Morgunblaðið - 13.05.1987, Síða 1
56 SIÐUR
STOFNAÐ 1913
106. tbl. 75. árg.__________________________________MIÐVIKUDÁGUR 13. MAÍ 1987 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Malta:
Ný ríkisstjóm
sest að völdum
Valetta, Möltu, Reuter.
EDWARD Fenech Adami, leiðtogi Þjóðernisflokksins, sór í gær
embættiseið forsætisráðherra Möltu. Flokkur hans vann sigur í þing-
kosningum á laugardag og var þar með bundinn endi á 16 ára stjórn
Verkamannaflokksins.
Þjóðemisflokkurinn sem er
hægrisinnaður hlaut 50,57 prósent
atkvæða og játaði Carmelo Mifsud
Bonnici, leiðtogi Verkamanna-
flokksins og fyrrum forsætisráð-
herra, ósigur snemma í gær er
úrslitin lágu fyrir. „Beitið ekki of-
beldi og látið ekki etja ykkur til
óhæfuverka," sagði Bonnici í ávarpi
til stuðningsmanna sinna en átök
og róstur hafa löngum sett svip
sinn á kosningar á Möltu. Adami
forsætisráðherra hvatti til einingar
og þjóðarsáttar í ávarpi sínu og
boðaði bætt samskipti við ríki Evr-
ópu og Bandaríkin.
Mikil gleði ríkti meðal stuðnings-
manna Þjóðemisflokksins. Þegar
úrslitin lágu fyrir flykktust þeir út
á götur og torg. Vom veggspjöld á
vegum Verkamannaflokksins rifin
niður þar sem til þeirra náðist og
réðist lýðurinn að einni skrifstofu
Vopnasölumálið:
Milljónir
dalaá
rangan
reikning
Washington, Reuter.
TÍU milljóna dala greiðsla frá
soldáninum í Brunei til
kontra-skæruliða í Nicaragua
var lögð inn á rangan reikn-
ing í banka i Sviss. Eigandi
reikningsins tók peningana
út og hefur bankinn höfðað
mál gegn honum, að sögn
Daniels Inouye, annars for-
manns þingnefndanna sem
stjórna vitnaleiðslum í vopna-
sölumálinu.
í skýrslu Tower-nefndarinn-
ar, sem rannsakaði vopnasölu
Bandaríkjastjómar til írans, er
þess getið að Oliver North
ofursti hafi látið soldáninum í
Bmnei í té númer á leynilegum
bankareikningi í Sviss. í gegn-
um þann reikning mnnu leyni-
legar greiðslur til skæmliða en
nefndinni tókst ekki að gera
grein fyrir hvað orðið hefði af
greiðslunum frá Brunei. „Við
vitum nú að tíu milljónir dala
vom lagðar inn á reikning í eigu
einstaklings hjá Credit Suisse-
bankanum og að eigandinn tók
greiðslumar út,“ sagði Inouye.
Lát hann þess ennfremur getið
að ekki væri enn ljóst hvort
North ofursti hefði ruglast á
reikningsnúmemm eða hvort
mistökin hefðu átt sér stað í
bankanum.
Sjá cinnig „Viðurkennir
fjárútvegun ...“ á bls. 24.
Verkamannaflokksins og herma
fréttir að 30 manns hafi slasast í
þeim átökum. Bflstjórar þeyttu hom
sín af krafti og púðurkerlingar
spmngu í síbylju. Þúsundir stuðn-
ingsmanna Adamis fögnuðu ákaft
eftir að hann hafði svarið embætti-
seiðinn. Búist er við að hann til-
kynni um skipan ríkisstjómar
sinnar í dag, miðvikudag.
Sjá einnig „Batt enda á . . .“
á bls. 25.
Stuðningsmenn Þjóðernisflokksins á Möltu fagna sigri.
Reuter
Langdrægar kjarnorkuflaugar risaveldanna:
Sovétmenn selja geim-
vamir á oddinn að nýju
Moskvu, Róm. Reuter.
SOVÉTSTJORNIN hyggst leggja fram drög að samkomulagi um lang-
drægar lgarnorkuflaugar þar sem ennfremur verður kveðið á um
bann við því að komið verði fyrir vopnum í geimnum. Að sögn Yulis
Vorontsov, helsta samningamanns Sovétstjómarinnar, er gert ráð
fyrir helmingsfækkun langdrægra flauga líkt og Bandaríkjamenn
hafa þegar lagt til. Að sögn Gennadys Gerasimov, talsmanns sovéska
utanríkisráðuneytisins, er það tilboð ekki aðgengilegt þar sem það
tekur ekki til geimvopna.
Gennady Gerasimov sagði í gær
að samningsdrög þau sem Banda-
ríkjamenn lögðu fram í Genf í
síðustu viku hefðu verið tekin til
rækilegrar skoðunar og að þau væru
ekki í samræmi við niðurstöður fund-
ar leiðtoga stórveldanna í Reykjavík.
Sagði hann leiðtogana hafa orðið
ásátta um að fækka langdrægum
kjamorkuflaugum um helming á
fimm árum en í tillögum Bandaríkja-
manna væri gert ráð fyrir að því
marki yrði náð á sjö árum. Að auki
sagði hann Sovétstjómina ekki geta
fallist á að fjöldi kjamaodda í hverri
eldflaug yrði takmarkaður. Mestu
sagði hann þó skipta að ekki væri
gert ráð fyrir takmörkunum varð-
andi geimvopn. ítrekaði hann enn á
ný það sjónarmið Sovétmanna að
geimvamaráætlun Bandaríkja-
stjómar bryti í bága við ABM-
samkomulagið frá 1972 um
takmörkun gagneldflaugakerfa. Yuli
Vorontsov, sem staddur er í Róm
og hefur átt viðræður við þarlenda
ráðamenn, sagði að tillögur Banda-
ríkjamanna yrðu skoðaðar nánar og
þeir þættir dregnir út sem unnt
væri að semja um. Varðandi meðal-
drægar kjamorkuflaugar í Evrópu
kvaðst Vorontsov telja að samkomu-
lag gæti legið fyrir í september á
þessu ári. Gagnrýndi hann ríki Vest-
ur-Evrópu fyrir að hafa ekki svarað
tillögum Sovétmanna um uppræt-
ingu skammdrægra flauga.
Jacques Chirac, forsætisráðherra
Frakklands, er væntanlegur til
Moskvu á morgun, fimmtudag.
Hann fékk heldur kaldar kveðjur í
gær í dagblaðinu Izvestia sem sak-
aði hann um að reyna að spilla fyrir
viðleitni Sovétstjómarinnar. Sagði
blaðið að franska ríkisstjómin hefði
ekki lagt fram neinar tillögur varð-
andi Evrópuflaugamar og að fransk-
ir ráðamenn gerðu hvað þeir gætu
til að telja Bandaríkjastjóm á að
vísa tillögum Sovétmanna á bug.
Neyðarástand í Sómalíu
Reuter
Þrjár milljónir Sómalíubúa líða nú hungur sökum langvarandi þurrka
sem fellt hafa búfénað þeirra. Eriendir blaðamenn tóku mynd þessa
nærri bænum Dusa Mareb í miðju landinu. Blaðamennimir tóku bar-
nið sem liggur til vinstri á myndinni með sér og komu því í sjúkrahús.
Svíþjóð:
Flýja Lappar land
vegna geislavirkni?
Stokkhólmi, Reuter.
SÆNSKIR Lappar íhuga nú margir hverjir að setjast að í Kanada,
að sögn eins talsmanns þeirra. Ástæðan er sú að þeir óttast að eftir-
spurn eftir hreindýrakjöti muni dragast verulega saman vegna
geislavirkni sem mælst hefur í því og rakin hefur verið til kjarnorku-
slyssins í Chernobyl í Sovétríkjunum.
Síðasta haust var 90.000 hrein-
dýmm í eigu Lappa slátrað en
einungis fjórðungur framleiðslunnar
fór til manneldis. Þar sem afgangur-
inn af kjötinu reyndist geislavirkur
umfram hættumörk var hann ýmist
grafinn í jörðu eða notaður í dýrafóð-
ur. í síðustu viku ákvað sænska
ríkisstjómin að hækka verulega
mörk leyfilegrar geislavirkni í kjöti
og fiski og var það von manna að
þannig mætti bæta hag Lappa.
Að sögn talsmanns þeirra em
Lappar almennt mjög ósáttir við
þessa ákvörðun stjórnarinnar þó svo
búist sé við að 75 prósent hreindýra-
kjötsins verði dæmt hæft til
manneldis í ár. „Hættan er sú að
neytendur taki að álíta hreindýrakjöt
hættulegra en annan mat í kjölfar
þessa,“ sagði Jorgen Bohlin, tals-
maður samtaka Lappa. Kvaðst hann
því telja líklegt að eftirspurn eftir
hreindýrakjöti myndi dragast sam-
an. Sagði hann stjórina hafa heitið
stuðningi sínum en ekki væri ljóst
hvort Löppum yrðu greiddar skaða-
bætur ef eftirspumin minnkaði.
Að sögn Bohlins hafa Lappafjöl-
skyldur í Norður-Svíþjóð fengið boð
frá landeiganda nokkmm í Bresku
Kólombíu í Kanada um að setjast
þar að. Gat hann þess að það væri
auðveldlega unnt að flytja hjarðir
hreindýra til Kanda með flugvélum
og að samtök Lappa hefðu þegar
farið fram á nánari upplýsingar um
land það sem í boði væri. „Hvers
vegna skyldum við ekki flytja til
Kanada ef ekki er um neitt annað
að ræða," sagði hreindýrahirðirinn
Leif Larsson. „Menning og lífshætt-
ir Lappa em í húfi og frekar fer ég
óravegu en að láta af hreindýrabú-
skap,“ bætti hann við.