Morgunblaðið - 03.05.1987, Page 42

Morgunblaðið - 03.05.1987, Page 42
42 MORGUNBLAÐI0; SUNNUDAGUR 3. MAÍ 1987 + Krabbabátur á leið út úr fiskihöfninni i Seattle á leið til krabbaveiða við Alaska. Á dekkinu er hlaði af krabbagildrum, en hver gildra vegur um 800 kg. ÍSLENSKIR SJÓMENN Á KYRRAHAM: Svaðilfarir á krabbaveiðum Karl Hansen úr Reykjavík hefur um margra ára skeið þjónað krabba- flotanum í Seattle. Hann hefur nú hafið framleiðslu á nýrri gerð af kraftblökk fyrir krabbabátana, sem sparar þeim mikinn tíma við veiðarnar. Sea Master, skip Guðjóns, í höfninni f San Francisco. í baksýn er hin margfræga hengibrú yfir Gullna hliðið. Guðjón Guðmundsson, útgerðarmaður og vélstjóri á Sea Master. Þrisvar hafa skip þau sem hann var á farist, þótt allir hafi bjargast, oft við ótrúle- gustu aðstæður. Stutt er úr fiskihöfninni í San Francisco upp f miðborgina, þar sem fjölbreytt skemmtanalff tæl- ir sjómanninn til þátttöku. eftir Úlfar Ágústsson Ég er nú kominn i rétta and- Sr-rúmsloftið í för minni um vestur- strönd Bandaríkjanna, þar sem megintilgangurinn með ferðinni var að hitta íslenska sjómenn sem þar starfa og segja lítillega frá lífi þeirra og störfum. Þegar fyrstu greininni lauk var ég búinn að hitta félagana Guðjón Guðmundsson og Jón Grímsson, sem gera út togbát frá San Fransisco. Jón var farinn heim til konu sinnar en við Guð- jón ætluðum að skoða næturlíf stórborgarinnar og hann ætlaði að segja mér af svaðilförum sem hann hefur lent i á sjómanns- ferli sfnum á Kyrrahafinu. Kvöldhúmið er að leggjast yfir - við San Francisco-flóann. Ljósin kvikna hvert af öðru og borgarbrag- urinn breytir um svip. Við Guðjón kveðjum skipsfélagana á Sea Mast- er og leiðin liggur upp Pier 45 upp með krabbakránum við höfnina og inn í myrkviði næturlífsins sem gleypir menn hávaðalaust og þeim flestum til gleði. Við bytjum með kvöldverði á glæsilegum veitinga- stað og undir borðum byrjar fyrsta sagan af þeim þremur sjóslysum sem Guðjón hefur lifað af í Norður- Kyrrahafínu. Síðasta veiðiferðin „Það hefur líklega verið fjórða vertíðin mín á krabbanum við Al- - Saska. Skipið, sem var 80 feta trébátur, hét Oceanic og var Gunn- ar Guðjónsson skipstjóri, en hann var nýbúinn að kaupa bátinn. Við vorum á útleið frá Duch Harbor í síðasta túrinn á vertíðinni í slæmu veðri, líklega var 50—60 hnúta vindur. En það hefur samt ekki dugað til að halda rórmanninum vakandi, því hann keyrði á fullri ferð á land eftir nokkurra tíma sigl- ingu. Þó virðist eins og einhver hafí haldið vemdarhendi sinni yfír okkur því við lentum inni í vík með miklar stórgrýtisQörur á bæði borð. Það var haugasjór sem gekk yfír bátinn. Fljótlega var ákveðið að ég reyndi að komast í land á gúmmí- bátnum. Ég fór í gúmmígalla áður en ég lagði upp og tókst eftir nokk- uð basl að komast upp í fjöruna í bátnum með band, en þegar ég ætlaði að draga til mín sterkari enda, slitnaði bandið og fauk út í veður og vind. Gunnar fór þá í froskbúning og synti í land með nýjan enda og gátum við þá gengið frá línu sem hinir þrír gátu dregið sig eftir til lands. Fjaran var bæði brött og stórgrýtt svo við gerðum okkur skýli úr gúmmíbátnum og öðru drasli í fjörunni og lögðumst þar undir þétt við hvem annan til að halda á okkur hita. En þá reið yfír stór alda og reif með sér skýlið og rennbleytti okkur alla aftur. Það var því ekki um annað að ræða en halda sér vakandi um nóttina með því að ganga um fjöruna og upp í hlíðina og bíða dögunar. Þegar birti sáum við að báturinn hafði brotnað í tvennt um nóttina. Bjór og T-bone Á fjörunni komumst við þó um borð. Náðum í olíu, bjór og T-bone- steik ásamt pönnu, kveiktum svo bál í íjörunni og fengum okkur að snæða. Þegar líða tók á daginn var farið að draga svo úr sjóganginum að við ákváðum að fara um borð og bíða átekta. Komum við olíuelda- vélinni í gang og gátum þurrkað af okkur fötin. Á þriðja degi var komið það gott veður að við gátum kveikt bál á dekkinu. Þá voru bátar að byija að tínast út frá nærliggj- andi veiðistöð og sá einn þeirra reykinn. Hann gerði strandgæsl- unni viðvart, sem sendi strax þyrlu eftir okkur sem flutti okkur til Duch Harbor. Þetta fékk nú ekki mikið á neinn okkar og við vorum allir mættir til leiks á næstu vertíð." Steikin bragðaðist ágætlega á vertshúsinu, þótt líklega hafí hún ekki verið jafn vel þegin og T-bone- steikin í fjörunni á Unalaska Island um árið. Við Ijúkum við kaffíð og koníakið og færum okkur síðan yfír á barinn hinum megin í húsinu og fáum okkur í glas. Haldið á vertíð Vorið 1975 eða ’76 var Gunnar búinn að kaupa sér 90 feta stálbát sem hét Alussian Star. Við höfðum verið 2—3 mánuði í Seattle að breyta bátnum og búa hann undir krabbavertíðina. Síðan hióðum við hann af vistum, olíu og krabbagildr- um og vorum m.a. með 120 gildrur hlaðnar á dekkið. Að kvöldi 17. júní var svo lagt úr höfn. Um borð var sex manna áhöfn, Gunnar Guð- jónsson skipstjóri, Guðjón bróðir hans, Jón Guðmundsson, Jean 01- sen, Sigmar Sigurbjömsson og ég. Auk þess var Signý systir Gunnars með ásamt 4—5 ára dóttur sinni og Grétar sonur minn sem var þá 9 ára. Níu daga rólegheit Fram undan var 9 daga stím að mestu í lygnum sjó innan eyjanna, sem liggja fyrir landi frá Seattle norður undir Alaska. Við Sigmar Sigurbjömsson sátum yfír bjórglasi í setustofunni og röbbuðum saman. Eftir um tveggja tíma stím lagðist skipið skyndilega á hliðina. Við ruk- um út á efradekk þar sem mann- skapurinn var saman kominn. Við vissum allir hvað var að gerast svo ég rauk í að reyna að losa festing- amar af gildmnum, en það reyndist ómögulegt enda allt fest niður með keðjum. Þá heyrðust óp innan úr skipinu og kom þá í ljós að Grétar sonur minn var fastur í klefa sínum, sem hlaðinn hafði verið matvörum til ferðarinnar. Gunnar sótti strákinn Gunnar braust niður og tókst að sparka svo mikið upp hurðina að hann náði stráknum út og kom honum upp til okkar. Þegar ég sá að ekki tækist að rétta bátinn skar ég 4 eða 5 baujur frá gildrunum og hafði þær tiltækar. Eftir örfáar mínútur hvoldi bátnum og gengum við eftir súðunum upp á kjölinn. Þar vomm við smá stund en syntum síðan frá skipinu til að sogast ekki niður með því þegar það sykki. Þegar bátuinn sökk var kolsvarta myrkur, enda mið nótt en stillilogn og sjólaust. Það er ekki nokkur vafí á því að ef veðrið hefði ekki verið svona gott hefði enginn bjarg- ast. Við náðum aldrei til björgunar- bátsins svo við vomm öll á sundi. Við náðum aðeins tveimur björgun- arvestum og var litla stúlkan og einn hásetinn í þeim, við hin héldum okkur í baujumar nema Gunnar og Jón Guðmundsson. Þeir höfðu engin björgunartæki enda vom þeir strax ákveðnir í að synda í land og sækja hjálp. Þeir lögðu strax af stað synd- andi og notuðu stjömumar sem áttavita, en við rákum hvert frá öðm og vissi ég ekki af neinum nema stráknum mínum sem ég hafði hjá mér hangandi á annarri bauju. Eftir u.þ.b. tvo tíma sigldi kanadískur dráttarbátur með pramma í togi fram á Gunnar og Jón og heyrði rórmaðurinn köllin í þeim. Hann sleppti prammanum og sigldi á hljóðið og náði þeim um borð. Þegar þeir á dráttarbátnum heyrðu hvemig komið var kölluðu þeir upp strandgæsluna sem sendi þegar hraðskreiðan bát á staðinn. Dráttarbáturinn fann svo okkur Grétar skömmu síðar og strand- gæslubáturinn náði hinum upp um svipað leyti. Hann fór svo með okk- ur öll í land, þar sem við fómm í heita sturtu og vorum tiltölulega fljót að jafna okkur. Með eigin bát Árið 1980 keypti ég ásamt fleir- um 98 feta stálbát í Alabama. Við lagfærðum bátinn þar en sigldum honum svo um Panama-skurðinn til Seattle. Þaðan gerðum við svo út á krabba við Alaska eins og venja

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.