Morgunblaðið - 13.05.1987, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 13.05.1987, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1987 m Roy Samuelsen, óperusöngvari Ég syng mér tíl skemmtunar -segir Roy Samuelsen, sem heldur tónleika í Islensku óperunni í kvöld. Kópavogur: Bæjarlistamenn út- nefndir í fyrsta sinn Heiðurslaun til Sigfúsar Halldórssonar tónskálds LISTA- og menningarráð Kópa- vogs tilnefndi Björgvin Pálsson myndasmið og Björgvin Gylfa Snorrason myndhöggvara, fyrstu bæjarlistamenn Kópavogs á af- mælisdegi kaupstaðarins 11. maí siðastliðinn. Þeir þiggja starfslaun í sex mánuði hvor. Við sama tæki- færi var Sigfúsi Halldórssyni tónskáldi og listmálara veitt heið- urslaun bæjarins, sem listamanni. Þóranna Gröndal formaður lista- og menningarráðs sagði um leið og hún afhenti listamönnunum viður- kenninguna, að listin hefði verið samofin lífinu frá upphafí vega. „Listamenn hafa löngum búið við kröpp kjör án þess að hljóta viður- kenningu," sagði Þóranna. „Með þessum starfslaunum er sýndur vilji til að styðja við bakið á þeim.“ Hún sagði það mikið ánægjuefni að Kópa- vogur væri fyrsti kaupstaður utan Reykjavíkur sem styddi þannig við listamenn. „Mér er orðvant," sagði Sigfús Halldórsson, sem talaði fyrir hönd listamannanna. „En þakklætið er mikið fyrir þann heiður sem okkur er sýndur." Sigfús hefur verið búsett- ur í Kópavogi um árabil og í álitsgerð dómnefndar segir að: „Hann hefur samið fjölda laga sem eru á hvers Morgunblaðið/Einar Falur Þóranna Gröndal formaður Lista- og menningarráðs Kópavogs af- hendir Björgvini Pálssyni myndasmið, Björgvini Gylfa Snorrasyni myndhöggvara og Sigfúsi Halldórrsyni tónskáldi og listmálara viður- kenningu og heiðurslaun Kópavogs, fyrir listsköpun. manns vörum eins og kunnugt er og haldið myndlistarsýningar víðsvegar um landið." Björgvin Pálsson, hefur haldið tvær einkasýningar á ljósmyndum og að auki tekið þátt í fjölda samsýn- inga. Hann hefur lagt mikla rækt við Gumbicroaðferð og á Regan Banda- ríkjaforseti meðal annars mynd sem hann vann með þeirri aðferð. Björgvin Gylfi Snorrason mynd- höggvari útskrifaaðist úr mynd- höggvaradeild Myndlista- og handíðaskóla íslands árið 1974 oc stundaði nám við Akademie der bild- enden Kiinste í Munchen frá 1974 til 1980. Með náminu starfaði hann sem aðstoðarkennari frá árinu 1976 til 1980 og síðar sem gestakennari við Listaakademíuna í Kaupmanna- höfn. Björgvin Gylfí hefur haldið einkasýningu í Nýlistasafninu og að auki tekið þátt í flölda samsýninga hér á landi og erlendis. Hann mun nýta sinn starfstíma til að kanna þau svæði í Kópavogi, sem fyrirhuguð eru undir listaverk og gera líkön af þeim. ið sönglist síðustu árin. Hann hóf söngnám í Þýskalandi, en þar var hann i ameríska hernum. Kenn- ari hans þar var Joseph Heuler í Wurzburg. Hann stundaði nám við Brigham Young háskólann og háskólann í Inidiana, þar sem hann er nú kennari. Auk þess hefur hann gráður frá Merola Óperuskólanum í San Fransisco og Academy of the West í Santa Barbara í Kaliforníu. Samuelsen þykir skara fram úr sem Wagner söngvari, en hann hefur einnig lagt fyrir sig að syngja þyngri bassa—barriton hlutverk í ítölskum og slavneskum óperum. Hann vann ungur að árum söngva- keppnir Metropolitan óperunnar og operunnar í San Francisco og hefur komið fram í, um það bil, 75 hlut- verkum í óperum og óratorium víðs vegar um heiminn. Ágóðinn af tón- leikum hans hér renna til íslensku óperunnar. Blaðamaður Morgun- blaðsins átti við hann stutt spja.ll um ferð hans til Islands og tónleika hér. „Ég er í launuðu fríi frá skólan- um og nota það frí til að ferðast." sagði Roy Samuelson." „Ég átti leið um ísland og fannst alveg tilva- lið að stoppa, vegna þess að ég á marga góða vini hér. Og þá sérstak- lega Halldór Hansen. Þegar hann vissi að ég var að koma, stakk hann upp á því að ég héldi tónleika til styrktar íslensku óperui ni og afþví mér finnst ákaflega gaman að syngja, var ég strax til í það. Það er ekki rétt að ég fái sjálfur ekkert fyrir að syngja þessa tónleika. Ég fæ eina máltíð á Kaffivagninum. Það finnst mér skemmtilegur stað- ur. Það er alveg sérstök stemming yfir honum og öllu umhverfi hans. Þessa tónleika kem ég til með að flytja tvisvar í Bandaríkjunum í haust. Annars geri ég lítið af því að halda tónleika, því ég er fyrst og fremst óperusöngvari. Ég geri þetta fyrst og fremst mér til skemmtunar." Sem fyrr segir, eru tónleikar Roy Samuelsen í kvöld og á efnis- skránni eru þtjú verk eftir H“andel, óperuaría úr Töfraflautunni eftir Mozart, þijú verk eftir Schubert, þrír Brahmssöngvar, sex Grieg- söngvar óg að lokum Credo úr Otello eftir Verdi. Undirleikari á tónleikunum er David Knowles. ROY Samuelsen, óperusöngvari frá Bandarikjunum heldur tón- leika í íslensku óperunni i kvöld. Samuelsen er fæddur og uppal- inn í Noregi, en flutti á unglings- árunum til Bandaríkjanna. Hann er nú prófessor við söngdeild háskólans i Indiana, en þar hafa nokkuð margir íslendingar num- Eyjólfur Bjami Alfreðsson víólu- leikari. Burtfar- arprófs- tónleikar TÓNLISTARSKÓLINN í Reykjavík heldur burtfarar- prófstónleika miðvikudaginn 13. mai kl. 20.30 i húsakynnum skól- ans i Skipholti 33. Á þessum burtfararprófstónleik- um flytur Eyjólfur Bjami Alfreðs- son víóluleikari verk eftir J.S. Bach, Beethoven, Áskel Másson og Emest Bloch. Catherine Williams leikur með á píanó. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Dregið í bygg- ingar happdrætti Þroskahjálpar DREGIÐ hefur verið í bygging- arhappdrætti Þroskahjálpar á Vesturlandi. Vinningar kómu á eftirtalin núm- en 2665, 4178, 1280, 3847, 4596, 3926, 2860, 1504, 3295, 2265, 3718, 1243, 1242, 194, 3556. Vinningsnúmer em birt án ábyrgðar. NÝKOMINN Dregið í Happ- drætti HSÍ Dregið var í happdrætti Handknattleikssambands ísiands á mánudaginn. Vinningsnúmerin, sem eru 500 talsins, verða birt á morgun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.