Morgunblaðið - 03.05.1987, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. MAÍ 1987
43
Marínó (Malli) Sigurbjörnsson frá Vestmannaeyjum var í 24 vertiðir
sjómaður á Islandi, en varð samt að sætta sig við að gerast hálf-
drættingur fyrstu tvö árin á krabbanum.
var. Árið 1983 vorum við að veiðum
við Pribilof-eyjar í Beringshafi. Við
höfðum landað í móðurskip en lág-
um svo við bauju í nokkum tíma
vegna brælu. Þegar veðrið var eitt-
hvað byijað að ganga niður léttum
við, ég sigldi bátnum út úr höfn-
inni, gaf svo rórmanninum strikið
og fór að sofa. Ég svaf þó ekki
lengi því eftir einn eða hálfan ann-
an tíma vaknaði ég með andfælum
við að skipið sigldi á fullri ferð í
strand. Þegar ég kom upp var skip-
ið fast á skeri, vindur var 40—45
hnútar og haugasjór. Ég kallaði
strax á hjálp um talstöðina og þá
vildi svo vel til að skip frá strand-
gæslunni með þyrlu var í nágrenn-
inu, vegna olíupramma sem hafði
lent í vandræðum. Þyrlan var strax
send í loftið og gekk vel að ná okk-
ur öllum frá borði. Við vorum svo
allir fluttir á land á Pribilof-eyju
þar sem við dvöldum í tvo daga hjá
strandgæslunni. Þá komust strák-
amir til byggða með flugvél, en
Gústi frændi á m.s. Norðfirði kom
þama til að landa og tók mig með
út á miðin og hjálpaði mér með
pottana. Báturinn gjöreyðilagðist.
Ekki tekið þetta
nærri mér
Ég hef ekki tekið þetta neitt sér-
Staklega nærri mér. Þó var ég
farinn að halda að við myndum
ekki „meikaða" þama um nóttina
þegar við vomm að synda á Puget-
sundinu. Grétar sonur minn var
með mér í tvö seinni skiptin. Það
er ekki að sjá að það hafí fengið
mikið á hann heldur, því hann hef-
ur alla tíð síðan verið á krabbanum
og er nú skipstjóri á báti uppi í
Alaska.
Guðjón brosir þessu hægláta yfír-
vegaða brosi sínu, síðan tæmum við
glösin og löbbum út í nóttina. Rölt-
um á milli baranna og skoðum
okkur um í fjölbreytileika stórborg-
amæturinnar. Við enduðum á
dansbar þar sem æskan dansaði
rock ’n’ roll af krafti. Ungar og
íturvaxnar stúlkur, fáklæddar og
það fáa var of þröngt, gengu þokka-
fullar um beina. Við fundum til
aldursins og héldum í háttinn, sátt-
ir við guð og menn.
Malli úr Eyjum
Sólin skín og hlý golan utan af
flóanum stiýkur vangann. Ég stend
á dekkinu á Sea Master þar sem
skipið liggur í Fishermans wharf
og fylgist með sæljónunum baða
sig í sólinni. Þegar ég lít upp stend-
ur hann á biyggjunni. Ég vissi að
þetta hlaut að vera Malli nema
þama væri á ferðinni einhver ind-
verskur gúrú að villast, §arri öllum
heilagleika. Mikið dökkt grásprengt
hár og skegg bylgjast í golunni og
gera hann í senn virðulegan og fjar-
rænan. Góðan daginn, segir hann.
Mér er sagt að þú sért að heiman.
Hann brosir góðlegu brosi og augun
bera einhveija óskýranlega dýpt
yfírvegunar, sársauka og huldu.
Við setjumst inn í matsalinn. Hann
segist vera fæddur að Syðstu-
Gmnd undir Vestur-Eyjafjöllum
fyrir rúmlega fímmtíu og einu ári.
Eyjapeyi í ævintýraleit
Hann fiutti með foreldmm sínum
til Vestmannaeyja 18 ára gamall
og byijaði þar strax sjómennsku.
Hann var lengst af með Rafni á
Gjafari, eitthvað með Guðjóni Ein-
arssjmi á Skuld og með Hilmari
Rósmundssyni á Sæbjörginni 1967
þegar þeir urðu langhæstir yfír
landið á vetrarvertíðinni með 1.650
tonn.
En hann langaði að breyta til og
flutti því til Seattle fyrir 11 ámm,
þar sem Sigmar bróðir hans var þá
starfandi sjómaður. En þama
ganga hlutimir töluvert öðmvísi
fyrir sig en á íslandi, því þótt
Malli, eða Marinó Sigurbjömsson
eins og hann heitir fullu nafni,
væri þrautreyndur og eftirsóttur
sjómaður í Vestmannaeyjum, mátti
hann ganga um atvinnulaus við
höfnina í Seattle í heilt ár.
Hálfdrættingur eftir
24 ára sjómennsku
Menn geta reynt að gera sér það
í hugarlund hvemig það hefur verið
fyrir sjómann með 24 ára starfs-
reynslu að sitja í heilt ár atvinnulaus
og verða síðan að sætta sig við
ráðningu upp á hálfan hlut eins og
Malli varð að lokum að gera. Það
verður þungt yfír svipnum þegar
hann segir frá og í tvö ár var hann
hálfdrættingur á krabbabáti í Al-
aska, vann sitt verk af alúð en
þagði. Þá hringdi íslenskur skip-
stjóri og útgerðarmaður frá Seattle,
Ágúst Guðjónsson, í Malla og bauð
honum pláss, að sjálfsögðu upp á
fullan hlut. Þar var hann í fímm
ár og líkaði vel. Þegar Jón Grímsson
tók við Deborra Ann í San Franc-
isco bauð hann Malla pláss þar sem
hann vantaði vanan togaramann.
Þá sagði Malli skilið við krabbann
og kuldann í Alaska og fluttist til
San Francisco. Síðan hefur hann
verið á sama skipinu og gerir það
gott.
Tapaði öllu
Þegar aflabresturinn varð í Al-
aska upp úr 1980 tapaði hann
húsinu sínu í Seattle, en þar sem
hann hefur nú milli 200 og 250
þúsund krónur á mánuði, hyggst
hann nú kaupa sér hús aftur í
Seattle. Þar hefur kona hans búið
mest allan tímann en þau halda nú
hús með útgerðarmanni Deborra
Ann og passar konan, Friðbjörg
Þorsteinsdóttir, böm útgerðar-
mannsins. Ástæða þess að þau
kaupa heldur hús í Seattle en í San
Francisco er einfaldlega sú að
sæmilegt hús hér kostar um 8 millj-
ónir króna en í Seattle aðeins um
tvær og hálfa milljón.
Maður kann alveg ágætlega við
sig hér úti, segir hann að lokum,
en það er aldrei að vita nema mað-
ur flytji heim aftur. Þeir em víst
betri við gamla fólkið heima, segir
hann og brosir þessu fjarræna brosi
sínu.
• •
Oðruvísi
innkaupavenjur
Ég var tvo daga í viðbót í San
Francisco því bræla var á miðunum.
Fyrri daginn rölti ég um við höfn-
ina. Fór með Guðjóni að kaupa
útgerðarvömr hjá kaupmanni við
aðaltúristagötuna. Hann átti alla
almenna jámvöm til skipa og eitt-
hvað af veiðarfæmm, en varahluti
í vélar eða tæki var nokkuð sem
hann vissi ekkert um. Síðan var
haldið í stóra kjörbúð í nágrenninu
til matarinnkaupa. Þama þekkist
ekki að kokkurinn hendi inn kost-
lista eins og venjan er á íslandi,
heldur ganga menn um með inn-
kaupavagna og tína úr hillunum
eins og allir aðrir. Það sem kom
mér þó mest á óvart var íjölbreytni
innkaupanna. Auðvitað var keypt
öll venjuleg matvara, þvottaefni og
klósettpappír, en auk þess nokkrir
kassar af gosdryklq'um og bjór og
hvítvín, sem þó er ekki dmkkið
beint, heldur notað til að blanda í
drykkjarvatnið í tönkum skipsins
til að koma í veg fyrir sveppagróð-
ur.
Dagsleit að krana
Daginn eftir fómm við að leita
að varahlut í tauþurrkarann um
borð. Steve skipstjóri sagðist vita
um varahlutaverslun sem ætti þetta
ömgglega til. Þangað var rúmlega
hálftíma akstur, en þeir könnuðust
ekkert við málið svo við máttum
fara út með bilaðan þurrkara.
Margar sögur em til um vandræði
manna í þessari stóm borg við að
ná í almenna varahluti. Þannig tók
það Jón Grímsson heilan dag að
fínna krana sem kostaði um 400
krónur.
Þar sem engan varahlut var að
fá var ákveðið að slá hlutunum upp
í kæmleysi og fara í mat vestur á
Kyrrahafsströndinni. Við vomm
hátt í klukkutíma á leiðinni og
keyrðum allan tímann þráðbeint
eftir sömu götunni í San Francisco,
þar til hafíð blasti við. Þama er
afar viðkunnanlegur veitingastað-
ur, byggður utan í sjávarhamrana.
Þar borðuðum við og fylgdumst
með skipaumferðinni um Gullna
hliðið. Það var þó greinilegt að
brælan var gengin niður og komið
ágætis veður. Því var ákveðið strax
að máltíð lokinni að halda til skips
og gera sjóklárt. Síðdegis var svo
lagt úr höfn. Hvað gerðist í þeirri
sögufrægu sjóferð verður að bíða
næstu greinar. Hvemig fór með
stærsta halið sem komið hefur á
skipið? Hvað getur gerst þegar leita
þarf hafnar í veiðiferðinni vegna
bilunar? Að lokinni veiðiferðinni
með Sea Master leggjum við af stað
frá San Francisco í bflaleigubíl.
Ökum strandveginn 101 í norður.
Kaupum okkur ópal í áfengisversl-
un og ræðum við Reykdal Jónsson,
netagerðarmann frá Vestmanna-
eyjum, sem flutti utan 55 ára vegna
þess að honum líkaði ekki skatt-
píning íslenskra stjómvalda.
Höfundur er fréttaritari Morgun-
blaðsins á ísafirði.
Klossar með bólstruðum kanti
7
Litir: bvart, hvítt.
Stærð: 36-46.
Ath: klossarnir eru úr léttu tré með tá-
gripi og góðum sóla. Einnig fást þeir með
götum og án.
TOPPÍfl
5% staðgreiðsluaf-
sláttur. Póstsendum.
----SKÚRUÍN
l&T VELTUSUNDI 1
21212
Interstuhl skriístoíustólarnir eru hannaðir tyrir þó
sem þurfa að sitja lengi í einu við vinnu sína.
Þetta eru stólar tró níu til fimm og frameffir kvöldi
ef þörf krefur.
Afh.: Verð ó Intersíuhl stólum erfró kr. 5.500,-
ALLT í EINNI FERÐ
Hallarmúla 2 Sími 83211
SITJA SV0 LENGI
MARGI
SEM ÞURFA AÐ