Morgunblaðið - 13.05.1987, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 13.05.1987, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1987 25 Nýr forsætisráðherra á Möltu: Batt enda á sextánára vinstri stjóm EDWARD Fenech Adami sór í gær embættiseið forsætisráðherra á Möltu og hefur hann hvatt eyjar- skeggja til einingar. Fenech Adami, sem er 53 ára gamall lög- fræðingur, var í framboði fyrir Þjóðemisflokkinn og tekur hann við völdum af Verkamannaflokkn- um, sem hefur setið sextán ár við stjóravölinn. þar var herstöð Atlantshafsbanda- lagsins. Adami komst til valda í flokknum árið 1977 og hafði fram að því verið lítt þekktur. Þjóðemisflokkurinn hef- ur hingað til notið fylgis eldri og íhaldsamari kynslóða, en fyrsta verk Adamis var að höfða til fleiri og beindi hann sérstaklega spjótum sínum að konum og ungu fólki. „Við erum ein þjóð,“ sagði Adami eftir tveggja mánaða, harða kosn- ingabaráttu, sem lyktaði með því að flokkur hans vann nauman sigur í kosningunum á laugardag. Adami gladdist mikið yfír þessum árangri, enda kveðst hann hafa verið rændur sigri í síðustu kosningum. Þá hlaut Þjóðemisflokkurinn 51 af hundraði atkvæða, en aðeins 31 af 65 sætum á þingi. Þjóðemisflokkurinn hlaut nú 50,57 af hundraði atkvæða, en sam- kvæmt nýjum kosningalögum nægir meirihluti til þess að mynda stjóm. Adami lýsti yfir því að hann myndi eiga náið samstarf við fráfarandi forsætisráðherra, Carmelo Mifsud Bonnici, leiðtoga Verkamanna- flokksins. Með þessu vildi Adami koma í veg fyrir átök af pólitískum toga og mýkja lund tapsárra and- stæðinga sinna. Þess má geta að Adami og Bonnici em jafnaldrar og starfsbræður. Þeir útskrifuðust samtímis frá háskólan- um í Möltu og vom góðir kunningjar á námsámm sínum. Búist er við að Adami treysti sam- skipti Möltu við vestræn ríki, en Bonnici og forveri hans, eldhuginn Dom Mintoff, fylgdu hlutleysisstefnu í þeim efnum. Adami sagði við blaðamenn á mánudagskvöld að nú tæki við tími aukins samráðs við þjóðinna og við- jamar yrðu leystar af einkageiran- um. Maltayrði fylgjandi Evrópu, vildi eiga vinsamleg samskipti við Líbýu- menn og á sama tíma leita sátta við Bandaríkjamenn. Adami er algerlega andvígur kom- múnisma. Hann er þeirrar hyggju að Malta þurfi að efla samskipti við vestræn ríki bæði á sviði efnahags- og vamarmála. Hann vill einnig nán- ari tengsl við Evrópubandalagið. Adami greiddi aftur á móti at- kvæði með tillögu stjómar Verka- mannaflokksins um að setja ákvæði í stjómarskránna um að Malta væri sjálfstætt og óháð ríki. Hann hefur lýst yfir því að aldrei aftur muni erlent herlið fá að setjast að á eynni. Malta var eitt sinn breskt vígi og Frakkland: Fjöldi manns fylgist með réttarhöldunum yfir Klaus Barbie. Reuter Barbie er hneykslað- ur á athygli fjölmiðla Lyon, Reuter. KLAUS Barbie, fyrrum Gestapo- foringi, sem nú er fyrir rétti í Lyon sakaður um glæpi gegn mannkyninu, hefur látið í ljósi hneykslan á athygli þeirri er fjöl- miðlarnir sýna réttarhöldunum, að sögn verjanda hans, Jacques Verges. Um 700 blaðamenn eru komnir til Lyon til þess að fylgjast með réttarhöldunum og var fyrstu mínútum réttarhaldanna sjónvarp- að beint. Þá hafa ljósmyndarar verið aðgangsharðir. Verges sagði einnig að Barbie væri undrandi á atburðum er tengja mætti réttar- höldunum s.s. því að Jacques Chirac, forsætisráðherra, skyldi hvetja til þess nýlega að tekin yrði upp fræðsla í frönskum skólum um gyðingaofsóknir nasista og Vichy- stjómina, er stjómaði Frakklandi að nafninu til á stríðsárunum. Er rettarhöldin hófust neitaði Barbie að gefa upp rétt nafn en sagðist heita Klaus Altmann, sem er nafn er hann tók upp eftir stríð er hann starfaði um skeið fyrir bandarísku leyniþjónustuna. Er- hard Dabringhaus, fyrrverandi starfsmaður leyniþjónustunnar, er í Lyon til þess að bera vitni og sagði við fréttamann Reuters í gær að eftir styijöldinna hefði hann not- fært sér aðstoð Andskotans sjálfs, ef slíkt hefði staðið til boða og því Stokkhólmur. Frá Erik Liden, fréttaritara SKÝRSLA, unnin á vegum sænska dómsmálaráðuneytisins, var gefin út í Stokkhólmi í gær. Eru i henni tilgreind margs konar mistök er sænskum lögregluyfirvöldum urðu á nóttina sem Olof Palme, fyrrurn forsætisráðherra, var myrtur. Segir þar að lögreglan hafí ekki gefið út allsheijarviðvörun til allra lögreglu- stöðva og ekki hefðu verið settar upp umferðatakmarkanir í grennd við morðstaðinn. Einnig hefði láðst að vakta flugvelli og aðra staði er ódæð- ismenn hefðu getað farið um á leið sinni úr landi. Listar yfir helstu ráða- menn þjóðarinnar og leiðbeiningar um hefði hann feginn notfært sér hjálp Barbies. Bandaríkjamenn hjálpuðu Klaus Barbie síðan að komast und- an til Bólivíu, en hann var tvisvar dæmdur til dauða i Frakklandi að sér fjarstöddum á sjötta áratugn- um. Yfirvöld í Bólivíu framseldu hann síðan til Frakklands árið 1983. Fyrstu tveir dagar réttarhald- anna hafa aðallega farið í að lesa upp hina hræðilegu glæpi sem Barbie er sakaður um. Hefur hann setið svipbrigðalaus í salnum og hlustað. Komið hefur fram að Barbie virðist ekki fínna til neinnar sektarkenndar vegna þess sem hann hefur gert. Samkvæmt frönskum lögum er lífstíðarfangelsi nú þyngsti dómur sem til greina kemur yfir Barbie. Rannsókn Palme-málsins: Místök fyrsta sólar- hringinn afdrifarík MorgTinblaðsins í Svíþjóð. hvernig hægt væri að ná sambandi við þá, hefðu verið ófullkomnir og jafnvel úreltir. Lögreglan hefði t.d. ekki vitað símanúmer í veiðikofa þar sem Karl Gústaf, Svíakonungur, dvaldi. Nefndin er vann þessa skýrslu mun nú hefja athugun á störfum lög- reglunnar eftir að sérstakur starfs- hópur undir stjóm Hans Holmer, lögreglustjóra Stokkhólms, tók við rannsókn morðmálsins. Heimildir herma að athygli lögreglunnar beinist nú mest að hægri sinnuðum öfga- mönnum er hagað hefðu sér grunsam- lega morðnóttina. Þá mun lýsing á hugsanlegum morðingja hafa verið send öllum lögreglustöðvum í Svíþjóð. ■ Cylinda þvottavélar ★ sænskar og sérstakar Fá hæstu neytendaeinkunnir fyrir þvott, skolun, vindingu, taumeðferð og orkusparnað. Efnis- gæði og öryggi einkenna ASEA. Þú færð ekki betri vélar! ara ábyrgð jFOmx HATUNI 6A SlMI (91)24420 Skipstjórar og útgerðarmenn rækjubáta Flestar stærðir af rækjupokum m.a.: 18 kg stærð: 50 x 80 cm 21 — — 60 x 80 cm 33 — — 60 X 100 cm Einnig höfum viö á boðstólum Union Special pokalokunarvélar, sem Rafmagnseftirlit ríkis- ins hefur viðurkennt til notkunar um borð í bát- um. Varahlutir og viðgerðarþjónusta er hjá Pfaff hf. Kynnið ykkur verö og gæði. Baldur s.f., Stokkseyri s. 99-3310
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.