Morgunblaðið - 13.05.1987, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 13.05.1987, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1987 43 II l* 4t,-í Br 8» .*!» -i. I! 1 /v:i» Þekkir þú skólastjórann? Skólastjórafélag íslands (1960—1977) efndi til 8 fræðslu- og kynningarmóta fyrir skólastjómendur, 5 inn- anlands (á Laugum 1963, Laugarvatni 1966, Laugum 1970, Eiðum 1973 og ísafirði 1976) og 3 utanlands (Kungálv, Svíþjóð 1969, Tranbergi, Noregi 1971 ogKung- elv — Try (á Jótlandi) 1971. Þessi mót sóttu alls um 800 manns, og nær 200 fluttu erindi um skóla- og ýmis menningarmál. Fimmtíu manns fluttu tónlist og stærri og smærri kórar komu fram á kvöldvökum. Skólastjórafélag íslands var lagt niður og sameinað FSY — Félagi skólastjóra og yfirkennara — árið 1977. Félagar úr gamla SÍ hugsa til endurfunda um hvíta- sunnuhelgina, dagana 6.—14. júní. Farið verður í hring- ferð um landið, suður, austur og norður um land, allt norður á Strandir (ef veður og vegir leyfa). Kvöldvökur verða haldnar í Nesjaskóla, Eiðum og Laugum. Meðfylgjandi mynd er af þátttakendum í Laugarvatns- mótinu 1966. Lesendur Morgunblaðsins geta spreytt sig á að þekkja skólastjórann sinn. Steinar hf. tryggja sér réttinn á nýjum myndaflokki STEINAR hf. hafa nú tryggt sér myndbandaréttindin á „I’ll Take Manhattan", sem er nýr mynda- flokkur, byggður á samnefndri metsölubók eftir Judith Krantz. Myndaflokkur þessi mun koma út á 4 myndbandasnældum í tvennu lagi. Fyrst koma út fyrsti og annar þáttur og síðan þriðji og fjórði þáttur nokkru seinna. Þættirnir I’ll Take Manhattan eru ekki væntanlegir í sjónvarpi. Vasabrotsútgáfa af I’ll Take Manhattan hefur verið á metsölu- listum um nokkurt skeið og hinn 8 klukkustunda langi myndaflokkur sem gerður hefur verið eftir sög- unni er nú einn sá vinsælasti í bandarísku sjónvarpi. Það var kvikmyndaframleiðand- inn Steve Krantz sem annaðist gerð myndaflokksins en hann er eigin- maður höfundarins Judith Krantz. Þau hafa áður unnið saman að gerð mjmdaflokka eftir sögum Judith og má í því sambandi nefna mynda- flokkinn Dóttir málarans (Mistral’s Daughter) sem naut gífurlegra vin- sælda hér á landi. Judith Krants er margfaldur metsöluhöfundur sem snéri sér að skáldsagnagerð eftir margra ára starf sem dálka- höfundur hjá tímaritunum Good Housekeeping, Cosmopolitan, Úr myndaflokknum „I’U take Manhattan". McCall’s og Ladies Home Joumal. Um tíma starfaði hún einnig sem ritstjóri hjá Cosmopolitan. Meðal þeirra metsölubóka sem Judith Krantz hefur samið er t.d. Princess Daisy og Scruples. I’ll Take Manhattan fjallar um Amberviile-fjölskylduna, sem lifir og hrærist í heimi fjölmiðlanna. Sögusviðið er New York, Lundúnir, San Francisco, Beverly Hills, Monte Carlo og Kanada. (Fréttatilkynning.) Anna Fug- aro sýnir í Menning- arstofnun Banda- ríkjanna ANNA Fugaro opnar sýningu fimmtudaginn 14. maí í sýningar- sal Menningarstofnunar Banda- ríkjanna á Neshaga 16. Á sýningunni, sem er sölusýning, eru ný collage-myndverk um 20 talsins. Sýningin verður opin sem hér segir: virka daga kl. 09.00-17.30, á fimmtudögum til kl. 20.00 og um helgar kl. 14.00-22.00. Sýningunni lýkur þriðjudaginn 26. maí kl. 17.30. Ljúffengt gæðakex! Það ber öllum saman um að GRANOLA heilhveitikexið frá LU er eitt það besta sem þú get- ur vahð, hvort heldur þú velur það með dökkri eða ljósri súkku- laðihúð. ^ EGGERT KRISTJÁNSSON H/F HHi ^^SÍMI 6-85-300
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.