Morgunblaðið - 03.05.1987, Side 60
£0
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. MAÍ 1987
Anna Magnúsdóttir
Skálholti—Mhming
Fædd 17. febrúar 1927
Dáin 24. apríl 1987
Þegar maður fréttir andlát góðs
vinar, þá er það reiðarslag, þungt
áfall. Og þó maður vissi að hin lang-
varandi veikindi Önnu væru komin
á það stig, að til beggja vona gæti
brugðið, þá varð það svo með mig
og mína fjölskyldu að við fengum
áfall, sem ekki jafnar sig fljótt.
Fyrst setur mann hljóðan og
hugurinn reikar til nánustu að-
standenda, með þeirri hluttekningu,
_«em erfitt er að koma orðum að.
Ef dauðsfall Önnu hefur svona áhrif
á mig, fjarstaddan vin, hvað þá um
þau, eiginmann, systur, bræður og
bræðrabörn.
En það eina sem huggar við þess-
ar hugrenningar er sú vissa að þau
þekkja Drottin og geta falið honum
sína sorg, og öðlast styrk í honum.
Eg get ekkert sagt sem huggar,
en það getur Drottinn.
En svo taka minningamar að
tala, minningar margra ára, því ég
hefi þekkt Önnu frá unga aldri og
notið vináttu hennar, ættingja
hennar og eiginmanns öll þessi ár.
Það er erfitt að festa þessar
minningar við dagsetingar og ár,
jfeer koma fram í huganum eins og
íeifturmyndir, ekki alltaf í réttu
samhengi, en skýrar og bjartar.
Gjafavörur og skreyting-
arvið ölltækifæri
BLÓMABÚÐIN
RUNNI
Hrísateig 1
38420
Blömastofa
Friófinns
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öli kvöld
til kl. 22,- eínnig um helgar.
Skreytingar viö öll tilefni.
Gjafavörur.
Þó Anna ætti alla sína ævi við
margskonar veikindi að stríða stóð
hún alltaf upp aftur sem hin
stórglæsilega unga stúlka og síðar
fullvaxta kona, sem krafturinn og
lífsgleðin geisluðu af. Hún gafst
aldrei upp og sýndi það hennar
andlega styrk og trú.
Fyrsta leifturminning mín af
henni nær langt aftur í tímann. Við
vorum margt ungra manna að
hjálpa til við uppbyggingu Vindás-
hlíðar, sumarbúða KFUK. Var ég
þá ásamt fleirum við að gera veg
að sumarbúðunum. Bar þar að stór-
an trukk 10 hjóla, einn af stærri
gerðinni, sem þá var í notkun hér
á landi.
Var hann að keyra gtjót í veg-
inn. Eftir að hafa losað bílfarminn
á veginn vindur bílstjórinn sér út
og fer að athuga aðstæður. Rak
okkur ungu mennina þá í roga-
stans, því bílstjórinn var ung og
glæsileg stúlka, sem síðan vatt sér
upp í þetta erfiða farartæki og ók
á brott til að ná í annan farm.
Okkur var sagt að stúlkan héti
Anna Magnúsdóttir og væri fær um
að höndla hvaða farartæki sem
væri.
Auðséð var á öllum tilþrifum
hennar að svo var. Stelpumar
sögðu: „Hún Anna, hún getur allt.“
Seinna kynntist ég henni nánar í
gegnum systur hennar og tilvon-
andi eiginmann, er hún var við nám
í Kennaraskóla Islands hér í bæ.
Liðu þau ár fljótt tog tók Anna til
við bamakennslu að loknu námi.
Árið 1952 giftist hún vini mínum,
Guðmundi Óla Ólafssyni, og varð
ég þeirrar gleði aðnjótandi að vera
viðstaddur er faðir hennar, sr.
Magnús Guðmundsson, gaf þau
saman í gömlu kirkjunni í Olafsvík,
en þar var hann prestur og þar
hafði Anna alist upp.
Byijuðu Anna og Óli með að
stofna heimili sitt í Reykjavík, en
fluttust fljótlega austur að Torfa-
stöðum í Biskupstungum er sr.
Guðmundur ÓIi var kosinn prestur
þar.
Nokkrum árum síðar fluttust þau
í Skálholt er aðsetur prestsins var
flutt þangað. Þar bjó Anna ásamt
manni sínum til dauðadags.
Hvar sem Anna var setti hún upp
hið glæsilegasta heimili og var sem
prestsfrú ætíð til sóma. Hún var
afburða hannyrðakona og garð-
yrkja var hennar yndi. Hún tók
einnig virkan þátt í áhugamáli
manns síns, hestamennskunni, og
hafði mikinn áhuga á meðan heilsan
leyfði.
Eg, kona mín og börn fengum
að njóta þeirrar gæfu að eiga vin-
áttu þeirra hjóna í gegnum árin og
heimsækja þau oft „í sveitina", þó
heimsóknirnar yrðu stijálli hin
síðari ár vegna ýmissa aðstæðna.
Alltaf var manni tekið opnum örm-
um á heimili þeirra og þó svo langt
liði stundum á milli heimsókna þá
var viðmótið ætíð þannig að okkur
fannst við hefðum síðast hist í
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöfða 4 — Sími 681960
Legslelnar
Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum.
Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf
um gerð og val legsteina.
i
S.HEIGASON HF
STEINSMIÐJA
SKHMMUVEGI 48 SlMI 76677
gær. Þannig var vinátta þeirra
hjóna, alltaf fersk.
Börn okkar hjóna, svo og margra
annarra, áttu alltaf góðan aðgang
að Önnu, því hún elskaði börn. Hún
átti aldrei því láni að fagna að eign-
ast börn sjálf, en beindi ást sinni
því til allra bama sem nutu vel
hennar uppeldis og umhyggju og
urðu rík af.
Það er mikil eftirsjá að konu sem
Önnu.
Hún var gædd miklum hæfileik-
um og blessuð af Drottni í öllum
sínum framkvæmdum, enda átti
hún lifandi trú, sem veitti henni
ómældan styrk í gegnum lífshlaup-
ið.
Eg og fjölskylda mín færum
Drottni þakkir fyrir að hafa fengið
að þekkja Önnu og njóta vináttu
hennar, við söknum hennar.
Við biðjum eiginmanni hennar,
svo og ættingjum, blessunar Drott-
ins og vitum með vissu að Hann
styrkir þau í þeirra miklu sorg.
Baldur Bjarnasen
Við sem fylgst höfum með veik-
indum frú Önnu Magnúsdóttur frá
Skálholti um nokkurt skeið og viss-
um að ævisól hennar var að ganga
til viðar söknum hennar sárlega,
en við fögnum um leið að þjáningum
hennar skuli nú lokið og að hún
hljóti nú hina eilífu hvíld í skauti
almættisins. Hún lifði og starfaði
alla ævi í anda Jesú Krists; trú
hennar var heil.
Anna var fædd í Ólafsvík rétt
fyrir jólin 1927, yngsta barn for-
eldra sinna, en þau voru síra
Magnús Guðmundsson prófastur og
lengi prestur í Ólafsvík og Rósa
Einarsdóttir prests Thorlaciusar,
kona hans. Böm þeirra hjóna urðu
fimm, þijár dætur og tveir synir.
Lést annar sonurinn af slysförum
ungur. Bar heiti föðurföður síns. Á
lífi eru Helga kennari og Kristín,
sem gift var Þórði heitnum Möller
yfirlækni og Einar Thorlacius.
Kynni okkar Önnu urðu allnokk-
ur. Við vorum samtíða tvo vetur í
Kennaraskóla íslands. Þaðan út-
skrifaðist hún sem kennari vorið
1951. Kennsla varð lífsstarf hennar
ásamt húsmóðurstörfunum sem
hún rækti af alúð og smekkvísi.
Lengst af kenndi hún á heimaslóð-
um í Biskupstungum. Sárþjáð
stundaði hún kennsluna síðast. Hún
var ósérhlífin með afbrigðum.
Þegar ég gerðist kennari við
nýstofnaðan lýðháskóla í Skálholti
haustið 1972 endumýjuðum við
Anna kynnin. Oft var ég gestur á
heimili þeirra hjóna, síra Guðmund-
ar Óla Ólafssonar og hennar. Þar
var ég alltaf velkominn. Heimilið
framúrskarandi fallegt. Anna var
mikil húsmóðir og einnig styrk stoð
mannsins síns. Reyndist hann og
henni vel í löngum og ströngum
veikindum hennar. Það sem ein-
kenndi frú Önnu var hreinleikinn,
bæði í hinu ytra og í hinu innra.
Mér finnst þetta lýsa hinni látnu
prestsfrú best. Af henni skein birta,
hreinleiki og hlýja. Gott er hennar
að minnast. Vini mínum, Guðmundi
Óla, sem nú sér á bak ástkærri eig-
inkonu, sendi ég einlægar samúðar-
kveðjur svo og systkinum hinnar
látnu og öðrum aðstandendum,
einnig kona mín.
„Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi."
Auðunn Bragi Sveinsson
Á annan sumardag barst sú sorg-
arfregn um Biskupstungur að Anna
í Skálholti væri látin, aðeins 59 ára
að aldri.
Þó allir hér vissu um veikindi
hennar kom andlát hennar sem
þungt högg. Anna var dóttir séra
Magnúsar Guðmundssonar og Rósu
Einarsdóttur. Hún ólst upp í systk-
inahópi og fékk hina bestu mennt-
un, fyrst í Kvennaskólanum í
Reykjavík og síðar í Kennaraskól-
anum, þaðan sem hún tók kennara-
próf.
Anna tók mikinn þátt í félags-
starfi á æskuárum og þá einkum í
starfi KFUM & K. Þar kynntist hún
eftirlifandi manni sínum séra Guð-
mundi Óla Ólafssyni, sóknarpresti
í Skálholti.
Hingað í Biskupstungur komu
þau er kjósa skyldi hér prest 1955,
og er þeim er þessar línur ritar
minnisstætt er hin ungu prestshjón
komu hingað í Úthlíð til að messa
kynningarmessu ásamt meðfram-
bjóðanda sínum, séra Sigurði Hauki
Guðjónssyni. Með heillandi fram-
komu og fagurri söngrödd svo af
bar urðu þau Guðmundur og Anna
sigurvegarar í prestskosningunum.
Þar var hlutur Önnu engu minni. I
Biskuþstungum höfðu verið prests-
konur með sterkan persónuleika
alla öldina. Þessum fágætum kost-
um var Anna búin og því reisn
prestssetursins tryggður.
Hin ungu prestshjón tóku við
búsforráðum á Torfastöðum 1955
en um margar aldir hafði sá staður
verið prestssetur sveitarinnar. Þar
hófst starfið og Anna lét ekki sitt
eftir liggja. Ávallt kom hún með
manni sínum á anniiexíurnar. Eftir
messu var drukkið kaffi og dægur-
málin rædd. Á þeim stundum var
Anna jafnan hrókur alls fagnaðar.
Af henni geislaði lífsgleðin. Frá
þeim stundum á ég margar ógleym-
anlegar minningar. Árið 1965 urðu
þær breytingar að prestssetrið var
flutt í Skálholt. Fyrst bjuggu þau
hjónin í biskupsstofu en stuttu síðar
fengu þau embættisbústað. Þar átti
Anna síðan heima til dauðadags. í
Skálholti var því stór hluti af ævi-
starfinu. Þar var Anna húsmóðir
með þeirri reisn og glæsibrag sem
staðnum var sómi að. Er Skálholts-
kirkja var vígð átti Anna einna
stærstan þátt í því að stofnsetja
Skálholtskór. Alla tíð stóð heimili
þeirra öllum sóknarbörnum opið. Á
hinum stóru stundum kirkjunnar
naut Anna sín best, ávallt tilbúin
til hjálpar hvort sem voru skímir,
fermingar eða aðrar athafnir en þó
var hún stærst er sorgin knúði dyra
eða einhver átti hér í sveit við erfíð
veikindi að stríða.
Anna var í 12 ár formaður kven-
félagsins. Undir hennar stjórn
dafnaði félagið og varð eitt virkasta
afl hér í hinum margvíslegu menn-
ingarmálum. Anna var í mörg ár
kennarj við bamaskólann í Reyk-
holti. í því sem öðrum störfum
sínum náði hún undraverðum
árangri. Með festu og myndarskap
hélt hún uppi aga í starfínu. Þar
þurfti hún engin stór orð en allir
sáu er henni mislíkaði eitthvað.
Þeim Guðmundi Óla og Önnu varð
ekki barna auðið en hún átti mörg
samt, börn sem hún fylgdi frá skírn
um skólann og síðan út í lífíð. Úr
fjarlægð fylgdist hún síðan með
þessum ungu vinum sínum, tilbúin
til að rétta þeim hjálparhönd er eitt-
hvað bjátaði á.
En skjótt getur sól bmgðið
sumri. Fyrir rúmum þremur ámm
kenndi Anna fyrst þess meins sem
nú hefur endanlega sigrað. Þessi
þijú ár hafa verið öllum vinum
þeirra hjóna erfið, en mest hefur
það þó mætt á eiginmanni og systr-
um hennar og öðmm íjölskyldu-
meðlimum. En Anna þurfti ekki að
kvíða dauðanum. Með trú sína á
frelsara vorn, gekk hún móti örlög-
um sínum. Þar átti hún góða
heimkomu vísa því eins og maður
sáir, uppsker hann á efsta degi. Á
þessum erfiðu tímamótum sendum
við fjölskyldan í Úthlíð samúðar-
kveðjur til Guðmundar Óla og
fjölskyldu Önnu. Um leið þökkum
við samfylgdina. Minningin um góð-
an vin lifir. Björn og Ágústa
Fyrst heyrði ég hennar getið af
afspurn þegar rætt var um upp-
byggingu sumarbúða KFUK í
Vindáshlíð. Það var sérstaklega til
þess tekið að í hópi þessara ungu
kvenna, sem með miklum dugnaði
og atorku byggðu upp aðstöðuna
undir Vindásnum, hefði verið ein
sem hefði meira að segja tekið að
sér að stjóma stærðartrukki sem
fenginn var til þess að flytja bygg-
ingarefni í húsið eftir troðningum
og vegleysum. Aðdáun þeirra leið-
toga minna í unglingadeild KFUM
í Langagerði var augljós á kjarkin-
um og áræðinu þegar þeir sögðu
okkur strákunum frá þessu og
bættu svo við, að nú væri þessi
kona prestsfrú fyrir austan fjall.
Mér þótti þetta vera merkileg
prestsfrú og einhvem veginn gróp-
aðist þessi mynd í hugann og
persónan vakti forvitni mína. Það
er svo ekki fyrr en nokkmm ámm
síðar sem ég kynnist þessari prests-
frú sem reyndist vera föðursystir
Elínar, konu minnar, Anna Magn-
úsdóttir kennari og kona sóknar-
prests Tungnamanna, sr.
Guðmundar Óla Ólafssonar í Skál-
holti.
Við fómm fljótlega að venja kom-
ur okkar austur. Það var engin
nýlunda fyrir Elínu. Frá sjö ára
aldri og fram að fermingu hafði hún
verið öll sumur og flest skólafrí hjá
Önnu og Guðmundi Óla eða lengst
af þeim tíma sem þau bjuggu á
Torfastöðum áður en þau fluttu í
Skálholt. Hjá þeim átti hún sitt
annað heimili. Það breyttist ekki
þótt við væmm orðin tvö og síðan
sex. Það var sama rúm fyrir mig
og dætur mínar á því heimili og var
fyrir móður þeirra.
Myndin óljósa sem ég hafði gert
mér sem unglingur af þessari konu
tók að verða fyllri. Nú á kveðju-
stundu ætla ég mér ekki að draga
þessa mynd upp. Til þess fínn ég
mig vanbúinn. Hvorki orðsins list
né önnur er mér svo töm að sæmdi.
En á þessum rúmlega 20 ámm frá
því ég heyrði hennar fyrst getið
breyttist afstaða mín úr óljósri for-
vitni í aðdáun og væntumþykju sem
orð fá ekki lýst. Kjarkurinn og
þrautseigjan (sem komu fram við
tmkkstjómun í Kjósinni) vom hluti
af baráttu hennar fyrir lífinu við
sjúkdóma allt frá bamsaldri er hún
fékk berkla og var yngsti sjúkling-
urinn í Vífílsstaðaspítala fyrstu
unglingsár sín. Með hjálp nýrra
meðala og góðra manna náði hún
að sigrast á þeim sjúkdómi þó að
tæki á þriðja tug ára. Rúm þijú ár
tók svo síðasta glíman við annan
skaðvænan sjúkdóm sem hefur
hetjað á mannkynið undanfama
áratugi og enn hafa ekki fundist
nægilega góð lyf við. Þó vonuðum
við öll í lengstu lög að Guð gæfí
að sá dagur rynni að frétt bærist
til landsins, eins og fréttin sem
sjúklingamir á Vífílsstöðum lásu í
lítilli klausu í einu dagblaðanna
veturinn sem Anna var þar: „Senni-
lega hafa menn fundið upp lyf til
þess að lækna berkla," en í stað
berkla stæði allt krabbamein. En
Anna náði ekki að lifa þann dag,
en við biðjum og höldum í vonina.
Það kunni Anna. Trú hennar gaf
henni styrk og von. Fram í andlátið
var hún að skipuleggja morgundag-
inn. Afstaða hennar var ólík afstöðu
Marteins Lúthers sem sagðist
planta eplatré í garð sinn í dag
þrátt fyrir að hann gerði ráð fyrir
síðasta degi á morgun.
Með Önnu í þessu lútherska
æðmleysi stóð Guðmundur Óli sem
stoð og stytta í sjúkdómsraunum
hennar og deildi með henni þeim
styrk og ró sem byggð em á fyrir-
heitum Drottins: „Óttast þú eigi,
því að ég er með þér. Lát eigi hug-
fallast, því að ég er þinn Guð. Eg
styrki þig, ég hjálpa þér, ég styð
þig með hægri. hendi réttlætis
míns.“
Þrátt fyrir þá sjúkdóma sem
Anna mátti líða held ég að fæst
okkar sem minnumst hennar höfum
þá mynd jafnan fyrir augum. Glað-
værðin, alúðin, hreinskilnin og sá
ferski röskleikablær sem henni
fylgdi verða okkur efst í huga. Ást
hennar á fögmm listum og vandað-
ur smekkur hennar tengir hana því
besta og göfugasta sem tengist
kirkjulist og þá sérstaklega Skál-
holtskirkju. Allt það listafólk sem
átt hefur leið í Skálholtskirkju til
að flytja eða njóta listar í þessu
musteri Guðs þekkir þetta. Enda
var heimili þeirra prestshjónanna
þeim jafnan opið og sýndi Anna
ekki ósjaldan í verki þakklæti sitt
með þeim einstaka myndarskap og
rausn sem henni var einni lagið
þegar hún tók á móti gestum á