Morgunblaðið - 03.05.1987, Side 41

Morgunblaðið - 03.05.1987, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. MAÍ 1987 41 UTLIT OG UMHIRÐA meira um ilmvötn í Dyngjunni miðviku- daginn fyrir páska var sagt frá uppáhaldsilmi nokkurra þekktra per- sóna, þar á meðal Carolinu prinsessu í Mónakó. Hennar ilmur er „Dali“, sem ég sagði að fengist ekki hér heima. En þar varð mér á í messunni, og er mér ljúft að leiðrétta það hér með. Ég þakka þeim sem hringdu og bentu mér á þetta og sögðu jafnframt að ilmvatnið væri frábært auk þess sem glösin væru hrein listaverk, enda hönnuð af listamanni. Ilmvatnið fæst í mörgum snyrti- vöruverzlunum hér, og kom á markað fyrir jól, eftir því sem ég kemst næst. Auk ilmvatns fæst einnig „body loti- on“ og steinkvatn (Parfume de Toilet) frá Dali. En sjón er sögu ríkari. Ef myndin prentast vel getið þið sjálf dæmt um útlitið á um- búðunum. Það er ekkert fáfengilegt við það að hugsa vel um húðina! Það er staðreynd að flestar þær konur, sem við sjáum í snyrti- vöru-auglýsingum, eru mjög ungar, mjög fallegar og mjög mikið málaðar. Það getur valdið misskilningi, því margar konur geta hugsað sem svo: „Nei, þetta er ekkert fyrir mig!“ En oft er þetta einmitt eitthvað fyrir þig, til dæmis verður andlitshúðin fyr- ir sérlega miklum utanaðkomandi áhrifum hér á norðurslóðum. Við skýlum líkamanum með réttum fatnaði, en andlitið er óvarið gegn sterkum geislum sólar, miklum hitabreytingum og mengun í um- hverfinu. Þessvegna er reglu- bundin umhirða húðarinnar nauðsynleg til að vernda hana gegn þessum áhrifum. Svo ber einnig að hafa í huga að með réttri umhirðu frá unga aldri má koma í veg fyrir að öldrunin geri vart við sig of snemma! Þá má einnig minna á að daglega skilar líkaminn frá sér svita og úrgangs- efnum, sem þarf að fjarlægja. Þar kemur sápan að sjálfsögðu að góðu gagni, en hún er ekki það bezta fyrir andlitið. Sápan eyðir eðlilegri fitu í húðinni og hreinsar ekki nógu vel upp úr svitaholum, auk þess sem í hana vantar ýms efni, sem til dæmis eru í góðri hreinsimjólk. Til eðlilegs „viðhalds“ húðar- innar þarf aðallega þrennskonar andlitskrem: Hreinsimjólk: Hún leysir upp óhreinindi og notast kvölds og morgna. Bráðnauðsynlegt að nota hana á kvöldin, einkum fyrir þær sem nota mikið „make-up“ á dag- inn. Rakakrem: Hjálpar húðinni að halda eðlilegum raka og mýkt, borið á eftir hreinsun. Næringarkrem: Styrkir húðina, hjálpar til við endumýjun húð- fruma og eykur vöm gegn utanaðkomandi áhrifum. Þar er þægilegt að geta farið í snyrtivömverzlun og fengið þar nánari upplýsingar um hvaða krem hæfa bezt ykkar húð (ef hún er til dæmis feit, þurr, viðkvæm eða eðlileg). Til athugunar, ekki satt? Kamillute gott fyrir ljóst hár Kamillute er gott að nota til að fríska upp á ljóst hár, sem ef til vill er eitt- hvað farið að dekkjast með aldrinum. Sé teið notað sem skolvatn eftir hárþvott gefur það hárinu fallegan gljáa. Teið er lagað þannig að hnefafylli af kamillu er látin malla í sjóðandi vatni í um 20 mínútur og teið síðan síað og kælt. Eftir að hárið hefur verið þvegið og skolað einu sinni er teinu nuddad vel í hárið. Svo er hárið skolað vel. Fyrst á eftir er vægur kam- illuilmur af hárinu, en hann hverfur fljótt og hárið verð- ur glansandi og létt. Concord lampar r-n RAFBUÐIN S: 42120 OG 42433 AUÐBREKKU 18, KÓP GRUNNSKÓLAKENNARAR! Allir stjórnmálaflokkar lofuðu fyrir kosningar að efla lands- byggðina. Takið þá á orðinu og leggjumst á eitt við að efla grunnskólana á landsbyggðinni. A Norðurlandi vestra eru stöður lausar við eftirtalda skóla: , GRUNNSKÓLISIGLUFJARÐAR. Skólastjóri: Pétur Garöarsson. Simi 96-71184. Meöal kennslugreina: Almenn kennsla, erlend mál, Iþróttir, stærðfræði, raungreinar, samfélagsfræði og sérkennsla. GRUNNSKÓLISAUÐÁRKRÓKS, efra stig. Skólastjórí: Björn Sigurbjömsson. Sími 95-5385. Meöal kennslugreina: Danska, stærðfræði og raungreinar. GRUNNSKÓLISAUÐÁRKRÓKS, neðra stig. Skólastjóri: Björn Björnsson. Sími 95-5175. Meöal kennslugreina: Almenn kennsla. HÉRAÐSSKÓLINN AÐ REYKJUM. Skólastjóri: Bjarni Aðalsteinsson. Simi 95-1000. Meöal kennslugreina: Stærófræði, enska, samfélagsgrein- ar, líffræði og viðskiptagreinar. GRUNNSKÓLISTAÐARHREPPS, V.-Hún. Skólastjóri: Krístinn Breiófjörð. Sími 95-1025. Meðal kennslugreina: Almenn kennsia og kennsla yngrí bama. LAUGABAKKASKÓLI. Skólastjóri: Guðmundur Þór Asmundsson. Simi 95-1901. Meðal kennslugreina: Aimenn kennsla og kennsla yngri bama. GRUNNSKÓLIHVAMMSTANGA. Skólastjóri: Flemming Jessen. Simi 95-1367. Meðal kennslugreina: Almenn kennsia og kennsla yngrí barna. GRUNNSKÓLI ÞVERÁRHREPPS, V.-Hún. Skólastjóri: PéturE. A. Emilsson. Sími 95-1694. Meðal kenríslugreina: Stærðfræði og aimenn kennsla. Fræðsluskrifstofan á Norðurlandi vestra býður ýmiskonar þjónustu fyrir skóla umdæmisins. RÁÐGJAFAÞJÓNUSTA. Þar starfa þrír sálfræðingar, sem eru kennurum og aðstandendum nemenda til aðstoðar við úrlausn vandamála, sem upp kunna að koma í skólastarfinu. KENNSLUGAGNAMIÐSTÖÐ er í uppbyggingu þar sem hægt er að fá lánuð myndbönd, og kynna sér flest tiltæk kennslugögn. Þar verður einnig aðstaða fyrir kennara til að vinna að námsgagnagerð. FRÆÐSLUFUNDIR eru skipulagðir í samvinnu við Kennarasamband Norðurl. vestra og aðila utan umdæmisins og eru ýmist haldnir fyrir skólabyrjun að hausti eða á starfstíma skóla. KENNSLURÁÐGJAFAR munu starfa næsta vetur og verður auk almennrar kennslufræðilegrar ráðgjafar, sérstök áhersla lögð á kennslu yngri bama, móðurmál og raungreinar. SÉRDEILDIR fræðsluumdæmisins á Egilsá í Skagafirði og á Blönduósi veita þjónustu fyrir þá nemendur sem ekki geta fylgt venjulegri grunnskólakennslu. VIÐ LEITUM AÐ GÓÐU FÓLKI með kennslureynslu og menntun sem getur orðið okkur að liði við þessa þjónustu utan skólanna og vantar einkum SÉRKENNARA og starfsfólk til KENNSLUGAGNA- MIÐSTÖÐVAR og til KENNSLURAÐGJAFAR. FRÆÐSLUSTJÓRI NORÐURLANDS VESTRA Guðmundur Ingi Leifsson Kvennaskólanum, 540 Blönduósi. Simar 95-4209 og 4369. HÚNAVALLASKÓLI. Skólastjóri: Jón I. E. Hannesson. Sími: 95-4370. Meðal kennslugreina: Stærðfræði, tónmennt, smiðar og myndmennt. GRUNNSKÓLINN Á BLÖNDUÓSI. Skólastjórí: Eirikur Jónsson. Simi 95-4147. Meðal kennslugreina: Almenn kennsla og sérkennsla. GRUNNSKÓLISKAGASTRANDAR. Skólastjórí: Páll Leó Jónsson. Sími 95-4642. Meðal kennslugreina: Almenn kennsla, hand- og myndmennt. VARMAHLlÐARSKÓLI. Skólstjórí: Páll Dagbjartsson. Sími 95-6115. Meðal kennslugreina: Almenn kennsla. STEINSSTAÐASKÓLI. Skólastjóri: Krístján Kristjánsson. Simi 95-6029. Meðal kennslugreina: Almenn kennsla. GRUNNSKÓLI RÍPURHREPPS. Skólastjórí: Bjami Gislason. Sími 95-6534. Meðal kennslugreina: Aimenn kennsla. GRUNNSKÓLINN HOFSÓSI. Skólastjórí: Svandis Ingimundardóttir. Sími 95-6346. Meðal kennslugreina: Kennsla yngrí barna, islenska, tungumál, stærðfræói, iþróttir, mynd- og handmennt. GRUNNSKÓLI HAGANESHREPPS. Skólastjóri: Valberg Hannesson. Simi 96-73240. Meðal kennslugreina: Raungreinarog tungumál.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.