Morgunblaðið - 13.05.1987, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1987
Áhrif upplýsinga-
herferðar um eyðni
Fyrirlestur í Háskólanum á f östudag
FOSTUDAGINN 15. maí nk. kl.
16 flytur breski fjölmiðlafræð-
ingurinn Dr. Mallory Wober
Heyrn og tal
rannsakaðá
Austurlandi
EINAR Sindrason háls-, nef- og
eyrnalæknir ásamt öðrum sér-
fræðingum Heyrnar- og tal-
meinastöðvar íslands verður á
ferð um Austurland dagana 23.
til 28. mai nk.
Heym og tal verður rannsakað
og útveguð heymartæki. Verða sér-
fræðingamir á eftirtöldum stöðum:
Egilsstaðir 23. og 24. maí, Nes-
kaupstaður 25. og 26. maí, Éski-
fjörður 27. maí og Reyðarfjörður
28. maí.
Tekið er á móti tímapöntunum á
viðkomandi heilsugæslustöð og er
fólki bent á að panta tíma sem fyrst.
(Fréttatilkynning)
opinberan fyrirlestur um áhrif
upplýsingaherferðar um eyðni á
vegum félagsvísindadeildar Há-
skóla íslands. Fyrirlesturinn
verður haldinn í stofu 101 í Odda,
húsi félagsvísindadeildar og við-
skiptadeildar.
Dr. Wober, sem er aðstoðafor-
stöðumaður rannsóknadeildar
breska viðskiptasjónvarpsins (IBA),
er víðkunnur á sviði félagslegra
rannsókna á sjónvarpi. Sérsvið hans
eru kannanir á hlutverki sjónvarps-
ins í lífí bama og ungmenna, en
einnig hefur hann látið til sín taka
í deilum fræðimanna um svokölluð
heimsmyndaáhrif sjónvarpsins.
Upp á síðkastið hefur Dr. Wober
m.a. gert tvær kannanir varðandi
eyni þar sem þekking almennings
á þessum sjúkdómi og viðhorf til
hans voru athuguð. Jafnframt voru
könnuð áhrif víðtækrar upplýsinga-
herferðar um eyðni. Niðurstöður
þessara kannana verða umræðuefni
fyrirlestrarins í Odda.
Fyrirlesturinn er öllum opinn.
(Fréttatilkynning.)
Nýtt fræðslurit:
Aldurinn færist yfir
ALDURINN færist yfir — neytið
hollrar fæðu er heiti á nýju
fræðsluriti um mataræði aldr-
aðra, sem Kvenfélagasamband
íslands hefur gefið út. Þetta
fræðslurit var gefið út af Statens
Husholdingsrad í Danmörku árið
1985 og hefur nú verið þýtt og
staðfært á íslensku.
í fréttatilkynningu frá Kvenfé-
lagasambandinu segir að nú á
dögum þegar öldruðu fólki fjölgar
svo ört hafi stjóm sambandsins
þótt æskilegt að sinna óskum til
leiðbeiningar varðandi mataræði og
fæðuvenjur fyrir þann aldurshóp.
Ritið er unnið og samið af sér-
fræðingum í Danmörku og ættu því
engu síður að koma hér að gagni
en þar. Reyndar hefur ritið verið
staðfært lítið eitt að íslenskum að-
stæðum. í því er að finna almenn
ráð um matarval og venjur, tillögur
um morgunmat, miðdegisverð og
kvöldverð. Einnig eru í ritinu tillög-
ur um matseðil fyrir eina viku á
hveija árstíð — vetur, sumar, vor
eða haust. Fjallar einn kaflinn um
geymslu matvæla, annar um melt-
ingartregðu og sá þriðji um ofeldi
og vaneldi.
Ritið „Aldurinn færist yfir" er
fáanlegt á skrifstofu kvenfélaga-
ALDURINN
FÆRIST YFIR
sambandsins á Hallveigarstöðum,
Túngötu 14, og kostar 100 krónur.
Skrifstofan er opin alla virka daga
kl. 14—16. Er það von sambandsins
að ritinu verði dreift sem víðast
meðal aldraðra og að það geti orðið
að liði.
Kvenfélagasambandið hefur gef-
ið út fleiri hagnýt rit, sem fást á
skrifstofunni, svo sem Blettahreins-
un, Svona gerum við er við þvoum
okkar þvott, Matur og hreinlæti,
Nútíma mataræði, Mataræði bama
1—7 ára, Glóðarsteiking, Gerbakst-
ur, Frysting matvæla, Félagsmál
og fundarstjóm og ennfremur Leið-
beiningar um íslenska þjóðbúning-
inn.
Morgnnblaðið/Kr.Ben.
Aðgerð í Þorbirni hf., en flatningsvélamar og fleiri tæki úr vinnslusalnum verða sett um borð í bátana.
Þorbjörn hf. Grindavík:
Tilraunir með pækilsöltun
fisks um borð í veiðiskipi
Grindavík.
TILRAUNIR með pækilsöltun
fisks í körum úti á sjó eru í gangi
hjá Þorbimi hf. í Grindavík þar
sem fyrirhugað er að fiskurinn
verði saltaður um borð í tveim
bátum fyrirtækisins, Hrafni GK
og Hrafni Sveinbjamarssyni GK
í sumar.
Gunnar Tómasson verkstjóri í
Þorbimi hf. sagði fréttaritara
Morgunblaðsins að vegna lélegs
fískirís á vetrarvertíðinni væri mik-
ill þroskkvóti eftir hjá bátum fyrir-
tækisins. I ráði er að tveir bátar,
Hrafn GK og Hrafn Sveinbjamar-
son GK, fari á togveiðar í sumar
og verður aflinn saltaður um borð
enda mikill skortur á saltfíski á
mörkuðum erlendis.
Helsta nýjungin við þessa vinnslu
um borð er að fískurinn verður salt-
aður í kör og honum landað þannig
eftir 15-20 daga. Þeir erfiðleikar
fylgja þessu að fískurinn dökknar
við svo langa legu í pæklinum og
fellur í mati. Tilraunimar hafa
gengið út á það hvort hægt sé að
halda honum ljósum og ef það tekst
hvort saltinnihald fisksins sé þá
nægilega mikið til að stytta frekari
verkun í salti eftir löndun. Fyrir-
hugað er að fiskurinn verði
gæðametinn og pakkaður til út-
flutnings í landi. Að lokum sagði
Gunnar að þetta væri enn á til-
raunastigi og fleiri vandamál þyrfti
að leysa en lit fisksins. Það lofaði
hins vegar góðu sem gert hafi ver-
ið hingað til. — Kr.Ben.
Gunnar og Oddur verkstjórar skoða frágang á köram sem eiga að
vera um borð í 20 daga svo hægt sé að sjá hvernig fiskurinn þolir
veltinginn.
Nýtt íbúðar-
hverfi á Sel-
tj'arnarnesi
HAFNAR em framkvæmdir við
byggingu ibúðarhúsa á nýju
byggingarsvæði á Seltjamamesi
og er fyrirhugað að þar risi 22
hús á næstu þremur ámm.
Nýja byggingarsvæðið er við
Bakkavör og munu þar rísa ein-
býlishús, parhús og raðhús. Að sögn
Einars Norðfjörð, byggingarfull-
trúa, er eftirspum mjög mikil eftir
lóðum á Seltjamamesi og verð
þeirra frá 1-3 milljónir króna með
gatnagerðargjöldum. Þær lóðir,
sem nú verður byggt á, eru allar
seldar og var um eignaijörð að
ræða. Einar sagði að þetta svæði
væri það heillegasta sem nú væri
byggt á , en næsta stóra svæðið
sem færi undir íbúðarhús yrði að
öllum líkindum Kolbeinsstaðamýri.
Þar væri þegar búið að gera skipu-
lag, en eigendur jarðarinnar hefðu
enn ekki selt þar lóðir.
Á því svæði á Seltjamaraesi, sem markast af Bakkavör og Suður-
strönd, munu rísa 22 hús á næstu þremur ámm, einbýlishús, parhús
og raðhús.
Ferðaskrifstofan Farandi:
Umboðsaðili fyrir
Bresíuhérað á Italíu
FERÐASKRIFSTOFAN Farandi
hefur verið útnefnd umboðsaðili
fyrir Brescia Promotur, sem em
samtök þeirra sem starfa að
ferðamálum í Bresíu héraði á
Ítalíu.
Bresíu hérað er á norðanverðri
Ítalíu og á svæðinu er meðal ann-
ars að fínna nánast allt umhverfi
Garda vatns, auk vatnanna Iseo og
Idro og skíðasvæða í sunnanverðum
Ölpunum, svo sem svæðisins Ponte
di Legno. Alls eru á svæðinu um
1200 hótel.
Haraldur Jóhannsson, forstjóri
ferðaskrifstofunnar Faranda, sagði
í samtali við Morgunblaðið að ferða-
skrifstofur og einstaklingar gætu
snúið sér til Faranda varðandi upp-
lýsingar og bókanir. Hann sagði að
í undirbúningi væru skipulagðar
ferðir til svæðisins, meðal annars
ferð fyrir eldra fólk í haust og skíða-
ferð í febrúar í vetur. Að þeim
Frá Bresíu héraði.
ferðum standa auk Faranda, Ferða-
skrifstofa ríkisins, Ævintýraferðir
og ferðaskrifstofa Úlfars Jacobsen.