Morgunblaðið - 03.05.1987, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. MAÍ 1987
49
Danskur undrakoddi
fyrir þreytlar axlir
Talið er að mannskepnan eyði að
minnsta kosti einum þriðja af ævi
sinni í rúminu. Það er því mikils um
vert að aðbúnaður í rúminu sé sem
allra bestur. íslendingar eru nú farnir
að sofa i góðum rúmum meira en
áður.
Við fréttum af nýrri tegund kodda sem
átti að vera algjör undrakoddi. Slíkum
upplýsingum ber að taka með varúð
og það var með slíku hugarfari sem
við ákváðum að prófa þennan kodda.
Axlirnar eru „fríar"
Koddinn er úr svampi og í honum er
loftrásakerfi sem tryggir að eðlilegt
hitastig helst í koddanum allan ársins
hring.
Hliöar koddans eru misháar og er
hærri hliðin nær hálsinum þannig að
axlirnar eru „frjálsar". Þannig styöur
koddinn betur við höfuðið en venju-
legur koddi hvort sem legið er á baki,
maga eöa hliö.
í stuttu máli stóðst koddinn prófið
og reyndist mjög vel. Þaö eru ekki
aðeins axlirnar sem hafa það betra
eftir hálfsmánaðar notkun koddans
heldur einnig hálsinn sem virðist hafa
hvílst betur á þessum danska kodda.
Bay Jacobsen hannaði ekki aöeins
koddann heldur einnig dýnu sem mik-
ið hefur verið af látiö. Hægt er að fá
dýnuna Í70,80 og 90 cm breiddum.
Svaf aldrei vært eina ein-
ustu nótt
Bay Jacobsen, sem er danskur mál-
arameistari, átti sjálfur við langvar-
andi sjúkdóm að stríða. Hann hefur
sagt í blaðaviðtali aö hann hafi ekki
sofið vært eina einustu nótt í fjölda-
mörg ár. Þegar hann kom fyrst fram
með hugmyndina að heilsudýnunni
og koddanum hristi fólk höfðuðið og
hafði ekki trú á honum. En eiginkona
hans og fjölskylda stóð á bak við
hann og nú er fyrirtæki Jacobsens
Koddaver
úr 100% bómull.
Fjadurmagnadur eldvarinn
svampur, meö loftgötum.
Þverskurður koddans.
orðið að stórfyrirtæki sem framleiöir
þessar vörur.
Heilsudýnan var útfærð í samvinnu
við endurhæfingadeild héraðssjúkra-
hússins í Árósum og heimilislækni
Jacobsens.
Dýnan er 3 cm á þykkt og þannig
gerð aö hún er fyllt af kúlum (ekki
eldfimum) sem einangra og nudda
vöðvana. Kúlurnar dreifa þyngd líka-
mans á dýnuna þannig að blóðstrey-
mið verður óhindrað um vöövana og
dreifirálagspunktum líkamans. Dýnan
hefur einnig þau áhrif að halda líkams-
hitanum stöðugum. Hjá fólki, sem er
bakveikt og hefur liða-, bak- eða
vöðvaverki, getur lítils háttar hitatap
aukið á verkina. Dýnan dreifir þyngd
líkmans vel á undirlagiö þannig að
svefninn verður meira afslappaður.
Dýnan og koddinn hafa verið á mark-
aði hér á landi í rúmt ár og hefur
verið látið mjög vel af þeim.
Þú skalt sjálfur reyna til
þess að sannfærast - þú
hefur 14 daga skilafrest
Langflestir kaupa heilsudýnu og
kodda Bay Jacobsen, vegna þess að
nábúar, vinir og vandamenn hafa
mælt með þeim.
Fáöu þér dýnu og kodda til reynslu,
þannig að þú getir einnig sannfærst
um eiginleika þeirra.
Ef þú, innan 14 daga, sérð eftir því
að hafa keypt dýnuna og koddan þá
skilar þú þeim aftur og færö endur-
greitt.
Það er því allt að vinna, en engu að
tapa.
Koddinn kostar kr. 2030.-
og dýnan kr. 4990.-
ATH. Verðhækkun verður
frá verksmiðju um næstu
mánaðamót.
Dýnan er 3 cm þykk og látin ofan á venjulega rúmdýnu.
Verið forsjál — kaupið strax.
Sendum í póstkröfu
^|2>hreidrid
t-,’ ‘rEZ ■ ■ Grensásvegi 12
***.• - íjpy Sími 688140-84660
Postholf 8312 - 128 RvK
ÞEIR HAFA BR0TIST ÚT
w>
■§.
3
C
.c
■Q.
ACT "Ronda"
ACT "Filippo”
ACT "Lucia"
ACT "Barra"
„Næsta skóbúð“: Reykjavík, Ríma, Mílanó, Skómagasín, Mikligarður// Keflavík, Samkaup//
Selfoss, K.Á. // Sauðárkrókur, Skagfirðingabúð// Akureyri, M.H. Lyngdal