Morgunblaðið - 03.05.1987, Qupperneq 68

Morgunblaðið - 03.05.1987, Qupperneq 68
Lítið fram- boðaf íslenskum "fcómötum LÍTIÐ af íslenskum tómötum er á markaðnum þó að nokkuð sé síðan fyrstu tómatarnir komu i verslanir. Eftirspurnin er því mun meiri en framboðið. Níels Marteinsson, sölustjóri Sölufé- lags garðyrkjumanna, býst við að meira berist af tómötum í næstu viku. Tómatauppskeran er heldur seinna á ferðinni nú en oftast áður. Tómatarnir kosta nú 280 krónur kílóið í heildsölu, sem þýðir að al- gengt smásöluverð er 365 krónur. ^^Framboð af fersku íslensku græn- '^^eti er að aukast, nú er græn paprika komin á markaðinn, salat, steinselja og radísur. Hlýnandi veður verð- j.ir fram eft- ir vikunni Dýpsti snjór í maí- mánuði frá upphafi VEÐURSTOFAN spáði í gær hlýnandi veðri og ætti snjóinn að taka upp um helgina. Snjó- koman á fimmtudag og aðfara- nótt 1. maí er nýtt met á þessum árstíma. Veðurfræðingur lét svo um mælt að enn væri allra veðra von, þó virtist honum vorið ekki langt undan. A föstudagsmorgun mældist Sjórinn 17 cm djúpur fyrir utan Veðurstofuna, sem er nýtt met í maímánuði. Það fyrra var sett 7. maí árið 1923, en þá var 10 cm jafnfallinn snjór. Búist er við að í dag þykkni upp á vestanverðu landinu og gangi á með skúrum. Skýjað verður fram eftir vikunni. Fyrir norðan og aust- an er spáð björtu veðri og að það haldist næstu daga. Vestan- og suðvestanátt verður ríkjandi á landinu. Lægðin kalda, sem olli snjókom- unni, kom af norðlægum slóðum og hélt áfram ferð sinni suður eftir álfunni. Hún var í gær stödd yfir °j^otlandi. Var hiti þar um 2 gráð- ur, en fyrr í vikunni var allt að 25 stiga hiti á Bretlandseyjum. Morgunblaðið/RAX Vegna uppsagna 190 fóstra, sem tóku gildi 1. mai, verða þijátíu og sjö dagheimili lokuð á mánudag og starfsemi á ellefu heimilum raskast. Þessi mynd var tekin í Grænuborg en þar mun starfsemin raskast að einhveiju leyti næstu daga. Uppsagnir 190 fóstra tóku gildi 1. maí: Fóstrur bíða afgreiðslu borgarráðs á sérkröfum Sérkröfur gulltryggðar, segir Bergur Felixson hjá Dagvistun barna DAGHEIMILUM við Borgarspítalann var lokað í gær vegna uppsagna 80% starfandi fóstra hjá Reykjavíkurborg, sem tóku gildi 1. maí, og eru það fyrstu heimilin sem loka af þeim sök- um. A mánudag loka þijátíu og sjö dagheimili og hefur foreldrum barnanna verið tilkynnt að ekki verði tekið við börnunum fyrr en tekist hefur að manna heimilin á ný. í kvöld, sunnudagskvöld, halda fóstrur í Reykjavík fund og ræða sín mál. „Það liggur beint við að ekki verður hægt að taka á móti bömum á mánudaginn á þeim þrjátíu og sjö dagheimilum þar sem fóstrur hafa sagt upp störfum, ef uppsagnimar verða ekki teknar til endurskoðun- ar. Við getum ekki einu sinni boðið upp á neyðarþjónustu því til þess höfum við ekki starfsfólk. Borgar- yfirvöld hafa sagt sitt og samning- um er lokið frá þeirra hendi," sagði Bergur Felixsson, framkvæmda- stjóri Dagvistar bama. „Fóstrur vitna til kröfunnar um aukinn und- irbúningstíma og stöðu yfirfóstm, sem ég tel að þær geti alveg geng- ið út frá að sé gulltryggt. Þannig var ijallað um þau mál í starfskjara- nefnd og fóstmr látnar vita af því. Þau atriði fara til afgreiðslu í borg- árráði á þriðjudag og verða rædd á fundi í stjóm dagvistar á mánudag. Enda sömdu ríkisfóstmmar um það, sem vitað var að er í pakkanum hjá okkur. Starfsmannafélagið er stórt og það fær enginn lítill hópur í því fram allar sínar sérkröfur í einu stökki. Það er ansi mikil harka hjá fóstmm og þeim finnst hafa tekið of langan tíma að ná fram leiðrétt- ingu á þeirra launum. Nú em þær komnar með þau laun, sem stefnt var að í upphafi samninga, og obb- inn af þeim, til dæmis forstöðu- menn, nær betri samningum heldur en fóstmr í nágrannasveitarfélög- unum.“ „Við neitum að trúa því fyrr en Grindvíkingur GK: Aflaverðmæti 50 millj. á 2 mámiðum Grindavík. LOÐNUSKIPIÐ Grindvíkingur GK frá Grindavík er komið á rækjuveiðar eftir vel heppnaða loðnuvertíð, en aflaverðmæti *kipsins varð tæpar 50 millj. frá því verk- fall sjómanna leystist til loka loðnuvertíðar. Að sögn Björgvins Gunnarssonar útgerðar- stjóra skipsins fóm fjórir mánuðir á síðasta ári í gagngerar breytingar á skipinu, en því var breytt í frystiskip með möguleikum til tog- veiða. Á tæpum 8 mánuðum ársins 1986 skilaði skipið tæpum 70 milljónum króna í aflaverð- mæti, en af því vom frystiafurðir, rækja, loðna og loðnuhrogn, um 55 milljónir króna. Frá því að verkfalli sjómanna lauk í janúar sl. gekk loðnuvertíðin mjög vel og landaði skipið 330 tonnum af frystum loðnuhrognum og lætur nærri að aflaverðmætið fram til 1. apríl eða í tvo og hálfan mánuð sé um 50 milljónir króna. Björgvin sagði að nú væri skipið farið til rækju- veiða sem væntanlega standa til haustsins eða þar til næsta loðnuvertíð byijar. „Ég er mátu- lega bjartsýnn á rekstur skipsins á þessu ári,“ sagði harm að lokum. — Kr.Ben. Skipveijarnir á Grindvíkingi GK að taka rækjutrollið um borð. Morgunblaðið/Kr.Ben. á rejmir að ekki sé vilji hjá öllum til að leysa málið," sagði Margrét Pála Ólafsdóttir fóstra um þá ákvörðun Davíðs Oddssonar borg- arstjóra, að viðræðum við fóstmr væri lokið. „Ég held að verið sé að gera úlfalda úr mýflugu. Að málið sé komið í harðan hnút er ekki rétt frá sjónarhóli fóstra. Við teljum ekki vera slíkt ógnarmál sem beri á milli. Stjóm dagvistar og borgar- ráð eiga eftir að ijalla um sam- komulag starfskjaranefndar og atriði eins og stöður yfirfóstra, aukningu á starfsmannafundum úr 12 í 20 klukkustundir á ári og auk- inn undirbúningstíma. Niðurstaða þeirra mun hafa áhrif á okkar af- stöðu. Önnur mál, sem ber á milli, em alls ekki stórvægileg." Margrét Pála sagðist ekki hafa trú á að hægt væri að fylla stöður þeirra 190 fóstra sem sagt hafa upp. Hingað til hefði verið skortur á fóstmm á dagheimilum og erfið- lega hefði gengið að ráða ófaglært fólk til starfa. Auk þess treysta fóstmr sóknarfólki á dagvistar- heimilum til að ganga ekki í störf fóstra. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins munu þær fóstrar, sem sagt hafa upp störfum en mæta til starfa á mánudagsmorgun, halda öllum sínum réttindum eftir að hafa skriflega fallið frá uppsögn. Aðrar fóstmr verða ráðnar samkvæmt auglýsingu og fá þá laun sín greidd eftirá. SUNNUDAGUR 3. MAÍ 1987 VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR. V/SA ser
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.