Morgunblaðið - 03.05.1987, Síða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. MAÍ 1987
MALLORKA
Amnesty International:
Fangar mánaðarins - apríl 1987
Bókum
málefni
aldraðra
komin út
BÓKIN „Lífsstíll og leiðir“ eftir
Þórir S. Guðbergsson rithöfund
og deildarstjóra hjá Félagsmála-
stofnun Reykjavíkurborgar, um
málefni aldraðra er komin út.
í bókinni er íj'allað um málefni
aldraðra og eiga aldraðir jafnframt
mörg bréf í bókinni. Dæmi eru tek-
in um hjúkrunarþörf, öldrunarþjón-
ustu og upplýsingar veittar um
réttindi aldraðra önnur en frá al-
mennum tryggingum. Þá er leitast
við að svara spuminum sem eru
ofarlega á baugi hjá einstaklingum
og sveitarfélögum um þessar mund-
ir.
I formála að bókinn leggur höf-
undur meðal annars til, að í hveiju
sveitarfélagi verði sett á laggirnar
sérstakt öldrunarráð sem verði ráð-
gefandi í hvers kyns verkefnum
sveitarfélaganna.
Bókm fæst keypt hjá Öldrunar-
ráði íslands, hjá ellimáladeild
Félagsmálastofnunar Reykjavíkur-
borgar og í öllum félagsmiðstöðvum
aldraðra hjá Reykjavíkurborg.
(Úr fréttatilkynningu)
handtaka meðal stúdenta.
Kennaramir höfðu einnig staðið
gegn inngöngu í Lýðræðisflokk al-
þýðu, hinn rikjandi flokk. Þeir em
allir taldir hafa tengst akademísk-
um samtökum sem voru í burðar-
liðnum og sem höfðu að markmiði
að auka frelsi til náms. Réttað var
í máli Habiburahman og samkenn-
ara hans í júní og júlí 1983 fyrir
luktum dyrum og án verjanda. Sak-
argiftir voru „andbyltingar-starf-
semi“ og stofnun ólögmætra
samtaka og einnig var Habiburah-
man sakaður um að hafa reynt að
fara úr landi án leyfis. Hann hlaut
7 ára fangelsisdóm.
Haítí: Charlot Jacquelin er 32
ára leskennari sem vann við herferð
á vegum kirkjunnar til að minnka
ólæsi í landinu, en henni var komið
á fót eftir stjómarskiptin 7. febrúar
1986. Charlot hvarf þann 19. sept-
ember 1986, eftir að tveir menn,
annar borgaralega klæddur en hinn
í búningi hersins, handtóku hann á
heimili sínu. Á meðan ku lögreglu-
foringjar í einkennisbúningi Port-
au-Prince-lögreglunnar hafa beðið
fyrir utan, og óku þeir Charlot til
lögreglustöðvarinnar. Skömmu
síðar skaut lögreglan nokkrum
skotum út í loftið til að dreifa mann-
flölda sem safnast hafði fyrir utan
og 8 lögregluforingjar færðu Char-
lot á brott. Við eftirgrennslan sendi
embættismaður dómsmálaráðu-
neytis Haítí AI tilkynningu frá
hemum, dagsetta 30. september
1986, sem staðhæfir að höfuðstöðv-
um lögreglu Port-au-Prince sé
ókunnugt um málið. í viðtali
franska dagblaðsins Le Monde við
Henry Namphy hershöfðingja, odd-
vita ríkisstjómarinnar, kvað hann
aðild Charlot að „sellusamtökum
sem notar gælunöfn" tefja rann-
sóknir; AI er þó ekki kunnugt um
að öryggislögreglan hafi gert neina
almennilega rannsókn á afdrifum
hans.
Þeir sem vilja leggja málum þess-
ara fanga lið, og þá um leið
mannréttindabaráttu almennt, eru
vinsamlegast beðnir að hafa sam-
band við skrifstofu íslandsdeildar
Amnesty, Hafnarstræti 15,
Reykjavík. Þar fást nánari upplýs-
ingar sem og heimilisföng þeirra
aðila sem skrifa skal til. Einnig er
veitt aðstoð við bréfaskriftir ef ósk-
að er.
Tork kerfið. Fyrir þá sem vilja aðeins það besta. Mölnlycke
Tork kcrfið cr ómissandi öllum scm bjóða aðeins
vandaða framleiðslu og góða þjónustu. Tork kerfið saman-
stendur af hylkjum og grindum ásamt einnota vörum til '
notkunar hvar sem hreinlætis er þörf.
í nútíma framleiðslufyrirtækjum skiptir þrifnaður
miklu máli. Pá koma yfirburðir Tork best í ljós. Starfsfólk
þitt kann vel að meta hversu Tork kerfið er einstaklega
þægilegt í notkun. Sannir atvinnumenn biðja
um Tork vegna þess að Tork er hagkvæmara
og gæðin einstök.
Nafri:.
Y-yrirt®k'' -
YYc'imiV'sfang' -
Starfsgrc'n"
UtTV
® I
XiRK
1SÓ
asiaco5'
i
t
t
i
i
t
i
i
t
Tork. Þegar hreinlæti
er nauðsyn.
Ro\aI i oriTHiova
Gististaður í sérflokki.
m^tMc
Fer&askrilslofa, Hallveigarstlg 1 sfmar 28388 og 28580
Mannréttindasamtökin Am-
nesty Intemational vilja vekja
athygli almennings á máli eftir-
farandi samviskufanga í marz.
Jafnframt vonast samtökin tíl að
fólk sjái sér fært að skrifa bréf
til hjálpar þessum föngum og
sýna þannig í verki andstöðu sína
við að slík mannréttindabrot em
framin. íslandsdeild Amnesty
gefur einnig út póstkort til
stuðnings föngum mánaðarins
og fást áskriftir á skrifstofu sam-
takanna.
Suður-Afríka: Séra Smangal-
iso Mkhatshwa er 45 ára róm-
versk-kaþólskur prestur og
aðalritari kaþólska biskupsráðsins
í Suður-Afríku. Hann var hand-
tekinn aðfaranótt 11. júní 1986 á
heimili sínu í kjölfar neyðarlaga sem
sett voru á miðnætti þá nótt. Mikl-
ar íjöldahandtökur áttu sér stað um
þær mundir á grundvelli neyðarlag-
anna, sem heimilar lögreglu og
öðrum öryggisvörðum að handtaka
fólk án heimildar og hafa í haldi
allt að 14 daga, en að því loknu
getur lögreglumálaráðherrann
framlengt varðhaldið um ótakmark-
aðan tíma án réttarhalda. Séra
Smangaliso var í fyrstu haldið á
lögreglustöð í Pretoríu, en þann 20.
ágúst færðu öryggisverðir hann á
brott með bundið fyrir augun og
næstu 30 klst. sætti hann líkamsár-
ásum, niðurlægingum og hótunum
unz hann var að lokum færður aft-
ur á lögreglustöðina. Ritari hans
sá hann skömmu síðar og varð þess
vís að hann gat vart gengið. Lögð
var fram krafa til hæstaréttar um
vemd gegn frekari líkamsmeiðing-
um og var þá fallist á læknisrann-
sókn, og hann fluttur til fangelsisins
í Pretoríu með loforði um að hann
yrði látinn í friði. Kæru á varð-
haldsúrskurðinn var hins vegar
vísað frá.
Afganistan: Habiburahman
Halah er háskólakennari í blaða-
mennsku við háskólann í Kabúl, og
er á fimmmtugsaldri. Hann var
handtekinn í desember 1981 í
Nangarhar-héraði, skammt frá
pakistönsku landamærunum og
virðist hafa verið að reyna að flýja
iand. Nokkrum mánuðum síðar, þ.e.
í marz 1982, voru margir fleiri sam-
kennara hans handteknir eftir að
hafa látið í ljósi áhyggjur af stöðu
sovéskra kennara í háskólahverf-
inu, en áður hafði farið fram fjölda-