. Þröstur Ólafsson hélt aðalræð- una á Lækjartorgi og sagði hann meðal annars að veigamesta ástæðan fyrir að almenn lífskjör á íslandi væni léleg, væri sú að hið pólítíska efnahagskerfi lands- ins hefði brugðist og stærsti arðræningi verkafólks væri óhag- kvæmt og skipulagslaust efna- hagskerfí. Það rændi verkafólkið afrakstri vinnu sinnar og kæmi í veg fýrir að atvinnurekendur bor- guðu mannsæmandi laun. Þetta kerfi hefði verið skapað af óábyrg- um stjómmálamönnum og sér- hagsmunaaðiiunum í landinu og því yrði að breyta. Þröstur sagði að það hefði ver- ið þessi skelfilega staðreynd sem leiddi verkalýðshreyfinguna til febrúarsamninganna 1986 sem á sinn hátt hefðu markað mikil þáttaskil. Þjóðarsáttin svokallaða hefði þó aldrei verið nema skammtíma kjarasátt, sem var fyrirfram dauðadæmd nema öll samtök launafólks tækju þátt í henni og að ríkisstjómin stæði við Þátttaka í hátíðahöldunum 1. maí i Reykjavík í ár var heldur minni en oft áður og hefur veðrið sennilega átt sinn þátt í því. Þessi mynd var tekin af hátíðargestum og á henni sérst meðal annars Asmundur Stefánsson forseti Alþýðusambands íslands. gefnar forsendur en hvorugt hefði gerst. Þröstur sagði síðan í ræðu sinni að verkalýðshreyfingin verði að svara þeirri spumingu, hvort hún vill sameiginlega launajöfnuð eða aðlaga sig markaðslaunum: „Verkalýðshreyfingunni og launa- fólki öllu er það tilfínnanleg þörf að mynda pólítíska samstöðu, til að btjóta upp efnahagslega sóun og hagsmunalega einokun, hindra misbeitingu valds og leggja grunn að stöðugu, réttlátu og mennsku þjóðfélagi. Verkalýðshreyfíngin getur ekki starfað öðra vísi en að ganga út frá þörfum, hags- munum og getu heildarinnar. Pólítísk og fagleg sundrang launafólks er orðið stærsta vanda- mál verkalýðsstéttarinnar í þessu landi," sagði Þröstur Ólafsson síðan í ræðu sinni.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.