Morgunblaðið - 03.05.1987, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. MAÍ 1987
31
hí
Þama var japanskur garður, eski-
móaþorp, kínverskt leikhús og
síðast en ekki síst austurlenskt
stræti, þar sem ægði saman hestum
fyrir gullnum vögnum, magadans-
meyjum, tömdum fílum, kameldýr-
um og „alvöru“ austurlensku fólki,
sem var sérstaklega ráðið til að
skapa þarna rétta stemmningu.
Ekki fannst eigendunum nægja að
hafa auk þessa óteljandi skemmti-
tæki, sýningarfólk, danshallir og
hljómsveitir til að hafa ofan af fyr-
ir gestum sínum, heldur tóku þeir
að setja á svið stórslys sögunnar,
svo sem fall Pompei, Vesuvíusar-
gosið, stórflóð og bruna til að
skemmta fólki.
Þriðji skemmtigarðurinn hét
Dreamland og var hann stofnaður
af peningamanni, Reynolds að
nafni, sem reyndi á allan hátt að
vera stærri og betri en þeir félagar
í Luna Park. Dreamland var lýst
upp með milljón rafmagnsljósum,
þar sem meðal annars var að fínna
Putaland með 300 dvergum hlaup-
andi út um allt, danshús í renaiss-
ance-stíl og sviðsettu stórslysin
voru þar bæði stærri og stórkost-
legri. í einni slíkri sýningu, sem bar
heitið „Barist við logana“, var til
dæmis brennt sex hæða hús og
4.000 manns ráðnir til að fara þar
með ýmis hlutverk.
Coney Island vakti sem nærri
má geta mikla athygli og margir
málarar og rithöfundar þessa tíma
sóttu þangað efnivið. Margir urðu
til að gagnrýna þessa fjöldamenn-
ingu og töldu hana skömm fyrir
siðmenninguna, en aðrir bentu á
að þetta væri bein afleiðing af því
að við hönnum amerískra bæja
hefði einungis verið tekið tillit til
framleiðslu og vinnu en gleymst að
gera ráð fyrir bæjarlífi og frítíma.
Bruni og gjaldþrot
En Coney Island-ævintýrið átti
sinn endi. í kringum fyrsta áratug-
inn fór að halla undan fæti stóru
skemmtigarðanna. Dreamland átti
frá upphafí við fjárhagsörðugleika
að stríða og 1911 varð óviturleg
stórslysasviðsetning til þess að
garðurinn brann til kaldra kola og
var hann aldrei byggður á ný.
Thompson, eigandi Luna Park,
missti fjármálin út úr höndunum,
varð gjaldþrota 1912 og nýir eig-
endur voru ekki færir um að
endurskapa þá stemmningu sem
þar hafði ríkt. Steeplechase Park,
sem var nú stjómað af syni Til-
roys, átti erfítt uppdráttar gagnvart
nýjungagirni gestanna og eldsvoðar
skemmdu draumaheiminn. í staðinn
komu bílastæði og íbúðarhús. Þá
var New York að þenjast út og
neðanjarðarlestarkerfið náði nú alla
leið til Coney Island, sem gerði
skilin á milli þessara tveggja heima
minni og ævintýraljóminn hvarf.
Síðast en ekki síst var afgangurinn
af menningunni farinn að taka við
sér og annars konar dægrastytting
kom til sögunnar. „Útvarpið og
kvikmyndimar drápu sjónhverfíng-
una“ er haft að máltæki á Coney
Island og er nokkuð til í því, en
ætli aðalástæðan hafí ekki verið að
það var einfaldlega ódýrara að fara
í bíó?
Ævintýraljóminn er óneitanlega
farinn af Coney Island. Við mér
blöstu niðumíddar leifar skemmti-
garðanna og þama í kring býr nú
fremur fátækt fólk. En það eitt að
rölta eftir gamla göngupallinum,
sem enn liggur eftir endilangri
ströndinni og virða fyrir sér grasi-
vaxna rússíbana og ryðguð Parísar-
hjól var sannarlega ferðarinnar
virði og ég gat ekki annað en tekið
ráð gamals manns, sem hafði rekist
á mig þarna við ströndina og sagt:
„Það er ekkert að marka það sem
þú sérð hér núna, þú verður að loka
augunum og ímynda þér hvemig
þetta var.“
Eftir MARÍU
ELLINGSEN
pr. mann í 3 vikur
Verðið miðast við 2 fullorðna og 2 börn yngri en 12 ára.
1 T A L
sff0° •
Verðið miðast við
2 fullorðna og 2 börn yngri en 12 ára. Mögulegt
er að skipta dvalartímanum milli Nice og Pietra Ligure.
/\;
í: I—l r~ r',
I G
r r
Q R
r~
B,
FRAKKLAND
GÓÐA FERÐ!
Ferðaskrifstofa Snorrabraut 29 Sími 26100