Morgunblaðið - 03.05.1987, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. MAÍ 1987
5
ogopmnnþmnigáiiýiaileikfjöliMrga möguleika á löngum og stuttum Mallona-ferðum
Með nýjum aukaferðum til Mallorca, til viöbótar við fyrri aukaferðir og
upphaflega áætlaðarferðir, höfum við opnað ótal nýjar leiðir í langar og
stuttar Mallorca-ferðir. Fimm nýir brottfarardagar hafa nú bæst við og
um leið losnar víða um í áður auglýstum ferðum. Þannig komum við til
móts við stórkostlegar viðtökur væntanlegra sólarlandafara og vonumst
til þess, að sem flestir þeirra sem hafa orðið frá að hverfa komist nú með
á þeim tíma sem best hentar.
Vinsældir Mallorca-ferða okkar í sumar eru staðfesting þess að
verðtilboðin eru einstök í sinni röð. Þegar við bætist fjölbreytt úrval
góðra og vandaðra gististaða, jafnt í íbúðum sem á hótelum, fullkominn
aðbúnaður á allan hátt, traust skipulagning og örugg fararstjórn er
grunnur lagður að fyrsta flokks sumarfríi á verði sem á sér enga
hliðstæðu hér á landi. Hafðu því samband sem allra fyrst og kannaðu
nýja bókunarstöðu á fjölmörgum ferðum okkartil Mallorca.
* «i nu\)
u
JARDIN DEL SOL, einn af fjölmörgum nýjum
og glæsilegum gististöðum okkar á Mallorca,
þar sem við bjóðum nú mikið úrval af vandaðri
íbúðar- og hótelgistingu við allra hæfi.
Brottfarardagartil Mallorca:
Apríl: 27., 29.
Maí: 18., 25.
Júní: 1. (2 ferdir), 8., 15., 22. (2 ferðir), 29.
Júlí: 6., 13. (2 ferðir), 20., 27.
Ágúst: 3. (2 ferðir), 10., 17., 24. (2 ferðir), 31.
September: 7., 14., 28.
Fimm nýjar aukaferðir:
1-júní 3. ágúst
22.júní 24. ágúst
13.JÚIÍ
Samvinnuferóir-Landsýn
Austurstræti 12 • Simar 91 -27077 & 91 -28899
Hótel Sögu við Hagatorg • 91 -622277. Akureyri: Skipagötu 14 • 96-27200